Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 68
1)8 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Born Maclonnu, Lourdes Maria og Rocco Richy. hafa
haft mjög mikíl áhrif á lif hennar og störf. Hér er hún
ásamt frumburdinum Lourdes.
Madonna um þaö ieyti sem hun skaust upp a
stjörnuhimininn í kjölfar lagsins og plötunnar Like
A Virgin frá 1984.
Madonna hefur iongum veriö
uppáhald tískuheimsins. Hér sýnir
hún snyrtivörur Max Factors.
Madonna hefur skipt óteljandi sinn-
um um ímynd - hér var hún hugfang-
in af Marilyn Monroe.
Madonna er mætt til leiks enn á ný og nú með plötuna Musi
Um þessar mundir er að koma út ný breiðskífa með
Madonnu sem ber nafnið Music. Af því tilefni staldrar
Georg Erlingsson við og rifjar upp nokkrar misjafn-
lega kunnar glefsur úr nær tveggja áratuga löngum
ferli þessarar einu sönnu poppdrottningar.
komst svo loksins í samband við Wamer-
hljómplöturisann. Pegar yfirmaður fyrirtækis-
ins komst í hljóðupptökur hennar vildi hann
hitta stúlkuna sem fyrst. Hann kallaði hana á
fund uppá sjúkrahúsherbergið sem hann lá á
eftir hjartaaðgerð og vildi semja við hana tafar-
laust. Hún mætti á staðinn og heimtaði að fá
samning og segir umræddur yfirmaður í dag að
þótt hann hefði haft hönd sína hangandi útúr
líkkistu hefði hún samt látið hann skrifa undir
og verið sáttvið sinn hlut.
Næsta mál á dagskrá var að fá nógu góðan
umboðsmann og Madonna taldi ekkert minna
duga en sjálfan þáverandi umboðsmann Mieha-
els Jacksons, Freddy Demann. Pegar verið
var að ganga frá samningum við
Freddy lét Jackson hann róa. ./' ,
Menn hjá Wamer urðu þá / >
smeykir um að Madonna tæki (
þau tíðindi óstinnt upp en annað
kom á daginn - hún sagði að þá
hefði Freddy bara meiri tíma fyrir
sig og sú varð raunin en náið og
blómlegt samstarf þeirra Ma-
donnu og Freddy varði í ein
15 ár.
Stærsta hneykslið
Madonna hefur tekið
sér margt fyrir hendur
og snert fólk um allan
heim á jákvæðan hátt
og neikvæðan hátt.
Hún er umdeild fyr-
ir allt sem hún gerir
en rósturnar í
kringum hana risu
þó kannski hæst ár-
ið 1992 um það leyti
sem hún stofnaði út-
gáfufyrirtækið sitt
Maverick. Hún ákvað
að taka þetta með
stæl og gaf út plötuna
Erotica, bíómyndina
Body Of Evidence og
bókina umdeildu sex.
Allt varð auðvitað vit-
laust í Bandaríkjunum og
um allan heim. Platan
fékk lélega dóma, eins lag-
ið „Erotica" sem var kippt
út af MTV-tónlistarstöðinni
aðeins þremur dögum eftir að
Skemmtikraftur af guðs náö
í dag er Madonna mun afslappaðri en hún var áöur.
það var opinberað almenningi fyrir grófar
textasmíðar og klúrt myndband. Myndin fékk
líka slæma dóma enda var sú mynd aldrei neitt
annað en önnur útgáfa af myndinna Ógnareðli
með Sharon Stone og Michael Douglas. Aftur á
móti rauk bókin út eins og heitar lummur og
seldist í um einni og hálfri milljón eintaka.
Stuttu eftir útgáfuhrinu þessa fór að fást á
svörtum markaði 60 mínútna myndbandsspóla
með gerð sexbókarinnar og er hún enn fáanleg
víða. En þetta varð góð byrjun fyrir fyrirtækið
hennar sem seinna gaf út meðal annars út verk
söngkonunnar Alanis Morissette og seldist fyrri
plata hennar í mörgum milljónum eintaka.
Madonna úti um allt
í gegnum árin hefur hún prýtt forsíður
stærstu tímarita í heiminum yfir
300-400 sinnum sem
gerir hana
eina mest
mynduðu
stórstjömu
allra tíma.
Hún hefur set-
ið oftar en nokk-
ur önnur söng-
kona í fyrsta sæti
bandaríska smá-
skífulistans.
Hún hefur leikið í 15
bíómyndum, gefið út 15
plötur (Music nýja platan er
þar með talin með) og er að nálg-
ast 50 smáskífur. Hún hefur
markaðssett sig snilldarlega í
gengnum árin og síbreytileg
ímynd hennar hefur kveikt
í fólki þannig að hún hefur
alltaf verið að koma fersk
inn á markaðinn aftur.
Dökkhærð, Ijóshærð, rauð-
hærð og hársíddin fylgir allt-
af tískunni. En hún hafði samt
mestu áhrifin á tískuna í kring-
um þann tíma sem Like A Virgin
var sem heitust og unglings-
stúlkur kepptust við að fara í
brjóstahaldarann yfir bolinn.
Sögusagnir
Sagt var í kringum árið
1990 að Madonna hefði
komið til íslands yfir helgi í smápásu frá tón-
leikaferðalagi sínu Blond Ambition og með alla
dansarana og flest starfsfólk sitt með sér. Sagt
er að hún hafi gist á einu stóm hóteli hér í
Reykjavík og leigt tvær efstu hæðimar og not-
að efstu hæðina til að hlaupa um og þjálfa sig.
En auðvitað era þetta bara sögusagnir nema að
einhver vilji staðfesta þetta. Annars era svo
margar stórstjörnur búnar að koma til landsins
án þess að nokkur hafi vitað af.
Madonna í dag
I dag er Madonna talsvert breytt frá því sem
áður var. Hún er afslappaðri og nýtur lífsins
mikið betur en hún gerði áður. Fyrr þurfti að
hafa allt pottþétt, meira að segja þurftu varim-
ar að vera nákvæmlega rétt málaðar. Allt
breyttist þetta þegar hún varð ófrísk að dóttur
sinni Lourdes Maríu og nú Rocco Richy. Hún
sneri sér aðeins frá kaþólska upprananum og
fór að stunda jóga og er hætt þessum hörðu æf-
ingum sem hún gerði í mörg ár, stundum 3-4
tíma á dag og núna er jóga alveg tekið við hjá
henni. Hún er rólegri og sérstaklega eftir að
hún kynntist leikstjóranum Guy Ritchie sem
hún eignaðist sitt annað bam með. Þau kynnt-
ust í matarboði hjá Sting eitt kvöldið svo þau
geta þakkað honum og frú fyrir að hafa kynnt
þau. Hún bjó með Guy í London í rúmt ár og eru
þau nú að tala um að setjast að í Los Angeles.
Nýja platan
Nú er nýja platan hennar Madonnu komin út
um allan heim og ber hún nafnið Aíusic eða
tónlist. Óþolinmóðir Madonnu aðdáendur hafa
beðið hennar yfir nýliðið sumarið. Platan hefur
verið að fá góða dóma um allan heim og smá-
skífan „Music“ hoppaði næstum því beint í
fyrsta sætið á Billboard-listanum. Madonna
hefur talað um það að þetta verði síðasta stóra
platan hennar næstu fimm árin því hún ætli að
sinna fjölskyldunni sinni, en ef maður þekkir
Madonnu rétt þá gerir hún næstu innan fán-a
ára.
Lokaorð
Hún er tónlistarmaður sem nýlega hefur
fengið þá viðurkenningu að vera líka tón-
listamaður en ekki bara „spice girl“.
Madonna er listamaður sem hefur snert hug
og hjörtu fólks um allan heim og undirritaður
telur að hún muni halda því áfram eins lengi og
hún telur þörf á því vera.
Madonna
þá og nú
HÚN er seiðandi, ögrandi og snillingur í
markaðssetningu. Hún er allt það sem
poppstjama á að vera. Madonna er
ávallt vön að fara sína leiðir. Hún tekur fyrir
málefni sem flestar stjömur þora ekki að tala
um og þessvegna hefur hún verið svona umdeild
í gengnum árin. Flestir sem tala um Madonnu
hafa þá skoðun á henni að hún geri allt til þess
að fá athygli. Að sumu leyti er það rétt - annars
væri hún ekki svona stór í dag. En flestir skilja
ekki hvað hún gengur út á. Hver mynd, hvert
lag og hvert viðtal sem hún veitir hefur sinn
hugmyndafræðilega tilgang og hugmyndum
jHiennar verður einfaldlega ekki haggað. En af
hverju hefur hún verið svona lengi á toppnum
og hvers vegna bíða alltaf allir eftir því næsta
sem hún gerir? Flestir myndu segja að það
væru útlitsbreytingamar sem haldi fólki heitu
og tískuklæðnaður hennar. En þegar öllu er á
botninn hvolft er það hún sjálf sem fólk hefur
áhuga á - Madonna og líf hennar.
Stjarna að fæðast
Madonna fæddist 16. ágúst árið 1958 og ólst
upp í Bay City sem er lítill iðnaðarbær norðar-
lega í Michigan-ríki. Hún er elsta stúlkan af 8
systkinum og fékk strangt kaþólskt uppeldi.
Hún missti móður' sína mjög ung af áram og
setti sjálfa sig í móðurhlutverkið þar til faðir
hennar giftist heimilishjálpinni. Allt frá bam-
æsku gerði Madonna hvað hún gat til þess að fá
-^athygli. Enda ekki furða því þau systkinin börð-
*ust stanslaust um athygli föðurins. Hún átti
auðvelt með að læra og stóð sig með prýði í
bamaskólanum.
Þegar hún sleit sig loksins frá heimabænum
fluttist hún til New York í leit að frægð og
frama sem dansari og fór í prafur útum allt. En
framtíðin átti eftir að sýna annað. Þann tíma
hún reyndi árangurslítið fyrir sér sem dansari
leiddist hún út í ýmis verkefni; var fyrirsæta og
sat m.a. fyrir á nektarmyndum - myndir sem
síðar áttu eftir að ofsækja hana. Ljósmyndar-
amir og listamennimir borguðu illa og Ma-
donna lifði aðallega á poppkomi og kjaftaði sig
inná á gaflinn hjá fólk í leit að næturstað.
-jt Hún fékk loks hlutverk í bíómynd sem fékk
nafnið A Certain Sacriíice - mynd sem tók um
ár í vinnslu og fékk Madonna engin laun fyrir.
Eftir að hún varð síðan fræg höfðaði hún mál á
hendur leikstjóra myndarinnar fyrir að gefa
hana út.
Madonna færðist hægt og bítandi nær tón-
listargeiranum og komst á samning hjá fyrir-
tæki sem var mjög lítið á þeim tíma. Hún sat
þar óþolinmóð í smátíma þar til hún gafst upp á
tímaeyðslunni. Stuttu seinna, eða árið 1982,