Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 23
Hag’naður Sæplasts 5 millj-
ónir fyrstu 9 mánuði ársins
HAGNAÐUR Sæplasts hf., móð-
urfélags og dótturfélaga, var rúm-
ar 5 milljónir króna eftir skatta
fyrstu 9 mánuði ársins 2000 sam-
kvæmt óendurskoðuðu milliupp-
gjöri félagsins. Miðað við sex mán-
aða uppgjör dróst hagnaðurinn
saman um 18 milljónii'. Fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði var
rekstrarhagnaður tæpar 210 millj-
ónir króna en var 132 milljónir eft-
ir níu mánuði í fyrra. Hrein fjár-
magnsgjöld voru 80 milljónir
króna en voru 33 milljónir í fyrra.
Tekjur Sæplasts hf. og dótturfé-
laga í Kanada, Noregi og Indlandi
voru 1.604 milljónir króna fyrstu
níu mánuði ársins miðað við 683
milljónir eftir níu mánuði 1999 og
964 milljónir allt árið 1999. Veltu-
aukning á milli ára er því 135%
enda gætir nú áhrifa dótturfélaga
Sæplasts í Noregi og Kanada allt
árið.
Eignir félagsins í lok september
síðastliðinn voru 2.200 milljónir
króna og höfðu hækkað um rúmar
100 milljónir frá áramótum en á
tímabilinu keypti félagið tvö fyrir-
tæki, Nordic Supply Containers
A/S og Atlantic Island ehf. Eigið
fé var 689 milljónir króna og hafði
hækkað um 19 milljónir frá ára-
mótum. Eiginfjárhlutfall samstæð-
unnar var rúmlega 31%. Skuldir
félagins voru 1.511 milljónir króna
og hafa hækkað um 80 milljónir
frá áramótum. Veltufjárhlutfall
þann 30. september síðastliðinn
var 1,72.
I sjóðsstreymi kemur fram að
veltufé frá rekstri var tæpar 150
milljónir króna fyrstu 9 mánuði
ársins en var 102 milljónir á fyrstu
níu mánuðum ársins 1999 og 106
milljónir allt árið 1999.
Hjá Sæplasti starfa nú 260
manns og þar af um 220 erlendis.
Áhrifa fjárfestinga erlendis gætir
ekki að fullu fyrr en á næsta ári
I tilkynningu frá félaginu segir
að helsta ástæða viðsnúnings frá
sex mánaða uppgjöri sé fall ís-
lensku krónunnar en gengistap fé-
lagsins á síðustu þrem mánuðum
nemur um 25 milljónum króna. I
öðru lagi hafi verið tap á rekstri
Nordic Supply Containers AS en
félagið tók yfír þann rekstur í
mars síðastliðnum. Búið sé að loka
þeirri verksmiðju og sameina
starfsemina öðrum verksmiðjum í
Noregi. Kostnaður og tafir við yf-
irtöku á Nordic Supply Containers
hafi raskað fyrri áætlunum Sæ-
plasts töluvert, en muni skila sér á
næsta ári. I þriðja lagi hafi fallið
til töluverður kostnaður á timabil-
inu vegna sameiningar og hagræð-
ingar í Noregi.
I tilkynningunni segir að áætl-
anir félagsins vegna fjárfestinga
erlendis hafí að fullu gengið eftir
en áhrifa þeirra muni þó ekki gæta
að fullu fyrr en á næsta ári. Af-
koma félagsins verði nokkru lakari
en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna
þeirra ástæðna sem þegar hafa
verið nefndar. Gert sé ráð fyrir að
hagnaður Sæplasts hf. verði um 20
milljónir króna á þessu ári og að
veltufé frá rekstri verði um 200
milljónir.
Skýrr með 142
milljónir í hagiiað
HAGNAÐUR Skýrr hf. nam 142
milljónum króna eftir skatta fyrstu
níu mánuði ársins en á síðasta ári
var hagnaðurinn 57 milljónir króna
fyrir sama tímabil. Rekstrartekjur
tímabilsins námu alls 1.119 milljón-
um samanborið við 884 milljónir á
síðasta ári. Meðal rekstrartekna
telst nú söluhagnaður að fjárhæð
142 milljónir sem er að hluta til til-
kominn vegna sölu á Agresso-starf-
seminni á síðasta ári, en þó að
mestu vegna sölu á örbylgjubúnaði
félagsins fyrr á þessu ári. Rekstrar-
gjöld tímabilsins að meðtöldum af-
skriftum námu alls 898 millónum
samanborið við 788 milljónir á síð-
asta ári. Hrein fjármagnsgjöld
nema alls 4 milljónum samanborið
við 15 milljónir á síðasta ári. Reikn-
aðir skattar tímabilsins eru um 75
milljónir samanborið við 24 milljónir
króna árið áður. Arshlutareikning-
urinn er gerður eftir sömu reikn-
ingsskilaaðferðum og árið áður og
hefur að geyma reikning móðurfé-
lagsins, en ekki samstæðureikning
með dótturfélögum. 89 milljónir af
hagnaðinum eru komnar til vegna
hefðbundinnar starfsemi Skýrr. 99
milljónir vegna söluhagnaðar og síð-
an er hlutdeild í afkomu dóttur- og
hlutdeildarfyrirtækja neikvæð um
47 milljónir. Rekstur dóttur og hlut-
deildarfyrirtækja gekk erfiðlega á
tímabilinu. Áhrif Ax hugbúnaðar-
húss hf. voru neikvæð á rekstur
Skýrr hf., en þar vegur þyngst
verulegar afskriftir langtímakostn-
aðar, sem til varð við kaup félagsins
á hugbúnaðardeild Tæknivals og
Agresso-starfsemi Skýrr. Félagið á
ennfremur 62,5% eignarhlut í Kuggi
ehf. og 60% í Landsneti ehf. og eru
áhrif þessara félaga neikvæð á
reksturinn, en samtals eru áhrif
dóttur- og hlutdeildarfélaga nei-
kvæð um 47 milljónir króna sam-
kvæmt fréttatilkynningu.
í lok júní keypti Skýrr hf. 60%
hlutafjár í Landsneti ehf., en það
fyrirtæki hefur sérhæft sig í fjar-
skiptaþjónustu á Netinu. Nýverið
fjárfesti fyrirtækið síðan í tveimur
nýjum fyrirtækjum Vestmark ehf. á
Isafirði og Skiún ehf. á Akureyri, en
bæði þessi fyrirtæki munu bjóða
upp á kerfisleigu, loftnetsþjónustu
o.fl. í samstarfi við Skýrr. Upphaf-
leg rekstraráætlun félagsins gerði
ráð fyrir um 100 milljóna króna
hagnaði á árinu 2000. Sú áætlun var
endurskoðuð í maí sl. þegar sölu-
hagnaður vegna örbylgjukerfisins lá
fyrir og var þá gert ráð fyrir a.m.k.
170 milljóna hagnaði. Þá var ekki
gert ráð fyrir þeim neikvæðu áhrif-
um dóttur- og hlutdeildarfélaga sem
nú eru raunin. Ekki er talin ástæða
til að hvika frá fyrri áætlun sem
hljóðaði upp á 170-190 milljónir í
hagnað.
Danir inn á
svissneska
sínia-
markaðinn
TELE Danmark hefur keypt meiri-
hluta í tveimur svissneskum simafyr-
irtækjum sem sameinuð verða annað
stærsta símafyrirtæki Sviss. Þetta
er mesta fjárfesting fyrirtækisins er-
lendis en Tele Danmark keypti hlut
fyrir alls um 21 miiljarð dkr., um 210
milljarða íslenskra króna, í Sunrise
og Diax. Fyrir átti Tele Danmark
44% hlut í Sunrise og á nú 89%. Hlut-
urinn í Diax er um 70%. Tele Dan-
mark hyggst sameina fyrirtækin og
verður þá aðeins Swisscom stærra.
Forstjóri Tele Danmark, Henning
Dyremose, segir Sviss orðið annan
heimamarkað Tele Danmark og að
raunveruleg samkeppni sé nú tryggð
á svissneska markaðnum. Diax mun
á næstunni taka þátt í uppboði á
svissnesku UMTS leyfi, sem er fyrir
nýja tegund farsímanets, en uppboð-
inu, sem átti að hefjast í gær var
frestað vegna kaupanna á fyrirtæk-
inu. Að sögn Dyremose stefnir Tele
Danmark á stækkun á sviði farsíma
og aðgangs að Internetinu. Með
kaupunum verður yfir helmingur
starfsemi fyrirtækisins erlendis.
Svisslendingar eru langt á veg
komnir í notkun farsíma, um 61%
þjóðarinnar á farsíma og 23% hafa
aðgang að netinu.
máttur stafrænnar
MINOLTA ..
TÆKNIBUNA0UR
KJARANEHF • SÍÐUMÚU 12 • 108 REYKJAVÍK
SÍMAR 510 5520 • 510 5500
WWW.KJARANJS
V
DíALTA
■ Me«i royndgæði og tægri
reksirarkostnaður en í etdri
gerðum Ijósritunarvéla
* Statræn vinnsta gefut nýja
mðguieilca f meðhöndiun skjata
og eykur framleiðni
■ hægitegt og samraemt
notenílavtðroót 0-CD)
» Tðtvutenging og mikið úrval
netkoita gefe aukið notagHdt
»Minolta DiALTAstafrænat (jósritunar
vélar eru mun urohveifisvamni