Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 33

Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 33 oft vilja gleymast í þessari umræðu að um- hverfísmálin séu hnattrænt fyrirbrigði. „Það er beinlínis rangt og einföldun að horfa á þau staðbundið," segir hann. „Þess vegna finnst mér mikilvægt að bera saman 300 þúsund tonna álver, annars vegar sem framleiðir álið með vistvænum orku- gjöfum, og hins vegar sambærilegt álver sem rekið er fyrir kolum og olíu.“ Hjálmar bendir á að hér á íslandi sé kjör- ið að koma fyrir álveri eins og lýst er í fyrr- nefnda dæminu, en síðarnefnda dæmið eigi t.d. við um þróunarlöndin, en álver þessarar stærðar hafi nýlega verið reist í Mósambík. Fleiri hafa tekið undir þessi sjónarmið. Jakob Björnsson, fv. orkumálastjóri, hefur t.d. ritað talsvert um þessi mál í Morgun- blaðið og komist að þeirri niðurstöðu að líta megi á það sem framlag íslendinga til lækk- unar á útblæstri í veröldinni að nota í aukn- um mæli vistvæna orkugjafa okkar. Stækkunaráformin hörmuð Samtök náttúru- og umhverfisverndar- sinna Samtök um óspillt land, SÓL í Hval- firði, sendu frá sér yfirlýsingu þegar ljóst var um áform Grundartangamanna þar sem þau voru hörmuð og varað við þeim. Anna Guðrún Þórhallsdóttir, formaður samtakanna, segir að mörgum íbúum í ná- grenni Grundartanga hafi brugðið illilega við þessi tíðindi, enda sé í næsta nágrenni verksmiðjunnar t.d. laxveiðiá og stundaður lífrænn búskapur. „Að okkar mati þarf að ræða þessi mál í víðara samhengi. Stækkun álversins er þannig ekki einkamál Hvalfjarðar eða þeirra sem búa á Vesturlandi, heldur er þetta hluti af miklu stærri heild. I því sambandi ber að minnast þess hvaðan orkan í þessa stækkun á að koma,“ segir hún. Anna segir áhrifasvæði mengunar frá svo stóru álveri verða miklu stærra en við þekkjum nú og af þeim völdum lítist sam- tökunum alls ekkert á þessar fyrirætlanir. Þótt ljóst sé að stækkún álversins muni fara í umhverfismat, segir Anna að samtök- in muni engu að síður fylgjast vel með mál- um. „Mat vegna þessarar verksmiðju hefur áður gengið óeðlilega hratt fyrir sig og hreinlega verið keyrt í gegn til að þjóna hagsmunum fyrirtækisins. Þannig má nefna að ekkert hefur enn verið kannað hvaða áhrif mengun af völdum álversins hefur haft á sjóinn í Hvalfirði, jafnvel þótt kerbrotum sé fargað nánast í fjöruborðinu." Anna Guðrún segir miklu skipta í þessu sambandi að samtökin vilji leggja umhverf- ismálin upp í heildarsamhengi og jafnvel á hnattræna vísu. „I ljósi þeirrar vinnu sem verið er að vinna með rammaáætlun um nýtingu vatns- afls og jarðvarma, held ég að sé algjört grundvallaratriði að sú ríkisstjórn sem setur slíka vinnu á laggirnar bíði eftir niður- stöðum úr þeirri vinnu áður en ákveðið er hvað gert skuli við orkuna. Öðruvísi vitum við ekki í samhengi hvaða orku við erum með í höndunum," segir hún. Náttúruverndarsamtök íslands hafa einn- ig fjallað um málið og bent á aðtaka verði meira tillit til mengunarvarna en gert hafi verið hingað til, komi til þess að stjórnvöld fallist á stækkun álvers Norðuráls á Grund- artanga. Hafa samtökin lýst því yfir að Norðurál hafi á sínum tíma fengið gróður- húsalofttegundir frá verksmiðjunni „ókeyp- is“, þ.e. án þess að leggja út í sérstakar mótvægisaðgerðir til að draga úr áhrifum þessara lofttegunda. Vilja samtökin þannig að þau fyrirtæki sem mestri mengun valda, beri einnig kostnaðinn af henni, en ekki skattgreiðendur. Vinnumarkaðsmái Hætta á ofþenslu á vinnumarkaði. Byggingariðnaðurinn er mjög sveigjanlegur. Taka verðurerlent vinnuafl með í reikninginn. Útlit fyrir verkefnaskort strax næsta haust: Á morgun 1 I 1 I I I 1 I I 1 s 1 s E 1 1 i I I 1 1 I 1 1 I I s I I I I 1 I Stofnun fyrirtækis um virkjun við Kárahnjúka? Rætt um eignaraðild Norsk Hydro Iljósi breytinga á skipu- lagi raforkumála sem sfjómvöld hyggjast gera, ekki síst vegna tilskipunar Evrópusambandsins um þau mál sem taka mun gildi 2002, hefur sú umræða komið upp að sérstakt hlutafélag verði stofnað um byggingu og rekstur Kárahnjúkavirkjun- ar. Ingibjörg Sólrún Gisla- dóttir borgarstjóri hefur lýst því yfir að Reykjavxkurborg muni ekki hafa áhuga á stofnun slíks dótturfélags Landsvirkjunar, en Morgun- blaðið hefur heimildir fyrir því að rætt hafi verið um að Norsk Hydro verði þátttak- endur í stofnun slíks félags, verði á annað borð af stofnun þess. Innlendir og erlendir fjárfestar koma til greina Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðai’- og viðskipta- ráðherra, vildi ekki svai’a spurningu Morgunblaðsins um þessi mál, en Friðrik Sophusson, forstjóri Lands- virkjunar, segir að málin séu ekki komin á það stig að hægt sé að ræða um hugsan- lega þátttakendur í verkefn- inu. Hann segir hins vegar að sér vitaidega komi til greina að innlendir og erlendir fjár- festar komi að stofnun slíks fyrirtækis, verði tekin ákvörðun um að Landsvirkj- un standi ekki ein og sér að rekstri og byggingu viikjun- arinnar. Á fyrstu stigum Noral- verkefnisins kom fram sú hugmynd að stofnað yrði eitt félag um allar framkvæmdir þess, þ.e. virkjun og álver. Norsk Hydro hefði þá orðið stór hluthafi í slíku fyrir- tæki, en hugmyndin með því var að leita leiða til að jafna áhættuna við svo stórar fjár- festingar. Af þessu varð þó ekki, en heimildir Morgun- blaðsins herma hins vegar að enn komi til greina að Norsk Hydro komi að Kárahnjúka- virkjun með einhverjum hætti. Því hefur verið slegið fram að heildarkostnaður við Nor- al-verkeftiið verði rétt undir eitt hundrað milljörðum króna. Landsvirkjun hyggst veija um 1.100 milljónuni kr. í undirbúning og rannsóknir á Kárahnjúkavirkjun fram til 1. febrúar 2002, að endan- leg ákvörðun verður tekin um hvort ráðist verður í framkvæmdir. Þar af eru 300 milljónir á þessu ári. Kárahnjúkavirkjun er ein- göngu rcist til að framleiða raftnagn fyrir stóriðju, verði af byggingu hennar. Það er talið einfalda útreikninga á arðsemi virkjunarinnar. Eignir Landsvirkjunar í dag eru í kringum 100 millj- arðar, en þar af eru skuldir um 60 milljarðar. Eigin- fjárhlutfall er um 32% og því er e.t.v. ekki skrítið að stjórnvöld og aðrir eigendur fyrirtækisins, þ.e. Reykjavík- urborg og Akureyrarbær, velti fyrir sér hvort eðlilegt sé að stofna sérstakt fyrir- tæki um svo gríðarlegar fjár- festingar og fá fleiri aðila til að standa undir kostnaðinum og þar með áhættunni. Nefnd eignaraðila Lands- virkjunar hefur rætt þessa og aðra möguleika að undan- fomu, t.d. breytingar á skipulagi Landsvirkjunar og breytingu á rekstrarformi fyrirtækisins úr sameignar- félagi í hlutafélag. Þá hafa einnig verið til umfjöllunar tillögur um að flutningskerfi Landsvirkjunar verði sett inn í sérstakt félag, Lands- net. Hefur áhrif á arð- semisútreikninga Stofmrn sérstaks hlutafé- lags gæti þó haft a.m.k. ein neikvæð áhrif á arðsemis- útreikninga og þar með hugsanlega á orkuverð. Ef Landsvirkjun stæði sjálf fyrir því að byggja virkjunina gæti fyrirtækið lagt eignir sínar að veði og væntanlega fengið ódýrara lánsfé. I þessu sambandi skipti einnig máli hverjir væm eigendur Landsvirkj- unar. Ef hins vegar yrði stofnað sérstakt hlutafélag um virkjunina myndi Landsvirkjun Ieggja fram hlutafé og yrði að sjálfsögðu að gera heldur hærri kröfu um arðsemi af því en ef um lánsfé væri að ræða. > £ TOivunnm 9001 Þekkíng í þína þágu Kerfi/frcedi TY ndum/jóiiE nútímord(/tri j Yef/íðugerdy núUmorek/trí | Tölvuum/jón í nútímorck/tri Kerfisfræði TV er tveggja anna diplómnám sem stendur frá janúarbyijun til loka desember með 3ja mánaða sumarfríi. Námið er sniðið að þörfúm þeirra sem vilja sjá um rekstur og viðhald upplýsingakerfa, þjónustu við notendur og kerfisgreiningu og -gerð hjá litlum eða meðalstórum fyrirtækjum. Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að geta séð um rekstur lítillar tölvudeildar, séð um innkaup og rekstur tölvukerfa, leyst algeng forritunar- og greiningarverkefhi og mótað tölvustefiiu. Helstu námsgreinar: • Stýrikerfi. Umsjón og rekstur algengra stýrikerfa. • Gagnagrunnar og forritun. Kerfisgreining, hönnun, Access gagnagrannar, VBA og Visual Basic forritun. • Netfræði. Uppsetning og rekstur Windovvs 2000 server neta og Intemetþjóna. • Internetið og vefsíðugerð. Gerð, viðhald og rekstur vefja ásamt notkun vafra og tölvupósts. HTML forritun. • Notendaforrit. Word, Excel og PowerPoint. • Öflunarferli. Val á búnaði og innkaup. • Lokaverkefni. Metið til lokaeinkunnar. Prófað er í öllum greimun. Forkröfur: Almenn þekking á tölvum og góð enskukunnátta. Lengd: 400 kennslustundir eða 267 klukkustundir. Tímar: Tvisvar í viku kl. 16:15-19:15 og einu sinni í hveijum mánuði á laugardegi. Staðgreiðsluverð: 369.900,- Þetta geysivinsæla námskeið er sniðið að þörfúm þeirra sem vilja sjá um netrekstur í fyrirtækjum eða skapa sér ný tækifæri á vinnumarkaði. Námskeiðið er sérsniðið fyrir þá sem vilja verða góðir netstjórar með mikla þekkmgu á eðli neta og stjómun þeirra en einnig fyrir þá sem vilja vita meira um tölvur og tölvutæloii og notkun neta sem era í nær ölíum fyrirtækjum og stofnunum landsins. Helstu námsgreinar: • Netfræði og búnaður. Ethemet, kapalkcrfi, beinar, netþjónar, notendatölvur, netbúnaður og hönnun ncta. • Windows 98. Netvinnsla með Win98, uppsetning útstöðva og lykilatriði stýrikerfisins. • Netstýrikerfi. ítarleg kennsla á netstýrikerfið Windows 2000. • Internet- og Intranetþjónar. Uppsetning og rekstur Intemetþjónustu og innranets fyrirtækja. Nemendur taka próf að loknu námi. Forkröfur: Almenn þekking á tölvum og ensku. Lengd: 120 kennslustundir eða 81 klukkustund. Tímar: Tvisvar í viku frá kl. 16:15-19:15, alls 27 skipti. Staðgreiðsluverð: 149.900,- Námskeiðið er ætlað þeim fjölmörgu sem vilja ná þeirri fæmi sem þarf til þess að starfa við vefsíðugerð og hönnun. Námskeiðið er góður grannur undir frekara nám og þekkingaröflun á þessu sviði. Helstu námsgreinar: • Hönnun og skipulagning vefja. Lögð er rik áhersla á skipulega og gagnlega vefi. • Vefsíðugerð. Kennt er á FrontPage frá Microsofl, DreamWeaver og Flash frá Macromedia. Einnig er kennd myndvinnsla. • Forritun vefja. Kennd er HTML foiritun og tenging vefja við gagnagrunn. Þá er kennt að nota tilbúnar Java og Active Script einingar á vefsíðum. • Lokaverkefni. Geiður er vefúr sem byggir á því sem kennt er á námskeiðinu. Gefin er einkunn fyrir lokaverkefnið. Forkröfur: Góð þekking á notkun tölva, ritvinnslu og ensku. Lengd: 120 kennslustundir eða 81 klukkustund. Tímar: Tvisvar í viku frá kl. 16:15-19:15, eðaátímanum 13:00-16:00, alls 27 skipti. Staðgreiðsluverð: 159.900,- Þetta námskeið er vinsælasta námskeið okkar frá upphafi. Það er sniðið að þörfúm þeirra sem sjá um tölvur í fyrirtækjum, umsjónarmanna tölvuvera eða þeirra sem vilja bara vita mefra um tölvur. Þátttakendur verða kröflugir notendur með mikla þekkingu og yfirsýn yfir möguleika einkatölvunnar í rekstri fynrtækja og hagnýtingu nýjustu tækni. Helstu nárasgreinar: • Stýrikerfi. Windows 98 og vélbúnaður. • Notendaforrit. Word, Excel, Access, PowerPoint og Outlook. • Vefsíðugerð. FrontPage og Intemetið. • Netstýrikerfi. Umsjón Windows 2000 tölvuneta og Windows 98. Námið er mjög ítarlegt og fjöldi íslenskra handbóka fylgir. Forkröfur Grannþekking á tölvum. Lengd: 145 kennslustundir eða 99 klukkustundir. Tímar: Tvisvar í viku frá kl. 19:15-22:30, alls 33 skipti, cða á tímanum kl. 13:00- 16:00, tvisvar i viku. Staðgreiðsluverð: 119.900,- Mikið úrval styttri og lengri námskeiða! Nánari upplýsingar á http://www.tv.is Grensisvegl 16 108 Reykjavík Sfml: 520 8000 Fax: 520 9009 Netfang: tv@tv.ls | fZ | Raðgrciðslulán til allt að 36 mánaða. s I ■■ I Hagstæð námslán hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.