Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 48

Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Að segja sannleikann í GREIN í Mbl miðvikudaginn 8. nóvember sl. gerir forstjóri Happ- drættis DAS nokkrar athugasemdir við yfirlitsgrein undirritaðs um stöðu leyfa og einkaleyfa á hérlendum happdrættismarkaði. Greinarhöfundur kvartar yfir því að und- irritaður skuli ekki gera grein fyrir fjár- veitingum til rann- sóknastarfsemi við Há- skóla íslands. Hann heldur fram þeirri rök- leysu að vegna þess að vísindamenn sem starfa við Háskóla íslands geti sótt um styrki úr sjóðum, sem m.a. séu lagðar £ skatttekjur rík- isins af happdrættis- rekstri HÍ, þá séu þeir fjármunir sem Háskól- inn hafi tál eigin ráðstöf- unar í raun ekkert skertir þrátt fyrir það að honum hafi verið gert að greiða skatta (einkaleyfisgjald) af sjálfsaflafé. Bið ég greinarhöfund að hugleiða í hvers konar öngstræti hann kæmist ef hann notaði sömu röksemdafærslu um aðra skattlagn- ingu og fjárframlög ríkisins. Sú staðreynd er óhögguð að álagn- ing sérstaks einkaleyfisgjalds vegna sjálfsaflafjár Háskóla Islands rýrir það fé sem hann getur ráðstafað í brýn verkefni sín. Það er ákvörðun- aratriði yfirválda hvort halda eigi uppi skattlagningu af þessu tagi. Sé það niðurstaðan að skattleggja eigi leyfisbundinn happdrættisrekstur telur undirritaður að eðlilegt sé og reyndar sjálfsagt að eitt verði látið yfir alla ganga í þeim efnum. Það var aldrei ætlunin að fjalla um fjárframlög til rannsóknastarfsemi Háskóla íslands né yfir höfuð til ann- arrar rannsóknastarfsemi í landinu. Vísindamenn, hvort heldur sem þeir vinna innan eða utan Háskóla Is- lands, afla gjaman fjár- muna til starfsemi sinnar með umsóknum í sjóði, bæði innlenda og erlenda, þar með talið í sjóð RANNÍS, eins og nefnt hefur ver- ið. Hvort ríkisvaldið leggur til fé í slíka sjóði af eymamerktum sköttum eða tekur slíkt af almennum sköttum er varla mikið innlegg í þessa umræðu. Ég tel það alfarið rangt og reyndar mjög ámælis- vert að halda því fram Ragnar að undirritaður hafi Ingimarsson sagt einhvem hálf- sannleika í grein sinni vegna þess að ekki var fjallað um það hvemig ríkið ákveður að ráðstafa skattpeningum. Happdrætti HHÍ hefur ekki talið það sitt hlutverk, segír Ragnar Ingimarsson, ROSNER Kvensíðbuxur þrjár skálmalengdir mikið úrval Suðurlandsbraut 50, slmi 553 0100, (bláu húsin við Fákafen). Opið virka daga 10-18, laugard. 10-16. að fylgja þvi eftir að farið væri að lögum í þessum efnum. í grein sinni tekur höfundur undir ábendingu mína um að ýmsir hafi einkaleyfi til reksturs peningahapp- drætta þó svo að HHÍ greiði eitt happdrætta einkaleyfisgjald. Ég benti á, að gagnstætt ákvæðum í lög- um greiði Happdrætti DAS í raun vinninga út í peningum. Forstjóri heldur því fram að þessa ábendingu mína megi skilja þannig að um pers- ónulega skoðun mína sé að ræða sem bundin sé í lögum og vilji hann leið- rétta það. Nú verð ég að játa að ég get alls ekki skilið þessa röksemd. Eftir stendur að vinningar í vöm- happdrættum hafa um langt árabil í raun verið greiddir út í peningum, stundum gegn framvísun reikninga af einu tagi eða öðru eða ljósritum af þeim. HHÍ hefur ekki talið það sitt hlutverk að fylgja því eftir að farið væri að lögum í þessum efnum. Vilji forstjórinn halda því fram að um- rædd fullyrðing, þ.e. um greiðslu vinninga í peningum, sé röng er unnt að leggja fram gögn til að sanna hana.. Að því er látið liggja að HHÍ hafi kært auglýsingar á vegum DAS og SIBS til Samkeppnisstofnunar á þeim grundvelli að þessir aðilar væru að auglýsa peningavinninga. Þetta er alfarið rangt: HHÍ hefur aldrei kært þessa aðila á þessum grundvelli til Samkeppnisstofnunar. HHÍ hefur hinsvegar séð sig knúið til að leita til Samkeppnisstofnunar vegna auglýs- inga frá Happdrætti DAS þar sem röngum fullyrðingum og blekkingum er beitt gagnvart viðskiptavinum happdrætta. Samkeppnisstofnun hefur undantekningalítið tekið undir athugasemdir HHI og krafist að þeim yrði breytt eða hætt. HHI hef- ur ekki beitt sér frekar í þessum mál- um t.d. með því að birta niðurstöður Samkeppnisstofnunar opinberlega. I lok greinar sinnar fjallar for- stjórinn nokkuð um heimildir til happdrættisreksturs og telur hallað á happdrætti DAS. Ljóst er þó að þessi aðili hefur sérstakt leyfi til happdrættisreksturs og að hann hef- ur rekið happdrætti sitt sem næst eins og peningahappdrætti. Það er hinsvegar líklegt að gott eða slæmt gengi mótist m.a. af því hversu vel happdrættin bjóða. Að því er snýr að rekstri flokkahappdrætta er t.d. sennilegt að til langs tíma litið komi það niður á miðasölu þegar vinnings- hlutfall er lækkað niður í aðeins 40% eins og Happdrætti DAS hefur nú gert á sama tíma sem aðrir aðilar bjóða mun betur, sbr. t.d. HHÍ, sem býður 70% vinningshlutfall. Að gefnu tilefni er í þessu sambandi einnig rétt að benda á að hvergi í hinum vest- ræna heimi er óheftur happdrættis- rekstur heimilaður. Nefna má sér- staklega að í Evrópusambandinu er nú viðurkennt að happdrættisrekst- ur eigi að hafa sérstöðu, heimilt sé að viðhafa einkaleyfaveitingu, og að um slíkan rekstur gildi ekki sömu reglur og um önnur viðskipti þar sem sam- keppni er sem næst óheft. Höfundur er forstjóri Happdrættis Háskóla íslands. Mikil menn- ingarveisla GREINARHOFUNDUR er að- standendum Kristnihátíðar sem haldin var á Þingvöllum 1. og 2. júlí innilega þakklátur fyrir að hafa feng- ið að njóta alls þess sem í boði var á hátíðinni og vera þannig aðnjótandi mikillar menningar- veislu þar sem hver listviðburðurinn rak annan, með frábærum íslenskum listamönnum svo á betra varð vart kosið, því boðið var upp á það besta á hverju sviði. Það sem snart mig hvað mest var þegar þjóðsöngurinn var sunginn við undirleik Sinfóníuhljómsveitar- innar og hljómsveitar- stjórinn sneri sér að há- tíðargestum sem tóku undir með kórunum og sungu „Ó Guð vors Guðríður Bryndi's Jónsdóttir lands; Ó, lands vors Guð..“ til enda. Fyrir mig varþessi stund heilög. Mér fannst eftirtektarvert að sjá hve margt ungt fólk klæddist ís- lenska þjóðbúningnum. Einkum var mér starsýnt á lasburða, eldri konu klædda skautbúningi og kom mér þá í hug það sem öldruð frænka mín sagði eitt sinn, að þegar henni væri boðið í veislu klæddist hún sínu fegursta skarti, íslenska þjóðbúningnum, gestgjöfunum til heiðurs. Böm og unglingar, ungir sem aldnir settu sinn fallega svip á hátíðina. Gestgjafinn var að mínu mati Drottinn sjálfur, sem gaf okkur hina einstöku veðurbh'ðu og fegurð. Ég var því þakklát fyrir það að fá að þiggja veitingar og blessun af borði hans sem þjónar hans útdeildu til okkar líkt og við fjallræðuna forðum. Það var unun að sjá hve vel var fyr- ir öllu séð. Lögregla og aðstoðarfólk veittu allan stuðning sem hugsast gat og samhugur meðal gesta hátíðarinn- ar var einnig einstakur. Ég vona svo innilega að við sem finnum okkur ekki sem þátttakendur í hinum venjulegu útihátíðum versl- unarmannahelga fáum aftur að njóta hátíðar sem þessarar, þó smærri verði í sniðum. Ég verð því ákaflega hrygg þegar ég heyri alla þá neikvæðu umræðu um Kristnihátíð sem gengið hefur sem faraldur, síðan að spurðist um undirbúning hennar. Einkum hvem- ig veist og vegið hefur verið að kirkjunni, kristinni trú og menningu. Þó særir það mig hvað mest þegar okkar aldni og djúpvitri kennimaður, hr. Sigurbjöm Éinarsson, varð fyrir ómaklegum árásum fyrir það eitt að verja það sem hverjum kristnum manni er heilagt og að svara eins og honum bjó í brjósti, þegar hann var spurður, sem síðar var lag't út á hinn versta veg. Víst má gagnrýna eitt og annað í fram- ferði ýmissa kirkjuleið- toga á liðnum öldum. Það vita kirkjuhöfðingj- ar í dag og ásamt páfa hafa harmað það á opin- beram vettvangi og draga enga dul á. Samt virðast kirkjuhöfðingj- ar helst ekki mega svara fyrir sig né kirkjuna þegar ómak- JVtti tktóSm Við höfum opnað Antíkbúðina á horni Laugavegs og Snorrabrautar (Laugaveg 101) 10% opnunartilboð Brjálaða útsalan til vors í Aðalstræti lega er að henni og þeim ráðist. Einna síst virðast þefr mega minnast á höfuðóvini kirkjunnar, kommún- Kristnihátíð Það var unun að sjá, segir Guðríður Bryndfs Jónsdóttir, hve vel var fyrir öllu séð. isma (Mars- Lenin- Stalin- isma) nas- isma, né ásatrú, sem nasistaleiðtogar heilluðust af. Sennilega ekki heldur Mao-isma eða Pol-Pot, enda of langt í burtu. Allir ofantaldir ismar hafa litað 20. öldina blóðrauða, ekki einungis með fánalitum, heldur blóði og táram og öðram þvílíkum hörmungum að aldrei verður upp talið. Samt má ekki minnast á þá, né vara við þeim og er það alvarlegt mál, vegna þess að enn era hreyfingar að skjóta upp kollin- um sem viija halda uppi kenningum þeirra. Þeir sem muna hvemig þessir ismar læddust að fólki og höfðuðu til réttlætiskenndar og göfugra hug- sjóna, en breyttust síðan í andhverfu sína hljóta ætíð vera uggandi og kom- ast í vöm. Pólland var klemmt á milli tveggja öflugustu ismanna og þykir krafta- verk að þrátt fyrir öfluga óvini á báð- ar hendur, fátækt og kröm stóðu þeir óvini sína af sér. Veldi kommúnisma og nasisma hrandu beggja vegna við þá. Það sem bjargaði þeim var kristin trú og kirkjurækni, staðhæfir einn merkasti sagnfræðingur 20. aldar, Paul Johnson, sem fjallar um það í bók sinni „The quest for God“, bls. 16. Þar lýsti hann því hvemig báðir þess- ir ismar gerðu harða atlögu að pólsku kirkjunni og reyndu að tortíma henni, en hún stóð þá af sér og trúarlífið varð sterkara með hverri atlögu. Sem samtímabam Önnu Frank, veit ég við hvaða vá hr. Sigurbjöm átti við. Hann þekkti hana þessa vá frá samtíð sinni og lái honum hver sem vill, að hann fari óþýðum orðum um þær stefnur sem ollu hörmulegu óláni þjóða og þar með milljóna manna. Vegna úrskurðar siðanefndar presta í máli hr. Sigurbjöms Einars- sonar, sem ég er enn furðu lostin yfir, sennilega vegna þess að ég þekki ekki starfsreglur né umboð þeirrar nefnd- ar, vona ég að þeim sem i henni sitja verði fyrirgefið með orðum frelsar- ans: „Guð, fyrirgef þeim því þeir vita ei hvað þeir gjöra.“ Ég þakka Guði fyrir að hafa gefið okkur hr. Sigurbjöm Einarsson, biskup og fengið að njóta leiðsagnar hans og bið fyrir þakklæti til hans fyrir það að halda vörð um trú okkar, velferð og hamingju í trúnni á Jesús Krist. Höfundur er ritari Bandalags kvenna í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.