Morgunblaðið - 14.11.2000, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.11.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 1 3 skólans. Að endingu gat hún þess, að á vegum heimspekideildar væri fyr- irhugað að koma á fót vefsetri í ís- lensku máli og menningu sem þjóna ætti öllum þeim sem áhuga hefðu á málefninu, hvort heldur um væri að ræða íslendinga eða útlendinga, börn eða fullorðna, heima eða heim- an - enda vefurinn haflnn yfir land- fræðilegt rými. Ætlunin væri að á vefnum yrði að finna efni af ýmsu tagi sem snerti íslenskt mál og menningu, svo sem upplýsingar margs konar, svo og kennslu- og sjálfsnámsefni. Sérhanna þyrfti efni af þessu tagi með miðilinn sjálfan og notkunarmöguleika hans að leiðar- ljósi og þegar litið væri til þess að Is- lendingar stæðu hér á byrjunarreit, þar sem sáralítið væri enn til af slíku efni fyrir íslensku, væri ljóst að þetta yrði ekki að veruleika í einni svipan. Það mætti þó sjá fyrir sér í nánustu framtíð fjarkennslu í íslensku fyrir útlendinga, fjarkennslu sem stæði undir nafni með gagnvirkum tengsl- um, auk sjálfsnámsefnis ýmiss konar sem ætti ekki hvað síst að koma út- lendingum til góða, erlendum stúd- entum sem almenningi sem áhuga hefðu á að læra íslensku og/eða læra um íslenskt mál og menningu. Nútímaíslenska kennd við 38 háskölastofnanir erlendis Úlfar Bragason, forstöðumaðm- Stofnunar Sigurðar Nordals, fjallaði um íslenskukennslu við erlenda há- skóla. í upphafi máls síns nefndi hann að stofnunin hafi árið 1998 látið gera könnun á íslenskukennslu við erlenda háskóla og kom í Ijós, að nú- tímaíslenska hafi þá verið kennd við 38 háskólastofnanir erlendis. Af þessu megi ætla, að fjöldi nemenda sé vel á annað þúsund á ári hverju. Sagði hann, að íslenska rfldð styrkti nú 14 lektorsstöður við jafn- marga háskóla erlendis, tvo í Noregi og Svíþjóð, einn í Danmörku, Finn- landi, Austurrfld og Bretlandi og þrjá í Þýskalandi og Frakklandi. Um væri að ræða launaframlag til lektor- anna, ferðastyrk til að sækja árlega lektorafundi og bókastyrk til kennarastólanna. Á síðustu mánuð- um hafi verið óskað eftir enn meiri stuðningi við kennslu í íslensku í Þýskalandi og leitað eftir stuðningi frá Japan og Spáni. „Eins og oft hefur verið bent á há- ir kennsluefnisskortur kennslu í ís- lensku sem erlendu máli,“ sagði Úlf- ar. „Til þess að megi takast að fjarkenna íslensku útlendingum þyrfti að búa til fjarkennsluefni á Netinu. Er nú vonast til að unnt verði að hrinda því í framkvæmd í samvinnu við Wisconsinháskólann í Madison og með stuðningi mennta- málaráðuneytisins. Að tilhlutan Nor- ræna ráðherraráðsins er hér haldið sumarnámskeið í íslensku fyrir nor- ræna stúdenta árlega í júní. Þá gangast Stofnun Sigurðar Nordals og heimspekideild Háskóla Islands fyrir alþjóðlegu sumamámskeiði í ís- lensku og íslenskri menningu í júlí ár hvert. Þótt námskeiðin séu haldin hér á landi er eðlilegast að líta á þau sem stuðning við kennslu í íslensku erlendis, enda koma nemarnir aðeins hingað til að taka þátt í námskeiðinu en hverfa síðan til síns heima. Hafa íslenskulektorar erlendis bent á að þessi námskeið séu ómetanlegur stuðningur við kennslu þeirra sjálfra enda geti nemendur þeirra sem koma hingað til lands þjálfað sig mun betur í töluðu máli ---------- en kostur sé við erlenda háskóla. Ekki hefur verið unnt að anna öllum um- sóknum um norræna námskeiðið en rúmlega 30 nemar era teknir á það námskeið á ári. Á síðustu áram hafa umsóknir um sumarnámskeið Nordalsstofnunar og heimspekideildar verið rúmlega eitt hundrað en aðeins er unnt að verða við um helmingi þeirra. Leitað hefur verið leiða til að auka framboð á sumamámskeiðum í íslensku til að koma til móts við vaxandi eftirspurn. Stofnunin hefur nú skipulagt í sam- vinnu við Minnesotaháskóla sex vikna námskeið í íslensku á næsta sumri, færa fyrri þrjár vikur nám- skeiðsins fram í Minneapolis en síð- ari þrjár hér í Reykjavík. Nútímaís- lenska hefur. ekki verið kennd um Morgunblaðið/Sverrir Bjöm Bjarnason afhendir Gunnari Þorsteini Halldórssyni nýjan styrk Mjólkursamsölunnar, að upphæð 400 þúsund krónur, en hann er ætlaður háskólanema sem vinnur að lokaverkefni um íslenskt mál. Styrkinn hlaut Gunnar til rannsóknar á beygingarlegum og setningarlegum einkennum 100 algengustu sagna í íslensku, sem er ritgerð til meistaraprófs við Háskóla íslands. Rannsakar einkenni sagna í íslensku BJÖRN Bjarnason menntamála- ráðherra afhenti á málræktar- þingi á laugardag nýjan styrk Mjólkursamsölunnar. Styrkinn hlaut Gunnar Þorsteinn Hall- dórsson til rannsóknar á beyging- arlegum og setningarlegum ein- Styrkleiki tungumála fer ekki bara eftir fjölda notenda skeið í bandarískum skólum en áhugi á sumamámskeiðum er þar mikill. Má búast við að hann vaxi enn frekar í kjölfar þess landkynningarátaks sem Landafundanefnd hefur staðið fyrir í Norður-Ameríku á þessu ári.“ Foreldrar tali við börn sín á því máli sem þeim er tamast Þóra Másdóttir talmeinafræðing- ur íhugaði í eríndi sínu, hvort frávik- um í málþroska tvítyngdra bama svipaði til frávika í málþroska þeirra sem hefðu yfir einu tungumáli að ráða. Niðurstöður hennar voru þær, að málþroski tvítyngdra barna væri í flestum aðalatriðum ekki frábragð- inn málþroska eintyngdra bama. Öllu skipti þó að rétt væri að málum staðið og bamið fengi ríkulega mál- örvun í báðum tungumálum. I þeim tilvikum þar sem böm lærðu móður- málið fyrst og síðan annað mál væri mikilvægt að þau hefðu góða undir- stöðu í móðurmálinu. Það auðveldaði þeim að tileinka sér annað eða önnur tungumál. Sagði hún að talmeinafræðingar og aðrir fagaðilar yrðu að geta greint á milli hvenær um væri að ræða byrj- unarerfiðleika í máltöku tveggja tungumála og hvenær seinkaðan málþroska. Ekki væri rétt að leggja stöðluð málþroskapróf fyrir tvítyngd --------- böm, nema til að stað- festa að þau hafi náð sæmilegum tökum á ís- lenskunni. Samt bæri að hafa í huga að ef niður- stöður sýndu slakan mál- þroska miðað við jafn- aldra, væri mögulegt að bamið hefði ekki náð fullum tökum á málinu, án þess þó að um óeðlileg frávik væri að ræða. íslenskan væri jú flókið beygingarmál sem tæki tíma að verða fullnuma í. Ef barnið reyndist vera með seinkaðan málþroska í báðum tung- umálum (óeðlileg frávik), væri rétt að það fengi talþjálfun. Um það væra skiptar skoðanir hvort eingöngu ætti að vinna með móðurmálið í því skyni að efla seinni mál. Það væri fýsilegri kostur að vinna með bæði málin og nota móðurmálið til að styrkja ís- lenskuna, þá oftast með hjálp for- kennum á 100 algengustu sögnum 1 íslcnsku. Við þetta tækifæri gat Ari Páll Kristinsson, forstöðumaður Is- lenskrar málstöðvar, þess, að alls hefðu 12 manns sótt um, en sér- stök dómnefnd hefði að lokum eldra, túlks og/eða annarra í nánasta umhverfi barnsins. Væri ráðlegt að foreldrar töluðu við bömin sín á þvi máli sem þeim væri tamast og fynd- ist best að tjá sig á. Með því að leyfa barni að alast upp við móðurmál beggja foreldra, öðlaðist það dýr- mæta þekkingu á tveimur menning- arheimum auk þess sem tvítyngi væri almennt talið hafa jákvæð áhrif á vitsmunaþroska. Matthew Whelpton nefndi erindi sitt ,Áð tala íslensku, að vera ís- lenskur: mál og sjálfsmynd frá sjón- arhóli útlendings“. Kvaðst hann vilja skoða hvernig útlendingur á Islandi, sem legði stund á tungumálið, upp- lifði tungumálið á heimaslóðum þess og benda á sum þeirra vandamála sem hann sjálfur hefði tekist á við þegar hann hefði reynt að læra tungumálið í þessu samhengi. Niðurstaða sín, hvað fyrsta hluta titils erindisins áhrærði, myndi verða sú að þó það að tala íslensku væri ekki aðferð til að vera íslensk- ur, væri það samt sem áður aðferð til að heyra til íslensks samfélags á miklu persónulegri hátt en það að tala ensku gæfi færi á í bresku sam- félagi. „Þegar fólk veltir fyrir sér styrk- leika tungumáls sjá flestir fyrir sér einhvers konar fjöldamælikvarða - og með íbúatölu upp á um tvö hundr- uð og áttatíu þúsund hefur íslenska samkvæmt þessum mælikvarða mjög veika stöðu,“ hélt Whelpton áfram. „Félagsmálvísindamenn hafa hins vegar bent á að styrkleiki tung- umáls sé ekki fyrst og fremst tengd- ur fjölda þeirra sem tala tungumálið heldur á hve fjölbreyttan hátt það er notað og í hve ríkum mæli þeir sem tala málið kjósa að nota það frekar en eitthvert annað mál ríð hinar ýmsu aðstæður. Sem dæmi um slíkar aðstæður má spyrja að því hvort málið er notað af stjórnvöldum, í stjórnsýslu, á ýmsum dómstigum, í grunnskóla, í framhaldsskóla, í námi á háskólastigi, í viðskiptum, í fjöl- miðlum, milli vina og til að tjá sig við fjölskyldumeðlimi. Er einhver annar kostur í boði? Er hægt að þvinga fólk til að velja eitt tungumál fremur en annað? Ef tekið er dæmi af gelísku í ákveðið að Gunnar Þorsteinn Hall- dórsson hlyti styrkinn. Styrkupp- hæðin er 400 þúsund krónur og er ætlaður háskólancma sem vinnur að lokaverkefni um íslenskt mál. Ritgerð styrkþegans er til meist- araprófs við Háskóla Islands. írlandi þá eru niðurstöðumar dapur- legar. Það er hægt að nota tungu- málið opinberlega en það er að stór- um hluta táknrænt, þegar það er ekki táknrænt þá er það notað af ör- litlum minnihluta og enska er alltaf í boði sem annar kostur. Staða velsku er mun sterkari. Hún er töluð af um fimmtán til tuttugu prósentum íbúanna, þó að flestir séu tvítyngdir og tali ennfremur ensku. Hún er op- inberlega í boði á öllum stigum þó að raunin sé önnur og það geti verið erf- itt að notfæra sér velsku í stjómsýsl- unni og það er félagsleg pressa gegn því að nota hana á mörgum svæðum innan Wales. Hún er eingöngu í boði á einni sjónvarpsstöð og hún er not- uð til boðskipta milli vina og fjöl- skyldumeðlima þar sem hún er mest töluð, í dreifbýlinu norðan og vestan til í héraðinu. Enska er ennþá það tungumál sem notað er félagslega til að koma sér áfram. Beram þessar aðstæður saman við stöðu íslenskunnar. Islenska er skilyrðislaust notuð af stjómvöld- um, dómstólum, grann- og fram- haldsskólum. Og á háskólastigi er hún í flestum tilfellum notuð ein- göngu, þó að heyrist raddir um að nota beri ensku vegna stúdenta af erlendum uppruna. I viðskiptum er íslenska notuð nema ef skipt er við útlendinga, á fjóram sjónvarpsstöðum er allt efni kynnt á ís- lensku eða þýtt á tungu- málið, þó að nálgast megi sjónvarpsefni á ensku auðveldlega í gegnum gervihnött. Og íslenska er alltaf valin við að tjá sig við fjöl- skyldu og vini.“ Sagði hann að þessi styrkleiki ís- lenskunnar hefði raunar verið eitt af fyrstu atriðunum sem hann hafi tek- ið eftir í sambandi við tungumálið, löngu áður en hann hafi fyrst kom til landsins. Notkun ensku í verslunum í Reykjavík í beinni mótsögn við þá staðhæf- ingu sína, að það væri sterk tilhneig- ing meðal Islendinga til að nota ís- lensku hvenær sem færi gæfist, Vilja gera íslenskunám að skyldu en takmarkaðir möguleikar sagði Whelpton vera notkun ensku í verslunum í Reykjavík. Það væri al- gengt umkvörtunarefni meðal er- lendra gesta sem væri að læra ís- lensku, og hann sjálfur hefði upplifað þetta í fjöldamörg skipti, að þegar farið væri inn í búð og reynt að nota íslensku til.að kaupa eitt- hvað, skipti starfsfólkið umsvifa- laust yfir í ensku. „Eg hef jafnvel talað íslensku við starfsfólk í verslun og haldið áfram að tala íslensku allan tímann en það svarað mér alltaf á ensku... Það mætti ætla að þetta sýndi fram á styrka stöðu ensku á íslandi en mér finnst að þetta sýni fram á athyglis- verða hluti í sambandi við stöðu ís- lenskunnar sem máls samfélagsins. Alveg eins og tveir Islendingar í Oxford nota íslensku í samskiptum hver við annan án þess að hugsa vegna þess að íslenska er það mál sem Islendingar nota innan síns samfélags, notar Islendingur sem talar við útlending á íslandi á sama hátt ekki íslensku vegna þess að út- lendingurinn tilheyrir ekki samfé- laginu, í stað þess er enska valin til samskipta við aðila utan samfélags- ins... Islendingar virðast fylgja ein- faldri reglu: Islenska innan samfé- lagsins, enska utan þess. Þessar aðstæður líkjast því sem félagsmál- vísindamenn kalla „tvískipt mál- samfélag", þegar tvö tungumál eru notuð innan sama samfélags en hvort um sig er notað í ákveðnum til- gangi. Munurinn er sá að í raun- verulegu dæmi um tvískipt mál- samfélag, sem fyrirfinnst til dæmis víða í arabalöndum, er vandað, sígilt mál notað af dómstólum og í stjómsýslu, en mállýskukennt dag- legt mál notað innan heimilanna og í lágmenningarbókmenntum. Is- lenska útgáfan er samfélagstengd - eitt tungumál innan þess og annað utan þess.“ Þegar Islendingar segðu að tungumál þeirra væri eins óvenju- legt og jöklar á eldfjöllum og eins aðgengilégt og apalhraunbreiðurnar í nánd við Keflavík, yrði hann innst inni að vera sammála þeim. En stað- reynd málsins væri þó sú að íslenska væri engu erfiðari fyrir útlendinga að læra en mörg önnur tungumál. Vantar hagnýta íslensku fyrir útlendinga í lok máls síns kom Whelpton fram með þá tillögu, að boðið yrð'i upp á kennslu í íslensku sem væri sambærileg við það sem kallað er á ensku „English for Special Purpos- es“; um yrði að ræða sérhæfða ís- lensku eða hagnýt íslenska fyrir út- lendinga. Það sem gerði þessi námskeið frábrugðin íslensku fyrir erlenda stúdenta væri að þau yrðu ekki ætluð sem skipulagt nám sem endaði með háskólagráðu. Fyrir slík námskeið mætti semja einfalda kennslubók, sem skipt yrði upp í nokkra tugi stuttra kafla, sem hver um sig fjallaði um hvernig bera eigi sig að við ákveðnar aðstæður. Hún gæti gagnast útlendingum sem eru að stíga sín fyrstu skref í íslensku samfélagi vel. Til dæmis væri einn kafli um að fara til læknis, annar um bankann, skattinn, fara í sund, kaupa inn matvörar, fara á kaffihús og svo framvegis. Bók sem þessi kenndi fólki bæði á íslenskt samfé- lag um leið og það kénndi því ís- lensku til að nota við fyrirfram ákveðaðnar aðstæður. Ekkert væri því til fyrir- stöðu, ef bókin væri nógu einföld og skýrt fram sett, að þýða hana á króatísku, pólsku, ensku, tælensku, tagalog eða önnur af þeim fjölmörgu málum sem innflytjend- ur til landsins tala - og afhenda þeim eintak við hæfi við komuna. Sagði Whelpton, að íslendingar skildu að erlendir námsmenn og fræðimenn hefðu áhuga á tungumáli þeirra og treystu þeim til að yfir- stíga þau vandamál sem kynnu að koma upp í náminu. En hann hefði á tilfinningunni að þeir drægju í efa að nokkur vildi læra hið daglega mál til að geta tekið þátt í samfélaginu. Að þeim orðum sögðum, sleit for- maður íslenskrar málnefndar, Kristján Árnason, Málræktarþingi 2000.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.