Morgunblaðið - 14.11.2000, Síða 30
30; ÞIiIDJUDAíMJK 14, N'ÓVUMHKH 2000;
MORGUNBLABIÐ
ORKAN OG UMHVERFIÐ
Tveir virkjunarkostir, auk byggingar Búöarhálsvirkjun-
ar í Þjórsá, koma helsttil greina hjá Landsvirkjun til
aö uppfylla orkuþörf Noröuráls vegna stækkunar ál-
vers fyrirtækisins á Grundartanga upp í 300 þúsund
tonn. Norðurál hefur einnig átt í formlegum viöræöum
viö Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suöurnesja um
sölu á raforku vegna stækkunarinnar. í annarri grein
Björns Inga Hrafnssonar af fimm um stóriöjumál hér
á landi kemur fram aö vinna stendur nú yfir viö um-
fangsmesta umhverfismat hér á landi til þessa. Nátt-
úruverndarsinnum líst illa á fyrirætlanir í Hvalfirði og
taliö er aö ráöstefna um losun gróöurhúsaloftteg-
unda sem hófst í Haag í Hollandi í gær geti skipt
miklu í baráttu stjórnvalda fyrir „íslenska ákvæöinu".
Raforkukerfi
Landsvirkjunar 2000
f rekstri
j j-Áætl
Vatnsaflstöð oa
Gufuaflstöð a
Aðveitustöð
Háspennulína
Stóriðja
Mat á umhverfisáhrifum Kárahnúkavirkjunar með veitu úr Jökulsá í Fljótsdal
Vinnutilhögun
Framkvæmdaaðili
Landsvirkjun
Ingvar Bjömsson
Almannatengsl Verkefnisstjóri Ritstjóri
Athygli Hönnun ht. Hönnun hf.
Atíi Rúnar Halldórsson Sigurður St. Arnalds Haukur Einarsson
Ráðgjafahópur
Ragnheióur Ölafsdóttir
Hékon Aóalsteinsson
Arnþór Garðarsson
Einar Þórarinsson
Náttúrufar Skipulag/Landmat Tækniráðgjafi Alþjóöleq ráðqjöf Aðrir
Náttúrufræðistofnun Landmótun VST VBB - VIAK ráðgjafar
Kristinn H. Skarphéóinsson Gisli Gislason Siguröur Þóróarson Helena Dahlgren-Craig
■ Gróðurfar
■ Fuglalíf
■ Dýralif
• Ferskvatns-
rannsóknir
■ Jarðmyndanir
■ Náttúruminjar
Skipulagsmál
Landnotkun
Eignarhald
Yfirlitsuppdrættir
- Fornleifar
Ferðamál
- Samgöngur
Mótvægisaðgerðir
■Mannvirki
■Framkvæmd
•Valkostir
■Vatnafar
-Aurburður
Jarðfræði
•Veðurfar
■Rof við lón
Rof við strönd
-Hættur
■Mótvægisaðgerðir
- Efnistök
- Alþjóðakröfur
Samanburður
-Samfélag
-Efnahagur
Mynd af vinnutilhogun við mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar sýnir hversu
umfangsmikil slík vinna er.
Talið er að stækkunaráform Norð-
uráls jafngildi þörf á u.þ.b. 3.100
GVst til viðbótar þeirri orku sem
þegar verður notuð hjá fyrirtæk-
inu þegar stækkun upp í 90 þús-
und tonn kemst í gagnið næsta
vor.
Búðarhálsvirkjun er á milli Sultartangavirkj-
unar og Hrauneyjafossvirkjunar. Gert er ráð
fyrir að hún gefi 100 MW. Aðeins þarf að
byggja lítið inntakslón við virkjunina, en ekki
ný miðlunarlón.
Gert er ráð fyrir að virkjunin nýti um 40
metra fall á milli Hrauneyjafossstöðvar og
Sultartanga og að afl hennar verði allt að 120
megavött. Aukin orkuvinnslugeta raforkukerf-
isins er áætluð allt að 520 gígavattstundir á ári.
Þannig má ljóst vera að Búðarhálsvirkjun
gæti ekki annað nema litlum hluta þeirrar orku
sem þörf er á vegna stækkunar álversins á
Grundartanga upp í 300 þúsund tonn. Tugi eða
jafnvel einhver hundruð gígavattstunda mætti
fá með kaupum á raforku frá jarðvarma-
virkjunum, en ljóst er að afganginn getur að-
eins Landsvirkjun útvegað með nýjum virkjun-
um. Það er einmitt þess vegna sem líklegt
verður að telja að áfangaskipta verði frekari
uppbyggingu á Grundartanga, jafnvel þótt for-
ráðamenn Norðuráls hafl lýst yfir efasemdum
með slíkt. Sjálfir virðast þeir þó gera sér grein
fyrir þessari staðreynd, því í drögum að tillögu
að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum
stækkunarinnar, kemur fram að fyrirtækið
muni aðeins stækka þegar orka fáist til þess og
að hugsanlega þurfi að aðlaga stækkunina að
þeirri orku sem til er í raforkukerfinu.
Virkjanir neðst í Þjórsá
Með byggingu Búðarhálsvirkjunar er verið
að virkja síðasta virkjanlega fallið (auk Vatns-
fellsvirkjunar) á milli Búrfellsvirlyunar og Þór-
isvatns. Með virkjuninni er verið að nýta enn
frekar vatnsmiðlanir og veitur sem fyrir eru á
Þjórsár- og Tungnaársvæðinu.
Einar Benediktsson skáld mun hafa verið
fyrstur manna til að benda á mögulegar virkj-
anir neðst í Þjórsá. Landsvirkjun hefur látið
gera athugun á virkjanakostum þar og hafa
einkum tveir kostir verið skoðaðir. Virkjun við
Urriðafoss og Núp. Um er að ræða rennslis-
virkjanir með lítil inntakslón.
Jafnframt þessu hafa verið til skoðunar hjá
Landsvirkjun miðlunarmöguleikar á Þjórsár-
og Tungnaársvæðinu. Einn möguleiki í því
sambandi er að nýta þá orku sem býr í Efri-
Þjórsá í þeim virkjunum sem fyrir eru, eða eru
áformaðar, eins og Búðarhálsvirkjun, og hinn
möguleikinn er að taka jökulvatnið í Skaftá og
veita því yfir í Langasjó og taka síðan rennslið
úr hinum enda hans með göngum yfir í farveg
Tungnaár, skila því þar með inn í Krókslón og
við Sigöldu og nýta vatnið í virkjununum þar.
Álitamál frá umhverfissjónarmiðum myndu
þó að öllum líkindum koma upp varðandi þessi
áform, t.d. áhrif framkvæmda á Þjórsárverin,
sem margir vilja ekki minnast á að verði fórnað
vegna virkjunaráforma af nokkru tagi.
Hugmyndir þessar munu misjafnlega á vegi
staddar, en ljóst er að einhvem tíma tæki að
rannsaka og hanna þessar virkjanir áður en
unnt væri að ráðast í byggingu þeirra. Jafn-
framt er ljóst að allar yrðu þær háðar lögum um
mat á umhverfisáhrifum. Ekki er ljóst hversu
mikla orku þessir virkjunarkostir geta gefið.
Frumvarp um Kárahnjúkavirkjun
lagt fram á þingi í vetur
Aiþingi veitti Landsvirkjun á síðasta ári
heimild til að ráðast í Búðarhálsvirkjun, en gert
er ráð fyrir að lagt verði fram á Alþingi í vetur
frumvarp til laga um Kárahnjúkavirkjun.
Virkjunarsvæði hennar mun með veitu frá
Jökulsá í Fljótsdal ná frá stöðvarsvæði neðan
við Teigsbjarg í Fljótsdal suður um Fljótsdals-
heiði að stíflustæðum við Fremri Kárahnjúk og
þaðan að Brúarjökli. Auk þess eru Hraunin
austan Jökulsár í Fljótsdal hluti virkjunar-
svæðisins.
Með Kárahnjúkavirkjun eru bæði Jökulsá á
Dal og Jökulsá í Fljótsdal virkjaðar með stíflum
og jarðgöngum í einni virkjun með stöðvarhúsi
neðanjarðar við mynni Norðurdals í Fljótsdal.
í megindráttum er fyrirkomulag virkjunar-
innar þannig að Jökulsá á Dal er stífluð við
Fremri Kárahnjúk og þannig myndað miðlun-
arlón sem nefnt hefur verið Hálslón. Frá lóninu
er vatninu veitt um aðrennslisgöng til stöðvar-
húss neðanjarðar í Norðurdal og þaðan út í
Jökulsá í Fljótsdal skammt frá Valþjófsstað.
Jökulsá í Fljótsdal er stífluð skammt neðan
við Eyjabakkafoss og vatni úr henni er veitt um
jarðgöng inn í aðrennslisgöng Kárahnjúka-
virkjunar. Þá er vatni af Hraunum veitt til Jök-
ulsár í Fljótsdal með svokallaðri Hraunaveitu.
Auk þess er vatni af svæðinu norðan Snæfells
veitt inn í jarðgöngin. Þegar rennsli frá þessum
veitum er meira en þarf til virkjunar getur það
sem umfram er runnið í Hálslón. Mannvirki
Kárahnjúkavirkjunar, miðað við allt að 750
MW virkjun með allt að 2.200 GI miðlun, verða
engin smásmíði. Með Kárahnjúkastíflu við
Fremri Kárahnjúk syðst í Hafrahvammagljúfr-
um og tveimur hliðarstíflum er myndað Háls-
lón. Kárahnjúkastífla verður um 185-190 m há
og 760-780 m löng og mun lónið sem myndast
ofan við stíflurnar verða 50-60 km2.
Sóknarfæri í jarðvarmavirkjunum
Þótt langstærsti hluti orkuframleiðslunnar
hér á landi sé kominn til úr vatnsaflsvirkjunum,
hefur á síðari árum aukin framleiðsla komið frá
jarðvarmavirkjunum. Stærstu jarðvarma-
virkjanir hér á landi eru á Nesjavöllum í eigu
Orkuveitu Reykjavíkur og Kröfluvirkjun
Landsvirkjunar.
Nýlega var tekin ákvörðun Kröfluvirkjunar
úr 60 MW í 100 MW. Eftir að seinni vél Kröflu
komst í rekstur árið 1997 var ákveðið að bora
þrjár holur til viðbótar þeim sem boraðar voru
1996 og 1997. Árangurinn af þessum borunum
var mjög góður og nú er í Kröflustöð gufa til
reiðu til að framleiða nærri 90 MW. Fyrirhuguð
framkvæmd miðar að því að tryggja næga gufu
til framleiðslu á 100 MW og stækka virkjunina
sem því nemur. Framleiðsla virkjunarinnar
myndi um leið aukast um 322 GWst á ári.
Rafmagnsframleiðsla Nesjavallastöðvar
nemur 90 MW, en talið er að auka megi þá tölu
upp yfir 100 MW miðað við núverandi aðstæð-
ur.
Morgunblaðið hefur fengið staðfest að for-
svarsmenn Norðuráls hafi hitt fulltrúa Orku-
veitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðumesja,
sem rekur orkuver í Svartsengi, að máli til að
ræða hugsanleg kaup á raforku beint frá þess-
um tveimur orkufyrirtækjum án milligöngu
Landsvirkjunar. Bæði hafa þessi fyrirtæki séð
Norðuráli fyrir raforku til álframleiðslu á
Grundartanga, en viðskiptin hafa þó aðeins far-
ið gegnum Landsvirkjun.
Ekki bjartsýnn á niðurstöðu
Guðmundur Þórodsson, forstjóri Orkuveit-
unnar, segir að viðræður um þessi mál hafi átt
sér stað, en hann er þó ekki bjartsýnn á að þær
leiði til beinnar niðurstöðu á næstunni.
„Þeir gefa sér afar skamman tíma í sínum
áætlunum og mér sýnist við lítið geta gert fyrir
þá innan þessara tímamarka. Við höfum litla
eða jafnvel enga möguleika á að afhenda þeim
frekari orku árið 2004, það gæti í fyrsta lagi
orðið einu eða jafnvel tveimur árum seinna,“
segir hann.
Að sögn Guðmundar verður viðræðum þó
haldið áfram, en áfram sé hins vegar unnið að
vinna að framtíðarkostum Orkuveitunnar í raf-
orkumálum. Hann upplýsir að þar komi m.a. til
frekara brot á Nesjavöllum, en einnig komi
ýmsir staðir á Hellisheiði til álita, t.d. Kolviðar-
hóll, Ölkelduháls og fleiri staðir.
Megnið af þeirri raforku sem nú er framleidd
á Nesjavöllum fer einmitt gegnum Landsvirkj-
un til álversins á Grundartanga. Enn hefur
engin raforka verið sett á markað í Reykjavík,
en strax á næsta ári verður breyting þar á og
smám saman verður öll raforkuframleiðsla
Nesjavalla sett á markað Orkuveitunnar í höf-
uðborginni, alls helmingur orkunnar á næstu
áttaárum.
Aðeins lítið brot af áætlaðri orkuþörf
Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suður-
nesja, staðfestir einnig að fyrirtækið hafi átt
fundi með forsvarsmönnum Norðuráls vegna
þessa máls.
„Við funduðum með þeim síðasta vor, en þá
voru þeir að velta fyrir sér stækkun upp í 180
þúsund tonn; mun minni stækkun en nú er uppi
á borðinu," segir hann.
Júlíus sagði óvíst hvort Hitaveitan gæti gert
eitthvað fyrir Norðurál, það færi eftir tíma-
ramma framkvæmda. „Mér líst á þessu stigi illa
á að framleiða eitthvað fyrir árið 2004, en það á
betur eftir að koma í Ijós. Verði af því, þá yrði
enda alltaf ljóst að aðeins yrði um lítið brot af
orkuþörf þeirra að ræða, ekkert sem breytir
einhveiju til eða frá,“ sagði hann.
Hitaveita Suðumesja áformar að kanna ná-
grenni aðalstöðvanna í Svartsengi nánar með
tilliti til aukinnar framleiðslu. Aukinheldur
kemur til álita að virkja við Reykjanestána, þar
sem áður var saltverksmiðjan, og einnig við
Trölladyngju.
Rammaáætiun í uppnámi
Eitt ef þeim verkefnum sem segja má að
komist hafi í uppnám með þeim risavöxnu
áformum í stóriðju sem áður hefur verið lýst, er
vinna á vegum stjómvalda um nýtingu vatns-
afls og jarðvarma - Maður, Nýting, Náttúra,
eins og verkefnið hefur verið kallað.
Sveinbjöm Bjömsson, prófessor og fv. há-
skólarektor, stýrir í þeirri vinnu sextán manna
verkefnisstjóm sem aftur er yfir fjóram fag-