Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 23
VIÐSKIPTI
Landsbankinn fjárfestir
í íslandssima
Fjármögnun
fyrir um millj-
arð króna
STJÓRNENDUR Landsbanka ís-
lands og Islandssíma undirrituðu í
gær víðtækan samning um frekari
eiginfjárþátttöku Landsbankans í
Íslandssíma. Samkomulagið felur
ennfremur í sér fjármögnun Islands-
síma og stefnumarkandi samstarf
milli félaganna.
Að sögn Halldórs J. Kristjánsson-
ar, bankastjóra Landsbankans, áttu
dótturfélög bankans og tengdir aðilar
fyrir um 38 milljónir að nafnverði í
Islandssíma eða um 10% af heildar-
hlutafé.
I heild er fjármögnunin að upphæð
um milljarður króna. Fjármögnunin
skiptist í þrjá þætti. I fyrsta lagi er
um að ræða útgáfu hlutabréfa að
nafnverði fimm milljónir króna eða
að 80 milljónum að markaðsvirði, en
miðað er við gengið sextán í viðskipt;
um Landsbankans og Islandssíma. I
öðru lagi felst samningurinn að lang-
stærstum hluta í því að Landsbank-
inn semur um fjármögnun á upp-
byggingu Íslandssíma og íslands-
síma GSM með því að undirrita
lánasamning sem má umbreyta í
hlutabréf eftir sex mánuði. Ef
Landsbankinn myndi nýta sér þann
rétt yrði eignarhlutur Landsbanka;
samstæðunnar í kringum 23%. í
þriðja lagi felur samingurinn í sér
áskriftarrétt til handa Landsbankan-
um. Samningurinn er gerður með
fyrirvara um samþykki hluthafafund-
ar Islandssíma hf. sem boðað hefur
verið til 10. október næstkomandi.
Islandssími hyggst í byrjun næsta
árs hefja rekstur eigin farsímakerfis
á íslandi. Þegar hefur verið gengið
frá víðtækum reikisamningi við al-
þjóðaíyrirtækið Concert, sem er í
eigu BT og AT&T. Við sama tækifæri
var undirritaður samningur um kaup
á tækjabúnaði frá Ericsson til rekstr-
ar kerfisins. Samningur Islandssíma
við Landsbankann tryggir fjármagn
tU tækjakaupanna og uppbyggingar
rekstrarins. Islandssími hyggst
bjóða upp á hefðbundna talflutninga
um kerfi sitt, reka talhólf, SMS,
starfrækja WAP-gátt, gagnaflutn-
inga um GPRS-net og fleira. Fram-
tíðarrekstur fyrirtækisins grundvall-
ast einnig á UMTS-staðli fyrir þriðju
kynslóð farsíma. Aðaláhersla í þjón-
ustu fyrirtækisins verður því á að
nota nýjustu tækni til að þróa þráð-
lausar netlausnir fyrir viðskiptavini
sína, sem verða bæði einstaklingar og
fyrirtæki.
Það er einkum með hliðsjón af
þessum áherslum sem Landsbankinn
og Islandssími hafa ákveðið að taka
upp stefnumarkandi samstarf sam-
Morgunblaöiö/Jim Smart
Halldór J. Kristjánsson og Eyþór Arnalds handsala sanininginn.
fara fjármögnun og eiginfjárþátttöku
Landsbankans og leggja áherslu á
gagnkvæm viðskipti sín á milli. Fé-
lögin munu ásamt öðrum samstarfs-
aðilum sínum vinna saman að þróun
og uppbyggingu á sviði fjarskipta- og
hugbúnaðarlausna fyrir banka- og
verðbréfaviðskipti. Þá munu Islands-
sími, Landsbankinn, Landsbréf og
tengd félög og sjóðir vinna náið sam-
an að fjárfestingum í hugbúnaðar- og
fjarskiptafyrirtækjum og skapa sam-
an aðlaðandi umhverfi fyrir starfsemi
á þeim sviðum.
Eðlilegt f ramhald af
fjárfestingarstefnu bankans
Halldór segir að bankaráð
Landsbankans hafi mótað sér þá
stefnu að taka beinan þátt í sam-
starfsfyrirtækjum með eignarhlut til
þess að leysa tiltekna þætti fjármála-
þjónustu sem hluta af þeirri heildar-
fjármálaþjónustu sem Landsbankinn
ætlar að veita. Stefnan sé sú að bank-
inn vilji eiga meirihluta í fyrirtækjun-
um og félögum sem eru í beinum af-
mörkuðum bankarekstri eins og til að
mynda Landsbréf eða The Heritable
and General Investment Bank eða
gera þau að hreinum dótturfélögum.
Þegar bankinn tengist hins vegar fé-
lögum til þess að geta veitt aðra fjár-
málaþjónustu hafi hann gjaman átt á
bilinu 20 til 25% hlutafjár og jafnvel
upp í 40% í sumum tilvikum. Halldór
segir að stjórn bankans telji æskilegt
að eiga um það bil 20 til 25% í slíkum
hlutdeildarfélögum og það sé lang-
tímamarkmið bankans að eiga um
það bil 20% í Islandssíma. Fjárfest-
ing í fjarskiptafyrirtæki sé í raun
mjög eðlilegt framhald af fjárfesting-
arstefnu bankans í félögum sem
tengjast fjármálaþjónustu. Halldór
segir að fyrirsjáanleg sé aukin
samtvinnun banka-, verðbréfa- og
fjarskiptaþjónustu. Landsbanki ís-
lands hafi því tekið ákvörðun um
stefnumarkandi fjárfestingar í
fjarskipta- og hugbúnaðarfyrirtækj-
um með það fyrir augum að styrkja
enn frekar samkeppnishæfni sam-
stæðunnar í alhliða fjármálaþjón-
ustu. Kaup bankans í Íslandssíma
séu hluti af þessari stefnu.
Gengi Íslandssíma
hækkar um 40%
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins var gengi bréfa í íslands-
síma á gráa markaðinum um 10 í síð-
ustu viku, í fyrradag var gengið
komið í 13,5 og í gær urðu viðskipti á
genginu 14. Enda þótt það sé lægra
gengi en miðað er við í samningi
Landsbankans og Islandssíma hefur
gengið engu að síður hækkað um 40%
á um það bil viku. Ef miðað er við
gengið fjórtán má ætla að markaðs-
virði Íslandssíma sé hátt á sjötta
milljarð króna.
Gengi Landsbanka íslands lækk-
aði um 4,7% á Verðbréfaþingi íslands
ígær.
I.AN DSIiRH 1
Pappírinn heyrir brátt sögunni til...
...því öll hlutabréf Landsbanka ísiands verða rafrænt skráð hjá Verðbréfaskráningu íslands hf.
þann 30. október nk. Frá og með þeim degi munu rafbréf leysa pappírshlutabréf af hólmi.
Hlutafjáreignin breytist þó ekkert og veröur eignarhlutur hvers og eins færöur
inn á svokallaöan VS-reikning hjá Veröbréfaskráningu íslands. Reikningurinn
er eins og hver annar bankareikningur og þvi þurfa hluthafar aö velja banka,
sparisjóð eða veröbréfafyrirtæki, sem gert hefur aðildarsamning viö
Veröbréfaskráningu íslands, til aö hafa umsjón meö VS-reikningnum. Þaö gera
þeir einfaldlega meö því aö fylla út umboð, sem sent var til allra hluthafa
í byrjun sumars og fá má í öllum útibúum Landsbankans, og koma því til næsta
útibús okkar.
Hluthafar geta einnig sótt um aö stofnaöur veröi vörslureikningur hjá Landsbréfum
hf. um verðbréfaeign þeirra. Þannig eru verðbréfaviðskiptin öll á einum stað
því Landsbankinn eöa Landsbréf sjá alfariö um VS-reikninginn og hafa milligöngu
um öll viöskipti með rafbréf. Nánari upplýsingar um rafræna skráningu veröbréfa
og VS-reikninginn veitir starfsfólk Landsbréfa i síma 535 2000.
Hluthöfum gefst enn kostur á að koma athugasemdum viö skráningu eignarhlutar
síns á framfæri og er þeim bent á að hafa samband við hlutaskrá Landsbankans
í síma 560 6861 eöa 560 6862 hiö fyrsta.
S
BnmnHEiEBa
Landsbankinn
Betri banki
Opið frá 8 tii 19