Morgunblaðið - 29.09.2000, Side 65

Morgunblaðið - 29.09.2000, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 65 > FÓLK í FRÉTTUM I Leikflokkurinn Bandamenn sýnir edda.ris í smíðaverks Ekki málið að „vinna“ heldur vera með Bandamenn hafa unnið baki brotnu undanfarin ár við að kynna íslenskan bóka- og menningararf í gegnum nýstárlegar og kraftmiklar leiksýningar en nýjasta verk þeirra, edda.ris - Skírnismál að nýju, er nú í full- um gangi. Arnar Eggert Thoroddsen hitti tvo af leik- urunum, þá Borgar Garðarsson og Felix Bergsson, að máli yfír vínarbrauði og kaffí. Felix og Borgar taka niður grímurnar. Morgunblaðið/Þorkell i ALLT í einu er ég staddur einn inni í stofu með stórleikaranum Borgari Garðarssyni, þar sem Felix hvarf í símann í blábyrjun viðtalsins. Eg notaði því tækifærið og spurði Borg- j ar út í leikhússigra hans í Skandin- avíu en þar hefur hann verið búsett- I ur meira og minna síðustu ár. Borgai- byrjar á að upplýsa mig um að það verði ekki nema örfáar sýningar á edda.ris þar sem hann sé á leiðinni út aftur um miðjan októ- ber. „Ég er búinn að vera í Skand- inavíu síðan 1973, að vísu með ein- hverjum hléum.“ Er hann þá jafnvígur á öll Norðurlandamálin? „Ég segi það nú ekki,“ svarar j hæverskur Boi’gar. „En ég hef leikið j á fjórum," segir hann þó með sem- I ingi. Ungir menn í ævintýraleit Borgar vill ekki heldur gera það að stórmáli að hann hafi ákveðið að flytjast út á sínum tíma. „Núna þeg- ar ég lít til baka mætti líklega kalla það ævintýramennsku. Ég var leik- ari hér í tíu ár en síðan kom hingað leikhús sem ég var afskaplega hrif- inn af og það kom fljótlega í ljós að ég smellpassaði inn í það. Þetta var Lilla teatern í Helsingfors. Þar hef ég verið meira og minna í 12-15 ár,“ segir Borgar. „Já, það mætti skrifa þetta á ævintýramennsku... eða leit ef maður vill vera djúpur,“ segir hann og hlær hrossahlátri. í þessum orðum töluðum bætist Felix í hópinn og hann rifjar sömuleiðis upp utan- landsferðir sínar en Felix lærði í Skotlandi og London á sínum tíma. „ Jú, jú, ætli þetta hafi ekki verið ein- hver ævintýramennska hjá mér líka. En svo verður maður líka einhvem veginn þreyttur á umhverfinu með tíð og tíma. Þá langar mann kannski til að fá önnur áhrif og vinna með öðru fólki.“ Ólympíuleikarnir? „Ég held að við Bandamenn yrð- um vitlausir ef við ætluðum að eyða meiri tíma en við höfum gefið okk- ur,“ segir Felix og kímir. „Hámark fjórða hvert ár,“ segir Borgar og þeir hlæja dátt. „Helst í kringum Ól- ympíuleikana svo að maður hafi eitt- hvað til að horfa á,“ bætir Borgar við og hlær hátt. „Já, það er rétt! Þetta er alltaf í kringum Ólympíuleikana," segir Felix eilítið hissa en bætir svo við kankvís: „Þetta er ekki spurning um að „vinna“ heldur vera með eins og þeir segja.“ Þeir segja Svein Einarsson, höf- und verksins, vera mikinn gúrú. „Hann kernm- verkefnunum af stað og velur hópinn sem hefur smollið al- veg ótrúlega vel saman. Svo vinnum við þetta öll í sameiningu og Sveinn er mjög opinn fyrir því sem leikar- arnir hafa til máíanna að leggja. Það er samvinna á alla vegu.“ Allar reglur þverbrotnar Leikhús geta tekið á sig margvís- legar myndir; til eru stór leikhús og lítil, áhugamannaleikhús og at- vinnu-, leikhús í einkaeign svo og ríkisrekin. „I stórum leikhúsum verður allt að vera í föstum skorðum svo að það gangi upp,“ álítm- Borgar. „En í litlu fyrirtæki heldur þú sjálfur utan um allt. Það verða að vera viss- ar reglur fyrir stórt atvinnuleikhús. Annað er ekki hægt.“ „Reglur sem við getum hins vegar þverbrotið í Bandamönnum," segir Felix og glottir. Borgar samsinnir: „Þar er ekkert heilagt. Akkúrat ekk- ert.“ „Það er ekki þar með sagt að við höfum ekki gaman af að vinna í stór- um leikhúsum,“ áréttar Felix. „Þar eru bara aðrar vinnuaðferðir.“ Amlóði í Kóreu Þeir félagar segja að sýningar Bandamanna hafi fengið góða dóma erlendis. „Þetta hefur undið upp á sig,“ útskýrh' Borgar. „Við fórum til dæmis með Amlóða sögu til Kóreu vegna þess að leikhúsfrömuðir þar sáu okkur leika í Helsingfors.“ Sömuleiðis hafa fomsagnafræðingar verið ánægðir. „Fræðimenn hafa verið ánægðir með að við séum að koma þessu svona áfram á léttan og skemmtilegan máta,“ segir Felix. „Við erum kannski að koma erfiðum hlutum yfir til fjöldans. Gestir hafa komið til manns eftir sýningar og sagt að nú sé aldeilis kominn tími á að lesa Snorra-Eddu. Og þá er nátt- úrulega tilganginum náð.“ Villtustu barnaleikrit Mai’gt hæfileikafólk tekur þátt í sýningunni og sérstaklega hafa bún- ingar jötnanna, sem erú æði skraut- legir, vakið mikla eftirtekt. Hönnuð- urinn er Helga Björnsson, en hún er búsett í París. „Hún á stóran hluta af þessari sýningu," segir Borgar hrif- inn. „Sömuleiðis eru grímurnar glæsilegar." „Það eru þær Katrín Þorvaldsdóttir og Ásta Hafþórsdótt- ir sem gera grímumar. Ofboðslega flottar,11 bætir Felix við. Borgar er greinilega ekki búinn að jafna sig almennilega á búningunum. „Ég held ég hafi bara aldrei séð svona búninga áður. Jafnvel ekki í v villtustu barnaleikritum," segir hann og dæsir. Felix bætir við: „Ég var einmitt að segja einhverjum um dag- inn frá frumsýningunni. Hann kvað við: „Já, þarna Sesame Street-leik- ritið!“ Farsælt viðtal var hér með á enda og ég kvaddi þá sómapilta með kurt. Eins og fram hefur komið fer Borgar aftur til Helsingfors innan skamms en Felix fer hins vegar til Lundúna með sýningu sína Hinn fullkomni jafningi (The Perfeet Equal) þar sem hann mun leika 10 til 14 sýningar, hvorki meira né minna. Nœturqalinn simi 587 6080 Dúndrandi dansleikur með hljómsveitinni Sín-______________ f Frítt inn til kl. 23.30j m&sm FRUMSYNING I KV0LD - UPPSELT - 4/10 UPPSELT - 5/10 UPPSELT - 6/10 UPPSELT - 11/10 UPPSELT - 12/10 UPPSELT - 13/10 UPPSELT - 14/10 UPPSELT reiður slason - Hatldóra Björnsdóttir - Gunnar Eyjólfsson Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir Leikstjórn: Stefán Baldursson * < '

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.