Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 36

Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Gleymdar gersemar TONLIST Salurinn PÍANÓTÓNLEIKAR Norræn píanóverk eftir Söder- lundh, Nystedt, Sibelius, Forsman, Jón Leifs og Schierbeck. Folke Grasbeck, píanó. Þriðjudaginn 26. september kl. 20. ÞAÐ væri synd að segja að norræn tónlist hafi hingað til átt áberandi upp á pallborðið hjá íslenzkum klass- íkunnendum, allra sízt þegar kemur að píanóbókmenntum 20. aldar. Að- sóknin á tónleika finnlands-sænska píanóleikarans Folkes Grásbecks í Salnum á þriðjudagskvöldið varð ekki heldur til að draga úr þeirri full- yrðingu því að yfir sjöfalt fleiri sæti stóðu auð en skipuð. Þrátt fyrir afar áheyrilegt og fjölbreytt prógramm og framúrskarandi flinkan píanista. Grásbeck, sem er prófessor í slag- hörpu við Sibeliusar-akademíuna í Helsinki, tókst að spanna öll Norður- löndin fimm í dagskrárvali. Fyrstur höfunda var hið sænska og mikið til sjálfmenntaða söngvaskáld Lille Bror Söderlundh (1912-57) með lag- legu expressjónískt-nýklassísku litlu verki frá 1943, Intrada och Allegro - að viðbættum ávæningi af Gershwin, sem reyndar „svingaði“ minna en skyldi í annars ágætri útfærslu. Eftir Norðmanninn Knut Nystedt, sem kunnastur er hér fyrir kórverk sín, voru leikin bráðskemmtileg Þijú píanólög Op. 16 frá 1944 í ýmist ný- barokkstíl eða þjóðlegri blöndu af nýklassík og Grieg í frísklega mót- aðri og fjölbreyttri útfærslu þar sem aðeins smágösl og vottur af asa á at- gangsmestu stöðum skáru sig úr góðum hljóðritunarstaðli, fyrir utan að einstaka „loftnótur" gáfu vísbend- ingu um að píanistinn væri vanastur þyngri áslætti en gerist á Bösendorf- er. Jean Sibelius var ekki frekar en samtímamaður hans Carl Nielsen forkunnarhændur að píanóinu, „ófullnægjandi og vanþakklátt hljóð- færi sem aðeins Chopin náði meist- aratökum á“, eins og hann kvað sjálf- ur hafa orðað það. Mörgum hefur enda þótt píanóverk Sibeliusar bera fullmikinn keim af hljómsveitarúr- dráttum. í fullri sanngirni má þó kannski segja, að það sé einmitt sin- fónískri snilld hans um að kenna hvað píanóverkin þykja standa tæpt í samanburði. Alltjent kom það margt skemmtilega á óvart í fimm stykkja úrvali Grásbecks - Impromptu Op. 5,5 (1893), Arabesque Op. 76,9 (1914), Elegiaco Op. 76,10 (1916), Þorpskirkjan Op. 103,1 og Finlandia- útsetningunni frá 1900 - að spurning er hvort píanóhöfundurinn Sibelius hefur nokkurn tíma fengið að njóta sannmælis. Síðasttalda atriðið komst eðlilega næst því að hljóma eins og hljómsveitarúrdráttur, en burtséð frá greinanlegum áhrifum frá Debussy á stöku stað var tónninn í hinum verkunum það persónulegur og píanískur í glimrandi úttekt Grás- becks, ekki sízt í hinu snilldarvel rúberaða Elegiaco, að nýr hlustandi hlaut að gefa vanmetnu framlagi finnska meistarans til slaghörpubók- mennta aukinn séns héðan í frá. Túlkunin á Píanósónötu hins finnsk-danska Johns Váino Fors- mans frá 1994 var stórglæsileg. Verkið var yfirmáta hlustvænt og músíkantískt, laust við allan grufl- andi konsept-módernisma (m.a.s. svo að höfundur nefndi 3. og síðasta þátt „Andante mesto e neoromantico“[!] og iðaði af litríkri fjölbreytni í virt- úósri túlkun Grásbecks. Meðferð hans þar á eftir á Fjórum lögum Jóns Leifs frá Leipzigárunum (1922) var athyglisverð, ekki sízt fyrir hvað píanóleikaranum tókst að laða mik- inn söng fram úr þungstígum og hrá- slagalegum stuðlabergshljómasúlum höfundarins. Síðast á skrá voru „Maritime Smárids“ frá 1948 eftir danska tónskáldið Poul Schierbeck (1888-1949), undirtitluð „Sydvest, Sweater og Shag“; fimm h'til píanó- riss af veröld sjómanna, auðkennd „Rigning" [Skipsreiði], „Krap S0“, „Oceanets Vuggesang", „Kolvand" og „Harmonika“, og segja heitin flest sem þarf. Enn sem oftar kom nánast óþekkt verk hressilega á óvart í víð- feðmri túlkun finnska píanistans er líkt og í undangengnum verkum gat spilað úr risafengnu styrkleikasviði án þess að verða of harður í fortiss- imo eða of daufur á veikustu stöðum. Músíkölsk innlifun hans var söm, hvort heldur leikið var á innhverfum nótum eða slegið á léttari strengi eins og í lokaþætti Schierbecks þar sem hriplekt bringuorgel korraði sitt notalega dúddehdei í verbúðinni að loknum róðri og tæpti á ýmsum al- þýðulummum í góðlátlegu gríni eftir átökin við Ægi. Hér sem víðar mátti heyra spilamennsku sem hvatti til skjótrar endurupplifunar og dugir ekki til að þakka góðri tækni. Svona lagað gera aðeins píanóleikarar sem þekkja sín viðfangsefni ofan í kjölinn. Ríkarður Ö. Pálsson Harold Pinter leiklesinn í Borgarleikhúsinu Afmælisveislan í beinni útsendingu HINN 10. október næstkomandi fagnar eitt merkasta leikskáld okk- ar tíma, Harold Pinter, sjötugsaf- mæli sínu. Af því tilefni verður eitt af hans fyrstu verkum, .Afmælis- veislan", leiklesið á Stóra sviði Borgarleikhússins næstkomandi sunnudag, 1. október, kl. 14. Afmæl- isveislan er samvinnuverkefni Borg- arleikhússins og Útvarpsleikhúss- ins og verður flutningurinn sendur út beint á Rás 1. Hér gefst fólki því einstakt tækifæri á að fylgjast með framkvæmd og útsendingu útvarps- leikrits. Það er Lárus Ymir Oskars- son sem leikstýrir, en leikarar eru Gísli Alfreðsson, Gísli Rúnar Jóns- son, Hjalti Rögnvaldsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Kristbjörg Kjeld og Ólafur Darri Ólafsson. Harold Pinter fæddist í verka- mannahverfi í East End í London og fékk leiklistaráhuga strax í skóla, þar sem hann lék m.a. Macbeth og Rómeó. Eftir leiklistarnám í RADA starfaði hann í nokkur ár sem leik- ari, einna helst í Shakespeare-sýn- ingum, en 1957 skrifaði hann sitt fyrsta leikrit, „Herbergið", eftir pöntun leiklistarnema við háskólann í Bristol. Eftir hann liggur fjöldi leikverka, meðal þeirra þekktustu eru „Húsvörðurinn", „Heimkoman", ,Afmælisveislan“ og „Tunglskin". Verk hans hafa oft vakið sterk við- brögð og má segja að orð Irving Wardle í The Times séu dæmigerð fyrir feril hans: „Árið 1958 var Af- Harold Pinter sjötugur. Ljósmynd/Ivan Kyncl mælisveislan rifin niður af flestöll- um gagnrýnendum og tekin af dag- skrá eftir viku í London. Síðan þá hefur Pinter hlotið sess sem ;,eitt besta leikskáld okkar tíma“.“ I til- efni afmælisins verður síðar í mán- uðinum haldið sérstakt kvöld til heiðurs Pinter í Borgarleikhúsinu. Aðgangseyrir að leiklestrinum er 1.000 krónur. Sýning- um í Lista- , safni ASI lýkur SÝNINGU Bryndísar Jóns- dóttur, Dregið í Dilka, í Ás- mundarsal, Listasafni ASÍ v/ Freyjugötu, lýkur nk. sunnu- dag, 1. október. Viðfangsefni Bryndísar eru íslensku fjánnörkin, sem notuð hafa verið á búfé hér á landi frá landnámstíð. Verkin eru unnin í steinleir. Sýningu Guðrúnar Marinósdóttur lýkur Sýningu Guðrúnar Marinós- dóttur á hrosshársverkum í Gryfjunni, Listasafni ASÍ, lýk- ur nk. sunnudag, 1. október. í verkum sínum vinnur Guð- rún út frá gömlu handverki úr mannshári sem tíðkaðist á liðn- um öldum í Evrópu og barst til íslands frá Danmörku fyrir aldamótin 1900. Stern áttræður Reuters FIÐLULEIKARINN Sarah Chang sést hér munda fiðlubogann á tónleikum sem haldnir voru ný- lega í tilefni af áttræðisafmæli Isaacs Stern, framkvæmdastjóra Carnegie Hall. Tónleikarnir fóru að sjálfsögðu fram f Carnegic Hall sem notaði tækifærið til að fagna 40 ára stjórnartíð Stern. Fjöldi þekktra klassískra tónlistarmanna kom fram á tónleikunum. Sýning framlengd SÝNING Huldu Vilhjálmsdóttur, Birtan í símaskránni, hjá Ófeigi, Skólavörðustíg 5, verður íramlengd til 11. október. Sýning í Grafar- vogskirkju MYNDLISTAR- og handverkssýn- ing Kristínar Bryndísar Björnsdótt- ur verður opnuð í sóknarsal Grafar- vogskirkju á morgun, laugardag, kl. 14. Kristín Bryndís sýnir þar hekluð teppi og olíu- ogvatnshtamyndir. Opið alla daga kl. 14-18. Sýningin stendur til 23. október. ELLILIFEYRISÞEGAR - Mœtum öll á Austurvöllinn 2. október nk. kl. 15.00. AHA-hópurinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.