Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 32

Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Rax Fossinn Dynkur í Efri-Þjórsá. Ráðstefna um loftslagsbreytingar hafin í Haag Stjórnvöld berjast fyrir „íslenska ákvæðinu" Siv Fridleifsdóttir umhverfisráðherra. Sjötti fundur aðildar- ríkja rammasamn- ings Sameinuðu þjóð- anna um loftslagsbreytingar hófst í borginni Haag í Hol- landi í gær. Fjölmenn sendi- nefnd frá Islandi sækir ráð- stefnuna, þar á meðal Siv Friðleifsdóttir umhverfis- ráðherra, en stefnt er að því að leysa á fundinum ágrein- ingsefni sem varða Kyoto- bókunina. Siv segir að um gríðar- lega mikilvægan fund sé að ræða, þar sem íslensk stjórnvöld hyggist beijast fyrir þvf að „islenska ákvæðið", sem svo hefur verið nefnt, verði viður- kennt. „Okkar málflutningur allt frá Kyoto-ráðstefnunni hef- ur verið sá, að taka verði til- Iit til lítilla hagkerfa, þar sem einstök stóriðjuverkefni geta haft mikil áhrif á heild- arlosun gróðurhúsalofttcg- unda vegna smæðar hag- kerfísins,“ segir Siv. Hún bendir á að þetta vandamál hafi komið upp á lokastigum Kyoto- ráðstefnunnar á sínum tima og setja átti Islandi losunar- mörk. „Þess í stað var sam- þykkt sérstakt ákvæði um að taka á þessum vanda." Island lagði fram tillögu fyrir tveimur árum um út- færslu á þessu ákvæði, „ís- lensku leiðina" svonefndu. Hún gengur út á að Iosun frá nýjum stóriðjuverum eða stækkun eldri vera sem leið- ir til meira en 5% aukningar á heildarlosun í viðkomandi ríki á fyrsta stigi skuldbind- ingartimabilisins, þ.e. 2008- 2012, verði haldið utan við losun landsins að uppfylltum ströngum og skýrt tilgreind- um skilyrðum. Auk þess hafa verið settar niður við- miðanir til frekari skilgrein- ingar á ákvæðinu frá Kyoto, t.d. hvað flokkist undir lítið hagkerfí o.s.frv. „Um er að ræða svo ójafna stöðu. Eitt stóriðjuverkefni hjá okkur losar 11-13% mið- að við viðmiðunarárið 1990, meðan það losar miklu minna annars staðar, jafnvel innan við 0,1 %. Þess vegna þarf að taka tillit til okkar sérstöðu og þeirra aðgerða sem við réðumst í fyrir 1990; stórfellda minnkun kola- og olíukyndingar híbýla með tilkomu hitaveitunnar. Áður notuðum við upp undir 45% af olíu og kolum í þessum til- gangi, en nú nánast ekki neitt. 99% af því rafmagni sem við notum er endur- nýjanleg orka, frá vatnsafli og jarðvarma. í raun erum við heimsmeistarar í nýt- ingu vistvænnar orku al- mennt, eða um 67%, en eng- in önnur ríki hafa víðlíka hlutfall. Árið 2020 ætla rfld Evrópusambandsins þannig að reyna að freista þess að ná 12% markinu íþessu sam- bandi. Nú keyra þessi ríki sín hagkerfí nær algjörlega á kolum, olíu og kjarnorku." Verkáætlun Kyoto- samningsins gerir ráð fyrir því að íslenska ákvæðið, sem verið hefur til umfjöllunar á vettvangi samningsins, verði tekið til lokaafgreiðslu á fundinum í Haag. „Ég er hóflega bjartsýn," segir umhverfísráðherra. „Við höfum rætt við þau ríki sem okkur hefur fundist sýna þessu minni skilning en önnur og mér finnst vera komið ágætt hljóð, þótt auð- vitað sé erfitt að meta það á þessari stundu. Þetta er hins vegar mjög mikilvægur fundur og gífurlegt hajgs- munamál fyrir okkur Islend- inga.“ Avegum Landsvirkjunar er nú unnið að mati á umhverf- isáhrifum þriggja virkjana hér á landi, Kárahnjúka- virkjunar á Austurlandi, Búðarhálsvirkjunar á Suður- landi og stækkunar Kröflu- stöðvar á Norðurlandi. Um er að ræða viða- mestu vinnu við mat á umhverfisáhrifum hér á landi til þessa. Við þetta bætist að unnið er að umhverfismati á tveimur ál- verksmiðjum, annars vegar allt að 420 þús- und tonna álveri og rafskautaverksmiðju í Reyðarfirði og hins vegar stækkun Norður- áls á Grundartanga allt að 300 þúsund tonn- um á ári. Það er því ljóst að uppgrip eru um þessar mundir hjá fyrirtækjum þeim sem sérhæfa sig í gerð umhverfismats, ekki síst í tengslum við stóriðju. Viðamesta umhverfismatið til þessa Matið á Kárahnjúkavirkjun er eitt og sér það viðamesta sem ráðist hefur verið í hing- að til. Þar koma að yfir 20 fyrirtæki og margir tugir sérfræðinga úr hinum ýmsu fræðigreinum. Matsáætlun hefur verið sam- þykkt, en þar er gert ráð fyrir að mati á umhverfisáhrifum verði lokið ekki síðar en í marslok á næsta ári, með það fyrir augum að Skipulagsstofnun geti kveðið upp sinn úr- skurð fyrir mitt ár, eða í júní 2001. Borið hefur á gagnrýni á hversu skammur tími sé til stefnu miðað við umfang umhverf- ismatsins. Verkefnisstjórinn, Sigurður St. Arnalds, verkfræðingur hjá Hönnun hf., segist hafa heyrt þessa gagnrýni og viður- kennir að sjálfur vildi hann gjarnan hafi ei- lítið meiri tíma til þessa verks. Hins vegar bendir hann á að sérstaklega hafi verið fjölgað í hópi rannsakenda vegna tímarammans og kveðst bjartsýnn á að nið- urstöðum verði náð á tilsettum tíma. „Umfangið sést vel á hinum mikla kostn- aði við það, sem er á þriðja hundrað milljón- ir króna,“ segir Sigurður. „Þegar lagt var upp með þessa vinnu var ljóst að tímaramm- inn myndi taka mark af Noral-samkomulag- inu. Landsvirkjun leggur upp úr því að fá niðurstöðu úr þessu umhverfismati upp úr miðju næsta ári til þess að geta haft grund- völl til ákvarðanatöku um frekari fjárfest- ingar, til dæmis rannsóknir við virkjunina sjálfa, hönnun og útboðsgagnagerð, en slíkt er allt mjög kostnaðarsamt.“ Sigurður segir ennfremur að ljóst hafi verið að um fremur þröngan tímaramma hafi verið að ræða. „Þetta er samt gerlegt og okkar áætlun stendur enn. Þetta er hins vegar mikil vinna og ekkert leyfir af öllum þessum tíma. Hins vegar má segja að allar þær rannsóknir sem við lögðum upp með í vor og sumar fyrir austan hafi allar tekist og þeim lokið með ágætum.“ Einn þeirra sem hefur gagnrýnt tíma- | ramma matsvinnunnar og sagt hann naum- | an er Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræð- ingur og fv. alþingismaður. í grein sem birtist í Morgunblaðinu nýlega rekur hans matsferli Kárahnjúkavirkjunar og segir að margir hafi dregið í efa að þessar tímaáætl- anir standist, m.a. í ljósi þeirra athuga- semda sem gerðar hafi verið við matsáætl- anirnar á síðasta sumri. „Þannig taldi Hafrannsóknastofnun sig ekki geta lokið sínum þætti nema til kæmi rannsókn á ýms- § um mikilvægum þáttum í sjó í Reyðarfirði sem nái a.m.k. yfir heilan ársferil. Svipuðu máli gegnir um ýmislegt er snýr að mati á virkjunarhugmyndunum. Eg tel ólíklegt að fyrir liggi endanleg niðurstaða mats á um- hverfisáhrifum fyrr en kemur fram á árið 2002 og tímasetningar Noral-verkefnisins muni riðlast, einnig af þeim sökum. Þessum stóriðjukór á að vísa frá á þeim augljósu forsendum, að fyrst verði að liggja fyrir skýr stefna um það, hvernig menn ætla að nýta orkulindir landsmanna til heilla í fyrirsjáanlegri framtíð og samræma nýtingu og náttúruvernd. Þau sem kvödd hafa verið til vinnu að rammaáætlun undir kjörorðun- um Maður - Nýting - Náttúra eiga á þvi skýlausa kröfu að fá að vinna verk sín ótrufluð af þrýstingi og skammtímaviðhorf- um. Álverksmiðjur leysa ekki vanda lands- byggðarinnar. Þar verða að koma til viðhorf sem taka mið af sjálfbærri þróun og stuðn- ingur stjórnvalda við frumkvæði og aðgerðir heimamanna á sém flestum sviðum,“ segir Hjörleifur í greininni. Hjálmar Arnason, alþingismaður, segir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.