Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ómar
Skoðanakönnun um framtíðarstað
Reykjavíkurflugvallar
Rúmur helmingur
vill völlinn áfram
í Vatnsmýri
Isknattleikur að fornum sið
ÍSKNATTLEIKUR nýtur aukinna
vinsælda nú um stundir, en sér-
lega vel hefur viðrað til þess að
stunda hann í froststillunum si'ð-
ustu daga, eins og sjá má á þess-
ari mynd sem tekin var á Rauða-
vatni á sunnudaginn var.
íslendingar hafa löngum verið
áhugamenn um ísknattleik og er
vert að rifja upp að fornmenn
Iéku gjarnan knattleik á ís og
endaði stundum með ösköpum
þegar meira var leikið af kappi en
forsjá. Hins vegar er engin
ástæða til að ætla annað en allir
hafi skilið sáttir eftir leikinn á
sunnudag, þótt kappið væri mikið
eins og myndin ber með sér.
RÚMLEGA helmingur svarenda í
könnun um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar er mjög eða frekar sam-
þykkur því að völlurinn verði áfram
á sama stað eða 52% en 35,4% eru
því ósamþykk. Rúmlega 12% eru
hlutlaus. Þetta kom fram í könnun
PricewaterhouseCoopers í október í
slembiúrtaki 1.200 Islendinga á
aldrinum 18-75 ára. Svarhlutfall var
65,4% og fór könnunin fram símleið-
is, segir í frétt frá fyrirtækinu.
I september í fyrra þegar hlið-
stæð könnun fór fram voru rúmlega
47% svarenda mjög eða frekar sam-
þykk því að völlurinn yrði áfram í
Vatnsmýrinni en ríflega 31% ósam-
þykkt. Nokkuð hátt hlutfall, eða
21,7% svarenda, hafði ekki myndað
sér skoðun.
Séu svörin greind eftir kyni kem-
ur fram marktækur munur á við-
horfi. Meira en helmingur karla,
56%, er mjög eða frekar samþykkur
því að flugvöllurinn verði á sama
stað en tæp 49% kvenna. Rúm 16%
kvenna hafa ekki myndað sér skoð-
un en 8% karla. Lítill munur er hins
vegar á afstöðu karla og kvenna
sem eru frekar eða mjög ósamþykk
núverandi staðsetningu vallarins
eða tæplega 36% karla og tæp 35%
kvenna.
Nærri 55% á landsbyggðinni
samþykk staðsetningunni
Sé litið á svör eftir búsetu kemur
í ljós að rúmur helmingur þeirra
sem búa utan höfuðborgarsvæðisins
eða 54,7% er mjög eða frekar sam-
þykkur staðsetningu flugvallarins
og á höfuðborgarsvæðinu eru 50,8%
frekar eða mjög samþykk núverandi
staðsetningu.
Þeir sem voru mjög eða frekar
ósamþykkir því að völlurinn yrði
áfram í Vatnsmýiinni voru spurðir
hvar flugvöllurinn ætti að vera og
völdu 41,2% þeirra sem tóku afstöðu
Keflavíkurflugvöll, 12,7% Hafnar-
fjörð/Hafnarfjarðarhraun, 3,2%
Sandskeið, 28,5% vildu hafa völlinn
fyrir utan Reykjavík og fjarri byggð
og 14,5% nefndu annað.
Engar vísbending-
ar sem skýrt geta
hvarf Einars Arnar
Skólastjóri VÍ hefur áhyggjur af nýhöfnu verkfalli
Reynt að kenna eins
og mögulegt er
ENGAR vísbendingar hafa komið
fram sem skýrt geta hvarf Einars
Amar Birgissonar, sem saknað hefur
verið frá því á miðvikudag, að sögn
lögreglunnar í Kópavogi. Um helgina
var hans leitað af björgunarsveitar-
mönnum auk aðstandenda og vina,
alls um fjögur hundruð manns. Form-
legri leit hefur verið hætt en nokkrir
vinir og aðstandendur Einars Arnar
ætla að halda áfram að leita.
Friðrik S. Björgvinsson, yfirlög-
regluþjónn í Kópavogi, segir björgun-
arsveitir í biðstöðu og ekki verði hafin
leit að nýju fyrr en vísbendingar ber-
ist sem leitt geti menn á slóð Einars
Amar. Friðrik segir margar vísbend-
ingar hafa borist og séu sumar þeirra
enn í athugun. Hann segir ekkert úti-
lokað við rannsókn málsins.
Engar vísbendingar um
að Einar hafi farið utan
Friðrik segir rannsókn lögreglu
ekki benda til þess að Einar hafi farið
utan. Farþegalistar hafa verið skoð-
aðir og rætt við áhafnir flugvéla. Þá
hefur lögreglan farið yfir myndbönd
sem tekin em með eftirlitsvélum í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Kefla-
víkurflugvelli.
Síðast spurðist til Einars rúmlega
ellefu á miðvikudagsmorgun. Fjöl-
skylda hans og vinir höfðu samband
við lögreglu þá um kvöldið og farið
var að svipast um eftir honum. Lög-
regla, auk vina og fjölskyldu Einars,
tók þátt í leitinni. Bfll Einars, grár
Volkswagen Golf, fannst rúmlega níu
að morgni fimmtudags fyrir framan
Hótel Loftleiðir. Bæði lögregla og
aðstandendur Einars höfðu farið þar
um kvöldið áður en ekki orðið bflsins
vör. Friðrik segir mögulegt að bíllinn
hafi ekki verið við Hótel Loftleiðir þá
um nóttina en einnig verði að gera ráð
fyrir þeim möguleika að mönnum hafi
sést yfir bflinn. Aðfaranótt fimmtu-
dagsins töldu vegfarendur sig hafa
séð bfl sömu gerðar á Vatnsleysu-
strönd. Sú vísbending varð m.a. til
þess að víðtæk leit var gerð að Einari
á Vatnsleysuströnd.
Lögreglan í Kópavogi hefur notið
aðstoðar ríkislögreglustjóra og lög-
reglunnar í Reykjavík. Ríkislögreglu-
stjóri hefur m.a. aðstoðað við tækni-
rannsóknir og samskipti við erlend
lögregluyfirvöld.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins var Einar með uppgjör frá
verslun sinni við Laugaveg á sér þeg-
ar hann hvarf. Það munu þó hafa ver-
ið óverulegar peningaupphæðir.
Einars hefur nú verið leitað á
stærstum hluta Reykjaness, á Blá-
fjallasvæðinu og víðar í nágrenni höf-
uðborgarsvæðisins. Fjörur hafa verið
gengnar á Seltjamamesi, Álftanesi,
Vatnsleysuströnd og víðar. í gær leit-
uðu hópar Einars m.a. í Elliðaárdal
og í nágrenni Hafnarfjarðar.
SEXTÍU og tvefr kennarar í Versl-
unarskóla Islands hófu verkfall í
gær. Nemendur mættu í skólann en
Þorvarður Elíasson skólastjóri sagði
að reynt yrði að halda uppi kennslu
eins og kostur væri.
„Framhald kennslunnar byggist
að miklu leyti á nemendunum sjálf-
um. Það mun reyna mikið á nemend-
ur að þeir stundi sjálfir nám með að-
stoð sautján stundakennara," sagði
Þorvarður. Kennarar Verslunarskól-
ans semja við skólanefnd VÍ en ekki
við ríkið eins og framhaldsskólakenn-
arar sem hófu verkfall 1. nóvember.
Aðspurð um verkfall kennara við
Verslunarskólann sagði Elna Katrín
Jónsdóttir, formaður Félags fram-
haldsskólakennara, að ekkert hefði
gengið betur að ná fram kröfum fyrir
hönd kennara Verslunarskólans en
hinna. „Þrátt fyrir ágætar samræður
við fulltrúa skólanefndar Verslunar-
skólans lá ekkert fyrir um að skólinn
gæti gert kjai-asamning um stórbætt
kjör við sína kennara frekar en hinn
opinberi framhaldsskóli."
Nýtt tilboð
Krugers svip-
að því eldra
HOWARD Kruger hefur gert Jóni
Ragnarssyni, eiganda Hótels Val-
hallar, nýtt tilboð sem í meginatrið-
um er samhljóða fyrra tilboði og
hljóðar upp á 3,8 milljónir punda,
jafnvirði um 470 milljóna íslenskra
króna. Jón Ragnarsson hefur mánuð
til að svara.
Gísli Gíslason, lögmaður Krugers
hér á landi, segir að frestminn hafi
verið gefinn vegna hugsanlegra
vandkvæða við söluna. Þingvalla-
nefnd fundar í dag og er lfldegt að
nýtt tilboð Krugers verði rætt þar.
Gestur Jónsson hrl. er lögmaður
stjórnvalda í málefnum hótelsins.
Framhaldsskóla-
nemar mótmæla
HÓPUR framhaldsskólanema ætlar
að standa fyrir setumótmælum í
fjármálaráðuneytinu miðvikudaginn
15. nóvember klukkan tvö síðdegis.
Krafa hópsins er að ríkið samþykki
launakröfur kennara. Amar Sig-
urðsson, einn skipuleggjenda mót-
mælanna, býst við góðri þátttöku en
hann segir að mikill stuðningur sé á
meðal nema við kennara í yfirstand-
andi verkfalli. Að sögn Arnars eru
setumótmælin ekki á vegum Félags
framhaldsskólanema, FF, heldur
hefur hópur nemenda úr fjölinörgum
framhaldsskólum tekið sig til og
skipulagt mótmælin.
„Mótmælin beinast alls ekki gegn
því sem FF er að gera heldur eru
þau aðeins viðbót við þeirra starf,“
sagði Arnar en hann leggur áherslu
á að mótmælin séu ekki eingöngu
fyrir framhaldsskólanema heldur
geti aðrir stuðningsmenn kennara
einnig tekið þátt í þeim.
„Við ætlum að setjast á ganga
fjármálaráðuneytisins klukkan tvö
og vera þar þangað til ráðuneytinu
verður lokað. Ætlunin er ekki að
vera með einhver læti heldur verða
þetta friðsamleg mótmæli. Nemend-
ur ætla margir að taka skólabækum-
ar með sér,“ sagði Amar.
Heimili
FASTEIGNIR
Knattspyrnulandsliðið er
komið til Póllands / B3
Arnar Gunnlaugsson stal senunni
á Filbert-stræti / B2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is