Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 51

Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 51
 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 51 UMRÆÐAN Oflugur al- mannamiðill NOKKUÐ kröftug umræða hefur farið af stað um framtíð RUV. Ásgnmur Sverrisson, kvikmyndagerðarmað- ur, skrifaði athyglis- verða grein í Morgun- blaðið á dögunum og leiðarahöfundur sama blaðs veltir því upp hvort einkavæða beri stofnunina og að selja eigi Rás 2. Ríkisútvarp- ið stendur á krossgöt- um og marka þarf því nýja stefnu. Það hefur ekki staðið undir vænt- ingum sem framsækinn menningarmiðill og sérstaða þess er ekki nægjanleg með hliðsjón af einkamiðlunum. XJt af auglýsingamarkaði Ríkisútvarpið hefur brýnu hlut- verki að gegna, þótt það sinni því RÚV Það er ekkert réttlæti í því, segir Björgvin G. Sigurðsson, að ríkis- miðill með tekjur af af- notagjöldum etji kappi við einkareknar stöðvar á auglýsingamarkaði. ekki sem skyldi nú um stundir. Ríkis- rekið útvarp og sjónvarp eiga að standa fyrir öflugri menningardag- skrá og kröftugri innlendri dag- skrárgerð sem, eins og Ásgrímur bendir á, á að vinna að mestu leyti ut- an húss. Ríkisútvarpið á að bjóða upp á vandað erlent efni, sem ekki er á boðstólum annars staðar, en fyrst og fremst innlenda dagskrárgerð sem bragur er af. Fyrsta skrefið er að taka RÚV út af auglýsingamarkaði. Það er ekkert rétttlæti í því að ríkis- miðill með tekjur af af- notagjöldum etji kappi við einkareknar stöðv- ar á auglýsingamark- aði og komi þannig í veg fyrir að þær nái fótfestu. RÚV á að setja á fjárlög og marka á stofnuninni nýja stefnu í samræjni við það. Brottför RÚV af auglýsingamarkaði myndi án vafa einnig verða til þess að einka- reknu stöðvamar myndu eflast að því marki að innlend og vönduð dagskrárgerð þar aukist verulega. títvarpsráð kosið beint Líklega stendur hið pólitískt skip- aða útvarpsráð í veginum fyrir fram- þróun og eðlilegum rekstri á RÚV. Fáránleiki þess að fulltrúar stjóm- málaflokkanna sitji á löngum fund- um og bollaleggi um frammistöðu einstakra fréttamanna og skemmt- anagildi hinna og þessara dagskrár- liða er augljós. Finna þarf aðrar leið- ir til að skipa útvarpsráð til að losa stofnunina undan ægivaldi stjóm- málaflokkanna. Til dæmis mætti hugsa sér að kosið yrði beint og milli- liðalaust í ráðið meðíram öðmm kosningum til Alþingis eða sveitar- stjóma. Slík skipan myndi án vafa einnig tryggja mun betur hlutleysi fréttastofa RÚV en nú er gert. Brýn nauðsyn er á því að starf- ræktur sé öflugur almannamiðill sem sinni margræddu menningarhlut- verki, bæði í útvarpi og sjónvarpi, og lýðræðisins vegna er aðkallandi að hægt sé að gera kröfu á algjört hlut- leysi öflugrar fréttastofu. Ríkisút- varpið stendur á tímamótum og eigi stofnunin að lifa og eflast þarf að fara fram öflug pólitísk umræða um fram- tíð þess og framtíðarhlutverk. Höfundur er framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar. HMUHMNÍISMLft Um helgina höldum við upp á - bolludaginn...hinn síðaúj Að því tilefni getur þú ' keypt gómsætar 4 rjómabollur með ekta rjóma af öllum stærðum og gerðum í bakaríinu á Grensásvegi. Grensásvegi 26 • Opið miili 7-18 alla helgina PEYSUR - TVÆR FYRIR EINA Faxafeni8 ■OXI OKÚ Ú'l Kl Í‘L 108 Reykjavík íþróttir á Netinu vg> mbl.is -ALL.TAf= e/TTHV'AO NÝTT~ Sýningartilboð • Frábær tilboð á öllum tegundum flísa ■ 20% afsláttur á hinum vönduðu blöndunartækjum frá Eichelberg ■ Forbo gæðaparket á tilboði Eik Robust: 2.680 kr. pr. m2, verð áður 3.090 kr. Hlynur 3. stafa: 3.990 kr. pr. m2, verð áður 4.560 kr. Hlynur 2. stafa: 4.990 kr. pr. m2, verð áður 5.410 kr. Beiki 2. stafa: 4.430 kr. pr. m2, verð áður 4.920 kr. Merbau Natur: 3.575 kr.pr. m2, verð áður 3.970 kr. 5% aukafslátlur ef þú festir kaup á innrétííngu fyrir 1S oict. Sýningarhelgi í Gólfefnabúðinni Um helgina stendur yfir hjá okkur sýning á glæsilegum nýjum vörum. í tilefni af því bjóðum við upp á margvísleg tilboð. Það verður heitt á könnunni og börnin fá gos og sælgæti. Opið laugardag frá kl. 10-16 og sunnudag frá kl. 13-16 GOLFEFNABUÐIN traust undirstaða Qölskyldunnar REYKJAVÍK I AKUREYRI Borgartún 33 I Laufásgata 9

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.