Morgunblaðið - 29.09.2000, Side 76

Morgunblaðið - 29.09.2000, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Morgunblaðið/Þorkell rjníiXSIíAQ Snæfellsþjóðgarður Viðræður við land- eigendur á lokastigi SAMKVÆMT upplýsingum úr um- hverfisráðuneytinu eru samninga- viðræður við landeigendur í ná- grenni Snæfellsjökuls á lokastigi, vegna áforma stjórnvalda um að stofna Snæfellsþjóðgarð. Reiknað er með að samningar verði undir- ritaðir á næstunni. Snæfellsþjóð- garður verður því að veruleika á undan Vatnajökulsþjóðgarði, sem stefnt er að því að opna árið 2002. Þung umferð ÞUNG umferð er jafnan úr Breið- holtshverfum í Reykjavík að morgni dags. Geta því langar bílaraðir myndast á gatnamótunum við Reykjanesbraut þegar nærri 7.000 bflar þurfa að komast þar um og mæta þar annarri eins holskeflu. Talið er að umferð um Breiðholts- braut verði komin í um 12.000 bfla ár- ið 2020. Um Reykjanesbraut er einn- ig mikil umferð að og frá suðurhluta höfuðborgarsvæðisins en þar er sól- arhringsumferðin um 20.000 bflar. ■ Mislæg/20 Auðlinda- nefnd skilar af sór í dag AUÐLINDANEFND skilar af sér skýrslu sinni fyrir há- degi í dag á fundi, sem hald- inn verður með Davíð Odds- syni forsætisráðherra í Ráð- herrabústaðnum við Tjarnar- götu. Auðlindanefnd var kjörin á Alþingi 2. júní 1998 og var henni ætlað að fjalla um auð- lindir sem eru eða kunna að verða þjóðareign. Verkefni nefndarinnar var að kanna möguleika á að nota auð- lindagjald til þess að tryggja að afrakstur sameiginlegra auðlinda skili sér á réttmæt- an hátt til þeirra sem hags- muna hafa að gæta. Formaður nefndarinnar er Jóhannes Nordal, fyrrver- andi seðlabankastjóri. * Halldór Asgrímsson á fundi á Bifröst Ekki á móti erlendum íjár- festingum í sjávarútvegi HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra og formaður Framsókn- arflokksins sagði á fundi með nem- endum Viðskiptaháskólans á Bifröst í gær að hann væri ekki lengur andvígur því að erlendir að- ilar fjárfestu í sjávarútvegi hér á landi. Kvaðst hann hafa verið mjög andvígur því á sínum tíma að leyfa fjárfestingar erlendra aðila í ís- lenskum sjávarútvegi en skýrði jafnframt frá því að hann gerði sér grein fyrir því, eins og margir aðr- ir, að það gæti orðið erfitt til lang- frama að hindra slíkar fjárfesting- ar, þ.e.a.s. á sama tíma og algjört frjálsræði væri í fjármagnsflutn- ingum og öðrum fjárfestingum á evrópska efnahagssvæðinu. „Það hefur komið á daginn að smátt og smátt hafa erlendir aðilar getað farið fram hjá þessum reglum [um að erlendir aðilar fjár- festi ekki í sjávarútvegi] og fjár- fest með óbeinum hætti í íslensk- um sjávarútvegi, t.d. með þeim hætti að fjárfesta í félögum sem síðan eiga í sjávarútvegsfyrirtækj- um,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið eftir fundinn. „Erf- itt hefur verið að halda utan um þetta. Þá eru líka dæmi þess að fyrirtæki séu fjármögnuð með er- lendu lánsfé en þá eru þau í reynd í eigu erlendra aðila. Þar að auki hefur íslenskum sjávarútvegi gengið mjög vel. Hann er að fjár- festa í öðrum löndum og við höfum verið að sækja fram á því sviði.“ Af framansögðu telur Halldór að íslendingar þurfi að taka það til endurskoðunar hvort heimila eigi erlendum aðilum að fjárfesta í sjávarútveginum. Á hvern hátt sú endurskoðun eigi að fara fram og þá hvenær vilji hann hins vegar ekki fullyrða um á þessu stigi málsins. „En við verðum að viður- kenna þær staðreyndir sem blasa við í þessu máli og ég tel að ís- lenskum sjávarútvegi stafi ekki sú hætta af erlendum fjárfestingum sem ég taldi áður.“ Landsbankinn fjárfestir fyrir um milljarð í Íslandssíma Gengi Íslandssíma hækk- að um 40% á einni viku vðm gegn áhrifum álags og streitu. LÆffljjrL7fyrir líkama og sál! STJÓRNENDUR Landsbanka ís- lands og Islandssíma undirrituðu í gær víðtækan samning um frekari eiginfjárþátttöku Landsbankans í Islandssíma. Samkomulagið felur ennfremur í sér fjármögnun íslands- síma og stefnumarkandi samstarf milli félaganna. Gengi Íslandssíma á gráa markaðnum samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins hefur nú hækkað um 40% á einni viku. Dótturfélög Landsbankans og tengdir aðilar áttu fyrir um 38 millj- ónir að nafnverði í Íslandssíma eða um 10% af heildarhlutafé, en í heild er fjármögnunin að upphæð um milljarður króna. Íslandssími hyggst í byrjun næsta árs hefja rekstur eigin farsímakerfis á Islandi. Fyrirtækið hyggst bjóða upp á hefðbundna talflutninga um kerfi sitt, reka talhólf, SMS, starf- rækja WAP-gátt, gagnaflutninga um GPRS-net og fleira. Framtíðar- rekstur fyrirtækisins grundvallast einnig á UMTS-staðli fyrir þriðju kynslóð farsíma. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins var gengi bréfa í Islands- síma á gráa markaðnum um 10 í síð- ustu viku, í fyrradag var gengið komið í 13,5 og í gær urðu viðskipti á genginu 14. Enda þótt það sé lægra gengi en miðað er við í samningi Landsbankans og Íslandssíma hefur gengið engu að síður hækkað um 40% á um það bil viku. Ef miðað er við gengið fjórtán má ætla að markaðsvirði Islandssíma sé hátt á sj ötta millj ar ð króna. Gengi Landsbanka íslands lækk- aði um 4,7% á Verðbréfaþingi ís- lands í gær. ■ Fjármögnun/23

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.