Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 25 Global Finance verðlaunar banka Íslandsbanki-FBA opnar þjónustumiðstöð Landsbankinn einn af bestu Ráðgjöf um fasteignaviðskipti ALÞJÓÐLEGA fjármálatímaritið Global Finance hefur útnefnt Landsbanka íslands hf. sem einn af bestu bönkum heims árið 2000. Bankanum var afhent viðurkenning tímaritsins í Prag í tengslum við ár- sfund Alþjóðabankans og Alþjóða- gjald-eyrissjóðsins. Landsbankinn hlaut einnig þessi verðlaun á síðasta ári. í fréttatilkynningu frá Lands- bankanum kemur fram að útnefn- ingin byggi á könnun meðal lesenda tímaritsins og umfangsmikilli rann- sókn meðal helstu notenda banka- þjónustu sem og sérfræðinga sem fylgjast með bankageiranum. Út- nefndur er einn banki í hverju landi. I umsögn tímaritsins um Lands- bankann í októberhefti sínu er vakin sérstök athygli á því að bankinn hafi leitað eftir sameiningu við Búnaðar- banka Islands hf., en sameinaður banki hefði um 311 milljarða heild- areignir og væri að markaðsvirði um 57 milljarðar. í öðru lagi bendir tímaritið á nýleg kaup Lands- bankans á 70% hlut í The Heritable and General Investment Bank Ltd. í London, en það séu ein stærstu ein- stöku hlutabréfakaup íslensks aðila utan íslands. í þriðja lagi bendir tímaritið á mikinn vöxt á Netþjón- ustu Landsbankans. Verðbréfafyr- irtæki Landsbankans, Landsbréf, bjóði nú verðbréfaþjónustu á Net- inu fyrir innlendan markað gegnum Kauphöll Landsbréfa. Þá hafi fyrir- tækið einnig opnað aðgang að bandaríska verðbréfa-markaðnum fyrir viðskiptavini sína í Kauphöll- Sony í vand- ræðum með Play- Station 2 HLUTABRÉF í japanska tækniíyrirtækinu Sony lækkuðu um 6% í gær í kjölfar tilkynning- ar frá fyrirtækinu um að ekki tækist að klára nógu margar PlayStation 2 leikjatölvur sem áætlað var að færu á Banda- ríkjamarkað í næsta mánuði. Þetta kemur m.a. fram á frétta- vef CNN. Talsmaður Sony segir að ekki takist að klára nema 500 þúsund tölvur í tæka tíð vegna þess að varahluti vanti. Áætlað var að ein milljón tölva færu á Banda- ríkjamarkað í október. Þetta hefur mikil áhrif á Sony sem hafði gert ráð fyrir veruleg- um hagnaði af sölu PlayStation 2 fyrir jólin. Varaforstjóri Sony, Jack Tretton, viðurkennir að lík- lega fái ekki allir tölvu sem viiji. Sony mun þó klára 10 milljónir tölva fyrir mars á næsta ári, sem þá fara í alþjóðlega dreifingu, að sögn Tretton. Keppinauturinn Sega sem framleiðir Dreamcast tölvur er talinn geta hagnast verulega á vandræðum Sony. Skotlands- bankibýður inni, en Landsbréf var fyrsta ís- lenska fyrirtækið sem veitti slíka þjónustu. Tímaritið Global Finance var sett á laggirnar árið 1987 og fjallar um málefni alþjóðafyrirtækja og fjármálafyrirtækja. Lesendahóp- ur tímaritsins samanstendur af yfir 300.000 manns úr röðum æðstu stjómenda fyrirtækja, bankastjóra, fjármálastjóra og stefnumarkandi aðila í yfir 185 löndum. ÍSLANDSBANKI-FBA opnar á morgun þjónustumiðstöð þar sem boðið verður upp á þjónustu við fólk sem stendur í fasteignaviðskiptum. Jafnframt mun þjónustumiðstöðin veita ráðgjöf og gera tillögur til lausna á greiðsluerfiðleikum. Þjónustumiðstöð fasteignavið- skipta er fyrsta afsprengi verkefn- isins auður í krafti kvenna en konur innan bankans sem tóku þátt í því verkefni komu með hugmyndina og unnu að þróun hennar. Þjónustumiðstöðinni er ætlað að auðvelda fólki fasteignaviðskipti með því að útvega gögn og veita ráðgjöf um allt sem varðar fjár- málaþátt viðskiptanna, þar með tal- ið húsbréf og afföll þeirra, önnur lán íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, lánasamsetningu, greiðslubyrði, ráðstöfun söluhagnaðar og skatta- mál svo nokkuð sé nefnt. Þjónustu- miðstöðin annast aflýsingar fyrir viðskiptavini sína og þinglýsingar og aflar ábyrgðaryfirlýsinga vegna veðleyfis. I fréttatilkynningu kem- ur fram að mögulegt verður að vinna greiðslumat Ibúðalánsjóðs með umsækjendum á staðnum og mun það flýta mjög fyrir allri af- greiðslu mála, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá bankanum. ekki í Kredit- kassen BANK of Scotland hefur vísað á bug fréttum sem birtust í gær um hugs- anlegt tilboð bankans í norska Kreditkassen. Bank of Scotland birti í fyrradag afkomutölur sínar fyrir fyrri helm- ing þessa árs og voru þær sýnu verri en sérfræðingar höfðu áætlað. Bank- inn tilkynnti m.a. að um þúsund manns yrði sagt upp. Það er auðvefdara að safna uppfýsingum en að afia þekkingar Á hverjum degi tekur þú mikilvægar ákvarðanir sem varða afkomu fyrirtaekis þlns. Rétt ákvörðun er byggð á þekkingu og þekking er byggð á áreiðanlegum uþplýsingum. EJS hannar upplýsingakerfi fyrirtækisins þannig að gamlar og nýjar upplýsingar verða jafnóðum að nothæfri þekkingu. Þannig getur þú safnað þekkingu fremur en eintómum upplýsingum. EJS vinnur samkvæmt ISO 9001 vottuðu gæðakerfl + EJS hf. + 563 3000 + www.ejs.is + Grensásvegi 10 + 108 Reykjavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.