Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 39
LISTIR
Nýjar bækur
• UT er komin bókin Fyrsta orða-
bókin sem ætluð er til að kenna
börnum helstu orðin í hversdagsleg-
um orðaforða.
I fréttatilkynningu segir: „Hún er
einnig vel til þess fallin að nota við að
kenna byrjendum lestur þeiiTa orða
sem flestir þekkja úr nánasta um-
hverfí sínu. Bókin er sérstaklega
gerð svo hún henti til örvunar lestr-
arnámi og með skýrum myndum og
einföldu en litríku útliti er hún líkleg
til að falla bömum vel í geð.“
Útgefandi er Æskan ehf. Bókin er
48 bls., prentuð og bundin í Kína.
Verð: 1.890 krónur.
• ÚT er komin barnabókin En
hvað það var skrítið, en hún hefur
að geyma gamlar bamavísur sem
allar era samdar, þýddar eða endur-
sagðar af Stefáni Jónssyni.
Þetta er endurútgáfa bókarinnar
en hún kom út árið 1949 og hefur
verið ófáanleg áratugum saman.
í kynningu forlagsins segir:
„Verk Stefáns Jónssonar hafa
skemmt íslenskum bömum kynslóð
eftir kynslóð, jafnt Guttavísur sem
bækurnar um Hjalta litla. „Kisa
mín, kisa mín/hvaðan ber þig að?“
er ein af hinum sígildu visum sem
litu fyrst dagsins ljós í þessari heill-
andi vísnabók sem öll börn hafa
gaman af og kveikir margar ljúfar
minningar hjá þeim sem eldri era.
Bráðskemmtilegar myndir prýða
síður bókarinnar.“
Útgefandi er Iðunn. Bókin er
prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf.
og er 40 bls. Leiðbeinandi verð:
1.480 krónur.
• ÚTerkomin
bókin Lí Song
eftir Öddu Steinu
Björnsdóttur
með teikningum
eftir Margréti
Laxness.
í fréttatilkynn-
ingu segir: „Sag-
an segir frá Song,
fjölskyldu hans
og vinum. Þau
eiga heima í litlu þorpi í Kína,
skammt neðan varnargarðs við
stöðuvatn. Eftir að rignt hefur dög-
um saman brestur garðurinn og
vatn fossar fram og færir þorpið á
kaf. Ibúarnir hraða sér af stað með
fáeina hluti í höndum til að reyna að
komast upp á þann hluta garðsins
sem ekki hefur látið undan. Sagan
greinn- frá því hvemig íbúarnir
reyna að komast undan og er jafn-
framt næm lýsing á lífsháttum fólks
í fjarlægum heimshluta og þeim erf-
iðleikum sem þar er við að glíma.“
Útgefandi erÆskanehf. ísam-
vinnu við Rauða kross íslands. Bók-
in er 46 bls., prentuð í Veröld ehf.
Verð: 591 krónur.
• Út er komin bókin Máttur bæn-
arinnar eftir Norman Vincent Peale
í þýðingu sr. Kristins Ágúst
Friðfinnssonar og sr. Kristjáns Vals
Ingólfssonar. Þetta er endurútgáfa
bókarinnar.
I fréttatilkynningu segir: „Höf-
undurinn varð fyrst kunnur hér á
landi þegar bók hans, Vörðuð leið til
lífshamingju, kom út árið 1965.
Bænirnar í bókinni gáfu Peale kjark
og kraft til að takast á við lífið. Sömu
reynslu hafa hinir fjölmörgu lesend-
ur hans upplifað. Allir geta íúndið
hér bænir til að nota i gleði og sorg.
Að auki geymir bókin leiðbeiningar
um bænaiðkun og umfjöllun um gildi
bænarinnar í daglegu lífi okkar. Þær
era komnar á prent til að vera öðr-
um til sama gagns. Þessi ágæta bók
hefur verið ófáanleg um nokkurt
skeið.“ ,
Útgefandi er Hörpuútgáfan á
Akranesi. Bókin erprentuðí Odda
hf., 132 bls. Leiðbeinandi verð er
1.960 krónur.
• ÚT er komin bókin Seinna lúkkið
sem er saga fyrir unglinga eftir Val-
geir Magnússon.
Hér er á ferð fyrsta bók höfundar-
ins. í kynningu forlagsins segir:
„Veraleiki íslenskra unglinga er
oft hrárri og hættulegri en margir
kæra sig um að vita. I þeim heimi
getur allt komið fyrir alla og það fá
krakkarnir í þessari sögu svo sann-
arlega að reyna. En þeir búa líka yf-
ir þeim krafti og hugrekki sem þarf
til að horfast í augu við lífið og verða
að manni. Hér er fjallað á óvenju-
lega hreinskilinn og opinskáan hátt
um ást og kynlíf, ábyrgð, traust og
heiðarleika, fíkniefnaneyslu, lygi og
ofbeldi, ósigra - og sigra."
Útgefandi er Iðunn. Bókin er
prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf.
og er 144 bls. Leiðbeinandi verð:
2.480 krónur.
• ÚTerkomin
barnabókin Jóla-
sveinarnir eftir
Iðunni Steins-
dóttur. Hér er
um endurútgáfu
að ræða en bókin
kom fyrst út árið
1986.
I kynningu frá
forlaginu segir:
„Jólasveinamir
þrettán eru á leið til byggða með
poka á bakinu - en það gengur ekki
alveg þrautalaust fyrir þá að fóta sig
í nútímanum því þeir era samir við
sig og ýmsar freistingar verða á veg-
inum. En krakkarnir sem bíða eftir
að fá eitthvað í skóinn sinn era fúsir
til að hjálpa þeim. Fyndin og fjörug
bók um ævintýri jólasveinanna,
prýdd fjölda frábærra mynda eftir
Búa Kristjánsson."
Útgefandi er Iðunn. Bókin er
prentuðíPrentsmiðjunni Odda hf.
og er 54 bls. Leiðbeinandi verð:
1.980 krónur.
• ÚT er komin bókin Glötuð eftir
sænska rithöfundinn Mats Wahl. í
þýðingu Hilmars Hilmarssonar.
Bókin höfðar til lesenda frá
unglingsaldri og er sjálfstætt
framhald bókarinnar Vetrarvíkin
sem út kom árið 1995.
I fréttatilkynningu segir: „I
Glötuðum segir frá sænska
blökkudrengnum John-John sem
þrátt fyrir ýmsa smáglæpi hefur
aldrei komist í kast við lögin. Inn-
brotið í afskekkta húsið í Sollent-
una átti engu að breyta þar um.
En íbúarnir voru ekki langt undan
og áform þeirra um skjótfenginn
gróða voru stærri í sniðum en
hans. Nauðugur tekur John-John
þátt í glæp sem hlýtur að enda
með ósköpum."
Mál og menning gefur bókina út
en hún er prentuð í Svíþjóð. Alda
Lóa Leifsdóttir hannaði kápuna.
Bókin er 170 bis. og leiðbeinandi
verð er 1.990 krónur.
• ÚTerkomin
skáldsagan Tum-
inn eftir Steinar
Braga.
í fréttatilkynn-
ingu segir: „Einu
sinni var turn og
á turninum var
turnhús sem var í
laginu eins og
dropiafvatnisem
er við það að falla
til jarðar. Turnhúsið var gegnsætt
og er vel var að gáð mátti sjá glitta í
tvö lítil börn, strák og stelpu, sem
stóðu hvort við sitt kringlótt opið á
tumhúsinu og horfðu út, brosandi."
Þannig hefst fyrsta skáldsaga Stein-
ars Braga sem áður hefur vakið
mikla og verðskuldaða athygli fyrir
vel heppnaðar ljóðabækur sínar.“
Útgefandi er bókaútgáfan Bjart-
ur. Bókin er prentuð íprentsmiðj-
unni Odda hf., 80 bls. Kápugerð ann-
aðist Snæbjörn Amgrímsson. Verð:
2.980 krónur.
• Út er komin spennusagan
Sá er úlfinn óttast eftir Karin
Fossum. Erna Árnadóttir þýddi.
I fréttatilkynningu segir: „Hall-
dís gamla Horn finnst látin við
húsið sitt og sá sem finnur hana
er tólf ára strákur af barnaheimili
í grennd. Hann hefur líka þá sögu
að segja að á svæðinu hafi hann
séð Errki Johrma sem nýstrokinn
er af geðveikrahæli. Lögreglu-
foringinn geðþekki Konrad Sejer
fær málið til rannsóknar og þegar
hann þarf daginn eftir að ranns-
aka bankarán sem framið hefur
verið fer hann að sjá undarlegt
samhengi í þessum málum báðum.
Kaiin Fossum hóf feril sinn sem
efnilegt ljóðskáld en er nú einn
vinsælasti spennusagnahöfundur
Norðmanna.“
Útgefandi er Uglan - íslenski
kiljuklúbburinn. Bókin er 260 bls.,
unnin í Danmörku. Leiðbeinandi
verð: 1.599 krónur.
• ÚT er komin bókin Líf á nýj-
um nótum eftir Nicky Gumbel.
Hún er útskýring á Filippíbréfinu
í Nýja testamentinu.
í fréttatilkynningu segir: „Sum-
um finnst Biblían vera úrelt og
leiðinleg bók, sem höfði engan
veginn til nútímamanna. Höfundur
bókarinnar er á öðru máli og sýnir
hvernig finna má skýr og afger-
andi svör við mörgum spurningum
nútímafólks í hinu gamla en
síunga riti.
Höfundurinn, Nicy Gumbel,
nam lögfræði í Cambridge og guð-
fræði í Oxford og starfaði sem lög-
fræðingur áður en hann var vígð-
ur til prestsstarfa við Holy Trinity
Brompton kirkjuna í London.
Hann hefur samið fjölda bóka. Svo
kölluð Alfa-námskeið, sem fjalla
um grundvöll kristinnar trúar,
hafa farið sigurför um heiminn
eftir að hann gaf út bókina Quest-
ions of Life. Líf á nýjum nótum er
hugsuð sem framhald Alfa-
námskeiðanna."
I^jartan Jónsson þýddi bókina.
Útgefandi er bókaútgáfan Salt.
• ÚT er komin ný útgáfa bókar-
innar Maturinn hennar mömmu í
ritstjórn Áslaugar Ragnars.
í fréttatilkynningu segir: „Þetta
er bókin sem kennir okkur öllum
að búa til matinn hennar mömmu,
gamla, góða hversdagsmatinn og
hátíðarmatinn sem við þekkjum
öll. Hér eru allar uppskriftirnar
sem oft þarf að grípa til og alltaf
vantar, íslenski heimilismaturinn,
ljúffengur og kunnuglegur og listi-
lega tilreiddur, og hér er líka
hversdagsbaksturinn og gómsætu
kökurnar sem allir muna eftir.
Bókin er ekki aðeins mikið þarfa-
þing í hverju eldhúsi, heldur vek-
ur hún jafnframt ljúfar minningar
um góða daga og gómsætan mat.
Hún er prýdd fjölda glæsilegra
ljósmynda sem endurvekja
stemmningu liðinna daga.“
Útgefandi er Iðunn. Bókin er
112 bls. Leiðbeinandi verð: 2.480
krónur.
• ÚT er komin bókin Minningar
geisju eftir Arthur S. Golden.
í fréttatilkynningu segir: „Nitta
Sayuri talar með visku ellinnar og
rödd hennar er bæði seiðandi og
furðulega nákomin þegar hún seg-
ir söguna af geisjuævi sinni. í
þessari bók gengur lesandinn inn í
heim þar sem ytra borðið skiptir
öllu máli, þar sem meydómur
ungrar stúlku er seldur hæstbjóð-
anda, þar sem konur eru þjálfaðar
í að skemmta valdamönnum lands-
ins og þar sem litið er á ástina
sem tálsýn."
Sverrir Hdlmarsson þýddi bók-
ina sem kom fyrst út hjá For-
laginu á síðasta ári.
Útgefandi er Uglan - íslenski
kiljuklúbburinn. Minningar geisju
er 499 bls, prentuð í Danmörku.
Verð: 1.599 krónur.
• ÚT er komin bókin Dýrin i
Tónadal eftir Olgu Bergmann.
í fréttatilkynningu segir: „Þar
segir frá lífinu langt fyrir ofan
jörðina, uppi í sjöunda himni, þar
sem ævintýralandið Tónaland svíf-
ur. Þarna búa dýr sem syngja og
spila til að lífið verði skemmtilegt.
Krillarnir í Krillafjalli þola hins
vegar ekki tónlist og þess vegna
ákveða þeir að ráðast á tónadýrin.
Átökin verða hörð og spennandi
að vita hvort tónadýrunum tekst
að sleppa undan óvinunum.
Olga Bergmann hefur áður unn-
ið sér vinsældir með bókunum
Hanna frænka fer upp í sveit og
Stelpan sem var hrædd við dýr.“
Mál og menning gefur bókina út
sem prentuð er í Danmörku. Bók-
in er 27 bls. og leiðbeinandi verð
er 1.790 krónur.
Adda Steina
Björnsddttir
Iðunn
Steinsddttir
Steinar
Bragi
ÉRMERKT HANDKLÆÐI & HÚFUR
Hellisgata 17 - 220 Hafnarfjörður
Sími 565 0122 Fax 565 0488
myndsaumur@myndsaumur.is
Netverslun: www.myndsaumur.is
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausnardagur 15. nóvember 2000.
1. flokkur 1989: Nafnverð: Innlausnarverð:
500.000 kr. 1.366.444 kr.
50.000 kr. 136.644 kr.
5.000 kr. 13.664 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð: Innlausnarverð:
500.000 kr. 1.206.402 kr.
50.000 kr. 120.640 kr.
5.000 kr. 12.064 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 2.425.386 kr.
100.000 kr. 242.539 kr.
10.000 kr. 24.254 kr.
2. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 2.254.454 kr.
100.000 kr. 225.445 kr.
10.000 kr. 22.545 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 9.948.952 kr.
1.000.000 kr. 1.989.790 kr.
100.000 kr. 198.979 kr.
10.000 kr. 19.898 kr.
2. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 9.178.618 kr.
1.000.000 kr. 1.835.724 kr.
100.000 kr. 183.572 kr.
10.000 kr. 18.357 kr.
2. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 8.036.916 kr.
1.000.000 kr. 1.607.383 kr.
100.000 kr. 160.738 kr.
10.000 kr. 16.074 kr.
3. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 7.889.995 kr.
1.000.000 kr. 1.577.999 kr.
100.000 kr. 157.800 kr.
10.000 kr. 15.780 kr.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf
TÚ'
Ibúðalánasjóður
Borgartúni 21 I 105 Reykjavík I Sími 569 6900 I Fax 569 6800
Stjörnuspá á Netinu
^mbl.is