Morgunblaðið - 29.10.2000, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000 B 19
Reuters
sig lausan og ganga til liðs við erkifjendurna hjá Real Madrid, og þeir kunnu að koma því til skila
callaður aurapúki, var dreift til áhorfenda í tugþúsundataii við innganginn að vellinuni.
Morgunblaðið/Pröstur Helgason
Gott útsýni fæst yfir Nývang úr blaðamannastúkunni.
er sérstakt fagnaðarefni vegna þess að Enrique
er fyrrum leikmaður Real Madrid. Þetta er eins
og blaut tuska framan í Figo sem myndavélar
sjónvarpsins beindust að um leið og markið var
skorað. Hann reynir augljóslega að sýna ekki
vonbrigði sín en viprumar í kringum munninn
segja allt sem segja þarf.
Figo á érfitt uppdráttar eftir þetta og það er
eins og hann verði hoknari í herðum en vanalega.
Hinn hárprúði vamarmaður, Pujol, fylgir honum
eins og skugginn og lætur hann finna til te-
vatnsins þegar við á. Hann fær gult spjald fyrir
fljúgandi tæklingu og áhorfendur fagna tryllings-
lega. Figo sýnir augljósa taugaveiklun þegar
hann klúðrar aukaspymu sem er í upplögðu færi
fyrir yfirnáttúrulegan vinstrifót Robei-tos Carlos.
Það var hins vegar spuming um stolt að Figo
tæki spymuna með baulandi áhorfendurna allt í
kring. Hann er greinilega ekki í jafnvægi þegar
hann gengur út af vellinum í hálfleik.
Síðari hálfleikur
Síðaii hálfleikur þróast með svipuðum hætti og
sá fyrri. Rivaldo á skot yfir á fyrstu mínútunni og
stuttu síðar glæsilegan skalla sem Casillas ver
með ótrúlegum hætti neðst í vinstra horninu og
ómerkir allar líkingai' við liðuga ketti. Figo verð-
ur piiTaðri með hverri mínútunni enda er hann
ekkert inni í leiknum og virðist einbeitingarlaus.
Þá sjaldan hann fær boltann heldur hann honum
til þess að ögra áhorfendum, um leið og hann sýn-
ir að hann getur snúið Pujol í hringi þegai' þannig
liggur á honum. A þrettándu mínútu á hann
hættulegt skot en nokkmm sekúndum síðai' miss-
ir hann þolinmæðina og brýtur gróflega á Riv-
aldo, skærastu stjömu gestgjafanna, _sem liggur
eftir eins og helsærður í grasinu. Ahorfendur
signa sig og baula. Fáeinum augnablikum síðar er
Rivaldo kominn á hai'ðasprett - eins og knatt-
spymumenn era svo oft eftir að hafa lagst stór-
slasaðir í grasið - og á bylmingsskot að marki.
Figo heldur hins vegar áfram að brjóta af sér og
fær á endanum gult spjald. Áhorfendur sleppa
sér algerlega og ég sé gæsahúðina spretta fram á
handleggjum katalónsku blaðamannanna fyi'ir
framan mig. Barselónaliðið veður í færum sem
sumir íþróttafréttamenn myndu kannski kalla
hálffæri og ráða lögum og lofum á vellinum sem
er orðinn rennblautur og háll eftfr ausandi hita-
skúrir. Áhorfendur halda áfram að grýta leik-
menn og syngja gleðisöngva þegar Madrídar-
menn mótmæla ósómanum. Bláeygði Hol-
lendingurinn Cocu hjá Barselónaliðinu þtykkir í
slá þannig að leikvangurinn skelfm- á eftir. Figo
kemst stuttu síðar í dauðafæri og vallarstarfs-
maðurinn, sem á sennilega aldrei eftfr að fyrir-
gefa mér að hafa tekið sætið af mömmu hans,
frassar í örvæntingu yfir blöð okkar Þjóðverjans
þegjandalega, signir sig síðan og fer með Maríu-
bæn þegar boltinn þýtur naumlega framhjá.
Sjónvarpsmyndavélin einblínir enn og aftur á
andlit Figos þegar hinn smái en knái Simao renn-
Morgunblaðið/Þröstur Helgason
Hinn franski markvörður Barcelona,
Richard Dutruei, spurður spjörunum úr.
Reuters
Gamlir vopnabræður og núverandi and-
stæðingar, Figo og Rivaldo, fallast í
faðma að leik loknum.
Morgunblaðið/Þröstur Helgason
Það kom í ljós að það getur hitnað í kolun-
um uppi í blaðamannastúkunni.
Morgunblaðið/Þröstur Helgason
Gamla kempan Luis Enrique hefur marga
fjöruna sopið og verður því heimspekileg-
ur á svip við spurningar blaðamanna.
Reuters
Það er jafnan hart tekist á í leikjum erki-
fjendanna Barcelona og Real Madrid eins og
sjá má á þessum átökum hollenska miðju-
mannsins Phillip Cocu og spænska framheij-
anum hjá Real Madrid, Raul Gonzalcz.
fr boltanum í opið markið eftir þramuskot Rivald-
os sem Casillas ver og skalla Álfonsos í slá. Þetta
mark er eins og blý í skó Madrídarmanna. Þær
tíu mínútur sem eftir lifa af leiknum snúast þeir
aðallega í kringum sjálfa sig og það er einungis
fyiir eigin klaufaskap sem Alfonso bætir ekld
þriðja markinu við. Stríðið er unnið og fagnaðar-
lætin era í samræmi við það. Enn er Figo í nær-^
mynd þegar leikmenn ganga af velli. Hann er nið-
urlútur. Áhorfendur nota tækifærið til þess að
núa salti í sárin og senda honum tóninn í síðasta
sinn. Að þeirra mati er sigurinn óvenju sætur
vegna þess að Figo fer tómhentur til sinna nýju
heimkynna. Aðalatriðið er þó að enn einu sinni
sýndu Katalónarnir hvað í þeim býr og höfuð-
borgarbúarnir þurftu að snúa sneyptir heim.
Knattspyrnulið Barselóna telja Katalónar til vitn-
is um yfirburði sína. Katalónska leikmenn í Bars-
elónaliðinu má að vísu telja á fingram annairar
handar (og það er eins og að stinga grís að hafa
orð á því við nokkurn mann hér og ekki ráðlegt).
En Barselónaliðið er ekki aðeins stolt Katalóna
vegna þess að það sýnir fram á hvað þeir eigaf»-
góða knattspyi-numenn (sem þeir eiga) heldur er
það líka og kannski umfram allt sönnun eða af-
leiðing þess að Katalónía er ííkasta hérað Spánar;
hér era mestu peningamir og því besta knatt-
spymuliðið. (Og einmitt þess vegna svíður Katal-
ónunum það svo mjög að Madríd skyldi geta
keypt Figo og borgað hærri fjárhæð fyrir en áður
hefur þekkst. Reyndar stendur Real Madrid ekki
undir þessum kaupum því liðið er rekið með gríð-
arlegum halla og hefur rambað á barmi gjald-
þrots um nokkum tíma.)
„Eftirleikurinn“
Fyrir fjölmiðlamenn er „eftirleikurinn“ ekki
síður skemmtilegur en leikurinn sjálfur, að
minnsta kosti mátti sjá þá marga í essinu sínu
hlýða leikmönnum yfir ótrúlegustu smáatriði í
pressuherbergjunum niðri í kjallara eftir leikinn. <
Viðtölin fara fram í tveimur herbergjum en ber-
ast langt fram á gang þegai' fjölmiðlamenn elta
stjömumar í örvæntingarfullum tilraunum til
þess að fá þær til þess að segja eitthvað birtingar-
hæft. Tvítugi heimamaðm-inn Xaví nýtur sér-
stakra vinsælda; dæmigerð suðm’-evrópsk knatt-
spyrnustjarna, smávaxinn, brosmildur, fljótur til
svars og með sjálfstraust sem nægði þrjúhundrað
Svíum. I honum og hinum ungu heimamönnunum
í liðinu, Pujol, Gerard, Gabri og Amau, sjá Katal-
ónar fram á góða daga þar sem þeir verða sjálfir
burðarásamir í stórveldinu Barselóna. I viðtölum
sýnir Xaví hóflega hógværð og segist ánægður
með leik sinn en einnig með leik annaixa leik-4i
manna liðsins, liðsheildin stóðst prófið. Frammi á
gangi stökkva svo á hann nokkrir ofurfróðleiks-
fúsir sjónvarps- og útvarpsmenn til að fá einka-
viðtöl sem verða óhemjulega löng. Ég stend hjá
og get ómögulega ímyndað mér um hvað menn-
irnir hafa að spyija allan þennan tíma en Xaví
baðar sig í sviðsljósinu svo íengi sem menn óska.
Pujol gengur hreint til verks. Hann svarar spum-
ingum um það hvernig hann tók Figo í nefið af lít-
illæti. Það virðast fjölmiðlamenn ekki alveg
kunna að meta og hvetja hann til þess að taka
stærra upp í sig. En pilturinn heldur ró sinni: „Ég
er mjög þreyttur eftir þennan leik, bæði líkam-
lega og andlega. Figo er stórkostlegur leikmaður
og hefur sýnt að hann leikur alltaf til sigurs.“
Hann er svo rokinn burt og segir við hákarlana á
ganginum að hann svari ekki fleiri spumingum.
Svona gengur þetta í tæpai- tvær klukkustund-v
ir en auk Xavís og Pujol sitja þjálfararnir báðir,
Simao, Luis Enrique og Dutrael einnig fyrir svör-
um. Auðvitað vonaðist maður til þess að Figo léti
sjá sig en úr því varð ekki. Hann á sennilega ekki
eftir að vera í nánu sambandi við katalónska
blaðamenn á næstunni sem enn nudduðu salti í
sárin í umsögnum um leikinn og reyndu að gera
eins lítið úr þætti hans og hægt var. Staðreyndin
er hins vegar sú að Figo stóð sig alls ekki verst í
liði gestanna, þar bragðust þeir sem áttu að taka
upp merkið þegar hetjan varð sár. La Vanguard-
ia, sem er eitt af fjórum stærstu blöðum Spánar
og hefur aðalritstjórn sína í Barselóna, sagði í fyr-
ii'sögn á forsíðu sunnudagsblaðsins: Figo féll fyr-
ir Börsungum. f EI Periodico, sem er næst-
stærsta blaðið í Katalóníu og hafði skrifað
blóðheitan leiðara um/gegn Figo á leikdag, sagði í
fyrirsögn að Börsungar hefðu gert upp reikning-^.
ana við Figo og gaf þannig í skyn að þeir hefðu átt ‘
ýmislegt inni hjá honum. Madrídarpressan var
öllu hógværari í skrifum sínum. E1 País gagn-
rýndi fyrst og fremst lélega liðsheild Real Madrid
og E1 Mundo kvað Figo hafa orðið fómarlamb út-
pældrar sviðsetningar og gaf þannig í skyn að
stjórnendur Barselónaliðsins hefðu átt nokkra
sök á skrílslátum áhorfenda. Leiknum var svo
fylgt rækilega eftir í sjónvarpi þar sem hann var
sundurgreindur á vísindalegan hátt, jafnvel bún-
ingsklefar leikmanna vora rannsakaðir nákvæm-
lega eftir að þeir höfðu verið yfirgefnir, þar naut
sín næmt auga myndavélarinnar og áhugasamur
fjölmiðlungurinn.
Þegar ég kom loks út úr leikvanginum, útr~
keyrður eftir að hafa fylgst með starfsbræðrum
mínum sinna vinnu sinni af algeru hömluleysi
vora flestir áhorfendur á bak og burt. Þó stóðu
enn nokkrir langt leiddir stuðningsmenn liðsins
við hlið leikvangsins og biðu eftir því að sjá stjöm-
urnar halda heim á leið í bílum sínum. Skammt
frá vellinum stóðu svo enn fáeinar vændiskonur
sem ekki höfðu haft erindi sem erfiði á völlinn að
þessu sinni.