Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 34

Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Dómkirkjan í Helsinki. Knut Nystcd með norskum flytjendum. Jubilemus 2000 í Helsinki Norrænt kirkjutónlist- Oliver Kentish og John Speight ásamt flcirum. Ritstjóri Organistablaðsins, Jón Ólafur Sigurðsson, t.v., ásamt greinarhöfundi. armót var haldið í Hels- inki á dögunum undir yfírskriftinni „Jubilem- us 2000“. Kjartan Sig- uijónsson var á mótinu þar sem söng Schola cantorum var meðal annars afar vel tekið. FÉLAG íslenskra organleik- ara er aðili að norræna kirkjutónlistarráðinu, en það heldur norræn kirkju- tónlistarmót á fjögurra ára fresti, til skiptis á Norðurlöndunum. Slíkt mót var haldið í Helsinki í Finnlandi dagana 14.-17. septem- ber sl. undir nafninu „Jubiíemus 2000“ sem útleggja mætti: Við fögnum á árinu 2000. Finnar höfðu veg og vanda af mótinu í ár sem gestgjafar, en haldnir höfðu verið margir fundir í norræna kirkjutónlistarráðinu til undirbúnings þessara daga. Fyrir alla þá sem áhuga hafa á kirkjutónlist eru þessi mót ein sannkölluð veisla þar sem heyra má og sjá margt af því allra besta sem kirkjutónlistarmenn á Norð- urlöndum hafa fram að færa. Tónleikahald bar þar að sjálf- sögðu hæst, tvennir orgeltónleikar voru haldnir þar sem fram komu orgelleikarar allra norrænu þjóð- anna, aðrir tónleikarnir báru yfir- skriftina „Nordisk orgelromantik", hinir voru helgaðir nútímatónverk- um og hétu „Nutida nordisk orgel- musik“. Fulltrúi íslands á hvorum tveggja tónleikunum var Björn Steinar Sólbergsson, organisti Ak- ureyrarkirkju, og lék hann „Chaconne“ eftir Pál ísólfsson á fyrri tónleikunum, en „Dýrð Rrists“ eftir Jónas Tómasson á þeim síðari. Hver þjóð hafði svo sjálfstæða kórtónleika en „Schola cantorum Reykjavicensis", sem er kammer- kór Hallgrímskirkju, stóð fyrir ís- lensku tónleikunum undir stjórn Harðar Áskelssonar en með kórn- um söng Marta Guðrún Halldórs- dóttir sópransöngkona einsöng og Matej Sarc lék með á óbó í einu verkinu. Efnisskrá tónleikanna var svohljóðandi: „Heyr himna smið- ur“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson; „Turn Thee Unto Me“ eftir Oliver Kentish; „Requiem" eftir Jón Leifs; „Tignið Drottin" eftir Jón Hlöðver Askelsson; „Maríuvers" eftir Atla Heimi Sveinsson og „Sam’s Mass“ eftir John A. Speight. Varð að syngja aukalag Viðtökur við framlagi Islendinga voru mjög góðar, svo góðar að fagnaðarlátum áheyrenda á ís- lensku kórtónleikunum ætlaði aldrei að linna og varð kórinn að syngja aukalag, en það var eins- dæmi í þessari tónleikaröð. Auk allra tónleikanna var svo viðamikil sýning á nótum og geisladiskum og margs konar málþing haldin um kirkjutónlistarmál. Þessum mótum lýkur alltaf með samnorrænni messu þar sem allar þjóðirnar taka þátt í flutningi tón- listar en í okkar hlut kom tónlist- arflutningur meðan gengið var til altaris, auk þess sem allir við- staddir sungu einn íslenskan sálm, „Kom þú, ó Kristur", við lag Jónasar Tómassonar og texta Kristjáns Vals Ingólfssonar. Þá var hin almenna kirkjubæn flutt á öllum Norðurlandamálunum. Sannarlega var gaman að vera íslendingur á þessum dögum þótt söngmenning frændþjóða okkar standi á miklu eldri grunni en okk- ar. En þó að við séum fæstir að höfðatölu, íslendingarnir, var framlag listamannanna sem þarna komu fram til mikils sóma og vakti verðskuldaða athygli. Þátttaka í svona mótum er vissulega þroskandi fyrir alla sem láta sig kirkjutónlist varða, jafnt flytjendur sem áheyrendur. Þarna tefldu þjóðirnar fram því besta sem þær áttu og allir settu markið hátt. Því er ekki að neita að fyrir okk- ar fámennu félagasamtök, Félag íslenskra organleikara, er þátttaka í svona móti ærið kostnaðarsöm og væri ómöguleg ef ekki hefðu kom- ið til myndarlegir styrkir ýmissa aðila opinberra og úr einkageiran- um sem sýnt hafa þessari viðleitni okkar velvild og skilning. í lok hátíðarmessunnar í Dómkirkjunni í Helsinki fóru fram forsetaskipti í norræna kirkjutón- listarráðinu og Sixten Enlund, for- maður organistafélags sænsku- mælandi Finna, lét af störfum sem forseti eftir vel heppnað mót og við tók Karsten Jensen, formaður DOKS, sem er annað tveggja org- anistafélaga Dana. Það verða því Danir sem skipuleggja og undir- búa næsta mót en það verður hald- ið í Árhus 12. september 2004, að því er formaðurinn tilkynnti á lokafundi ráðsins. Höfundur er formaður Félags íslenskra organleikara ogfyrr- verandi forseti norræna kirkju- tóniistarráðsins. Schola cantorum á íslensku tdnleikunum. m Hh j$*fl i % m ■ B 'flgflBi Tónlistarverðlaun N orðurlandaráðs Sigurður Flosason og Skúli Sverris- son tilnefndir NORÐURLANDARÁÐ hefur til- nefnt Islendingana Sigurð Flosa- son saxófónleikara og Skúla Sverrisson bassaleikara til tónl- istarverðlauna ráðsins fyrir árið 2001. Alls eru þrettán aðilar til- nefndir en úrslit verða kunngjörð á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík í byrjun nóvember næstkomandi. Verðlaunaféð er 350.000 danskar krónur. Aðrir listamenn sem hlutu til- nefningu eru Marilyn Mazur slag- verksleikari og Palle Mikkelborg trompetleikari frá Danmörku, Magnus Johannesen hljómborðs- leikari, tónskáld og hljómsveitar- stjóri frá Færeyjum, Ole Krist- iansen píanóleikari, söngvari og tónskáld frá Grænlandi, Kari Krikku klarínettuleikari og Raoul Björkenheim gítarleikari frá Finnlandi, Vladimir Shafranov djasspianisti frá Álandseyjum, Sidsel Endresen djasssöngvari og djasssveitin The Brass Brothers frá Noregi og Benny Andersson píanóleikari og tónskáld og Bobo Stenson djasspíanisti frá Svíþjóð. ------UM------- Nýr geisladiskur • Geisladiskurinn Stokkseyri inniheldur kammerverkin „Stokks- eyri“ og „Septett“ eftir Hróðmar Inga Sigur- björnsson. Flytjendur eru Sverrir Guð- jónsson kontrat- enór og Caput- hópurinn. Titilverkið Stokkseyri, fyrir kontratenór og kammersveit, var samið við tólf ljóð úr samnefndri ljóðabók fsaks Harðar- sonar. Lagaflokkurinn var saminn á árunum 1995 til 1997 en frum- fluttur á Listahátíð í Reykjavík í maí 1998. Heildaryfirbragð Stokkseyrar er lagrænt og róman- tískt en í verkinu blandast saman ýmsir tónlistarstraumar og stefn- ur: minimalismi, blús, popp, djass, og kirkjutóntegundir miðalda setja sterkan svip á lögin. Septett var saminn árið 1998 og frumfluttur 1999 af Caput-hópn- um. Verkið er skrifað fyrir tréblás- ara, slagverk og strengi og er í fjórum þáttum. Líkt og í Stokkseyri spinnast hér saman ýmsar tónlistarhefðir: klezmermúsík, sígaunatónlist, rokk, mínímalismi og meira og fleira. Hróðmar I. Sigurbjörnsson hóf tónlistarferil sinn í poppbandinu Melchior sem gaf út nokkrar plöt- ur á áttunda áratugnum. Hann lærði síðar tónsmíðar við tónlistar- skóla í Reykjavík og Utrecht í Hollandi, hefur samið tæplega sextíu verk fyrir ýmsa tónlistar- hópa, sinfóníuhljómsveitir, kamm- ersveitir og kóra. Nýjasta verk hans, „Skálholtsmessa fyrir ein- söngvara og kammersveit“, var frumflutt síðastliðið sumar á Sum- artónleikum í Skálholtskirkju og hlaut framúrskarandi viðtökur. Bæklingur á íslensku og ensku fylgir geisladiskinum: þar er að finna viðtal við tónskáldið, ljóð ís- aks Harðarsonar og umfjöllun Andra Snæs Magnasonar um skáldið og Stokkseyri. Útgefandi geisladisksins er ís- lensk tónverkamiðstöð. Hljóðrítun fór fram í Langholtskirkju og Víð- istaðakirkju 1999 af Stafræna hljóðupptökufélaginu ehf. Sveinn Kjartansson annaðist hljóðupptöku og eftirvinnslu. Verð: 2.099 krónur. Hróðmar Ingi Signrbjörnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.