Morgunblaðið - 14.11.2000, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 41
I Norræna húsinu eru verk Parantainen í þar Morgunblaðið/Halldór B. Runóifsson
til gerðum ljósakössum á hjólum. Eitt verka Jyrki Parantainen í Galleríi i8, Ingólfsstræti 8.
Sálkönnun eldsins
MYJVDLIST
<; a 11 I I i 8 o g
N o r r æ n a h ú s i ð
LJÓSMYNDIR
JYRKIPARANTAINEN
Til 26. nóvember í Galleríi i8 og 17.
desember í Norræna húsinu. Opið í
i8 fimmtudaga til sunnudaga frá kl.
14-18, og Norræna húsinu þriðju-
daga-sunnudaga frá kl. 13-17.
BÁÐAR sýningarnar eru hluti af
Ljósahátíð 2000, í tengslum við
menningarborgarárið, og þyrftu
menn að skoða þær saman ef vel á
að vera.
Eins heillandi og verk Jyrki Par-
antainen eru verður að segjast að
myndheimur hans sé um leið
óhugnanlegur. Eins og logarnir
birtast í myndum hans er með
engu móti hægt að tala um hlutlaus
verk, eða meðtaka þau án fyrir-
vara.
Vissulega má segja sem svo að
dágóður hluti af myndlist samtím-
ans sé fráhrindandi í þeim skilningi
að hann búi yfir óhugnaði. Þess
háttar list er þó sjaldnast gerð til
að hrífa áhorfandann með því að
höfða beint til smekkvísi hans, en
það er einmitt lóðið í verkum Par-
antainen.
Líkt og brennuvargur reynir
hann að hafa áhrif á fegurðarskyn
áhorfandans og lokka hann þannig
inn í ómótstæðilegan heim eldsins.
Það er eitthvað andstyggilegt við
þessa tilraun listamannsins líkt og
hann vilji gera áhorfandann sam-
sekan í brennuvargahneigð sinni.
Því hvað annað er hægt að kalla
ástríðufullar myndir Parantainen
af brennandi innviðum íbúða?
Áhorfandanum verður ósjálfrátt
hugsað til Verkovensky, hinnar lít-
ilmótlegu söguhetju í Djöflum
Dostojevskí sem segir stórbrunann
kallast á við eyðingarhvöt manns-
ins, og telur að jafnvel megi finna í
viðkvæmustu hjörtum lágt settra
opinberra starfsmanna hvað þá
meir. Auðvitað er hann einungis að
afsaka eigin öfughneigð með því að
gera því skóna að almennt séu
menn gagnteknir af bálinu.
Það væri þó óréttlátt að ein-
skorða Parantainen og verk hans
við listræna pýrómaníu, til þess er
eldurinn of táknrænn og víðfeðmur
sem skáldlegt viðfangsefni. Því má
ekki gleyma að skömmu fyrir stríð
skrifaði franski stærðfræðingur-
inn, vísindaspekingurinn og sér-
vitringurinn Gaston Bachelard litla
bók sem hann kallaði Sálkönnun
eldsins. Hún var fyrst og merkust
fjögurra bóka sem hann helgaði
tengslum ímyndunaraflsins og höf-
uðskepnanna fjögurra.
Milli Prómeþeifs og eldsins sem
hreinsandi afls sem allt skírir fjall-
aði Bachelard um öll möguleg hug-
myndatengsl menningarinnar við
þessa viðsjárverðu höfuðskepnu
sem tengist frá fornu fari
karlmennskunni, andstætt kven-
legri táknmynd vatnsins. Reyndar
dregur Bachelard fram og dustar
rykið af Hoffmann, hinum fræga
þýska sagnamanni og fulltrúa róm-
antísks hugmyndaflugs, og heldur
því um leið fram að eldvatnið - hið
kvenkarlmannlega áfengi gert úr
Veður og færð á Netinu ^mbl.is
ALLM^ dTTHVTAÐ NÝTl
brennandi vökva - hafi verið elds-
neytið sem hóf hug hans til flugs.
Parantainen leynir hvergi róm-
antík sinni enda telur hann sig
andlega náskyldan Anselm Kiefer,
rómantískasta fulltrúa hins nýja
þýska málverks. Með alkemískar
pælingar Kiefer í farteskinu stund-
aði Parantainen löglegar íkveikjur
sínar í heil fjögur ár - 1994 til 1998
- og afraksturinn má sjá í báðum
sölum, Gallerís i8 og kjallara Nor-
ræna hússins. Áhrifin eru vissulega
sérstæð þó svo að maður hafni blá-
kalt þeirri staðhæfingu brennuvar-
gsins að bálið sé lúmskt heillandi.
Halldór Björn Runólfsson
Ný öflug
iðnaðarhremsiefm
Ræslivörur
Stangarhyl 4
110 Reyhjavih
Sími 507 4141
Blóðbankinn verður með blóðsöfnun og skráningu
nýrra blóðgjafa í húsi Rauða krossins, Hafnargötu 13,
Grindavlk, í dag, þriðjudag kl. 10-18.
Blóðgjöf er Kfgjöf.
fá) BLOÐBAFNKirSN
- geföu meö hjarta
HORPU
TILBOÐ y
Gæða ínnimaininq /
I GLJASTIG I
Vönduð íslensk
innimálning á
einstöku tilboðsverði.
Verð á 4 lítra dós
í verslunum HÖRPU veita reyndir
sérfræðingar þér góða þjónustu og
faglega ráðgjöf við val á hágæða
málningarvörum.
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
BÆJARLIND 6, KÓPAVOGI.
Sími 544 4411
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK.
Sími 568 7878
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
STÓRHÖFBA 44, REYKJAVÍK.
Sími 567 4400
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
DROPANUM, KEFLAVÍK.
Sími 421 4790
MÁLHIHGARUERSLANIR