Morgunblaðið - 29.10.2000, Page 16
16 B SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Andlegl meistarinn Sri Chinmoy heldur tónleika í Háskólabíói á morgun. Húsfyllir var þegar hann hélt
tónleika á sama stað árið 1988. Hann hefur látið mikið að sér kveða á alþjóðavettvangi sem boðberi friðar,
m.a. staðið fyrir friðarhlaupum um allan heim. Þá er hann kunnur fyrir listsköpun sína og íþróttaafrek.
Eymundur Matthíasson fiallar um lífshlaup hans, boðskap og baráttu hans fyrir friði og ræktun andans.
Sri Chinmoy að hlaupa með Carl Lewis.
Hann hefur sagt frá þegar hann
sem táningur svindlaði sér með
lest til að heimsækja bústað and-
lega meistarans Ramana Maharshi
er bjó við fjallið Aranchula á fyrri
hluta 20. aldar. Á bakaleiðinni var
hann svo óheppinn að lestarvörður
athugaði með lestarmiða. Án um-
hugsunar stökk hinn ungi Chin-
moy út um gluggann á lestinni sem
var á góðri ferð og var svo heppinn
að lenda í djúpum forarpytti þann-
ig að hann hlaut engin meiðsl af.
Hann var einnig liðtækur íþrótta-
maður á þessum tíma og var fyrir-
liði knattspyrnuliðsins og blakliðs-
ins í héraðinu í mörg ár. Þegar
hann var 32 ára gamall eða árið
1964 fylgdi hann innri rödd, ef svo
má að orði komast, og fluttist til
Vesturlanda. Hann vann fyrst um
sinn í indverska konsúlatinu í New
York en fljótlega fór hann að gefa
út tímarit um jóga og andleg mál-
efni ásamt því að taka að sér nem-
endur í jóga og hugleiðslu. í New
York hefur hann búið allar götur
síðan og þar hefur hann jafnframt
stjórnað friðarhugleiðslu hjá Sam-
einuðu þjóðunum tvisvar í viku síð-
an árið 1970.
Fríður sem byggir á
samkennd og væntumþykju
Sri Chinmoy hefur verið óþreyt-
andi við að kynna jóga og gildi
andlegs lífs fyrir Vesturlandabúum
og reynt að sýna fram á þá miklu
möguleika sem andleg iðkun opnar
í okkar daglega lífi. Þar má segja
að hann gangi á undan með góðu
fordæmi því afköst hans þykja
með ólíkindum. Á þeim 35 árum
eða svo síðan hann kom til Vestur-
landa hafa verið gefin út hundruð
bóka eftir hann en þar á meðal eru
ljóð, leikrit, ýmsar ritgerðir og
fyrirlestrar sem hann hefur haldið
við háskóla víða um heim. Þá hefur
hann einnig málað tugþúsundir
mynda sem hann kallar „list frá
uppsprettunni“ og fuglateikningar
hans skipta milljónum. Helst hefur
þessum myndum verið líkt við
Zen-málaralist og kalligrafíu en í
þeim er augnablikið gripið með ör-
fáum penslastrokum.
Að lokum má nefna að hann hef-
ur samið þúsundir laga og munu
áheyrendur heyra sum hver á frið-
artónleikunum á morgun. Afköstin
eru gríðarmikil sama hvert litið er
og ljóst að sköpunargáfan er mikil,
en Sri Chinmoy vill meina að allir
geti þroskað sköpunargáfuna og
náð jafnmiklum ef ekki meiri ár-
angri en hann með andlegri
ástundun.
Það sem Sri Chinmoy leggur
áherslu á er andlegur veruleiki
mannsins sem hann segir þann
þátt í okkar tilveru sem mestu
máli skipti. Allir æðstu draumar
okkar og hugsjónir eiga upptök sín
þar. Leynt og ljóst erum við alltaf
að leita þessa innsta sannleika því
hann einn veitir þá hamingju og
lífsfyllingu sem getur fullnægt
okkur. Sömuleiðis er þar að finna
raunverulegan frið sem byggist á
samkennd og væntumþykju og
kemur á friði í mannlegu samfé-
lagi. Þessi friður er gríðarlega
áhrifamikill og máttugur veruleiki
sem ekkert fær sigrast á. Fyrir Sri
Chinmoy er jóga samsafn leiða til
að verða eitt með þessum andlega
veruleika og aðferðirnar sem not-
aðar eru til þess eru bænir, ein-
beiting og hugleiðsla.
Styrkur frá FITUR
FITUR er sjóður sem veitir styrki vegna
samstarfs Færeyja og íslands til þess að
bæta ferðaþjónustuna.
Styrkur verður veittur til:
• náms í tengslum við ferðaþjónustu
• samstarfs innan ferðaþjónustu -
"kombinationsturisme"
• samstarfs milli landanna, sem veitir
vitneskju um menningu, lifnaðarhætti,
atvinnuvegi o.s.frv.
• samvinnu flutningsfélaga
• markaðssetningar í ferðaþjónustu
Umsóknir á ensku eða donsku sendist til:
H1 dæmis er veittur styrkur til:
• íþróttafélaga
• skóla og námsstofnanna (kynningarferðir)
• samtaka atvinnulífsins
• sveitarfélaga
• vinabæja
• hátíðarhalda
FITUR
c/o Ferðaráð Foroya
Postsmoga 118
FO-110 Tórshavn
eða FITUR
c/o Ferðamálaráð íslands
Lækjargata 3
IS-101 Reykjavík, ísland
Frestur útrunninti, 15. nóvember 2000
í nefndinni eru Petur Olivar í Hoyvtk, nefndatformaður Ferðaráðs Færeyja, Marita Danielsen, Flogfelag Feroya,
Magni Arge, Atlantic Airways, Ambjerg Sveinsdóttir, Steinn Lárusson, lcelandair og Gunnar Sigurdsson.
Fjölhœfur
meistari andans
HANN er 69 ára gamall
og hefur verið að lyfta
gríðarstórum lóðum,
heljarþunga sem for-
kólfa í lyftingageiranum rekur í
rogastans yfir. Að auki hefur hann
lyft þjóðarleiðtogum og afreks-
mönnum, á borð við Nelson Mand-
ela, Carl Lewis og Steingrími Her-
mannssyni. Maðurinn er Sri
Chinmoy en eins og margir vita er
hann væntanlegur til landsins á
morgun og verður með friðartón-
leika í Háskólabíói annað kvöld.
Sri Chinmoy er íslendingum að
góðu kunnur, bæði vegna heim-
sókna hans áður - hann er mikill
íslandsvinur og hefur sótt landið
heim fjórum sinnum - og ekki síð-
ur vegna alþjóðlega friðarhlaups-
ins sem við hann er kennt og hefur
verið haldið hér á landi síðan 1987.
Stjórnar friðarhugleiðslu hjá
Sameinuðu þjóðunum
Sri Chinmoy er fæddur á Ind-
landi 1931 og fluttist ungur að ár-
um í andlegt samfélag sem stofnað
var af Sri Aurobindo. Sri Aurob-
indo var merkilegur fyrir margra
hluta sakir. Faðir hans sendi hann
í skóla á Englandi ungan að árum
þar sem hann dúxaði frá Cam-
bridge undir lok 19. aldar. Hann
gerðist síðan einn af frumkvöðlum
indverskrar sjálfstæðisbaráttu þar
til hann sneri sér alfarið að and-
legum iðkunum og kom á fót sam-
félagi í þeim anda á Suður-Indl-
andi nálægt Pondicherry, áður
franskri nýlendu. Þar lagði Sri
Chinmoy stund á hugleiðslu og
andlegar iðkanir í tvo áratugi.
Hann á skemmtilegar minningar
frá þessum árum, enda á andleg
menning sér djúpar rætur á Indl-
andi og margir andlegir meistarar
hafa orðið þekktir þar um slóðir.
Sri Chinmoy
notar ýmis
áhöld við list-
sköpun sína.
Hér er hann
með náttúru-
svamp.