Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 29
ERLENT
Isötóitt
. ■ Si'.öt
Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna
Saknað eftir
árekstur
herþotna
Tókýó. AP.
TVÆR bandarískar herþotur rákust
saman yfir Norður-Japan í gær og
var flugmanns annarrar saknað.
Þoturnar, af gerðinni F-16C, flugu
saman undan ströndum Oshima-eyj-
ar, sem er 660 km norður af Tókýó.
Tókst báðum flugmönnunum að
skjótii sér út og var öðrum þeirra
bjargað úr sjónum af japönskum
hermönnum. Hins var enn leitað í
gær.
Herþoturnar, sem tóku þátt í sam-
eiginlegum heræfmgum Japana og
Bandaríkjamanna, höfðu bækistöð í
Misawa en þar og í öðrum banda-
rískum herbækistöðvum í Japan eru
slys alltíð.
Plannja Royal
Plannja Rapld
Þakklæðning - ál og stál
ASETA
Byggíngarvörur - byggingartækni
Ármúla 16 • sími 533 1600 • fax 533 1610
TOKpiús vopn í viðskip tum
einfalt og öruggt
Windows samhæfður
TOK plús viðskiptahugbúnaður er
Windows samhæfður með nýju og
vingjamlegu notendaviðmóti. Skjámyndír
TOK plús er sérstaklega auðvelt að læra
á og fullkomin hjálp er tíl staðar hvar sem
notandinn er staddur.
Microsoft SQL gagnagrunnur
Gagnavinnsla TOK plús er byggð á
Microsoft SQL gagnagrunni sem tryggir
meiri hraða og fjölbreyttari möguleika við
gagnameðhöndlun og uppfærslur á
gagnalausnum. TOK plús er tilbúið til
tengingar við SQL gagnagmnna eins oa
t.d. Mícrosoft SQL 7 eða Oraele 8.
Fyrir Iftll og meðalstór fyrirtæki
TOK plús viðskiptahugbúnaður hentar
litlum og meðalstórum fyrírt®kjum þar
sem samtímanotendur eru á bilínu 1 til
10. Möguleikar á kerfisstækkun og
fjölgun notenda eru nánast óendanlegir.
• A R H Ö S
Skeífunni 8 • 108 Rvk. • S.: 545 1000 • Fax: 545 1001
ax@ax.is
kWá vé
RÁDGIÖF •
Á ÆTT *!
DRÓUN
Færeyskir ráða-
menn gagnrýna
fyrirrennara sína
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
FÆREYSKUM stjórnmálamönnum
og stjórnvöldum er um að kenna hve
alvarleg efnahagskreppan var sem
reið yfir eyjarnar árið 1993. Þetta er
niðurstaða umfangsmikillar skýrslu
sem færeysk þingmannanefnd skil-
aði nýverið af sér. Er mat skýrslu-
höfunda að þeir sem voru við völd á
níunda áratugnum hafi gert möfg,
alvarleg mistök sem hafi reynst af-
drifarík fyrir eyjarnar.
Þingmannanefndin hefur unnið að
Gæða-
stimplar fyr-
ir elliheimili
Kaupmannahöfn. Morgunblaðid.
RÁÐHERRA félagsmála í Dan-
mörku hefur lagt til að komið verði á
samkeppni á milli sveitarfélaga um
hvert þeirra bjóði upp á bestu þjón-
ustuna fyrir eldra fólk. Að sögn Uge-
brevet Mandag morgen hyggst ráð-
herrann, Henrik Dam Kristensen,
koma á gæðastimplum fyrir elli- og
hjúkrunarheimili.
I upphafi er stofnunum í sjálfsvald
sett hvort þær taka þátt í verkefninu
eður ei. Það felst í því að stofnanirn-
ar verða að uppfylla ákveðnar kröfur
til að fá gæðastimpil ráðuneytisins.
Þær felast m.a. í því að lyfjagjöf
verður að vera í lagi, veikindafjar-
vera starfsmanna innan ákveðinna
marka, lagt er mat á vinnuumhverfi
og áhuga starfsmanna o.s.frv.
Ekki hefur náðst samkomulag við
landssamband danskra sveitarfélaga
um verkefnið en það hefur ekki
stöðvað áætlanir Dam Kristensen.
Telur hann ennfremur að taka megi
svipuð verkefni upp í öðrum þáttum
félagslega kerfisins í framtíðinni.
----------------------
skýrslunni í fimm ár, að því er fram
kemur í frétt Ritzau. I skýrslunni
segir að stjórnmála- og embættis-
menn hafi brugðist, margir hafi verið
óhæfir um að sinna starfi sínu og
hunsað ráðleggingar og viðvaranir.
Þá hafi fyrirtæki og peningastofnan-
ir ekki haft þá fjárhagslegu yfirsýn
sem þurft hefði til að sjá í hvað
stefndi.
„Um áratugur leið áður en stjóm-
málamenn sáu varúðarljósin en þá
var það um seinan. Þjóðarskútan
sigldi í strand," segir í niðurstöðu
skýrslunnar. Efnahagskreppan var
svo hörð að um 10% þjóðarinnar
fluttu, flest til Danmerkur, og Danir
urðu að yfirfæra milljarða danskra
króna til að koma færeysku bönkun-
um til bjargar.
Þingmannanefndin telur að fær-
eyskir stjómmálamenn hafi alls ekki
verið í stakk búnir til að takast á við
þensluna sem varð í Færeyjum á
níunda áratugnum og í upphafi þess
tíunda. „Þar með er ekki sagt að
nefndin telji stjórnmálamennina á
níunda áratugnum hafa verið dug-
lausa en ljóst er að of marga, bæði á
lögþinginu og í landstjóminni, skorti
nauðsynlega yfirsýn á lagasetningu,
stöðuna í efnahagsmálum og til
stjórnunar.“
IMámstefna um fimmtu rammaáætlun
Evrópusambandsins
Föstudaginn 24. nóvember n.k. ki. 10:00 -16:00 í Háskóla íslands, Tæknigarði, Dunhaga 5
Námsstefna um gerð umsókna og fjármögnun rannsókna- og tækniþróunarverkefha úr rannsóknarsjóðum
Evrópusambandsins, ásamt yfirliti yfir rekstur og þátttöku í slíkum verkefnum.
Fjallað verður almennt um skilyrði umsókna og hvemig gerð þeirra skuli háttað. Rætt verður um
samningagerð vegna verkefna og þann lagagrunn sem þau byggja á, auk þess sem mismunandi samningsform
verða skoðuð. Einnig verða tekin fyrir helstu atriði sem huga þarf að í rekstri slíkra fjölþjóðaverkefna
og hvaða kröfur em gerðar til þeirra af hálfu Evrópusambandsins.
Dagskrá:
• Yfirlit yfir 5. rammaáœtlun ESB
Eiríkur Bergmann Einarsson, verkefnisstjóri Evrópumála hjá
Rannsóknaþjónustu H.I.
• Umsóknagerð
Peter Van Poortvliet, hollenskur sérjrœðingur í gerð Evrópuumsókna
• Ferill umsókna og mat þeirra
Paul Richardson,framkvœmdastjóri Evrópuverefnisins VMART
RAIUIUIS
Iðntæknistofnun
<£>)
SAMTOK
IÐNAÐARINS
Rannsóknaþjónusta
HASKOl.A ISI AND5)
• Námsstefnan er öllum opin sem eru að huga að umsóknum í fimmtu
rammaáætlun Evrópusambandsins en fjöldi þátttakenda verður takmarkaður
við 25 manns.
® Þátttökugjald er kr. 2.000. Innifalið í þátttökugjaldi er léttur hádegisverður.
Tekið er á móti skráningum hjá Rannsóknaþjónustu Háskóla íslands í
síma 525 4900 eða með tölvupósti á eirikur.bergmann@hi.is og er
skráningarffestur til 20. nóvember
Rannsóknaþjónusta Háskóla íslands, Tæknigarði, Dunhaga 5, 107 Rvk., sími 525 4900, fax 552 8801
netfang evropusamvinna@evropusamvinna.is, vefsíða www.evropusamvinna.is
Yfir 35 ára reynsla á íslandi
i
tuhi
'JUGÍ IL