Morgunblaðið - 29.10.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.10.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000 B 33 Dagbók Háskóla * Islands DAGBÓK Háskóla íslands 30. októ- ber til 5. nóvember. Allt áhugafólk er velkomið á fyrirlestra í boði Háskóla íslands. ítarlegri upplýs- ingar um viðburði er að finna á heimasíðu Háskólans á slóðinni: http:/Avww.hi.is/stjom/sam/dag- bok.html Hjartaáfall - Málstofa Rann- sóknastofnunar í hjúkrunarfræði Mánudaginn 30. október, kl. 12.15 í stofu 6 í Eirbergi, mun Christer Magnússon MSN flytja fyrirlestur- inn „Hjartaáfall - upplifun sjúkl- inga og hjúkrunarfræðinga". Fyrir- lesturinn er á vegum Rannsókna- stofnunar í hjúkrunarfræði. Allir velkomnir. Er framtíð í fræðunum? Viðskiptaáætlun - fjármál, kostn- aður og verðlagning. Þriðjudaginn 31. október, kl. 15- 17 í Tæknigarði, verður haldið nám- skeið á vegum Rannsóknaþjónustu Háskóla Islands. Umsjónarmaður þess er Sigurður Guðmundsson við- skiptafræðingur. Farið verður í helstu þætti viðskiptaáætlunar og byggt á dæmum og umræðum og spurningum frá þátttakendum. Leitast verður við að veita þeim sem hug hafa á að vinna viðskipta- áætlanir í kjölfar námskeiðsins ráð- gjöf varðandi uppbyggingu og fram- kvæmd slíki’a áætlana. Aðalfundur Hollvinafélags læknadeildar Þriðjudaginn 31. október verður aðalfundur Hollvinafélags haldinn í Norræna húsinu kl. 17. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf en að þeim loknum flytur stud. med. Hans Tómas Björnsson stutt erindi um rannsóknatengt nám. Formaður Hollvinafélags læknadeildar er Örn Bjarnason. Fundurinn er öllum op- inn og sérstaklega eru nýir félags- menn velkomnir. Davíð Oddsson á hádegisfundi Sagnfræðingafélags Islands Þriðjudaginn 31. október, kl. 12.05-13 í Norræna húsinu, mun Davið Oddsson flytja erindi sem hann nefnir „Hvað er stjómmála- saga?“. Allir velkomnir. Háskólatónleikar í Norræna hús- inu Miðvikudaginn 1. nóvember verða aðrir háskólatónleikar vetrarins haldnir í Nomæna húsinu. Þá mun KAWAL-kvartettinn, þau Björn Davíð Kristjánsson, Kristrún Helga Björnsdóttir, Maria Cederborg og Petrea Óskarsdóttir, leika verk eftir Faustin JeanJean, Edward J. Chance og Friedrich Kuhlau. Tón- leikamir hefjast kl. 12.30 og taka um það bil hálfa klukkustund. Að- gangseyrir er 500 kr. Ókeypis er fyrir handhafa stúdentaskírteina. Málstofa sálfræðiskorar Miðvikudaginn 1. nóvember flyt- ur Ingi Geir Hreinsson, vinnusál- fræðingur hjá Starfsmannaráðgjöf fyrirlesturinn: Geta sálfræðingar komið að gagni - Málstofa sálfræði- skorar er haldin alla miðvikudaga í vetur, kl. 12-13 í stofu 202 í Odda. Málstofan er öllum opin. Málstofa í verkfræðideild Há- skóla Islands Umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkj- unar - Fyrstu niðurstöður. Mið- vikudaginn 1. nóvember verður haldin málstofa í umhverfis- og byggingarverkfræðiskor HÍ í stofu 157 í VR II við Hjarðarhaga. Mál- stofan hefst kl. 16.15 og henni lýkur um 18.15. Nýlega hafa orðið mikil- vægar breytingar á lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, þar sem lögð er áhersla á að byrjað sé á undirbúningi matsáætlunar og vinsun lykilatriða eins fljótt og unnt er eftir að hugmynd að framkvæmd er komin fram. Umhverfismat Kárahnjúkavirkjunar verður unnið samkvæmt þessum nýju lögum. I málstofunni munu fyrirlesarar gera grein fyrir hvernig matið var unnið. Málstofa í læknadeild Fimmtudaginn 2. nóvember, kl. 16.15 í sal Krabbameinsfélags ís- lands, efstu hæð, mun Ólafía Ása Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur og Helgi Gunnar Helgason, BA í sálfræði, Flögu hf., flytja fyrirlestur sem þau nefna: Greining svefn- truflana. Allir velkomnir. Kaffiveit- ingar frá kl. 16. Rabb hjá Rannsóknarstofu í kvennafræðum Fimmtudaginn 2. nóvember, kl. 12-13 í stofu 201 í Odda mun Penel- opa Lisi menntunarfræðingur flytja fyrirlesturinn: Konur og stjórnun - saga rannsókna á kvenstjórnendum í bandaríska menntakerfinu. Hvaða lærdóma má draga af þessum rann- sóknum. Allir velkomnir. Er framtíð í fræðunum? Upplýsingatækni og nýir mögu- leikar í markaðssetningu þekkingar. Fimmtudaginn 2. nóvember, kl. 15-17 í Tæknigarði, verður haldið námskeið á vegum Rannsóknaþjón- ustu Háskóla Islands. Leiðbeinandi er Ásgeir Friðgeirsson, fram- kvæmdastjóri strik.is. Fjallað verð- ur um þá möguleika og aðferðir sem Netið býður upp á í tengslum við markaðssetningu á þekkingu. Matt- hías Viðar Sæmundsson mun leggja menningarvefinn Kistuna fram sem dæmi um framsetningu á menning- artengdu efni á netmiðli og Áki G. Karlsson, vefhönnuður Reykjavík- urAkademíunnar, mun leggja fram vefsíðu RA sem dæmi um markaðs- setningu á efni og þjónustu fræði- manna á netmiðlum. Námskeið Endurmenntunar- stofnunar HÍ í fjarkennslu: Samskipti á kvennavinnustað. Kennari: Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur. Tími: 1. og 2. nóv. kl. 17-19. Unix 2. Kennari: Sveinn Ólafsson, ráðgjafi hjá Teymi hf. Tími: 30. og 31. okt. kl. 8.30-12.30. Að skrifa góða grein. Kennarar: Guðlaug Guðmundsdóttir, íslensku- kennari í MH, og Baldur Sigurðs- son, lektor við KHÍ. Tími: Mán. 30. okt.-6. nóv. kl. 12.45-15.45. Japanska II. Framhaldsnám- skeið. Kennari: Tomoko Gamo BA, en hún hefur sl. fimm ár kennt jap- önsku á íslandi. Tími: Mán. og mið. 30. okt.-29. nóv. kl. 18-19.30 (10 skipti). Þjónusta og viðmót. Kennari: GísU Blöndal, markaðs- og þjónusturáðgjafi. Tími: 30. og 31. okt. kl. 13-16. Vefsmíðar I - Grunnatriði vef- smíða. Kennari: Gunnar Grímsson, viðmótshönnuður og vefsmiður hjá Engu ehf. Tími: 30. okt. kl. 13.30- 17.30 og 31. okt. og 2. nóv. kl. 13.30- 16.30. Verð og kennitölur skulda- og hlutabréfa. Kennari: Ómar Örn Tryggvason, Íslandsbanka-FBA. Tími: 31. okt. kl. 15-19 og 1. nóv. kl. 15-19. Umhverfismál og fjölmiðlar. Um- sjón: Hulda Steingrímsdóttir, verk- efnisstjóri Staðardagskrár 21 í Hafnarfirði. Fyrirlesarar: Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræð- ingur og verkefnisstjóri Staðardag- skrár 21 á landsvísu, Tryggvi Fel- ixson, hagfræðingur og fram- kvæmdastjóri Landvemdar, og Ólafur Stolzenwald, framkvæmda- stjóri prentsmiðjunnar Guðjón Ó. Tími: 31. okt kl. 15-19. Vefsmíðar II - Þróaðri vefsmíði og myndvinnsla. Kennari: Gunnar Grímsson. viðmótshönnuður og vefsmiður hjá Engu ehf. Gestafyrirlesari: Heimir Þór Sverrisson, verkfræðingur hjá Teymi hf. Tími: 1., 3., 8. og 10. nóv. kl. 8.30-12.30. Verkfundir og verkfundagerðir. Kennari: Kolbeinn Kolbeinsson, byggingarverkfræðingur hjá ístaki hf. Tími: 1. nóv. kl. 13-17. Innheimtuaðgerðir og innheimtu- merkingar. Umsjón: Halldór J. Harðarson, Ríkisbókhaldi. Tími: 1. nóv. kl. 13-17 og 2. nóv. kl. 9-13. Líf og menning á Spáni. Kennari: Alberto Madrona, stundakennari við HÍ. Tími: Fim. 2.-30. nóv. kl. 20.15-22.15 (5 kvöld). Líkamsrækt og lífsgæði - ný við- horf í endurhæfingu aldraðra. Um- sjón: Ólafur Þór Gunnarsson, lyf- og öldrunarlæknir á Landspítala - háskólasjúkrahúsi og Ella Kolbrún Kristinsdóttir sjúkraþjálfari, dósent við HÍ. Tími: 2. nóv. íd. 9-16. Talnalykill - Staðlað og mark- bundið próf í stærðfræði. Kennarar: Einar Guðmundsson, forstöðumað- ur Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála, og Guðmundur Amkelsson, dósent við HÍ. Tími: 3. nóv. kl. 9-16. V ísindavefurinn Hvers vegna? - Vegna þess! Vísindavefurinn býður gestum að spyrja um hvaðeina sem ætla má að vísinda- og fræðimenn Háskólans og stofnana hans geti svarað eð^- fundið svör við. Leita má svara við'“ spumingum um öll vísindi, hvaða nafni sem þau nefnast. Kennarar, sérfræðingar og nemendur í fram- haldsnámi sjá um að leysa gáturnar í máli og myndum. Slóðin er: www.visindayefur.hi.is Sýningar Árnastofnunar Stofnun Ama Magnússonar, Árnagarði við Suðurgötu. Handritasýning er opin kl. 14-16 þriðjudaga til föstudaga, 1. sept. til 15. maí og kl. 11-16 mánudaga til laugardaga, 1. júní til 25. ágúst. Þjóðarbókhlaða ^ Tvær koi’tasýningar: „Forn íslandskort" og „Kortagerðarmað- urinn Samúel Eggertsson“ em í Þjóðarbókhlöðunni. Sýningarnar em opnar almenningi á afgreiðslu- tíma safnsins og munu þær standa út árið 2000. Sýningin Forn íslands- kort er á annarri hæð safnsins og er gott úrval af íslandskortum eftir alla helstu kortagerðarmenn fyrri alda. Sýningin Kortagerðarmaður- inn Samúel Eggertsson er í forsal þjóðdeildar á fyrstu hæð. Ævistarf Samúels (1864-1949) var kennsla, en kortagerð, skrautskrift og annað því tengt var hans helsta áhugamál. Orðabankar og gagnasöfn Öllum er heimill aðgangur að eft-^ irtöldum orðabönkum og gagna- söfnum á vegum Háskóla Islands og stofnana hans. Islensk málstöð. Orðabanki. Hef- ur að geyma fjölmörg orðasöfn í sérgreinum: http://www.ismal.hi.is/ ob/ Landsbókasafn Islands - Há- skólabókasafn. Gegnir og Greinir. http://www.bok.hi.is/gegnir.html Örðabók Háskólans. Ritmálsskrá: http://www.lexis.hi.is/ Rannsóknagagnasafn íslands. Hægt að líta á rannsóknarverkefnif og niðurstöður rannsókna- og þró- unarstarfs: http://www.ris.is 0) to HELLUSTEYPA JVJ Vagnhöfða 17 112 Reykjavik Símí: 587 2222 Fax: 587 2223 o 1 Gerið verðsamanburð £ Tölvupústur: sala@haliusteypa.is MONSOON M A K E U P lifandi litir i ir •■■r.i iTái iTari ■aTi'iái aTa HTr-j ár.wll /J J r 'íimiIyjtw'tvjW.iz Glœsibce & Hafnarfiríl 588-5970 565-5970 Þar sem gœðagleraugu kosfa minna netN^ret listen.to/iceblue Stjórnendaþjálfun Gallup MG Stjómendaþjálfun Gallup býður upp á fjölbreytt námskeið fyrir stjórnendur og framlínufólk í þjónustustörfum. Námskeiðin stuðla markvisst að því að auka hæfni og þekkingu þátttakanda í starfi, og eru því byggð á traustum fræðilegum grunni og hagnýtum æfingum. Notaðar eru nýjustu kenningar hvetju sinni og viðurkennd mælitæki þar sem slíkt er viðeigandi. Virk þátttaka í verkefnum, umræðum og æfingum er undirstaða allra námskeiða og því er fjöldi þátttakenda takmarkaður. Þjálfunin verður þannig persónulegri og gagnlegri, sem skilar sér í betri frammistöðu. í nóvember eru eftirfarandi námskeið í boði: l.nóv. kl. 09 - 17 Ve r kefna stjó rn u n 3. nóv. kl. 09 - 17 Árangursríkir fundir 6. nóv. kl. 13 - 17 Móttaka nýliða og nýliðaþjálfun 8. nóv. kl. 13 - 17 Starfsþróun og starfsframi 10. nóv. kl. 09 - 13 Þjónustuþjálfun 13. nóv. kl. 09 - 17 Starfsmannaráðningar 13. nóv. kl. 09 - 17 Verkefnastjórnun 15. nóv. kl. 09 - 17 Framkoma, tjáning og ræðumennska 15. nóv. kl. 09 - 17 Fundarstjórnun - haldið á Akureyri 16. nóv. kl. 09 - 17 Starfsmannasamtöl 17. nóv. kl. 09 - 13 Að takast á við kvartanir og erfiða viðskiptavini 27. nóv. kl. 09 - 13 Hvatning og starfsánægja 27. nóv. kl. 09 - 13 Þjónustuþjálfun 27. nóv. kl. 09 - 17 Verkefnastjórnun 28. nóv. kl. 09 - 17 Áhrifaríkir stjórnunarstílar Upplýsingar og skráning: Ingrid Kuhlman í netfang ingrid@img.is og síma 540 1028. Vertu í þjálfun Stjórnendaþjálfun Gallup

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.