Morgunblaðið - 14.11.2000, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
URVERINU
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
Sr. Hjalti Þorkelsson flytur bæn við minnisvarða Jóns Arasonar.
Aftöku minnst
í Skálholti
Breiðabdlstað í Fljótshlíð - Hinn
7. nóvember sl. voru 450 ár liðin
frá aftöku Jóns Arasonar biskups,
Björns og Ara sona hans í Skál-
holti. Mun aftakan vera einhver
dekksti blettur sem siðaskiptunum
fylgdi hér á landi að mati sagn-
fræðinga. Feðgunum hefur verið
reistur minnisvarði í Skálholti.
Dánardægurs feðganna var
minnst í Skálholtsdómkirkju með
náttsöng og minningarstund sem
Sigurður Sigurðarson vígslubiskup
annaðist ásamt sr. Agli Hallgríms-
syni staðarpresti. Um tónlistar-
flutning sáu þeir Gunnar Kvaran
sem lék á selló og Hilmar Öm
Agnarsson sem lék á orgel dóm-
kirkjunnar. Skálholtskórinn söng.
Séra Hjalti Þorkelsson tók fram
í prédikun sinni að aftaka herra
Jóns hefði verið með þeim hætti og
allt við andlát hans, að hann væri
sannanlega píslavottur samkvæmt
kröfum hinnar kaþólsku og postul-
legu kirkju. Því gætu íslendingar
beðið um fyrirbæn hans með góðri
samvisku og heiðrað hann sem
píslarvott, sem lét lífið fyrir trú
sína. Er þarna loks kveðið uppúr
um píslarvætti Jóns biskups af
hendi kirkju hans.
Að lokinni minningarathöfn
gengu prestar, tónlistarfólk og
kirkjugestir með kyndla frá
kirkjunni að minnisvarða Jóns
Arasonar biskups og sona hans.
Félagsmiðstöð opnuð í Vík
Fagradal - Félagsmiðstöð
hefur verið opnuð í Vík í
Mýrdal og hlaut hún nafnið
OZ.
Ekki hefur áður verið
starfrækt félagsmiðstöð í Vík
og er þetta því frumraun á
þessu sviði Félagsmiðstöðin
fékk húsnæði f félagsheimil-
inu Leikskáium f Vfk og
verður opin tvö kvöld í viku
til að byija með. Við opnun
félagsmiðstöðvarinnar fluttu
nokkrir krakkar úr eldri
bekkjum skólans skemmti-
atriði. Þá hafa nokkrir
drengir skreytt veggi hús-
næðisins með og lífgar það
mikið upp á. Ennþá vantar
krakkana sjónvarp og hljóm-
flutningstæki og fieira til að
skemmta sér við.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Telma Ýr Sigurðardóttir, Berglind
Guðmundsdóttir, Kolbrún Magga
Matthíasdóttir og Elfsabet Ásta Magn-
úsdóttir á opnunardegi OZ í Vík.
Skjöldólfsstaðir á Jökuldal
Eldur laus í með-
ferðarheimili
Norður-Héraði - Eldur varð laus í
Meðferðarheimilinu Jökuldal á
Skjöldólfsstöðum um nónbil á laug-
ardag. Eldurinn kviknaði í
rafmagnstöflu og náði ekki frekari
útbreiðslu og skemmdir urðu ekki
aðrar af völdum eldsins en að raf-
magnstaflan og umhverfi hennar
er ónýtt.
Reykur og sót barst hinsvegar
um allt húsið og einnig duft úr
þeim slökkvitækjum sem notuð
voru við slökkvistarfið. Starfsmað-
ur meðferðarheimilisins var stadd-
ur í sama herbergi og rafmagns-
taflan þegar eldurinn braust út.
„Ég varð var við reykjarlykt og
fór að kanna hvaðan hún kæmi
þegar kvað við hár hvellur og raf-
magnstaflan þeyttist upp og eld-
glæringarnar stóðu út úr henni.“
Síðan var sprautað á eldinn úr
duftslökkvitæki og menn frá næsta
bæ, Skjöldólfsstöðum, komu þegar
með fleiri slökkvitæki því stutt er
milli húsanna. Það var ekki fyrr en
rafmagninu var slegið út að hægt
var að slökkva eldinn og tókst það
með slökkvitækjunum áður en
slökkvilið frá Egilsstöðum kom á
staðinn. Allt tiltækt lið þaðan var
kallað út, alls þrír bílar.
Strax á sunnudag var tekið til
við að þrífa húsið, mála það innan
og skipta um það sem skemmdist
og er vonast eftir að það klárist í
þessari viku svo hægt verði að
halda starfseminni á meðferðar-
heimilinu í föstum skorðum. Vist-
menn heimilisins voru flestir í
heimferðarleyfi þegar eldurinn
kom upp. Einn vistmaður var á
staðnum og dvelur hann á næsta
bæ þar til heimilið verður komið í
lag en heimferðaleyfið lengist hjá
hinum.
Losun gróðurhúsalofttegunda við fískveiðar
Óx um 14% miðað við
eldsneytisnotkun
LOSUN gróðurhúsalofttegunda við
fiskveiðar var 19% frá 1990 til 1996 en
14% frá 1990 til 1999 miðað við elds-
neytisnotkun. Þetta kom fram hjá
Guðbergi Rúnarssyni, verkfræðingi
hjá Fiskifélagi íslands, á málstofu um
sjávarútveg og losun gróðurhúsaloft-
tegunda, sem Landvemd stóð að í
samvinnu við Umhverfisstofnun Há-
skóla íslands og Fiskifélag íslands á
Grand Hótel Reykjavík í gærkvöldi.
Með samþykkt Kyotobókunarinnar
1997 vom iðnríkjunum sett losunar-
mörk fyrir gróðui’húsalofttegundir
fyrir tímabilið 2008 til 2012, sem námu
að meðaltali rúmlega 5% minni losun
árlega en 1990, en fyrir Island vom
losunarmörkin 10% aukning.
26% losunar hjá
fískiskipum
í máli Birnu Hallsdóttur hjá Holl-
ustuvemd ríkisins kom fram að losun
hefðu aukist frá 1990 og þar væri hlut-
ur koltvíoxíðs (C02) mestur. 1998
hefði 26% losunar á Islandi verið hjá
fiskiskipum og 6% vegna fiskimjöls-
framleiðslu. Nokkur sveifla hefði ver-
ið í orkunotkun 1990 til 1999.
Hámarkið hefði verið 1996 vegna
veiða á fjarlægari miðum eins og í
Smugunni og Barentshafi en síðan
hefði orðið samdráttur. 1990 hefði
C02 verið 98% losunar hjá fiskiskip-
um en í eldsneytisspá Orkuspár-
nefndar 2000 til 2010 væri gert ráð
fyrir um 13% eldsneytisaukningu
vegna meiri veiði og að C02 verði 93%
en gert væri ráð fyrir að fleiri fiskis-
ldp skipti út ósoneyðandi kælimiðlum.
Olíunotkun fiskveiði-
flotans minnkar
Guðbergur Rúnarsson sagði að
samkvæmt upplýsingum frá Orku-
spámefnd hefði eldsneytisnotkun
fiskiskipa aukist úr 221 þús. rúmmetr-
um 1983 í 315 þús. rúmmetra 1996 en
síðan minnkað í um 297 þús. rúm-
metra 1999. Þetta hefði gerst þrátt
fyrir aukna sókn í uppsjávarfisk (kol-
munna) og flotvörpuveiðar á sfld og
loðnu, fjölgun smábáta og endumýjun
og vélaskipti stærri skipa.
Hann nefndi að botnvarpan væri
mikilvægasta veiðarfærið og að um
helmingur afla íslenski'a skipa, miðað
við þorskígildi, fengist með togveiðar-
fæmm. Isfisktogarar hefðu verið 101
1990 en 66 1997. Orkunotkun þeirra
hefði verið 106.993 rúmmetrar 1990
en 52.709 rúmmetrar 1997. Orkunotk-
un á aflaeiningu hefði hins vegar verið
nokkuð stöðug, 0,43 1/kg 1997 en 0,38
1/kg 1990. Til samanburðar notuðu
smábátar 0,15 lítra af olíu pr. kg af
fisíd upp úr sjó, bátar 0,21/kg og nóta-
skip 0,035 I/kg upp úr sjó.Olíunotkun
vinnslu- og frystiskipa hefði aukist frá
1990 til 1997, úr 58.925 rúmmetmm af
eldsneyti í 135.650 rúmmetra. Skipun-
um hefði fjölgað úr 75 í 94, sóknin
hefði aukist, veiðarfærin væm stærri
og þyngri, úthafsveiðar hefðu aukist
sem og úthald og vinnsla. Olíunotkun-
in væri breytileg milli skipa en mest
hjá rækjuskipum, um 1,23 1/kg. Hann
sagði að reikna mætti með að olíu-
notkun ísfisktogara minnkaði með
meiri aflaheimildum og samþjöppun í
greininni. Fækkun rækjuskipa sam-
fara meiri aflaheimildum á einstök
skip bætti orkubúskap vinnsluskipa
og þegar á heildina væri litið væri
ekki annað séð en að olíunotkun fisk-
veiðiflotans héldi áfram að minnka.
Styrlqa jákvæða únynd
sjávarútvegsins
Auður H. Ingólfsdóttir hjá Um-
hverfisstofnun Háskóla íslands sagði
að hlutur íslands í heildarútblæstri
væri ákaflega lítill, eða um 0,05% af
heildarlosun. Losun frá sjávarútvegi
væri því um 0,0125% af heildarlosun
heimsins og því væri Ijóst að þær
fómir, sem íslensk útgerð kynni að
færa til að draga úr losun drægi ekki
úr líkum á loftslagsbreytingu nema
allir aðrir í heiminum stæðu við sitt.
Hún sagði að ef íslenskum sjávarút-
vegi tækist vel til við að minnka losun
gæti það styrkt enn frekar jákvæða
ímynd sjávarútvegsins sem atvinnu-
greinar sem byggði á heildstæðri um-
hverfisstefnu. Markvissari sóknar-
stýring gæti dregið úr orkueyðslu
sem og spameytnari vélar auk þess
sem hugsanlega gæti verið vænlegur
kostur að skipta um orkugjafa í fram-
tíðinni.
I máli Auðar kom ennfremur fram
að opinber umræða um aðgerðir til að
draga úr losun GHL í sjávarútvegi
hefði verið lítil sem engin undanfarin
þrjú ár en bæklingur LÍÚ um olíu-
spamað fiskiskipa væri mjög jákvætt
dæmi.
Tækninýjungar sem
draga úr eldsneytisnotkun
Dr. Guðrún Pétursdóttir, forstöðu-
maðui' Sjávarútvegsstofnunar Há-
skóla íslands, fjallaði um tækninýj-
ungar sem draga úr eldsneytisnotkun
við fiskveiðar og hafrannsóknir. Hún
sagði að samstarf framkvöðla og há-
skóla væri góður jarðvegur framfara
og benti á að stofnuninn ynni m.a.
með einstaklingum og fyrirtækjum
utan HÍ að framforum fyrir sjávar-
útveginn I því sambandi kynnti hún
árangur tveggja yfirstandandi sam-
starfsverkefna, annars vegar varð-
andi djúpfar og hins vegar varðandi
aflaspárkerfi, auk þess sem hún sagði
frá COMTEC brennsluhvatanum og
framtíðarsýn varðandi vetnisvæð-
ingu.
Guðrún sagði að prófanir sýndu að
brennsluhvatinn sparaði eldsneyti um
5% við 60% vélarafl auk annarrar
virkni. Gagnagrunnur eins og afla-
spárkerfi, sem væri verkefni til meist-
araprófs í verkfræði við HÍ, sparaði
m.a. tíma og drægi úr eldsneytisnotk-
un og mengun. Djúpfarið væri lítill og
sjálfvirkur kafbátur, búinn tækjum til
hafrannsókna og eftirlits í sjó eða
vatni, sem gæti gert mælingar og tek-
ið myndir af landslagi og lífrfld og
sparað skipatíma. Vetnisvæðingin
miðaði að því að gera vetni samkeppn-
ishæft sem eldsneyti og minnka C02
útblástur úr 3 milíjónum tonna í 1,3
milljónir tonna á ári.
Aðalfundur Sjómannafélags Reykjavíkur
Búa sig undir hörð
átök í kjarabaráttunni
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur
samþykkti tvær ályktanir á aðal-
fundi sínum um helgina. í annarri
er m.a. beint þeirri áskorun til ís-
lenskra fiskimanna að búa sig nú
þegar undir hörð átök í kjarabar-
áttunni en í hinni er mótmælt eyði-
leggingarstarfsemi við gömlu höfn-
ina í Reykjavík.
Fyrri ályktunin er annars eftir-
farandi: „Sjómannafélag Reykja-
víkur fagnar þeim áfanga sem náð-
ist í síðustu kjarasamningum
félagsins varðandi mönnun og
slysatryggingar um borð í íslensk-
um kaupskipum og skorar á samtök
sjómanna að ná fram slíkum trygg-
ingaákvæðum um borð í fiski-
skipum til að eyða réttaróvissu
varðandi slysabætur. Sá tími er lið-
inn um borð í kaupskipunum að
sökinni sé komið á skipverjann í
slysum, nú verður að eyða þessari
óvissu um borð í fiskiskipa-
flotanum.
Jafnframt vill félagið mótmæla
tilraunum Atlantsskipa til að
stunda vöraflutninga fyrir Varnar-
liðið milli Islands og Bandaríkjanna
með láglaunaáhöfnum og undir
fölsku flaggi. Aðalfundur Sjó-
mannafélags Reykjavíkur gerir þá
kröfu til stjórnvalda að sett séu í
lög sömu ákvæði og gilda um sjó-
flutninga Bandaríkjamanna, þ.e.a.s.
að þeirra hluti í sjóflutningum fari
fram með bandarískum skipum
undir bandarískum fána. íslenski
hluti sjóflutninganna fari fram með
íslenskum kaupskipum undir ís-
lenskum fána.
Sú þróun að íslenskir útgerðar-
menn beini sjónum sínum til Rúss-
lands og Eystrasaltslandanna ein-
kennist af nútíma þrælahaldi
láglaunafólks.
Kjarasamningar lausir
í nær eitt ár
Þessi þróun er alvarleg ógnun
við kjör og afkomu íslenskra sjó-
manna og bæta ekki kjör þeirra er-
lendu manna sem hér eiga í hlut til
frambúðar. Sjómannafélagið mun
því grípa til allra hugsanlegra að-
gerða til að verja kjör íslenskrar
sjómannastéttar gegn þeirri vá sem
þessi þróun hefur í för með sér.
Það reynist sjómannastéttinni
iðulega erfiður róður að ná fram
þeim kjarabótum sem orðið hafa í
landi, svo sem í lífeyrismálum, ör-
yggis- og tryggingamálum. Nú
þegar hafa kjarasamningar fiski-
manna verið lausir í því sem næst
eitt ár. Enginn árangur hefur til
þessa náðst í þessum viðræðum og
öllum sjálfsögðum kröfum verið
hafnað.
Aðalfundur beinir þeirri áskoran
til allra íslenskra fiskimanna að búa
sig nú þegar undir hörð átök í
kjarabaráttunni."
Gamla höfnin
I hinni ályktuninni beinir Sjó-
mannafélagið orðum sínum að
borgarstjórn.
„Aðalfundur Sjómannafélags
Reykjavíkur beinir harðorðum
mótmælum til borgarstjórnar
Reykjavíkur gegn þeirri eyðilegg-
ingarstarfsemi sem fram fer um
þessar mundir við gömlu höfnina í
Reykjavík.
Þetta dýrasta og mesta mann-
virki íslands við upphaf aldarinnar
er að verða að hótelum, listasöfnum
og íbúðarhúsnæði. Slippurinn og
fiskmarkaðurinn á leið á braut.
Þetta mannvirki hefur um áratugi
verið séreinkenni höfuðstaðar
landsins, aðdráttarafl ferðamanna
sem hafa viljað kynnast grandvall-
aratvinnugrein þjóðarinnar.
Sjómannafélag Reykjavíkur hef-
ur ekkert á móti lista- og menning-
arstarfsemi, en telur að henni sé
betur komið annars staðar.“