Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjallað um siðferði á málþingi Svæfínga- og gjörgæslulæknafélags Islands
Viðhorf sjúklinga mikilvæg
við erfiða ákvarðanatöku
Sveinn G. Einarsson, formaður félagsins,
segir það lengi hafa verið draum svæfínga-
lækna á gjörgæslu að opna almenna um-
ræðu um siðfræði og gjörgæsiu.
Morgunblaðið/ Sverrir
Málþingið „Hver á mitt líf?“ var vel sótt.
SVÆFINGA- og gjörgæslulækna-
félag íslands stóð fyrir opnu mál-
þingi um samspil sjúklinga, að-
standenda og fagfólks við meðferð
sjúklinga á gjörgæslu í Borgar-
leikhúsinu síðastliðinn laugardag.
„Vegna þeirrar tækni sem við
búum við í dag er hægt að halda
fólki lifandi í vélum svo vikum og
jafnvel mánuðum skiptir," sagði
hann. „Hver á mitt líf? Þetta er
áleitin spurning sem oft vaknar
þegar einstaklingur liggur meðvit-
undarlaus í öndunarvél og fær
engu um það ráðið hvaða meðferð
hann fær eða hversu lengi haldið
er áfram.“
Þá flutti Jón Ásgeir Kalmansson
fyrirlestur Ástríðar Stefánsdóttur,
læknis og heimspekings, en sjálf
var Ástríður frá vegna veikinda og
hafði einn þátttakanda orð á því að
þau hjón væru gott dæmi um það
hvernig aðstandendur sjúklinga
verði oft að tala fyrir þá, ekki síst
á gjörgæsludeildum.
I fyrirlestrinum beindi Ástríður
sjónum að mikilvægi siðferðilegrar
færni lækna og hjúkrunarfólks.
Sagði hún að þótt meiri áhersla
hefði hingað til verið lögð á tækni-
lega færni og kunnáttu við mennt-
un heilbrigðisstétta verði þær
einnig að tileinka sér siðferðilega
færni.
Þá sagði hún það sjónarmið hafa
komið fram að læknum bæri ein-
ungis að greina vanda sjúklinga og
skýra þeim frá staðreyndum um
ástand sitt og hugsanleg úrræði,
þannig að þeir geti valið um það
hvort beita eigi ákveðinni meðferð
eða ekki. Vissulega sé mikilvægt
að hafa sjúklinga með í ráðum en
hún telji þó sjaldnast réttlætan-
legt, við erfiðar meðferðarákvarð-
anir, að sjúklingar eða aðstand-
endur beri einir hina endanlegu
ákvörðun. Enda sé það illfram-
kvæmanlegt þar sem það hljóti að
vera á ábyrgð fagmannsins að
meta hvaða upplýsingar skipti
máli, að gi'eina aðalatriði frá auka-
atriðum.
Að fyrirlestrinum loknum fóru
fram pallborðsumræður fagfólks,
aðstandenda og fyrrverandi sjúkl-
inga á gjörgæsludeildum undir
stjórn dr. Sigrúnar Stefánsdóttur.
Tóku þátttakendur undir mikil-
vægi þess að sjúklingar séu eins
virkir þátttakendur í ákvarðana-
töku og hægt sé án þess þó að
læknar firri sig ábyrgð eða þvingi
meiri ábyrgð á sjúklinga og að-
standendur en þeir eru reiðubúnir
til að axla.
Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahús-
prestur sagði að við erfiða ákvarð-
anatöku væri leitast við að hlusta
eftir því hver einstaklingurinn
væri. Það væri haft að leiðarljósi
að nálgast vilja og viðhorf hans og
að þar sem sjúklingurinn væri oft
víðsfjarri gætu samtöl við aðstand-
endur verið eina færa leiðin að því
marki.
í framhaldi af þessu spurði fyrr-
verandi sjúklingur um möguleika
sjúkiinga á því að fara til baka eft-
ir að þeir hafi verið heimtir úr
helju. Sögðu læknar líknardauða
ekki koma til greina hér á landi.
Þá sögðu þeir nokkurs misskiln-
ings hafa gætt við notkun hugtak-
anna „líknardauði" og „líknarmeð-
ferð“ en líknarmeðferð sé fullgild
meðferð sem miðist að því að lina
þjáningar dauðvona sjúklinga.
í síðari hluta málþingsins gerðu
aðstandendur og fyrrverandi
sjúklingar á gjörgæsludeildum
grein fyrir reynslu sinni. Lýstu
þeir mjög jákvæðu viðhorfi til þess
starfs sem unnið er á gjörgæslu-
deildum. Þó kom fram sú skoðun
að brýn þörf væri á millistigi milli
gjörgæsludeilda og almennra
deilda þar sem almennar deildir
væru ekki alltaf í stakk búnar til
þess að taka við sjúklingum af
gjörgæslu og flutningurinn gæti
því reynist sjúklingum og aðstand-
endum óþarflega erfiður.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Eldurinn komst inn fyrir klæðninguna en þó varð ekki mikið tjón.
Ikveikja við Bæjar-
leikhúsið í Mosfellsbæ
GRUNUR leikur á að brennuvarg-
ur hafi verið að verki við Bæjar-
leikhúsið í Mosfellsbæ á laugar-
dagskvöld. Kveikt var í rusli við
húsvegg og mátti litlu muna að illa
færi. Nokkrar skemmdir urðu á
húsinu og slökkvilið þurfti að
reykræsta það. Þetta er þriðji
bruninn í Mosfellsbæ á skömmum
tíma og telur lögreglan líkur til
þess að sami aðilinn hafi verið þar
að verki.
Tilkynnt var um brunann klukk-
an 22:50. Tveir dælubílar, körfubíll
og sjúkrabifreið voru send á stað-
inn. Þegar bílar Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins komu á vettvang
logaði í drasli við vegg leikhússins.
Húsið stendur við Þverholt en þar
var áður áhaldahús Mosfellsbæjar.
Slökkvistarf gekk greiðlega og
tókst að koma í veg fyrir að eldur
læsti sig í leikhúsið. Mikill reykur
barst hins vegar inn í húsið og tók
það slökkviliðið nokkra stund að
reykræsta það.
Eftirför lögreglu
lauk með árekstri
ÖKUMAÐUR sem grunaður var um
ölvunarakstur reyndi að komast
undan lögreglunni í Reykjavík í gær-
morgun með ofsaakstri. Eftirför lög-
reglunnar endaði með árekstri bíl-
anna í Þverholti.
Lögreglan veitti aksturslagi
mannsins athygli á fimmta tímanum
í gærmorgun og hugðist stöðva akst-
urinn. Sá grunaði reyndi þá að stinga
lögregluna af með ofsaakstri á
Miklubraut. Hann ók m.a. tvívegis
yfír á xauðuJjósLog .eftir.göngustíg.
Við Stórholt lentu bflarnir í árekstri.
Eftir áreksturinn reyndi hinn grun-
aði að komast undan á hlaupum en
lögreglumennirnir hlupu hann uppi
og handtóku. Við leit á manninum
fundust ætluð fíkniefni. Lögreglu-
mennirnir tveir sem voru í lögreglu-
bflnum, hlutu minniháttar meiðsl, en
þeir fóru báðir í læknisskoðun á
slysadeild. Bflarnir voru báðir óöku-
færir eftir áreksturinn. Hinn grun-
aði gistir nú fangageymslur lög-
reglunnar.og var yfirheyrður í gær.
Ólympíuskákmótið í Istanbúl
Vonbrig’ði þrátt fyrir
góða spretti
SKAK
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTINU í
Istanbul er að ljúka, þegar þetta er
skrifað. Rússar era ólympíumeist-
arar í opna flokknum, með 38 vinn-
inga í 56 skákum og Þjóðverjar fá
silfrið, með 37 vinninga. Þegar
þetta er skrifað, er enn óvíst um
þriðja sætið, en Ungverjar og
Ukraínumenn berjast um það.
Rússar rifu sig upp, eftir daufa
byrjun, og unnu nokkuð öraggan
og hefðbundinn sigur á mótinu, en
frammistaða Þjóðverja hefur vakið
mesta athygli. Þeir hafa teflt á
toppnum allt mótið og töpuðu saint
aðeins einni viðureign, fyrir Uki--
aínu með minnsta mun.
íslenska karlasveitin tapaði illa í
síðustu umferð fyiir Víetnömum,
1-3. Það gekk flest á afturfótunum
hjá okkar mönnum í þessari um-
ferð, en það má segja, að úrslitin í
síðustu umferðinni ráði mestu um
endanlega stöðu í mótinu.
Allt fór þó frekar rólega af stað
og virtist stefna í góð úrslit fyrir
okkur. Stefún Kristjánsson gerði
jafntefli með svörtu á 4. borði og
Hannes Hlífar átti greinilega betra
tafl á því fyrsta. Helgi Ólafsson lék
af sér skiptamun í ágætri stöðu á
öðru borði og á svipuðum tíma lenti
Þröstur í erfiðleikum á því þriðja.
Niðurstaðan varð svo sú, að Helgi
og Þröstur gátu ekki bjargað sínum
skákum og Hannesi Hlífari tókst
ekki að vinna skákina á fyrsta
borði. Úrslitin í síðustu umferð og
endanlegt sæti, nálægt 60., era
mikil vonbrigði fyrir okkur, eftir
góða spretti fyrr á mótinu.
Einstaklingsárangur: Hannes
Hlífar Stefánsson, 6/13; Helgi Ól-
afsson, 5 !4 /12; Þröstur Þórhalls-
son, 7W12; Jón Viktor Gunnarsson,
5W11; Jón Garðar Viðarsson, 2/3;
Stefán Kristjánsson, 2W5.
Þegar útkoman hjá íslensku
karlasveitinni er metin, verður að
hafa í huga, að hún tefldi við mun
stigahærri andstæðinga í 10 um-
ferðum af 14, við svipaðan andstæð-
ing í 1. (Víetnam!) og veikari í 3.
Kvennasveitin gerði jafntefli við
Singapore í síðustu umferð, U/2-U/2.
Sveitin hlaut 18 vinninga af 42, sem
skiptust þannig: Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir, 6W12; Harpa Ing-
ólfsdóttir, 4Vý/l 1; Áslaug Kristins-
dóttir, 3/10; Aldís Rún Lárusdóttir,
4/9.
Ólympíumeistarar í kvenna-
flokki era Kínverjar annað skiptið í
röð, nú með 32. v. af 42; 2. Georgía,
31 v.; 3. Rússland, 29 v.
Við skulum að lokum sjá skák
Þrastar í síðustu umferð, en hún
sýnir vel lánleysi okkar í lokin.
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Tu Thong
Skoski leikurinn
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6. e5 De7 7.
De2 Rd5 8. c4 Rb6 9. Rd2 De6 10.
b3 Hb8 11. De3 Bb4
í skákinni Vorobiov-V. Ivanov,
Moskvu 1994, varð framhaldið 11...
Be7 12. Bd3 f6 13. Bb2 Ra4 14. Bd4
c5 15. exf6 cxd4 16. Dxe6 dxe6 17.
fxe7 Rc518. Ke2 Bb719. b4 Ra4 20.
fö Kxe7 21. a3 a5 22. Bc2 Rc3 23.
Kd3 Hhd8 24. Hhel Kf6 25. Rb3
axb4 26. axb4 e5 27. Ha5, með jafn-
tefli.
12. Be2 0-0 13. 0-0 d5 14. Rf3
dxc4 15. Rd4? -
Þótt ótrúlegt megi virðast, leiðir
þessi eðlilegi leikur til tapaðrar
stöðu fyrh’ hvít. Best var 15. Rg5!
Dg6 16. bxc4 h6 17. a3 Be7 18. Re4
BÍ519. Rg3 o.s.frv.
15. - Dd7! 16. Rc2 -
Svartur hótaði 16. - Bc5, ásamt
17. - Hd8. Það gar verið spm’ning,
hvort hvítur ætti að fórna peði með
16. e6!? fxe6 17. Bg4 o.s.frv.
16. - Rd5 17. Dg3 Bc3! 18. Bh6
f5 19. Hadl f4!
Sjá stöðumynd
20. Bxf4 -
Eða 20. Dg5 HÍ5 21. Dg4 Df7 22.
bxc4 Hxe5 og svartur vinnur.
20. - Df5! 21. Bxc4 —
Ekki gengur 21. Re3 Dxf4 22.
Rxd5 Dxg3 24. Re7+ Kf7 25. fxg3+
Kxe7 26. Hxf8 Kxf8 27. Hd8+ Ke7
28. Hg8 cxb3 29. axb3 Bd4+ 30. Ki'l
Hxb3 31. Hxc8 Hbl+ 32. Bdl
Hxdl + o.s.frv.
21. — Dxc2 22. Bg5 -
Það er ekki hægt að loka svörtu
drottninguna úti með 22. Bd3 Rxf4
23. Bxc2 Re2+ 24. Khl Rxg3+
o.s.frv.
22. - Dg6 23. Dxc3 Dxg5 24.
Hd3 -
Hvítur hefði getað reynt 24. f4!?,
því að svartur má ekki drepa peðið:
24. - Hxf4? 25. Hxf4 Dxf4 26. Hfl
Dg5 27. Bxd5+ cxd5 28. Dxc7 Ha8
29. Dc6 o.s.frv.
24. ~ Ba6! 25. Hg3 Bxc4 26.
Dxc4 Dxe5 27. Dxc6 Hb6
Nú getur ekkert bjargað hvíti.
Lokin þarfnast ekki skýringa.
28. Dc4 Hbf6 29. h3 Kh8 30. Dc5
Dd6 31. Dxa7 Rf4 32. Khl Rd3 33.
f4 Rxf4 34. Hgf3 Re2 35. Hxf6 gxf6
36. Hel Rg3+ 37. Kgl c5 38. He7
Dd3 39. Dxc5 Dfl+ 40. Kh2 Hg8
41. Dgl Df4
og hvítur gafst upp, því að svart-
ur hótar að vinna hvítu drottning-
una með 42. - Re2+, eða hrókinn
með 42. - Rf5+, og það engin vörn
við báðum þessum hótunum.
Bragi Kristjánsson