Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 40

Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ AP Fyrirgefning afhjúpuð Rómferill glæstra vona SKÚLPTÚRINN Fyrirgefning er hér afhjúpaður af David Trimble, forseta heimastjórnar Norður- írlands og aðstoðarmanni hans Seamus Mallon við þinghiísið í Bel- fast nú á dögunum. Fyrirgefning er gjöf til íbúa borgarinnar Belfast á Norður- Irlandi frá dómkirkjunni í borginni Coventry á Englandi, en þar er til húsa alþjóðadeild sátta og fyrir- gefninga hjá kirkjunni. TONLIST D ó m k i r k j a n ORGELTÓNLEIKAR Bach: Fantasía og fúga í g BWV 542. Reger: Tokkata og fúga í a Op. 80. Gunnar A. Kristinsson: Drei Orgelstiicke (frumfl.). Guilmant: Sónata nr. 4 Op. 61. Steingrímur Þórhallsson, orgel. Laugardaginn 11. nóvember kl. 17. TÓNLISTARDAGAR Dómkirkj- unnar, sem standa frá 28.10. til 22.11. á þessu hausti, hófu fimmtu tónleika af alls sjö sl. laugardag þegai- ungur organisti að norðan gekk inn púlpít- úrinn. Einskis var getið í tónleikaskrá um flytjandann, né heldur hafði und- irritaður áður haft af honum pata, en fram kom þó í lokin þegar söngmála- stjóri aíhenti námsstyrk úr Minning- ai’sjóði Kai'ls Sighvatssonar, að Steingrímur Þórhallsson stundar nú framhaldsnám í Rómaborg og mun eiga ættir að rekja til Húsavíkur. Hvassasti prófsteinn allra tíma á orgelleik má óhikað kalla J.S. Bach, er samdi mörg einstæðra verka sinna fyrii- konung hljóðfæra til að láta reyna á nýsmíðuð söngpipuvirki víðs- vegar um Þýzkaland. Að verkin skyldu ekki skipuð í bálk, líkt og Org- elforleikirnir og Tríósónötumar, bendir einmitt til slíkra stakra tilefna, svo og til hljómleikahalds er snilling- urinn stóð sjálfur fyrir; ókrýndur konungur síðbarokkorganista eftir að Marchand hinn franski lét sig vanta í boðuðu orgeleinvígi þeirra, eins og frægt varð. Fantasían í BWV 542 er talin samin íyrir 1712, sem er merki- lega snemma vegna stórbrotinnar og djarfrar hljómaframvindu og furðu- nútímalegra módúlasjónasekvenzna undir lokin gegnum megnið af tiltæk- um tóntegundum. Fúgan er talin frá seinni Weimarárum Bachs; dæmig- erð „Spielfuge“ með áherzlu á dans- andi virtúósa þætti og frjálsa milli- spilskaíla. Leikur Steingríms í báðum þáttum var oftast mótaður af skýru öryggi, góðu hraðavali og stöðugri hrynrænni tjáningu; blessunarlega laus við ýkt stakkató, rúbató og álíka tiktúrur sem iðulega má nú heyra úr herbúðum upphafstrúarflytjenda. Tokkata og fúga Max Regers í a-moll er úr Tólf stykkjum hans fyrii- orgel undir ópusnúmerinu 80 frá 1904. Hið fremur stutta verk er dæmigert fyrir espressífan stíl Reg- ers, „villingsins“ meðal æskurina, kannski einkum glæsilega dramatísk tokkatan, þótt fúgan um skringilegt hoppandi stef sverji sig meir í spilfúguanda Bachs. Hvor tveggja kom mjög vel fram í öruggri túlkun Steingi'íms. Eftir Gunnar Andreas Kristinsson frumflutti einleikarinn næst verkið „Drei Orgelstúcke“. Gunnar hefur áður látið frá sér heyra á tónleikum ,Atonal Future" í Iðnó og með kór- verki í Skálholti. Hann setti hér fram áheyrilega kortérslanga verka- þrennu; fyi’st með mínímalískulegum en þó allfjölbreyttum þrástefjavinnu- brögðum, þar sem í inngangsverkinu mátti m.a. greina áhrif frá bæði ís- lenzkri kvæðaskaparhrynjandi og rokki. II. stykkið var hægferðugt og mótað af dulrænu lagferli sem verk- aði stundum eilítið tilgerðarlegt á undirritaðan, þótt ekki væri þar um að kenna skyldleikann við fjóra upp- hafstóna Liljulagsins sem greina mátti hér og þar. III. stykkið, eins konar postrómantísk og víða allkrass- andi orgelútfærsla á lúðrafanföru, var hins vegar hins vegar hressilega samin og nógu hugmyndarík til að vekja væntingar um viðameiri úr- vinnslu en stuttaraleg meðhöndlun tónskáldsins náði að efna. Verkið naut góðs af öguðum og rytmískum leik Steingiíms, sem trúlega hefur einnig lagt hönd á plóginn í blómlegu raddavali. Lokaatriði tónleikanna var Sónata nr. 4 Op. 61 eftir franska síðróman- tíska tónskáldið Alexandre Guilmant (1837-1911), er jók mjög alþýðuvinsældir orgels- ins á sínum tíma með fjölskiúðugu verkefnavali. Þykja sónöturnai’ átta fyi-ir orgel standa upp úr öðrum tón- smíðum hans. Þær eru frjálslegar í formi en oft gæddar lagi'ænum sjarma og auðkyngdum léttleika sem hefur staðizt tímans tönn. Nr. 4 er þrískipt. Eftir fallega söngmótaðan Andante þáttinn fór Steingrímur á kostum í einföldum en kraftmiklum Menúett er skartaði un- aðssælum tríókafla til mótvægis, og leiftraði á öllum rafskautum út frá glæsilegri spilatækni eftir anguivær- an inngang í tápmiklum Finale-loka- þættinum, svo aðeins vantaði meiri eftirhljóm til að fullkomna upplifun- ina. Sem kunnugt er þykir hinn að- eins sekúndulangi eftirhljómur Dómkirkjunnar enn heldur skorinn við nögl eftir nýlegar endurbætur, og útheimtir sjálfsagt stáltaugar að leika erfið orgelverk í þvílíkri akústískri þuiTkví. Hér var engu að síður aldeUis glæsilega að spilverki staðið, og til- kynningin um Kai’lsstyrkinn eftir lokatóna Guilmants gat tæpast komið mörgum áheyrendum á óvart, eftir að hafa orðið vitni að öðrum eins tjáning- arþroska og tæknilegu öryggi til handa og fóta hjá aðeins hálf- þrítugum organista í nýhöfnu fram- haldsnámi. Er sá vissulega ekki öf- undsverður af vonum þeim sem við hann hlutu að bindast eftir þessa frammistöðu. Ríkarður Ö. Pálsson Endurminningar, hugleiðingar og skoðanir Mtísíkalskir og hressir drengir TOIVLIST II I j ó nnl i s k a r FJÓRTÁN FÓSTBRÆÐ- UR-SYNGIÐ MEÐ ásamt Ellý Vilhjálms og hljóm- sveit Svavars Gests. Umsjón með endurútgáfu: Eiður Arnarsson. Lokahljóðvinnsla: Stúdíó Irak. SKÍFAN íslenskir tónar. HÉR er um að ræða endurútgáfu á tveimur plötum Fjórtán Fóst- bræðra frá 1964 og ’65. Við endur- gerðina komu aðeins í leitimar seg- ulbönd fyrir seinni plötuna og þurfti því að notast við aíritun af hljóm- plötu við gerð hinnar fyrri. Allt hef- ur þetta samt tekist vel, þó að hljóðritun vitni um aldur sinn, en hún ber aldurinn vel og ekki undan neinu að kvarta. Fjórtán Fóstbræð- ur nutu mikilla vinsælda og gera væntanlega enn, enda veldur end- urkynning engum vonbrigðum, nema síður sé. Söngur þeirra var alltaf einstaklega fijálslegur og hressilegur um leið og hann var ag- aður og vandaður í alla staði, bar sem sé vott um kunnáttu og góða til- finningu fyrir tónlistinni, og ekkert síður þó hún væri í léttari kantinum sem oftast mátti flokka undir dæg- urlög. Þetta voru líka vinsæl lög og „húsgangar" á sínum tíma; á seinni plötunni gaf m.a. að heyra Jóns Múla-syrpu, Sigfúsarsyrpu og lög úr söngleiknum My Fair Lady. Allt sungið af miklu örlæti og smitandi sönggleði. Elly Vilhjálms syngur með í tveimur lögum í síðastnefndu syrpunni og gerir það auðvitað ynd- islega eins og alltaf, enda með fínni stíl og meiri tilfinningu fyrir músík af þessu tagi en gengur og gerist. Ekki er nokkur vafi á að þessi endurútgáfa verði mörgum kær- komið tilefni til að endumýja kynn- in við gamla og góða slagara (og raula jafnvel með) og músikalska og hressa drengi með kunnáttu og góð- ar raddir. Oddur Björnsson Sársaukafull saga um ást KVIKMYJVDIR II á s k ó I a b í ó LULU Á BRÚNNI „LULU ON THE BRIDGE“ ★ ★ 'k Leikstjórn og handrit: Paul Auster. Aðalhlutverk: Harvey Keitel, Mira Sorvino, Willem Dafoe, Vanessa Redgrave, Mandy Patinkin. PAUL Auster er einn af athyglis- verðari rithöfundum Bandaríkjanna í dag en verkum hans hafa Islend- ingar kannski fyrst og fremst kynnst í gegnum bíómyndirnar; hann gerði handrit „Smoke" og „Blue in the Face“, tveggja öndveg- ismynda úr óháða geiranum vestra. Auk þess hefur hann verið þýddur á íslensku. Lulu á brúnni eða „Lulu on the Bridge“ er fyrsta bíómyndin sem rithöfundurinn leikstýrir og þótt hún sé ekki eins góð og fyrr- nefndar myndir tvær, Auster hefur fyrir það fyrsta ekki hið fínlega sjálfsöryggi leikstjórans Wayne Wangs, er leitun að grátlegri ástar- sögu í bænum. Uppbygging myndarinnar minnir að nokkru leyti á Stiga Jakobs eftir Adrian Lyne í draumkenndri, jafn- vel martraðarkenndri frásögn sinni. Harvey Keitel, sem greinilega hefur hið lífsreynda andlit er hæfir sögum Austers, leikur djassistann Izzy sem verður fyrir skoti og við það tekur líf hans talsverðum breytingum. Hann finnur töfrastein í öngstræti þar sem liggur maður skotinn í höf- uðið en steinninn bindur hann Lulu, sem Mira Sorvino leikur, ungri gengilbeinu er þráir að gerast leik- kona. Úr verður ástarsamband sem reynist of gott til að vera satt og eft- ir að Willem Dafoe kemur til sögu á höttunum eftir töfrasteininum fer mjög að halla undan fæti hjá djass- istanum. Harvey Keitel er fimagóð- ur sem Izzy, fetandi sig varlega í heimi sem reynslan hefur kennt honum að er hverfull. Mira Sorvino er ekki jafn staffírug og oft áður og heldur kannski óþarflega mikið aft- ur af sér. Vanessa Redgrave er til- gerðin uppmáluð sem kvikmynda- leikstjóri, Dafoe er skemmtilegur sem ógnandi góðmenni og Mandy Patinkin er fínn sem framleiðandi. Myndin gerist æ drungalegri þeg- ar á líður og tími kemur fyrir Izzy að mæta örlögum sínum en hún verður aldrei þunglamaleg og myndin gengur upp í lokin sem sársaukafull saga um ást. Arnaldur Indriðason BÆKUR Endiirniinningar S a> nm n il ii r B e r g m a n n Elimundarson HUGLEIÐINGAR OG MINNINGABROT Gefið út sem handrit af höfundi í til- efni 85 ára afmælis hans 6. október 2000. Prenthúsið, 184 bls. ÞESSI sérstæða bók er gefin út sem handrit í 100 tölusettum eintök- um. Ætti hún þó að mínum dómi er- indi til fleiri en fárra útvalinna. Hér lítur háaldraður, gáfaður al- þýðumaður yfir farinn veg jafnframt því sem hann skoðar nútíðina með langan sjóð reynslu í farteskinu. Hollt kann að vera að hlusta á hvað hann hefur að segja. Venjan er þegar fólk ritar ævi- minningar sínar að byrja á ætterni og bernsku og rekja síðan lífsþráð- inn áfram í tímaröð. Þessi höfundur hefur nokkuð annan hátt á að hluta til. í átta aðalköflum bókuar virðist mér í stórum dráttum fylgt tímaröð, en þó í brotum, eins og titill bókar segir. En innan kaílanna raskast röðin og er sveiflast milli nútíðar og for- tíðar. Það þó ávallt með skipulegum hætti og efnisþættir vel aðgreindir. Hver kafli skiptist í undirgreinar og hver undirgrein er auk titils merkt eftir efni: minning, skoðun eða hugs- un. Allt er þetta vel ski-ifað og ljóst í framsetningu. I rauninni orka þess- ar stuttu greinar og brot stundum á mann líkt og órímuð ljóð væri og bera vitni um talsverða skáldhneigð höfundar. Á seinustu árum hefur raunar listhneigð hans brotist fram í vatnslitamyndum, sem nokkrar ljós- myndir eru af (svarthvítar) í bókar- lok. Enda þótt bókin sé samin með þeim hætti sem ég hef lýst - eða kannski er það vegna þess - fær maður smátt og smátt einstaklega skýra mynd af persónuleika höfund- arins. Hann lætur eftir sér að hugsa upphátt, ef svo má segja. Lýsa skoð- unum sínum á mönnum og málefn- um. Róttækur er hann býsna og ekki eiga sægreifar nútímans upp á pall- borð hans. Frásön hans er gerð af mikilli einlægni og trúnaði við les- andann. Ósjálfrátt fer manni að þykja vænt um þennan gáfaða og til- finningaríka mann, sem vissulega hefur ekki farið á mis við erfiða lífs- reynslu. Barnamissir, konumissir, fátækt og margs kyns annað mótlæti hefur ekki gengið fram hjá dyrum hans. Frásögn hans situr því í minni lesandans og gleymist ekki eins og svo margt annað sem út gengur á prenti. Sjálfsagt má eitt og annað að þessu ritverki finna frá formlegri hlið bókrnennta skoðað. En það læt ég mér í léttu rúmi liggja. Hinn sjálf- sprottni gróður er ekki alltaf lakari en ræktuð garðaprýði. í bók þessari er talsvert af mynd- um. í bókarauka eru smákaflar um foreldra höfundar. Talin eru hin tíu systkini hans. Átta þeirra náðu full- orðins aldri og eignuðust afkomend- ur, sem hér er getið. Þá eru og af- komendur höfundar, tuttugu talsins, einnig upp taldir. Guðmundur, sonur höfundar, hef- ur annast frágang texta, umbrot og útlit bókar og virðist þar vera vel frá öllu gengið. Sigurjón Björnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.