Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristján
Rússneski togarinn Omnya hefur verið bundinn
við bryggju á Akureyri síðan í ágúst 1997.
Omnya frá Akur-
eyrifyrir jól
ALLT útlit er fyrir að rúss-
neski togarinn Omnya, sem
legið hefur við bryggju á Akur-
eyri frá því í ágúst 1997, verði
fjarlægður fyrir jól.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur norskur aðili
gert samning við Hafnasamlag
Norðurlands um að fjarlægja
skipið og hefur hann jafnframt
gert skil á hafnargjöldum
skipsins, sem voru í vanskilum,
alls rúmlega ein og hálf milljón
króna.
Hörður Blöndal, hafnarstjóri
Hafnasamlags Norðurlands,
staðfesti að hafa óskað eftir því
við hina norsku aðila að þeir
fjarlægðu skipið en vildi að
öðru leyti ekki tjá sig um málið
að svo stöddu. Eins og fram
kom í Morgunblaðinu nýlega
lagði Hafnasamlag Norður-
lands fram beiðni til sýslu-
mannsins á Akureyri um upp-
boð á rússneska togaranum,
þar sem útgerð skipsins í
Murmansk hefur ekki greitt
hafnargjöld frá því í nóvember
á siðasta ári. Því uppboðsferli
mun verða fram haldið þar til
skipið lætur úr höfn.
Þessi norski aðili sem hyggst
fjarlægja skipið stendur að fyr-
irtækinu A.D.S. fsland en fyrir-
tækið er með starfsemi á Akur-
eyri og safnar ýmsum
brotamálmi til útfiutnings og
hefur jafnframt haft áhuga á
því að eignast rússneska tog-
arann.
Hafnargjöld ekki
greidd í heilt ár
Samkvæmt upplýsingum frá
embætti sýslumanns hefur
krafan um uppboð á skipinu
ekki verið tekin fyrir. Málið sé
á byrjunarreit og því ekki
komnar fram neinar frekari
kröfur á eigendur skipsins.
Omnya kom til landsins fyrir
rúmum þremur árum og var
fyrirhugað að gera á því gagn-
gerar breytingar í Stáltaki
(Slippstöðinni). Marel Trading
sá um greiðslur fyrir skipið en
eftir að fyrirtækið hætti af-
skiptum af því fyrir ári hafa
hafnargjöld ekki verið greidd.
Tráhderar
jbm&kar
dragtur
fyrir ungar
kanur
~li5liiwi*Lu.n JvtelnunnúX
Akureyri, sími 462 2214,
Námskeið í XML og ASP forritun
Námskeiðið verður haldið á Akureyri
dagana 23. til 25. nóvember og 30. nóvember til 2. desember
Markmið námskeiðs er að nemendur:
ASP hluti
V Kynnist forritun vefsíðna
V Geti notað form til þess sækja inntak frá notendum
V Geti forritað ASP síður til þess að tala við gagnagrunn.
XML hluti
V Oðlist skilning á XML og í hvaða tilgangi það er notað
V Þekki hugtökin XSL og Document Object Model
V Geti tengt ASP og XML saman í raunverulegum verkefnum
Er þetta námskeið sem hentar þér?
Svaraðu könnuninni á vefslóðinni
www.prim.is/kennsla/tfak_xml_asp/
Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um námskeiðið
Kennari: Sigvaldi Óskar Jónsson, verkfræðingur, Prím ehf.
Innritun og allar nánari upplýsingar:
Tölvufræðslan - Furuvöllum 13 - 600 Akureyri
Símar 462 7899 og 896 5383 - Póstfang: helgi@nett.is
Landsfundur jafnréttisnefnda haldinn á Akureyri
Tekið verði á kyn-
bundnum launamun
Morgunblaðið/Kristján
Landsfundur jafnréttisnefnda vill að komandi kjarasamningar verði
nýttir í baráttunni við launamisréttið.
Valgerður Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, í ræðustól.
LANDSFUNDUR jafnréttis-
nefnda var haldinn á Akureyri en
honum lauk um helgina. Jafnréttis-
nefnd Akureyrar skipulagði fund-
inn í samstarfi við Jafnréttisstofu.
Aðaláhersla var lögð á að kynna
og ræða nýja skipan jafnréttismála
á Islandi, ný lög, nýtt jafnréttisráð
og Jafnréttisstofu. Þá var rætt um
hlutverk jafnréttisnefnda, en lög-
um samkvæmt er sveitarfélögum
skylt að skipa jafnréttisnefndir og
gera áætlun um jafnréttismál.
Staða nefndanna var rædd á fund-
inum og áhrif á sveitarstjórnarstig-
inu, m.a. þegar upp koma dómar og
kærunefndarálit í málum þar sem
sveitarstjórnir teljast hafa brotið
gegn jafnréttislögum.
Ekki farið eftir
ákvæðum jafnréttislaga
Á fundinum var samþykkt álykt-
un þar sem furðu er lýst yfir þeim
vinnubrögðum sem viðhöfð voru
við nýlega ráðningu hæstaréttar-
dómara, þar sem ekki var farið eft-
ir ákvæðum jafnréttislaga um að-
gerðir til að jafna stöðu kynjanna á
vinnumarkaði. Fundurinn hvatti til
aukinnar árvekni í meðferð ofbeld-
ismála þar sem börn og konur eru
þolendur.
Launamisrétti
verði upprætt
Fagnaði fundurinn þeim mikil-
vægu áföngum sem ný lög um fæð-
ingar- og foreldraorlof og lög um
jafna stöðu og rétt kynjanna eru
fyrir jafnréttisbaráttu á Islandi.
„Með lögunum hefur jafnréttisbar-
áttan náð dýrmætri fótfestu sem
brýnt er að nýta til nýrrar sóknar
og frekari sigra á komandi misser-
um. I þeim efnum er af nógu að
taka,“ segir í ályktuninni.
Þá hvetur fundurinn ríkisvald,
sveitarstjórnir og fyrirtæki til að
hefja þegar vinnu í samræmi við ný
lög um jafna stöðu kynjanna. Einn-
ig skorar fundurinn á aðila
vinnumarkaðarins að nýta komandi
kjarasamninga til að taka á þeim
kynbundna launamun sem víðast
er staðreynd, bendir á að forysta
ríkis og sveitarfélaga í að uppræta
launamisrétti kynjanna sé mikil-
væg og að framundan séu samning-
ar þessara aðila við fjölmennar
stéttir opinberra starfsmanna.
„Þessa samninga verður að nýta í
baráttunni við launamisréttið og
sýna þannig nauðsynlegt fordæmi
fyrir aðra aðila vinnumarkaðarins,"
segir í ályktun landsfundar jafn-
réttisnefnda.
Atvinnuástand með
allra besta móti
ATVINNUÁSTAND á Akureyri hef-
ur verið með allra besta móti á þessu
hausti, samkvæmt yfirliti frá Svæðis-
vinnumiðlun Norðurlands, og þá sér-
staklega hjá körlum. Um síðustu
mánaðamót voru 93 á atvinnuleysis-
skrá í bænum, 57 konur og 36 karlar,
en á sama tíma í fyrra voru 170 á skrá,
119 konur og 51 karl. í lok september
sl. voru 89 á skrá á Akureyri.
Atvinnuástand í öðrum sveitarfé-
lögum í Eyjafirði hefur einnig verið
þokkalegt á þessum tíma. Um síðustu
mánaðamót voru 19 manns á atvinnu-
leysisskrá í Ólafsfuði, 14 konur og 5
karlar, en á sama tíma í fyrra voru 17
á skrá. I lok september sl. voru 24
skráðir þar atvinnulausir.
Í Dalvíkurbyggð voru 5 manns án
atvinnu um mánaðamótin en á sama
Raunsæ ryðg-
uð rómantík
ÓLAFUR Sveinsson myndlistarmað-
ur opnar málverkasýningu á Kaffi
Karólínu á Akureyri í kvöld, þriðju-
dagskvöldið 14. nóvember, kl. 20.
Á sýningunni eru olíu- og akrýlmál-
verk unnin á hör og striga og eru þau
öll unnin á þessu ári. Myndefnið er
sótt í Sildarverksmiðjur Kveldúlfs á
Hjalteyri. Yfirskrift sýningarinnar
gæti þess vegna verið: Raunsæ ryðg-
uð rómantík!
tíma i fyrra voru fjórir á skrá. í Hrís-
ey voru 6 manns á skrá um síðustu
mánaðamót en á sama tíma í fyrra
voru tvær konur á atvinnuleysisskrá.
í lok september sl. voru hins vegar 10
konur á skrá í eynni.
Um síðustu mánaðamót vora 174 á
atvinnuleysisskrá á Norðurlandi
eystra, 115 konur og 59 karlar, en á
sama tíma í fyrra vora 241 á skrá, 166
konur og 75 karlar. í lok september
sl. vora 161 á skrá.
Ekki lægri tölur í mörg ár
Helena Karlsdóttir, forstöðumaður
Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands
eystra, sagði að atvinnuástandið væri
nokkuð gott og mun færri á skrá en í
fyrra. Munar þar mestu um gott
ástand á Akureyri. Hins vegar væri
fólki að fjölga á atvinnuleysisskrá en
slíkt gerist alla jafna á þessum árs-
tíma. „Þetta virðist vera ein hringrás,
það fjölgar á skrá og nær hámarki í
desember, janúar og febrúar og svo
fækkar aftur. Það hefur þó ekki verið
eins mikil fjölgun á skrá nú og undan-
farin tvö ár, þannig að ástandið er til-
tölulega gott. Og það þarf að fara
mörg ár aftur í tímann til þess að sjá
svo lágar tölur á Akureyri."
Helena sagði að ástandið á stöðun-
um í nágrenni Akureyrar væri svipað
og undanfarin ár. Ólafsfjörður hefði
til að mynda ekki náð sér eftir gjald-
þrot Sæunnar Axels þótt þar hefði
orðið fækkun á skrá frá þeim tíma.
Héraðsskjalasafnið
á Akureyri
Heiðurs-
borgarar
á sýningu
HÉRAÐSSKJALASAFNIÐ á
Akureyri hefur sett upp sýn-
ingu á myndum, skjölum og
munum sem tengjast heiðurs-
borgurum Akureyrarbæjar.
Nú era 80 ár liðin frá því að
fyrsti heiðursborgarinn, sr.
Matthías Jochumsson, var
kjörinn, en það var einmitt á
85. afmælisdegi hans hinn 11.
nóvember 1920.
Síðan hafa 7 heiðursborgar-
ar bæst við, en þeir eru: Finnur
Jónsson prófessor (1928), Jón
Sveinsson (Nonni) rithöfundur
(1930), Oddur Björnsson prent-
meistari (1935), Margarethe
Schiöth húsfrú (1941), Davíð
Stefánsson skáld (1955), Jakob
Frímannsson kaupfélagsstjóri
(1974) og Steindór Steindórs-
son skólameistari (1994).
Sýningin er á lestrarsal
Amtsbókasafnsins, 2. hæð, í
Brekkugötu 17 og er öllum opin
á afgreiðslutíma safnanna kl.
10-19 mánudaga til föstudaga
og kl. 10-15 á laugardögum.
Sýningin mun standa í um það
bil mánuð.