Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÍLAR
Bflasýningin í Parfs verður opnuð almenningi á morgun
Ný kynslóð Honda Civic var frumkynnt.
Morgunblaðið/Árni Sœberg
Bugatti Veyron 16.4, með 16 strokka 8 lítra vél sem skilar 630 hestöflum. Klæddur brúnu
leðri að innan og á svakalegum dekkjum, 265/30 að framan og 335/30 að aftan og 20" felgum.
Fimmtíu nýir bílar
og tæki frumsýnd
Bílasýningin í París
opnar dyr sínar fyrir
gestum á morgun, 30.
september, en í gær og í
dag er hún opin frétta-
mönnum. Guðjón
Guðmundsson og
Árni Sæberg lýsa í máli
og myndum því mark-
verðasta sem bar
fyrir sjónir,
SÝNINGIN í París er haldin ann-
að hvert ár og er ásamt sýning-
unni í Frankfurt stærsti viðburð-
urinn í Evrópu þar sem
bílaframleiðendur heims kynna
nýjungar og framtíðaráform. Síð-
ast var sýningin haldin á 100 ára
afmæli bílsins árið 1998. Þá mættu
til leiks 7.500 blaðamenn hvaðan-
æva úr heiminum og yfír ein millj-
ón gesta. Sýningarhaldarar búast
við enn meiri fjölda blaðamanna og
gesta að þessu sinni.
Alls eru frumsýndar yfir 50 nýj-
ungar á þessari sýningu. Þar af er
nokkur fjöldi nýrra bíla en einnig
nýjar vélar eða annar tæknibúnað-
ur.
Morgunblaðið/Árai Sæberg
Ludmila frá Tékkiandi hafði Jþann starfa að kynna nýjan hugmyndabíl Ferrari sem heitir Rossaog er hannaður í
samstarfi við Pininfarina á Italíu. Bíllinn er tveggja sæta og með sama tæknibúnað og Maranello 550, þ.e. 12
strokka, 5,5 lítra véi sem skilar 485 hestöflum.
Franskir sýnendur
fyrirferðarmestir
Eins og við var að búast eru
franskir sýnendur fyrirferðar-
mestir. Sýningarsvæði Renault er
það stærsta á sýningunni og þar
gat m.a. að líta nýja kynslóð Lag-
una, sem er í sama stærðarflokki
og Toyota Avensis, Opel Vectra og
Ford Mondeo.
Bíllinn hefur fengið nýjar línur
og sérstaklega vakti skutbíllinn at-
hygli með sínu nýja útliti. Fimm
dyra hlaðbakurinn er síðan allur
annar í formi og virðist hér um tvo
gerólíka bíla að ræða við fyrstu
sýn. Ný Laguna er ekki væntanleg
til Islands fyrr en i fyrsta lagi
næsta vor.
Avantine er lúxusbíll Renault og
hefur verið sýndur sem hug-
myndabíll á síðustu stóru bílasýn-
ingum. Nú er hann hins vegar
kominn í endanlega gerð og verður
settur á markað á fyrsta ársfjórð-
ungi næsta árs. Coleo hugmynda-
jeppinn vekur einnig athygli en
þar leikur Renault sér með formið
og sjá má í bílnum skírskotun til
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bogi Pálsson, forstjóri P. Samúelssonar, og Emil Grímsson framkvæmdastjóri við Prius-tvinnbílinn.
Scénic. Loks er að geta að Még-
ane-línan hefur öll verið endur-
bætt.
Peugeot kynnti líka lúxusbíl,
lengda gerð af 607 bílnum sem er
opinn að aftan. Þetta er bíll fyrir
þá sem aldrei aka sjálfir en hafa
yfir bílstjóra að ráða. 206 CC er
kúpubaks- og blæjugerðin af hin-
um vinsæla smábíl Peugeot og var
hann kynntur í fyrsta sinn á sýn-
ingunni.
Citroén vakti athygli með C5
fólksbílnum sem er með nýrri gerð
vökvastýrðs fjöðrunarbúnaðar.
Bíllinn á að leysa bæði Xantia og
XM af hólmi.
Óvæntar hliðar
hjá Audi
Audi sýndi á sér óvæntar hliðar
með Steppenwolf hugmyndabíln-
um. Þetta er fjórhjóladrifinn bíll
sem gæti flokkast sem jepplingur
en er með svipmóti Audi TT sport-
bflsins. Með þessum bíl virðist sem
Audi vilji koma því á framfæri að
fyrirtækið hafi fullan hug á því að
gerast fyrir alvöru framleiðandi
jeppa, en áður hefur verið kynntur
Audi A4 Allroad sem er hugmynd
sem svipar til Subaru Outback.
Steppenwolf er byggður á sömu
botnplötu og Golf/Audi A3. Bíllinn
er með mismunadrifi og samskon-
ar drifkerfi og Golf 4motion, þ.e.
framdrifnn en með afturdrifs-
tengingu þegar þörf er fyrir hana.
yélin er 3,2 lítra, V6, 225 hestöfl.
Á sýningunni var að heyra á Audi
mönnum að Steppenwolf ætti
tækifæri til að ná alla leið í fram-
leiðslu.
Frá Japan mátti sjá Lexus 430,
verðugan keppinaut Mercedes-
Benz S. Þetta er glæsilegur bfll
með gríðarlega aflmikla V8 vél.
Þarna gat einnig að líta SC 430,
kúpubakinn sem fyrst var sýndur
á þílasýningunni í Tókýó sl. haust.
Nú er hann kominn í framleiðslu
með sömu vélina og LS 430 og
ætti að ná 100 km hraða á innan
við 6 sekúndum. Mestum tíðindum
sætir þó líklega koma Prius á
markaðinn, tvinnbíllinn með 1,5
lítra bensínvélinni og rafmótorn-
um.
Alfa Romeo sýndi nýjan 147 bíl,
þrennra dyra hlaðbak, sem verður
att gegn Audi A3. Mælaborðið í
þessum bfl er óvenjulegt með mæl-
um fyrir miðju mælaborði og
sportlegu útliti.
Mest örtröð
hjá Mini
Mesta örtröðin var samt í kring-
um sýningarsvæði Mini sem er við
hlið sýningarsvæðis BMW, eig-
anda Mini. Þarna var litli söguf-
rægi smábíllinn afhjúpaður í sinni
nýju og nútímalegri mynd og sóp-
uðust fréttamenn að sýningar-
svæðinu. BMW valdi París sem
vettvang til að sýna Mini í fyrsta
sinn en ekki sýninguna i Birming-
ham í október og þykir þetta til
marks um að BMW hafi áform um
að markaðssetja Mini sem smábíl
um alla Evrópu.