Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
MORGUN BLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vlslr, Þri. 7. nóv. 14:58
__Vaxandi áhyggjur vegna kúariðu
) j ji ] Heilbrigöisráöuneytið f Frakklandi hefur varaö viö því aö fólk gæti greinst
j III I meö Kreutzfeldt-Jakob-sjúkdóminn í tugatali á næstunni, en sá sjúkdómur er
tengdur kúariðu. Kúariða hefur veriö aö greinast í auknum mæli I
Á sama tíma og Chirac Frakklandsforseti Ieggur til að banna alla notkun beinamjöls í dýrafóður,
opnar landbúnaðarráðherra fslands nýja verksmiðju og leyfir innflutning norskra fósturvísa.
Er arnarstofn-
inn að eflast?
Könnun erlends
ferðatímarits
ísland talið
ákjósanleg-
asta ferða-
landið
SAMKVÆMT niðurstöðum
könnunar ferðatímaritsms
Recommend Magazine er ís-
land ákjósanlegasti áfangastað-
ur þeirra sem sækjast eftir æv-
intýralegu ferðalagi og
vistvænni ferðaþjónustu.
Könnun þessi var gerð meðal
starfsfólks ferðaskrifstofa í
N orður-Ameríku.
Nefna ævintýraferðir
og næturlíf
Meðal þess sem þátttakend-
ur í könnuninni nefna sem kosti
Islands sem ferðamannastaðar
eru ævintýraferðir á jöklum og
ám, spennandi fjallgöngu-,
hjólreiða- og hestaleiðii’, að
ógleymdum heitum útilaugum
og næturlífí.
ÓVENJU margir arnarungar hafa
komist á legg að undanförnu að því
er kemur fram í fréttabréfi Fugla-
verndarfélags Islands. A árunum
1998-2000 hafa 22-28 ungar stálp-
ast árlega. Vitað er um 36-37 pör
sem urpu og komu 18-21 þeirra upp
ungum eða ríflega helmingur þeirra
para sem urpu.
Arnarstofninn er talinn vera um
42 pör eða u.þ.b. 150 fuglar.
Innflutningur arna
til landa í Evrópu
Astæðan fyrir góðum varp-
árangri undanfarin ár er sagður
stafa af hagstæðu tíðarfari á varp-
tíma arna og því að norðanáhlaup
komu ekki á viðkvæmasta tíma, þ.e.
í maí og júní. Einnig er það talið
hafa átt þátt í uppgangi arnar-
stofnsins síðustu þrjú ár að margir
landeigendur hafa sýnt erninum
sérstaka nærgætni og forðast trufl-
un við hreiður.
Enn á arnarstofninn þó í nokk-
urri kreppu og langt er í að hann
rétti úr kútnum þrátt fyrir ágætis-
árangur síðustu þriggja ára. Arnar-
stofnar í Svlþjóð, Noregi, Finnlandi,
Eystrasaltslöndunum, Póllandi og
Þýskalandi vaxa hins vegar hratt og
hafa 3-5 faldast á síðustu 20 árum
að því er kom fram á alþjóðaráð-
stefnu um verndun og vistfræði haf-
arna sem haldin var í Svíþjóð í sept-
ember.
Talið er að í Evrópu verpi nú um
4.400 pör; þar af yfír 2.000 pör í
Noregi. I Suður-Evrópu er hins
vegar afar fátt um erni og stofnar
þar í mikilli hættu.
Unnið er að því að koma upp arn-
arstofni að nýju í Israel en þar var
örnum eytt með eitri fyrir nokkrum
áratugum. Ernir hafa einnig verið
fluttir inn til Skotlands og þar verpa
nú um 20 pör af norskum stofni.
Rætt er um að hefja innflutning á
örnum til Englands og reyndar til
fleiri landa í Evrópu þar sem ernir
urpu áður en eru nú útdauðir.
Séttu hlýjan svip á heímilið éða í sumatbústaðinn. Úrvalið er hjá okkur
8
-e
mmm
Tre-
rímlagluggatjöld
stuttur afgreiðslu tími
Z-brautir & gluggatjöld
Faxafen 14 1108 Reykjavík | Sími 525 8200 | Fax 525 82011 Netfang www.zeta.is
Afar og ömmur fatlaðra barna
• •
Oryggisnet
hjálpar mikið
Ásta María Eggertsdóttir
Ð EIGA fatlað
barnabarn", er yf-
irskrift fundar
sem haldinn er annað
kvöld í húsakynnum
Þroskahjálpar, Suður-
landsbraut 22, klukkan
20. Málstofa FFA,
(fræðsla fyrir fatlaða og
aðstandendur) stendur
fyrir fundinum. Asta Mar-
ía Eggertsdóttur mun
tala á þessum fundi. Hún
var spurð hvert væri meg-
inefni hennar erindis?
„Það sem er aðalatriðið
í mínu erindi er að segja
frá því hvernig afar og
ömmur geta stutt málörv-
un og kennslu fatlaðra
barnabarna sinna."
- Hefur þú mikla
reynslu á þessu sviði?
„í þessu verkefni hef ég núna
unnið í tvö ár. Ég er í hópi
aðstandenda fatlaðs barns sem
hittist reglulega og vinnur núna
eftir kenningum Irene Johans-
son. Irene er sænskur prófessor
sem starfar við háskólann í Karl-
stad í Svíþjóð. Hún hefur
rannsakað börn með Down’s
heilkenni og gefið út kennslu-
bækur um niðurstöður sínar.“
- Hvernig eru þær?
„Kenningar hennar byggja á
breiðum grunni rannsókna, á
einstaklingsbundinni fötlun
barnsins annars vegar og á áhrif-
um umhverfis á barnið hins veg-
ar. Irene hefur meðal annars
bent á að börn með Down’s heil-
kenni eiga erfitt með hljóðræna
úrvinnslu, t.d. að greina mun á
samhljóðum eins og b, d, og m.
Hún telur að þau eigi auðveldara
með að læra í gegnum sjón en
heyrn. Sérhönnuð kennslugögn,
kennslubækur og kennsluaðferð-
ir Irene byggjast á þessari þekk-
ingu. Til að styðja við kennslu og
málörvun barnsins í umhverfinu
hvetur Irene til þess að búa til
svokallað öryggisnet í kringum
barnið. I netinu sitja þeir aðilar
sem hafa áhuga á að efla almenn-
an þroska og málnotkun barns-
ins, svo sem foreldrar, systkini,
afar og ömmur, frænkur og
frændur, kennarar, stuðnings-
aðilar, talkennari, sérkennari,
sjúkraþjálfari og aðrir sem eru
mikilvægir fyrir börn með þessa
fötlun. Hópurinn hittist minnst
einu sinni í mánuði. Irene segir
að markmið og tilgangur með
netinu sé að styrkja málnotkun
og almennan þroska einstaklings
með Down’s heilkenni, samræma
vinnubrögð þeirra sem koma að
umönnun hans. Hún skilgreinir
hlutverk þeirra sem koma að um-
önnun hans. Um þetta mun ég
fjalla. Eftir að við kynntumst
þessum kenningum þá stofnuð-
um við svokallað öryggisnet í
kringum barnabarn mitt, stúlku-
barn sem er með Down’s heil-
kenni og er sjö ára í dag.“
- Hefur þetta skilað árangri?
„Tvímælalaust. í ljós kom að
það er mikill vilji hjá fagaðilum
að taka þátt í netvinn-
unni.“
-Hvernig örvið þið
málnotkun barnsins?
„Við vinnum skipu-
lega. Irene leggur
fram kennsluáætlun í
byrjun vetrar og hvert
okkar fær hlutverk í
samskiptum okkar við barnið,
kennarar hennar í Öskjuhlíðar-
skóla hafa mætt á fundina, þeir
sjá um að framkvæma kennslu-
áætlun og við tökum ákvarðanir
um framvindu á þessum sameig-
inlega fundi. Mitt hlutverk er t.d.
að vera tilbúin að ræða við barnið
► Ásta María Eggertsdóttir
fæddist 2. september 1939 í
Reykjavík. Hún lauk almennu
gagnfræðanámi 1956 og siðan
prófi frá Fósturskóla Islands
1981. Hún hefur starfað sem
framkvæmdastjóri Svæðis-
skrifstofu fatlaðra í Reykjavík
frá 1981 til 1997 en rekur nú eig-
ið fyrirtæki. Ásta er gift Þor-
grími Jónssyni gullsmið og eiga
þau fimm börn og átta barna-
börn.
um það sem það er að gera
hverju sinni, þegar það kemur í
heimsókn til afa og ömmu.“
- Og hver hefur árangui'inn
verið?
„Árangurinn er sá að í örygg-
isnetinu verður til þekking sem
skapar vald. Valdið á að gefa
þeim sem er í þörf fyrir það og
hugsunin er sú að foreldrar fái
valdið í krafti mikilvægrar þekk-
ingar. Með því að setja mig inn í
öryggisnetið er ég aðili að öðlast
og auka þessa þekkingu og styð
við foreldra barnsins með mark-
vissum hætti. Þetta tel ég vera
árangursríka leið til þess að
verða sonardóttur minni og for-
eldrum hennar að liði.“
- Gagnast þetta öðrum börn-
um en þeim sem eru með Down’s
heilkenni?
„Þetta gagnast öllum fötluðum
börnum, bæði með þessa fötlun
og ýmsa aðra.“
-Þarf að stofna svona net í
kringum hvert og eitt barn eða
er starfað sameiginlega fyrir
mörgbörn?
„Eitt barn er dæmisbarn fyrir
20 önnur. Fyrir dæmisbarnið er
búið til myndband sem sýnir
hvernig það leysir verkefni og er
á vegi statt. Bandið er sent út til
Irene í Karlstad og hún, ásamt
starfsfólki sínu, býr til kennslu-
markmið og tillögur um æfingar.
Myndbandið er svo sýnt á opnum
fundi fyrir aðstandendur þessara
tuttugu barna og aðra. Ýmsir að-
ilar sem áhuga hafa á kennsluað-
ferðum Irene hafa mætt á þá tvo
fundi sem haldnir hafa verið í
vetur þar sem þessi
kennsluaðferð hefur
verið kynnt. Á fundin-
um á morgun, sem er
hugsaður sem fræðslu-
fundur fyrir afa og
ömmur sem eiga fatlað
barnabarn, mun ég
fjalla um þessa leið.
Einnig mun Sævar Frímannsson,
sem er afi fatlaðs barns, stýra
umræðum um þetta efni: „Að
eiga fatlað barnabarn". Það er
von okkar að afar og ömmur sem
eiga fatlað barnabarn mæti á
þennan fund.
Börn með
Down’s heil-
kenni eiga
erfitt með
hljóðræna
úrvinnslu