Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 49

Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 49
MORGUNBLAÐlt) UMRÆÐAN ing Canada JAN 18,1995). Rafræn skjalastjórnun skiptir því meira máli en áður. Ef skjalið á að nýtast öllu fyrirtækinu þarf að vista það í sameiginlegum þekkingar- grunni fyrirtækisins. Slíkm- grunnur er upplýsingafræðilega skipulagður út frá lífshlaupi skjals. Persónuleg skjalavistun ætti að heyra sögunni til. Hvernig er þá hægt að stjórna skjölum? Rafræn skjalavistun og rafræn skjalastjórnun Margir halda að nóg sé að vista skjöl á sam- eiginlegu drifi fyrir- tækisins oftast með „heimatilbúinni" flokk- un. Mikill munur er hins vegar á skjalastýr- ingu (electronic docu- ment management, EDM) af þessu tagi og skjalastjórnun (Records management, skammstafað RM). Skjalavistun eða EDM felm- einfaldlega í sér vistun rafrænna skjala í tölvukerfi. Takmarkað skipulag er oftast í tölvugrunninum en oft unnt að leita að skjölum eftir orðum í texta þeirra; svokölluð full textaleit. í rafræna skjalavistun vantar oftast alveg hugmyndir um skjalaáætlun (á ensku records ret- ention), þ.e. hvað gera eigi við skjöl- in eftir að notagildi eða líftíma þeirra er lokið. Skjölin „eru bara þarna“ inni í tölvukerfinu og safnast upp. Ofgnótt upplýsinga er vaxandi vandamál. Rafræn skjalastjórnun flokkar skjölin hins vegar á samræmdan hátt um leið og þau eru vistuð í tölv- unni. „Líftími" skjalsins í kerfinu er fyrirfram ákveðinn samkvæmt skjalaáætlun vinnustaðarins. Skjal- astjórnunarkerfi (Records man- agement systems) taka þannig mið af öflugri skráningu, samræmdri vistun og vel skilgreindum hug- myndum um langtímavistun eða eyðingu rafrænna skjala samkvæmt stefnu og markmiðum vinnustaðar. Viðurkenndur skjalastjórn- unarhugbúnaður, hvað er það? GífurJegt framboð er af hugbúnaði sem vistar skjöl. Viðurkennt skjala- stjórnunarkerfi þarf hins vegar að geta stjómað öllum skjölum vinnu- staðarins án tillits til forms sam- kvæmt hugmyndinni um lífshlaup skjals (á ensku: life cycle theory). Hug- búnaðurinn þarf að gera ráð fyrir marg- þættri og sveigjanlegri skráningu ásamt skjalaáætlun. Bandaríska varnar- málaráðuneytið hefur gefið út kröfulýsingu um það hvað telst vera viðurkenndur skjala- stjórnunarhugbúnað- ur, US DoD 5015.2. Reglur þessar eru það alþjóðlega viðmið sem stuðst er við í heimi skjalastjórnunar þar sem alþjóðlegur stað- all um val á skjalastjórnarhugbúnaði er ekki til. Ráðuneytið vottar sam- kvæmt reglunum og kaupir búnað samkvæmt umræddum kröfum. Það eru nú aðeins nokkur kerfi í heimin- um sem eru vottuð skv. alþjóðlegum kröfum skjalastjórnunar. A heimasíðu upplýsingaskrifstofu varnarmálaráðuneytisins er að finna sicrá yfir hugbúnað sem telst vera viðurkenndur og uppfyllh- kröfur skjalastjórnunar (sjá nánar http:// jitc.fhu.disa.mil/recmgt/). Á um- ræddum lista eru skjalastjórnunai-- kerfi á borð við ástralska kerfið TRIM (Tower Records Information Management), bandaríska kerfið FOREMOST og IBM Records Manager svo eitthvað sé nefnt. Skjalastjórnun er sjálfstæð fræðigrein Þegar undirrituð hóf sjálfstæðan atvinnurekstur á sviði skjalastjórn- unar fyrir tíu árum vissu fáir um hvað skjalastjórnun snerist yfirleitt. Margt hefur breyst síðan og veruleg bót hefur orðið. Menn gera sér nú grein fyi-ir því að skjalastjómun er sérstök fræði- grein og sérstakt lektorsembætti í skjalastjómun hefur til dæmis verið stofnað við Háskóla Islands. Jó- hanna Gunnlaugsdóttir hefur nú þegar unnið ómetanlegt starf við að auka upplýsingu um skjalastjórnun hér á landi jafnt í kennslu sinni sem á almennum vettvangi. Allt of óvarkár notkun er þó enn á hugtakinu í almennri umræðu hér á landi. Skjalastjórnun er hrært sam- an við skjalavistun, skjalavörslu, upplýsingastjórnun, gagnavinnslu og ég veit ekki hvað. Skjalastjórnun er hins vegar einfaldlega stjórnun skjala samkvæmt hugmyndinni um lífshlaup skjals. Stjórnendur hér á landi gera sér samt grein fyrir því að skjölum á pappír jafnt sem rafrænum skjölum þarf að stjórna og að til er fræði- grein um viðfangsefnið. Hugum að stjórnun skjala Fyrirtæki og stofnanir huga sífellt meir að stjórnun rafrænna skjala. Fræðslu þarf að auka um þessi mál en Skipulag og skjöl ehf. bjóða upp á símenntunarnámskeið á þessu sviði. Það sparar gífurlega fjármuni að taka upp skjalastjórnun á vinnustað. Framtíðin felst í því að vista rafræn skjöl kerfisbundið en það bætir þjónustu og rekstur fyi-irtækja og stofnana svo um munar. Höfundur er bókasafns fræðingur og starfar við ráðgjöf á sviði skjala- sijómunar hjá Skipulagi og skjölum ehf. Alfa Kristjánsdóttir Haust á -glæsilegar verslunar og skemmtiferðir Miðað er við að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja-11 ára ferðist saman. Innifalið: Flug, gisting á Pil Lari Playa í 1 viku, ferðir til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. 41.970», Miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman. Innifalið: Flug, gisting á Pil Lari Playa í 1 viku, ferðir til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Umboðsmeur Plúsferða u m allt lard Blönduós • S: 452 4168 Dalvík • S: 466 1405 Sauðárkrókur • S: 453 Borgames • S: 437 1040 ísafjörður • S: 456 5111 Akureyri• S: 462 5000 Höfn • S: 4781000 Vestmannaeyjar • S: 481 1450 8477 Egilsstaðir • S: 471 2000 Keflavík*S: 421 1353 Selfoss • S: 482 1666 Grindavík • S: 426 8060 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 i9 Opið alla daga til kl. 23= brokkoli-blanda grænmetisbjanda Dh Weetabix Wheetabix Weetabix Frutibix 249f Weetabíx Weetos 264:219: GK« Noa-tramp XV 4 stk í pakka NÓI SÍRÍUS 99: #Sk' orkudrvkkur •i- Söluskrifstofur Plúsferða: Faxafeni 5 • 108 Reykjavik og Hlíðasmára 15 • 200 Kópavogur Sínii 535 2100 • Fax 535 2110 •Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is FERÐIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.