Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 62
62 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
ÍDAG
Safnaðarstarf
* Vetrarstarf
Melstaðar-
prestakalls
BARNAGUÐSÞJÓNUSTUR verða
í vetur í samstarfi við Breiðabólstað-
arprestakall alla sunnudaga kl. 11.
Fastur samkomustaður er í
Hvammstangakirkju, en öðru
hverju verður farið í sveitakirkjum-
ar, svo börnin fái að koma í sína
kirkju einhverntíma vetrarins.
Kirkjubókin hefur verið send öllum
3-9 ára bömum, en öll börn sem
' koma geta fengið bók, og einnig þau
sem ekki kynnu að hafa verið á skrá.
í kirkjunni fá bömin svo myndir til
að setja inn í bókina. Foreldrar og
aðstandendur em hvattir til að
koma með bömunum, því þá hafa
þau tvöfalda ánægju af kirkjuferð-
inni, auk þess sem hinir eldri
skemmta sér oft ekkert síður vel en
hin yngri. Kveðja,
Guðni Þór Ólafsson
sóknarprestur.
Héraðsfundur,
Diddú, laugardags-
messa og risaterta
,, Hátíðarmessa verður í Landa-
kirkju laugardaginn 30. september
kl. 13:30 með skírn og altarisgöngu.
í messunni syngur Sigrún Hjálm-
týsdóttir einsöng og syngur með
Hátíðarkór Kjalamessprófasts-
dæmis. Tilefnið er að með messunni
lýkur héraðsfundi Kjalamess-
prófastsdæmis. Um leið er verið að
Ijúka hátíðarhöldum á vegum pró-
fastsdæmisins vegna 1.000 ára
kristni á íslandi sem staðið hafa yfir
síðan vorið 1999 víðs vegar í um-
dæminu, en það næryfir Kjós, Kjal-
ames, Mosfellsbæ, Álftanes, Garða-
bæ, Hafnarfjörð og Reykjanes, auk
Vestmannaeyja. Prófastur er dr.
Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum
í Kjós. Hann mun þjóna fyrir altari
ásamt heimaprestum, sr. Báru Frið-
riksdóttur og sóknarpresti sr. Krist-
jáni Björnssyni sem einnig prédikar.
Söngstjóri er Guðmundur H. Guð-
jónsson, en honum til aðstoðar verða
organistamir Einar Örn Einarsson,
frá Keflavíkurkirkju, og Úlrik Óla-
son, frá Víðistaðakirkju. Eftir messu
verður öllum kirkjugestum boðið að
snæða risatertu í Safnaðarheimilinu
sem Vilberg kökuhús og Magnúsar-
bakarí gefa í tilefni kristnihátíðarárs
í Eyjum. Ættu þá allir að vera til-
c búnir fyrir opnunarhátíð á Skans-
svæðinu og Landlyst en dagskrá
hefst þar kl. 16 þennan sama laugar-
dag.
Sr. Kristján Björnsson.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45-7.06. Mömmumorgunn kl.
10-12 í umsjá Hrundar Þórarins-
dóttur. Kaffispjall fyrir mæður, góð
upplifun fyrir böm.
Grafarvogskirkja. Al-Anon fund-
ur kl. 20.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.
Ffladelfía. Unglingasamkoma kl.
20.30. Mikill og hress söngur. Allir
hjartanlega velkomnir.
Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11.
Ailir hjartanlega velkomnir. Á
morgun sér Steinþór Þórðarson um
prédikun og Bjami Sigurðsson um
biblíufræðslu. Ný lofgjörðarsveit.
Barna- og unglingadeildir á laugar-
dögum. Súpa og brauð eftir sam-
komuna. Allir velkomnir.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 19 handverkssýning heima-
manna opnuð í Safnaðarheimilinu að
viðstöddum prófasti Kjalarnespró-
fastsdæmis, dr. Gunnari Kristjáns-
syni, og nokkrnm fundarmanna hér-
aðsfundar. Sýningin er opin til kl.
21.
Hvalsneskirkja. Miðhús, kyrrðar-
stund kl. 11.05.
Víkurprestakall í Mýrdal. Kirkju-
skólinn í Mýrdal byijar vetrarstarf
sitt í Víkurskóla á morgun, laugar-
dag, kl. 11.15. Börn og forráðamenn
í Mýrdal hvött til að mæta. í vetur
fáum við nýtt efni, nýjar sögur, nýtt
brúðuleikhús. Sóknarprestur og
starfsfólk kirkjuskólans.
Frelsið, kristileg miðstöð. Bæna-
stund kl. 20 og Gen X, frábær kvöld
fyrir unga fólkið kl. 21.
Sjöundadags aðventistar á ís-
landi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti:
Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón-
usta kl. 11.15. Ræðumaður Eric
Guðmundsson.
Safnaðarheimili aðventista,
Blikabraut 2, Keflavík: Biblíu-
fræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl.
11.15. Ræðumaður Theodór Guð-
jónsson.
Safnaðarheimili aðventista,
Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Björgvin Snorrason.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17,
Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Frode Jakobsen.
Loftsalurinn, Hölshrauni 3,
Hafnarfirði: Guðsþjónusta kl. 11.
Biblíufræðsla að guðsþjónustu lok-
inni. Ræðumaður Gavin Anthony.
VELVAKMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Mannleg
reisn
FYRIR um það bil tveimur
árum nefndi vinkona mín
við mig, að hún fengi dag-
blaðið Dag-Tímann á hálf-
virði, af því að hún væri
orðin „eldri borgari“. „Þú
sem alltaf kaupir Morgun-
blaðið ættir að geta fengið
afslátt af því,“ sagði hún.
Jú, ég hafði keypt Morgun-
blaðið óslitið í næstum
hálfa öld. Það sakaði ekki
að spyija. Ég hringdi því á
Morgunblaðið. Eina svarið
sem ég fékk var að málið
yrði athugað og ég yrði lát-
in vita. Ég beið í nokkra
mánuði og heyrði ekkert
frá Morgunblaðinu og ekki
breyttist áskriftargjaldið.
Ég hringdi því aftur. Jú,
ekki stóð á svarinu: „Þú ert
með skerta tekjutryggingu,
en aðeins þeir, sem ein-
göngu hafa framfærslu frá
Tryggingastofnun, fá þenn-
an afslátt.“ Mér var brugð-
ið. Ekki endilega af því að
þurfa að greiða blaðið fullu
verði, heldur miklu frekar
vegna hugsunarinnar sem
að baki liggur. Ég hélt í fá-
visku minni að þarna væri
um að ræða nk. heiðurs-
mannaafslátt, ef um afslátt
væri að ræða. Fær þetta
fólk, sem hefur framfærslu
sína eingöngu frá Trygg-
ingastofnun, líkan sess í
þjóðfélagi okkar og sveitar-
limirnir höfðu fyrr á öld-
inni? Líf þeirra var enginn
dans á rósum og ráðamenn
sáu eftir hverri krónu sem
til þeirra raknaði. Stundum
tóku sig til einstaka betur
megandi heiðursmenn og
létu smávegis af hendi
rakna til þessara fátækl-
inga.
Ég er svo lánsöm að vera
ein af þessum með „breiðu
bökin“, ein af þeim sem
borguðu yfir 40% skatt af
öllum lífeyrisgreiðslum á
sínum tíma og aftur fæ ég
að borga tæplega 40%
skatt, þegar þessar sömu
greiðslur koma til útborg-
unar. Það fer ekki framhjá
okkur ellilífeyrisþegum að
við erum byrði á þjóðinni,
en mesta áhyggjuefni ráða-
manna virðist vera hversu
langlíf við erum orðin!
Eg vona að næsta kyn-
slóð megi lifa ævikvöld sitt
með reisn.
Guðrún Jörgensdóttir,
kt. 040729-4299.
Baráttukona
EIN er sú kona öðrum
fremur, sem barist hefur
fyrir hagsmunamálum aldr-
aðra og öryrkja. Hún heitir
Margrét Thoroddsen og
starfaði sem upplýsinga-
fulltrúi hjá Tryggingastofn-
un ríkisins árum saman.
Margrét er óþreytandi
að skrifa blaðagreinar um
það misrétti, sem við aldr-
aðir búum við. Ég geymi
alltaf greinar hennar og er
með hér fyrir framan mig
grein, sem hún skrifaði í
Morgunblaðið 20. júh' sl.
Þar ræðir hún um órétt-
mæta skattlagningu bens-
ínstyrks og að bensínstyrk-
urinn fylgi ekki lengur
hækkun á bensínverði, eins
og upphaflega var ákveðið.
Hún segir að bensínstyrk-
urinn ætti að vera 6.552 kr.
á mánuði samkvæmt þeirri
viðmiðun í stað 5.343 kr.
Nú sé ég í Morgunblað-
inu fyrir stuttu, mér til
mikillar gleði, að heilbrigð-
isráðherra hafi sett reglu-
gerð um að bensínstyrkur-
inn hækki 1. október nk. í
6.663 kr.
Skyldu skrif Margrétar
hafa haft áhrif? Það er ekki
ónýtt að eiga svona tals-
mann.
Sigurður.
Augnabrúnatattoo
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
komast í samband við kon-
ur, sem hafa farið í augna-
brúnatattoo. Hægt er að
hafa samband við hana í
síma 555-4215.
Tapad/fundiö
Fingravettlingar
fundust
PRJÓNAÐIR fingravettl-
ingar fundust við strætis-
vagnaskýlið við Iðufell um
hádegið, föstudaginn
22.september sl. Upplýs-
ingar í síma 557-6362 íyrir
hádegi.
Enskt alþjóða-
ökuskírteini tapaðist
ENSKT alþjóða ökuskír-
teini tapaðist, annað hvort í
Hafnarfirði eða Reykjavík.
Skilvís finnandi er vin-
samlegast beðinn að hafa
samband í síma 551-3669.
Rauð Lego-barnaúlpa
tapaðist
ÞIÐ sem voruð í Ölfusborg-
um dagana 8-10.september
sl. og hafið fundið rauða
Lego-barnaúlpu á leik-
svæðinu, vinsamlegast haf-
ið samband í síma 562-2655.
Bleik Sand-flíspeysa
tapaðist
BLEIK Sand-fhspeysa
tapaðist fyrir framan Lista-
safn Islands um laugar-
dagseftirmiðdaginn 23.
september sl. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beð-
inn að hafa samband við
Hildi í síma 555-4848 eða
698-4828. Fundarlaun.
Dýrahald
Persneska kettlinga
vantar heimili
TVO persneska kettlinga
vantar góð heimili. Annar
ketthngurinn er fress og er
golden að lit, en læðan er
hvít. Þeir eru þriggja mán-
aða gamlir. Upplýsingar í
síma 860-2314.
Snotra er týnd
KISAN okkar hún Snotra
er týnd. Hún er grá og hvít
með lítið skott. Snotra er
með rauða ól. Hún sást síð-
ast mánudagskvöldið
25.september sl. í Álfa-
borgum í Grafarvogi. Ef
einhver hefur orðið var við
hana eða veit hvar hún er
niðurkomin, vinsamlegast
hafíð samband í síma 567-
5404 eða 698-7406.
SKAK
Lmsjón Helgi Áss
Grétarsson
STAÐAN kom upp í
Norðurlandamóti taflfé-
laga sem haldið var fyrir
skömmu. Hvítt hafði Helgi
Áss Grétarsson (2563)
gegn Dananum Jens Hart-
ung Nielsen (2224). 25.
Rxd5 Einfaldara hefði ver-
ið að leika 25. Bxe5! Hxe5
26. Hxe5 Dxe5 27. Rg6+
og drottningin fellur.
25...Rxd5 26. Hxe5 Rf6
27. Rxh6! gxh6 28. Hxe8
Dxg3 29. Hxf8+ Hxf8 30.
hxg3 Kg7 31. Hel Kg6 32.
He7 Hb8 33. Be5 Rg8 34.
Hxf7 He8 35. Hg7+ Kf5
36. Bd4 b5 37. Ha7 He6
38. g4+ Kf4 39. Kh2 Re7
40. a4 bxa4 41. bxa4 og
svartur gafst upp.
Hvítur
á leik.
Frábært brúðkaup,
tengdapabbi. Ég ætti
að gifta mig oftar.
Víkverji skrifar...
UMMÆLI Hreggviðs Jónssonar,
framkvæmdastjóra og fyrrver-
andi alþingismanns, um svokallaðan
ruslpóst hafa vakið nokkra athygli.
Fyrir nokkrum árum gerði Vík-
verji svipaða úttekt heima hjá sér á
þessum málum, því líkt og Hreggvið-
ur þá flokkar Víkverji megnið af
þessum pósti sem óvelkomið rusl. Á
þessum árum var Víkverji nýfluttur í
nýbyggingahverfi og átti bam á
fermingaraldri. Skemmst er frá því
að segja, að í pósthólfið var dembt
þvílíku magni af auglýsingum að
Víkverji hefur hvorki fyrr né síðar
lent í öðru eins. Uppistaðan í þessum
pésum voru annars vegar „upplýs-
ingar“ um það hvað fólk í nýbygg-
ingahverfum þarfnast mest, og hins
vegar auglýsingar sem áttu að höfða
til fermingarbamsins. Þetta vom
t.d. auglýsingar um gjafir, fatnað og
veisluhöld, kynningar frá fjármála-
stofnunum vom stílaðar bæði á
fermingarbarnið og foreldrana.
Þetta vom auglýsingar frá öryggis-
fyrirtækjum, byggingavöruverslun-
um, húsgagnaverslunum og svo
mætti lengi telja.
XXX
VÍKVERJI brá á það ráð að líma
upp kurteislega orðaða tilkynn-
ingu við póstkassann þar sem hann
bað útburðarfólk vinsamlegast að
setja engan auglýsingapóst í hólfið.
Þau tilmæli bám engan árangur og
pésamir héldu áfram að fylla hólfið.
Víkverji komst að því að afkasta-
miklir verktakar sáu um útburðinn
og fóm þeir yfir á eldingarhraða á
línuskautum. Kappsemi þessara
verktaka var svo mikil að Víkverji
náði ekki að hlaupa þá uppi.
Þótt Víkverji sé fluttur úr þessu
hverfi í annað rótgrónara flæðir
auglýsingapóstur ennþá inn um lúg-
una, flestum til ómældra leiðinda.
Auglýsingapésar frá tölvufyrirtækj-
um em Víkverja sérstaklega til ama.
En Víkverji er svo öfugsnúinn að
þessi póstur hefur þveröfug áhrif á
hann og hver pési sem inn um lúguna
rennur styrkir hann í þeim ásetningi
að kaupa aldrei neitt af þessum fyr-
irtækjum.
Hjörtur Guðnason, framkvæmda-
stjóri Prenttæknistofnunar, lítur
öðmm augum á þennan póst, og seg-
ir hann atvinnuskapandi og að hann
hafi jafnvel nokkurt upplýsingagildi.
Vafalaust liggur töluverð vinna á
bakvið svona auglýsingagerð, en
Víkveiji getur ekki annað en fundið
til með þeim sem leggja vinnu í þessa
framleiðslu, vitandi að afurðin er
flestum til ama.
xxx
MARKAÐSVÆÐINGIN er alls-
ráðandi og fyrirtæki sérhæfa
sig í alls konar markaðsráðgjöf og
gera kannanir á högum fólks. Vík-
verji frétti af atviki sem átti sér stað
fyrir skömmu. Einhverju sinni var
hringt í að kvöldi heim til kunningja
Víkveija og hann beðinn að svara
nokkmm spurningum. Hann jánkaði
því og ein spurningin var m.a. sú
hvort hann hefði áhuga á að nýta sér
ókeypis ráðgjöf um lífeyrismál.
Hann jánkaði því líka og skömmu
síðar hringdi kona til hans í vinnuna
og bauð honum þessa ráðgjöf. Þar
sem hann hafði ekki tök á að hlusta á
ráðgjöfina í síma þá bauð konan hon-
um að hitta sig á kaffihúsi um kvöld-
ið til að ræða málin. Þegar hann
sagði eiginkonunni frá þessari til-
högun fannst henni framhjá sér
gengið og vildi fá að fylgjast með
þessu. Henni fannst undarlegt að
sölukonan hefði ekki boðist til að
koma heim til þeirra og kynna þeim
báðum þessi mál, en eiginmaðurinn
sagði að aldrei hefði verið minnst á
þann möguleika, eða að hann ætti
konu yfirleitt. Það varð úr að hjónin
fóm bæði á kaffihúsið til að hitta
sölukonuna. „Ráðgjöfin“ reyndist
hins vegar sölumennska af fyrstu
gráðu þar sem reynt var að telja þau
hjón á að kaupa líftryggingu af er-
lendu fyrirtæki.
Víkverji verður að taka undir það
að þetta séu undarleg vinnubrögð og
skilur mætavel að eiginkonunni hafi
verið misboðið með þessu háttalagi.