Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 45' [j UMRÆÐAN i j i Nesjavellir - hagkvæmasti virkjunar- kosturinn PAÐ var mikið gæfu- spor þegar Reykjavík- urborg keypti jörðina Nesjavelli á sínum tíma til að hefja þar vinnslu á heitu vatni fyrir Hita- veitu Reykjavíkur með það að markmiði að geta betur sinnt skyld- um sínum við íbúa á Reykjavíkursvæðinu. Með vinnslu raforku á svæðinu sem hófst 1998 hefur hagkvæmni virkjunarinnar aukist stórkostlega og nú er unnið að stækkun raforkuversins og enn frekari stækkun þess er í burðarliðn- um. Verður sú stækkun lykillinn að því að Orkuveita Reykjavíkur geti boðið viðskiptavinum sínum rafmagn Orka íbúar á Reykjavíkur- svæðinu, segir Alfreð Þorsteinsson, eru vel settir með fram- boð á heitu vatni og rafmagni þegar tii framtíðar er litið. á lægra verði þegar fram líða stund- ir. Nesjavallavirkjun 10 ára Um þessar mundir eru þau tíma- mót í sögu Nesjavallavirkjunar að tíu ár eru liðin frá gangsetningu hennar, en virkjunin var formlega tekin í notkun hinn 29. september árið 1990. Þá var virkjunin einungis nýtt til framleiðslu á heitu vatni, en afkasta- geta hennar á þeim tíma var 560 lítr- ar á sekúndu. Síðan hefur þróunin verið hröð hvað þetta varðar og ann- ar virkjunin nú ríflega 25% af hita- þörf á svæði Orkuveitu Reykjavíkur. Virkjun varma- og raforku á Nesjavöllum er einn hagkvæmasti virkjunarkostur sem fyrirfinnst á Islandi. Sjóðheit gufa stígur þar upp úr borholum sem eru um 2000 metra djúpar og er vatnið i botni holanna yfir 300 gráða heitt. Þessi hiti er nýttur til þess að hita upp ferskt vatn úr Þingvallavatni sem síð- an er flutt eftir leiðslu til Reykjavíkur og það- an dreift til notenda. Á þessari leið kólnar vatnið aðeins um eina gráðu á celcíus. Raforkuvinnsla á Nesjavöllum Árið 1998 var einnig farið að vinna raforku á Nesjavöllum, en sú vinnsla fer þannig fram að varminn er fullnýttur þannig hann er ekki ein- ungis nýttur til heitavatnsfram- leiðslu heldur einnig til að knýja hverfla sem framleiða rafmagn. Raf- orkuframleiðslan er því hrein viðbót, aukaafurð heitavatnsframleiðslunn- ar og þar af leiðandi sérstakiega hag- kvæm og umhverfisvæn. Þessari vinnslu fylgir ekkert jarðrask, engin uppistöðulón eða breyting á farvegi vatnsfalla og þeir sem leið eiga um þetta vinnslusvæði verða þess varla varir að þar eigi sér stað mikil raf- orkuframleiðsla til viðbótar við heita- vatnsnámið. Umhverfisáhrif virkjunarinnar eru ekki mikil. Affallsvatn er lítið, en jarðhitavatn hefur runnið um svæðið í margar aldir. Nú er verið að kanna möguleika á nýtingu þess affalls- vatns sem fellur til á svæðinu og er verið að skoða hagkvæmni þess að dæla því niður í jarðlögin aftur og tengjast þannig jarðhitakerfunum á nýjan leik. Breytingar á raforkumarkaði í árslok 1998 þegar raforkuverið var gangsett með 60 MW framleiðslu Nesjavellir var það ákveðið til þess að svara þörfum íslenska orkumarkaðarins, sérstaklega með það að markmiði að sinna þörfum hins nýja álvers í Hvalfirði. Breytingar eru fyrirsjánlegar á £s- lenska raforkumarkaðnum þegar fram líða stundir. Þannig er gert ráð fyrir að einkaleyfi til raforkuöflunar verði afnumið og samkeppni komið á í raforkumálum íslendinga. Er fram- tíðarsýnin sú að raforkuframleiðend- ur keppi á frjálsum markaði um að selja raforku til dreifiveitna sem keppi innbyrðis um hylli neytenda. Það eina sem eftir stæði í eigu opin- berra aðila væri landsnetið, raflín- urnar sem flytja raforkuna um land- ið, en að því kerfi hefðu allir framleiðendur og seljendur jafnan aðgang. Það er m.a. með þetta i huga sem stjórn veitustofnana Reykjavíkur- borgar lagði til við borgarráð að Nesjavallavirkjun yrði stækkuð enn frekar á sviði raforkuvinnslu. Þegar samkeppni hefst í sölu raforku á ís- landi vill Orkuveita Reykjavíkur standa vel að vígi með eigin orkuver. Stækkun Nú standa yfir framkvæmdir við enn frekari stækkun virkjunarinnar úr 60 í 76 MW og samþykkt hefur verið af hálfu borgarinnar að stækka virkjunina upp í 90 MW. Samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið er tahð að miðað við nútímatækni geti Nesjavallasvæðið staðið undir 90 MW raforkuframleiðslu í 30 ár og varmaorku í meira en eina öld. Þá er einnig tæknilega mögulegt að nýta varmann enn betur og á sú bætta nýting að geta skilað 16 MW til við- bótar við þau 90 MW sem ákveðin hafa verið. Það er með þetta í huga sem ákveðið hefur verið að óska eftir því við Alþingi að það heimili enn frekari stækkun Nesjavallavirkjun- ar, þ.e. upp í 106 MW. Hér er um afar hagkvæman virkj- unarkost að ræða, þar sem aðeins verður fjárfest í stækkun gufuveit- unnar vegna raforkuframleiðslunn- ar. Miðað við þá aukningu sem er við- varandi á markaði Orkuveitu Reykjavíkur verður þörf fyrir hlutar þeirrar aukningar, sem þegar hefur verið ákveðin, strax á næsta ári. Alla umframframleiðslu hefur Lands- virkjun síðan lýst sig reiðubúna til að kaupa. Kostnaður vegna þessarar framleiðsluaukningar er áætlaður um 1.200 milljónir króna, en tekjur 150 til 200 milljónir árlega. Arðsemi þessarar fjárfestingar er talin vera 20 tU 25%. íbúar á Reykjavíkursvæðinu eru því vel settir hvað snertir framboð á heitu vatni og rafmagni þegar til framtíðar er litið. Hinar vistvænu auðlindir sem íbúarnir hafa aðgang að eru gæði sem eru einstæð í heim- inum á tímum mikillar mengunar. Að lokum er vert að hafa í huga að Nesjavallavirkjun byggist á íslenskri þekkingu þar sem innlendar auðlind- ir eru nýttar. Höfundur er formaður ntjómar veitustofnana Reykjavikur. FÉLAGSSTARF Stofnfundur kjördæmis- ráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi Stofnfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi verður haldinn föstudaginn 6. október nk. í Félagsheimili Kópavogs. Fundurinn hefst kl. 17.30 en fyrir fundinn heldur kjördæmisráð Sjálf- stæðisflokksins i Reykjaneskjördæmi skilafund sinn. Á stotnfundinum verður kosin stjórn hins nýja kjördæmisráðs og starfsemi þess sett ný lög, auk annarra aðalfundarstarfa. Á fundinum flytja ræður formaður Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddsson, forsætis- ráðherra, og varaformaður flokksins, Geir H. Haarde, fjármálaráðherra. V Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjanes- kjördæmi Skilafundur kjördæmisráðsins verður haldinn föstudaginn 6. október næstkomandi kl. 17.00 í Félagsheimili Kópavogs. Ávarp flytur Árni M. Matthiesen, sjávarútvegsráðherra. Stjórnin. FUIMOIR/ MAIMNFAGNAÐUR Kópavogsbúar Opið hús Sjálfstæðisfélags Kópavogs hefst næstkomandi laugardag, 30. september, milli kl. 10 og 12 í Hamraborg 1. Heitt á könnunni. Allir bæjarbúar velkomnir. Sjálfstæðisfélag Kópavogs. SMAAUGLYSINGAR DULSPEKI Sálarrannsókna- félag Suðurnesja Skyggnilýsingarfundur María Sigurðardóttir, miðill, verður með skyggnilýsingarfund í húsi félagsins, Víkurbraut 13, í Keflavík, sunnudaginn 1. októ- ber kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 20.00. Allir velkomnir. Stjórnin. FELAGSLIF I.O.O.F. 12 E 1819298V2 = Rk. I.O.O.F. 1 = 1829297V2 = Rk. ATH: 19.30. WUAUQLÝaiNOAB «endi»t A augWmbl.is mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.