Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 28
28 FÖSTUDAGUH 29. SEFfKMBER 2000
ERLENT
MGKGUNRUAÐiÐ
URVERINU
Áhrif 2% auðlindagjalds á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja
Veltufé frá rekstri
minnkar verulega
Dæmi um áhrif auðlindagjalds á rekstrarafkomu sjávarútvegsfyrirtækja
fiskveiðiárið 1998-99 Þorbjörn ÚA SVN
1. Auðlindagjald (afskrift) 10%
Veiðiheimildir (tonn) 11.807 24.700 12.713
Framlegð 1999 471.000 1.013.000 343.000
Árleq afskrift endurkeypt 10% 826.490 1.729.000 889.910
Endurreiknuð framleqð -355.490 -716.000 -546.910
Haqnaður af reqlul. starfsemi 116.000 194.000 47.000
Endurreiknaður haqnaður -710.490 -1.535.000 -842.910
Veltufé frá rekstri 1999 335.000 776.000 284.000
Framreiknað veltufé -491.490 -853.000 -605.910
2. Auðlindagjald (afskrift) 5%
Veiðiheimildir (tonn) 11.807 24.700 12.713
Framlegð 1999 471.000 1.013.000 343.000
Árleq afskrift endurkeypt 5% 413.245 864.500 444.955
Endurreiknuð framleqð 57.755 148.500 -101.955
Haqnaður af reglul. starfsemi 116.000 194.000 47.000
Endurreiknaður haqnaður -297.245 -670.500 -397.955
Veltufé frá rekstri 1999 335.000 776.000 284.000
Framreiknað veltufé -78.245 -88.500 -160.955
'3. Áuðlindagjald (afskrift) 2% smi
Veiðiheimildir (tonn) 11.807 24.700 12.713
Framlegð 1999 471.000 1.013.000 343.000
Árleq afskrift endurkeypt 2% 165.298 345.800 177.982
Endurreiknuð framlegð 305.702 667.200 165.018
Hagnaður af reglul. starfsemi 116.000 194.000 47.000
Endurreiknaður haqnaður -49.298 -151.800 -130.982
Veltufé frá rekstri 1999 335.000 776.000 284.000
Framreiknað veltufé 169.702 430.200 106.108
Tap verður þó
af rekstrinum
SAMKVÆMT útreikningum Eiríks
Tómassonar, framkvæmdastjóra
Þorbjöms - Fiskaness í Grindavík,
ræður sjávarútvegurinn ekki við
auðlindagjald. Hann hefur reiknað
út áhrif slíks gjalds á bilinu 2% til
10% á rekstur þriggja fyrirtækja,
Þorbjöms - Fiskaness, Útgerðarfé-
lags Akureyringa og Síldarvinnsl-
unnar í Neskaupstað. í öllum tilfell-
um veldur auðlindagjaldið taprekstri
miðað við núverandi aðstæður, en sé
miðað við veltufé frá rekstri, verður
það neikvætt miðað við 5% og 10%
árlegt gjald, en við 2% gjald verður
það jákvætt en minnkar vemlega.
Forsendur útreikninga Eiríks
byggjast á því að auðlindagjald verði
innheimt með þeim hætti að fyrir-
tækin kaupi árlega ákveðið hlutfall
úthlutaðra aflaheimilda sinna. Þá
gerir hann ráð fyrir að verð á afla-
hlutdeild verði 700 krónur hvert
þorskígildistonn og að aflahlutdeild-
in, sem afskrifist á hverju ári, sé end-
urkeypt árlega. Þá em gjaldfærðar
þær greiðslur sem útgerðin greiðir
nú þegar til hins opinbera, það er
þróunarsjóðsgjald og fleiri gjöld,
sem lögð em á útgerðina sérstak-
lega, en samtals nema þau nú um
1,60 krónum á hvert kíló. Útreikn-
ingar Eiríks eru birtir í Útveginum,
fréttabréfi LÍÚ.
„Það er ljóst að þessir útreikning-
ar sýna að ekkert þessara fyrirtækja
ræður við auðlindagjald og teljast
þau þó vel rekin,“ segir Eiríkur Tóm-
asson í samtali við Morgunblaðið.
„Það er sama hvort miðað er við
afkomu eða veltufé frá rekstri, sem
er jákvætt miðað við 2%, því það þarf
að borga bæði afborganir og vexti.
Fyrirtækin verða að vera endumýj-
anleg. Það getur vel verið að ein-
hvem tíma í framtíðinni verði svig-
mrn til að borga þetta gjald, en svo
er ekki nú. Að auki er rétt að benda á
að við emm í samkeppni við aðrar
þjóðir á hinum alþjóðlegu fiskmörk-
uðum og auknir skattar skekkja þá
samkeppni vemlega. Þá vil ég einnig
benda á að þegar mest er verið að
tala um auðlindagjald, er það í
tengslum við sölu á fyrirtækjum eða
aflahlutdeild og þá er það niðurstað-
an að það skuli innheimt af þeim,
sem eftir era í greininni, ekki þeim
sem selja og fara út,“ segir Eiríkur
Tómasson.
Utflutningsráð fær fjölda fyrírspurna að utan
Aukinn áhugi á ís-
lenskum fískafurðum
FYRIRSPURNUM til útflutnings-
ráðs frá erlendum fyrirtækjum sem
óska eftir að kaupa vörur og þjón-
ustu af íslenskum fyrirtækjum fjölg-
ar stöðugt. Þessar fyrirspumir em
settar jafnóðum inn á heimasíðu út-
flutningsráðs undir tenglinum „Er-
lend viðskiptasambönd" en slóð
heimasíðu útflutningsráðs er http://
www.icetrade.is eða http://www.ut-
flutningsrad.is.
Á heimasíðunni, sem er á íslensku,
ensku og spænsku, kemur fram að
fyrirtækið Dobexoco Foods Inter-
national í Kanada vill kaupa sjávar-
afurðir á íslandi og verður starfs-
maður fyrirtækisins á íslandi 5.
október á leið til meginlands Evrópu.
Franska fyrirtækið Christal Sea-
food vill kaupa grálúðu, karfa, löngu,
hörpudisk, þorsk og fleira, Notra
Impex í Rúmeníu vill kaupa 100 til
200 g síld í miklu magni og
sænskt fyrirtæki vill markaðssetja
íslenskar vömr í Svíþjóð.
Ingólfur Sveinsson, verkefnis-
stjóri hjá útflutningsráði, segist
finna fyrir auknum áhuga erlendra
fyrirtækja á íslenskum sjávarafurð-
um og gott sé að geta kynnt fyrir-
spumirnar jafnóðum á heimasíðunni.
Með því fyrirkomulagi sitji allir við
sama borð og engin hætta er á að ein-
hver gleymist.
Á heimasíðunni er einnig svonefnt
NAS-verkefni, sem snýst um að
markaðssetja íslensk sjávarútvegs-
fyrirtæki erlendis með áherslu á
Netið.
Að sögn Ingólfs tóku 90 fyrirtæki
þátt í verkefninu í fyrra, en verkefnið
hefur verið í gangi síðan 1993 og út-
flutningsráð hefúr haft umsjón með
því síðan 1996. „Við höfum aðallega
lagt áherslu á markaðssetningu á
Netinu en auk þess tökum við þátt í
sex til átta sjávarútvegssýningum á
ári og kynnum þar verkefnið með
öðm.“
Ingólfúr segir að vefurinn fái rúm-
lega 200 heimsóknir á dag sem þyki
mjög gott en um 95% gesta em er-
lendir. „Þetta hefur gengið mjög vel
og nýlega hafa Samtök iðnaðarins og
Samstarfsvettvangur sjávarútvegs
ogiðnaðar auk Nýsköpunarsjóðs lýst
yfir áhuga á að koma inn í verkefnið
með öflugum hætti,“ segir Ingólfur.
Útflutningsráð hefur ákveðið að
bjóða fyrii-tækjum ókeypis þátttöku í
NAS-verkefninu til 1. desember nk.
en annars greiða fyrirtæki árgjald og
útflutningsráð leggur til starfsmann
í hálfu starfi og aðstöðu. Með þátt-
töku fyrrnefndra aðiia má gera ráð
fyrir fleiri starfsmönnum og nýjum
áherslum. Samtök iðnaðarins fóm í
gegnum stefnumótunarvinnu með
tækjaframleiðendum í sjávarútvegs-
geiranum í sumar. Ingólfur segir að
þá hafi komið fram að áherslu ætti að
leggja á sambærilegt verkefni við
NAS-verkefnið, sem styddi við bakið
á sameiginlega markaðssetningu
allra fyrirtækjanna. Einnig á smærri
einingar, sem mynduðu heilstæðari
einingu þar sem kannski þrjú til fjög-
ur fyrirtæki gætu boðið heildarlausn
í sjávarútveginum. I framhaldi af
þessu hefðu menn komist að raun um
að NAS væri gmnnurinn sem verið
væri að tala um þegar verið væri að
tala um markaðssetningu fyrir allan
hópinn því þar væm öll stærstu út-
flutningsfyrirtækin í sjávarútvegi.
„Við emm komnir með gmnninn og
eðlilegt er að styrkja hann frekar en
að stofna nýtt verkefni," segir Ing-
ólfur.
Hann segir að margt spennandi sé
framundan á þessum vettvangi og
nefnir í því sambandi að fyrirtæki,
sem OA hafi stofnað, hafi búið til þrí;
víddarheim fyrir 3X Stál á ísafírði. „í
framtíðinni getur 3X Stál boðið til
dæmis kaupanda sínum í Kanada inn
í þennan heim og síðan geta menn
skoða saman uppsetningu á rækju-
vélum og fleira og þetta er einn
möguleiki sem NAS getur tekið þátt
í - að búa til sýndarvemleika fyrir
hvern framleiðanda."
Reuters
Líkkistur nokkurra fómarlamba slyssins liggja í húsagarði
á eynni Paros í gær.
Að minnsta kosti 66 menn fórust
með grísku ferjunni
Fjórir skipverj-
ar ákærðir fyrir
manndráp
Paros. AP. AFP.
SKIPSTJÓRI og þríi- aðrir menn í
áhöfn grísku ferjunnar, sem sökk í
fyrradag, vom formlega ákærðir í
gær fyrir manndráp. Að minnsta
kosti 66 manns fómst með skipinu.
Verið er kanna fréttir um, að ferj-
an, sem var með meira en 500 far-
þega, hafi verið á sjálfstýringu ör-
skömmu áður en hún sigldi á vel
merktan klett rétt við strönd sumar-
leyfíseyjarinnar Paros. Gæti það
stutt staðhæfingar sumra þeirra,
sem komust af, um að áhöfnin hefði
verið að fylgjast með knattspyrnu-
leik í sjónvarpinu er slysið varð.
Ferjan, Express Samina, var 34
ára gömul og hafði nýlega fengið vot-
torð um að vera sjóhæf. Samt er orð-
rómur um, að ekki hafi allt verið með
felldu með skrúfubúnað og stýrisvél
skipsins og hjá vélstjórafélaginu
gríska er skipinu lýst sem ryðkláf.
Átti að úrelda það á næsta ári.
Áhöfnin ofsahrædd
Farþegar með skipinu segja, að
áhöfnin hafi fyllst ofsaskelfingu er
hún sá hvert stefndi og ekki verið
fær um að skipuleggja björgun far-
þeganna. Segjast margir eiga líf sitt
að launa sjómönnum á nálægum
fiskibátum og því hve stutt var til
strandar.
Leit var haldið áfram í gær að
fólki, sem hugsanlega væri enn á lífi í
sjónum, en slæmt veður gerði hana
erfiða. 72 útlendingar vom með ferj-
unni en aðeins er vitað til, að einn
þeirra hafi farist, rúmlega fimmtug-
ur Norðmaður.
Ferðum erlendra flugvéla til
Bagdad fer fjölgandi
Irakar segja
refsiaðgerðirn-
araðbresta
írakssljórn sögð selja mikið af lyfjum
á svörtum markaði erlendis
Bagdad, Caracas. Reuters, AFP, Daily Telegraph.
STJÓRNVÖLD í Bagdad í írak refsiaðgerðunum gegn írak yrði hætt
skomðu í gær á önnur arabaríki að
skipuleggja fleiri flugferðir til lands-
ins þrátt fyrir bann Bandaríkjanna.
Sögðu þau, að flugvélamar, sem
komið hefðu til Bagdad síðustu daga,
væm upphafið að endaiokum refsiað-
gerða Sameinuðu þjóðanna.
„Þetta er upphafið að endalokum
refsiaðgerðanna," sagði Tareq Aziz,
aðstoðarforsætisráðherra íraks, að
loknum viðræðum við jórdanska
sendinefnd, sem kom til Bagdad frá
Amman í fyrradag.
íraska dagblaðið Al-Iraq skoraði í
gær á önnur arabaríki að „grípa þetta
sögulega tækifæri til að styðja íraka“
en auk jórdönsku flugvélarinnar hafa
fjórar aðrar, þrjár rússneskar og ein
frönsk, lent í Bagdad frá miðjum
ágúst. Þá er sagt, að væntanlegar séu
vélar frá íslandi, Indlandi, Sýrlandi
og Jemen.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði nú í vik-
unni, að hún hefði áhyggjur af fluginu
til Bagdad en vildi þó ekki lýsa yfir,
að með því væri verið að fara í bága
við refsiaðgerðir SÞ. Tyrkir hafa hins
vegar fagnað flugi þangað með hjálp-
argögn en OPEC, Samtök olíuút-
flutningsríkja, hvöttu ekki til, að
á fundi sínum í Caracas í Venesúela.
Lyfin seld í Libanon
Talsmaður lyfjafyrirtækisins
Glaxo-Wellcome skýrði frá því um
síðustu helgi, að lyfjum frá fyriríæk-
inu, sem send hefðu verið til Iraks
samkvæmt áætlunum SÞ, hefði verið
smyglað til Líbanons og seld þar á
svörtum markaði. Hefðu þau verið
flutt til landsins í bifreiðum frá íraska
samgönguráðuneytinu og því færi
ekki á milli mála, að stjóm Saddams
Husseins íraksforseta stæði fyrir
smyglinu.
Saddam heldur því fram og aðrir
staðfesta það, að margir Irakar hafi
látist vegna lyfjaskorts en íraskir
stjómarandstæðingar segja, að
Uday, sonur Saddams, sjái um að
smygla miklu af þeim lyfjum, sem ír-
ökum em send, úr landi í því skyni að
fjármagna vellystingar yfirstéttar-
innar og starfsemi írösku leyniþjón-
ustunnar.
Glaxo-Wellcome segir, að vitað sé
með vissu, að um 15.000 einingar af
astmalyfinu Ventolin, sem sent var til
Iraks, hafi verið á svarta markaðin-
um í Líbanon en telur, að það sé að-
eins brot af lyfjamagninu.