Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 49

Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 49 Einokunarstöð gæludýra í Hrísey í MORGUNBLAÐINU hinn 8. nóvember sl. birtust upplýsingar Halldórs Runólfssonar, yfirdýra- læknis, og Hákonar Sigurgrímsson- ar, deildarstjóra landbúnaðarráðun- eytisins, vegna reksturs Einangrunar- stöðvar gæludýra í Hrísey. í greinargerð þessari er margt, sem orkar tvímælis en eftir- farandi ummæli þeirra er nauðsynlegt að leið- rétta. Þeir segja: „Ein- angrunai’stöð gælu- dýra í Hrísey er í eigu landbúnaðarráðuneyt- isins. Gerður hefur ver- ið samningur við aðila í Hrísey, sem hefur um- sjón með rekstri stöðv- arinnar. Samkvæmt lögum um innflutning dýra nr. 54/1990 er ekki heimilt að veita einkaaðila heimOd til rekstm-s einangrunarstöðvar." (Tilv. lýkur). Þetta er rangt. í lögum þessum er ekkert slíkt ákvæði og þvert á móti ei-u þar mjög rúmar heimildir fyrir landbúnaðarráðaherra til að veita ýmsar undanþágur fyrir innflutningi dýra og eru mörg dæmi um slíkt. Ef þessar heimildir væru ekki í lögun- um væri landbúnaðarráðherra marg- faldur lögbrjótur og varla eru fram- angreindir embættismenn að halda því fram. Hinn 4. janúar 1994 bauð landbún- aðairáðuneytið út rekstur Einangr- unarstöðvar gæludýra í Hrísey og í útboðsgögnunum segir: „Landbún- aðarráðuneytið leitar eftir aðila til að taka að sér rekstur á sóttkví gælu- dýra við Einangrunarstöðina í Hrís- ey. “ (Tilv. lýkur.) Þrír aðOar gerðu tilboð í reksturinn og hinn 25. maí 1994 samdi landbúnaðarráðuneytið við Stefán Björnsson. Hinn 11. ágúst sl. tilkynnti Stefán til firmaskrár Ak- ureyrar að hann reki með ótakmark- aðri ábyrgð einkafirmað Gæludýra- stöðina, Kríunesi, Hrísey. Tilgangur félagsins er rekstur sóttvarnarstöðvar fyrir gæludýr og annan tengdan rekstur. „Prókúru hef ég einn og rita þannig: Pr.pr. Gæludýrastöðin, Stef- án Bjömsson.“ (Tilv. lýkur.) Sannleikurinn er því sá, að frá árinu 1994 hefur framan- greindur Stefán Björnsson ekki aðeins haft umsjón með rekstri Einangrunar- stöðvar gæludýra í Hrísey, heldur hefur hann rekið einangrun- arstöðina alfarið á eigin ábyrgð í 6 ár. En Einangrunarstöð gæludýra í Hrísey er aðeins ein af a.m.k. 12 einangrunarstöðvum fyrir innflutt dýr, sem reknar eru víðsveg- ar um landið af einkaaðilum. Hinn 6. september sl. sendi yfirdýralæknir upplýsingar frá sérgreinalæknum varðandi faglegt eftirlit þeirra með rekstri þessara stöðva. Og hvaða stöðvar er svo yfirdýralæknir að tala um? í bréfi héraðsdýralæknisins á Akureyri frá 25. ágúst sl. kemur m.a. fram að í Hrísey eni starfræktar 3 einangrunarstöðvar fyrir nautgripi, svín og gæludýr. Rétt er að upplýsa það að Einangi-unarstöð nautastöðv- ar Landssambands kúabænda ehf. Hrísey er rekin af Landssambandi kúabænda. Einangrunarstöð SFÍ, Svínai’æktarfélags Islands í Hrísey, er í eigin húsnæði og rekin af Svína- ræktarfélagi íslands. Og Einangrun- arstöð gæludýra í Kríunesi, Hrísey er rekin af Stefáni Bjömssyni. í bréfi Gæludýr Einangrunin, segir Sigríður Asgeirsdóttir, er rofin mörgum sinnum á leið frá Keflavík til Hríseyjar. dýralæknis alifuglasjúkdóma fra 5. september sl. kemur m.a. fram að þegar fluttir era inn holda- og varp- stofnar eru eggin flutt til útungunar- stöðvar Stofnunga sf. á Hvanneyri og klakin þar út og ungarnir hafðir í sóttkví hjá Stofnunga sf. á Hvann- eyri og Mófellsstöðum í Skorradal og hjá Reykjagarði hf. í Jóvflí, Árborg. Kalkúnaegg era flutt í Einangrunar- stöð Reykjabús ehf. á Kanastöðum, Austur-Landeyjum, og ungarnir hafðir þar í sóttkví. Andaregg og ungar era í sóttkví Stjörnueggs hf. á Skarshömram, Norðurárdal. Búr- fuglar fyrir einstaklinga era hafðir í heimasóttkví inni á heimili eigandans en búrfuglar fyrir rekstraraðila era fluttir af eigendum sínum í viður- kenndar sóttkvíar en þær era í dag Islensk tækni hf., Reykjavík, Fiskó, Kópavogi, og Dýrahald í Mosfellsbæ er í skoðun. Sami háttur er hafður á við innflutning nagdýra, svo sem hamstra og kanína. Sé beðið um inn- flutning ætluðum til sölu fara þau dýr í sóttkví með leyfi landbúnaðar- ráðherra. Sé hins vegar um búferla- flutninga að ræða er hægt að fá heimild til heimaeinangrunar. Hins vegar er heimaeinangran aldrei leyfð vegna innfiutnings á hundum og köttum. I bréfinu segir dýralæknir alifuglasjúkdóma: „Aflar þessar sótt- kvíar era einkareknar". (Tilv. lýkur.) Sigríður Ásgeirsdóttir Einelti Á GEÐVERNDARDEGI barna vilja landssamtökin Heimili og skóli minna á þá vá sem einelti er börnum. Einelti er samfélags- legt vandamál sem snertir okkur öll og því ber okkur öllum skylda til að bregðast við því. Barnið sjálft eða fjöl- skylda þess getur ekki leyst vandann upp á eigin spýtur, heldur þarf að leysa hann með samvinnu margra í samfélaginu, s.s. for- eldra, starfsfólki skóla og annarra fullorðinna leiðbeinenda barna. Börnum á að líða vel í leik og starfi og þau eiga að geta verið ör- ugg í umhverfi sínu hvort sem það er í skóla, íþróttaiðk- un eða annarri tómstundastarfsemi. Afleiðingar eineltis Einelti er ofbeldi og félagsleg út- skúfun sem hefur alvarlegar afleið- ingar í för með sér fyrir þolandann. Afleiðingarnar koma fram í mikilli vanlíðan, hræðslu, öryggisleysi og tortryggni. Sársauki, reiði, niður- læging, sektarkennd og ótti era eðli- leg viðbrögð við óeðlilegri fram- komu, sem einelti er. Barninu getur fundist að það sé eitthvað frábrugðið öðram börnum. Sjálfsmyndin skekk- ist og sjálfstraustið hverfur. Barnið verður spennt og gjarnan utangátta í skólanum og það er ekki óalgengt að áhuginn á skólanum fari dvínandi. Þar fyrir utan hefur það sýnt sig að einelti setur þolandann í sérstaka áhættu gagnvart neyslu áfengis og annarra vímuefna. Hversu alvarlegar afleiðingar ein- eltisins verða er háð mörgum mis- munandi þáttum. Það fer t.d. eftir því hversu illt gerandinn hefur í huga þegar hann leggur einhvem í einelti, hversu ógnandi eineltið er og yfir hve langt tímabil það á sér stað. Hvað er hægt að gera? Það er áfall fyrir alla foreldra að komast að því að bamið þeirra er lagt í einelti eða að það leggi önnur böm í ein- elti. Þetta er staða sem ekkert foreldri getur sætt sig við, en hvaða stefnu málið tekur byggist mjög mikið á viðbrögðum foreldr- anna. Það góða í stöð- unni er að margt er hægt að gera sem get- ur stuðlað að lausn vandans. For- eldrar verða að taka vandamáflð al- varlega, trúa baminu og standa með því. Hlutverk foreldra er að hjálpa barninu að öðlast sjálfstraust og trúna á að það ráði við ástandið. Það er mikill stuðningur fyrir barnið að finna að foreldrar hafi stjórn á að- stæðunum. Foreldrar verða að hlusta af þolin- mæði og fá eins sannar upplýsingar frá barninu og hægt er án þess að beita löngum yfirheyrslum. Ef ein- eltið á sér stað í skólanum ættu for- eldrai’ strax að hafa samband við bekkjarkennarann og/eða skóla- stjómendur. Skólum er skylt að vera með áætlun um hvemig tekið skuli á einelti komi það upp. Margir skólar hafa gert slíkar áætlanir og starfa eftir þeim. Þá er gott að hafa sam- band við foreldra annarra barna í bekknum og athuga hvort þeir hafi svipaða reynslu. í samráði við skól- ann er svo ákveðið til hvaða aðgerða þarf að grípa og þeirri ákvörðun Einelti Með aukinni þekkingu og samvinnu, segír Jóhann Thoroddsen, er auðveldara fyrir okkur að taka skýra afstöðu gegn einelti. fylgt. Ef unnið er skipulega að lausn málsins era mjög miklar líkur á því að árangur náist og eineltið hætti. Ef upp kemur ágreiningur milli for- eldra og skólans eða ef skólinn skýt- ur sér undan ábyrgð er rétt að leita til fræðsluyfirvalda. Þekking Einelti fer oft mjög leynt og þol- endurnir segja ekki alltaf frá. Einelti getur hafa staðið yfir í langan tíma áður en það kemst upp. Það er því mikilvægt að allir sem koma að bamauppeldi hafi þekkingu á hvað einelti sé þannig að hægt sé að grípa fyiT inn í þá óheilla þróun sem í gangi er. Slík þekking er stuðningur við börn hvort sem þau era þolendur, gerendur eða „saklausii’ áhorfend- ur“. í þessu sambandi hafa lands- samtökin Heimili og skóli, með styrk frá Hagkaupum, gefið út bækling um einelti sem er sérstaklega ætlað- ur foreldrum. í honum era nytsam- legar upplýsingar til foreldra um einelti, einkenni þess og afleiðingar, þolendur/gerendur og hvað foreldr- ar geta gert. Þennan bækling ásamt ýmsu öðra efni er hægt að nálgast á skrifstofu Heimilis og skóla. Með aukinni þekkingu og samvinnu er auðveldara fyrir okkur að taka skýra afstöðu gegn einelti. Höfundur er sálfræðingur, vara- formaður landssamtakana Heimili og skóli. í bréfi dýralæknis fisksjúkdóma frá 25. ágúst sl. kemur m.a. fram að innflutningur skrautfiska, vatna- snigla, smákrabba, froska og salam- andra er á vegum aðila, sem hafa til- skilin leyfi til verslunarrekstur með slík gæludýr og verða þeir að hafa aðstöðu til einangranar, sem dýra- læknir fisksjúkdóma tekur út og samþykkir. Jafnframt fá einstakling- ar, sem flytja búferlaflutningum, að hafa þessi dýr í „heimasóttkví". „Ár- lega hafa 3-7 aðilar fengið leyfi til innflutnings skrautfiska og vatna- dýra og að meðaltali einn einstakl- ingur hefur fengið slíka undanþágu á ári.“ Bréfinu fylgdi eftirfarandi listi yfir 7 viðurkenndai’ sóttkvíar fyrir skrautfiska og vatnadýr: Dýrahald, Kópavogi; Dýraland, Reykjavík; Dýraríkið, Reykjavík; Gæludýrabúð- in Trítla ehf., Reykjavík; Gæludýra- verslunin Fiskó, Kópavogi; Skraut- fiskur ehf., Reykjavík og Vatnaveröld (Vatnahöllin ehf.), Keflavík. í bréfi dýralæknis loðdýra- sjúkdóma frá 31. ágúst sl. segir orð- rétt: „Ríkið hefur ekki rekið einangr- unarstöð fyrir loðdýr. Hefm’ innflutningur ýmist verið á vegum heildarsamtaka loðdýrabænda, landshlutasamtaka loðdýrabænda og í nokkram tilfellum einkaaðila og hafa sérstök bú verið tekin í sóttkví." (Tilv.lýkur.) Til að fyrirbyggja allan misskilning skal tekið fram að fram- angreind heildarsamtök og lands- hlutasamtök loðdýrabænda eru einn- ig einkaaðilar.Þegar Einangranarstöð gæludýra í Hrísey var tekin í notkun fyrir um það bil áratug varð strax mikil óánægja meðal hunda- og kattaeigenda, sem þurftu að senda dýrin sín þangað, en önnur gæludýr voru höfð í heimaein- angran eða hjá innflutningsaðilum, eins og verið hafði áður. Eingrunar- gildi stöðvarinnar í Hrísey er mjög dregið í efa og ekki að ástæðulausu, því einangrunin er rofin mörgum sinnum á leið frá Keflavík til Hríseyj- ar og einangran eftir það er nánast sýndarmennska. í mörg undanfarin ár hafa ýmsir einkaaðilar sótt um leyfi til landbúnaðarráðherra til að fá að reka aðra einangranarstöð fyrir gæludýr nær Keflavíkurflugvelli en öllum slíkum umsóknum hefur land- búnaðarráðherra hafnað umsvifa- laust á þeirri forsendu að „aðeins op- inberir aðilar megi reka einangr- unarstöðvar á íslandi, samkvæmt lögunum". Þetta er að sjálfsögðu rangt og staðreyndin er sú að það er geðþóttaákvörðun landbúnaðarráð- herra að veita Stefáni Björnssyni einokunaraðstöðu með rekstri Ein- angranarstöðvar gæludýra í Hrísey. Þessari geðþóttaákvörðun ráðherra hefur verið skotið til umboðsmanns Alþingis og er nú beðið með eftir- væntingu eftir umsögn hans. Höfundur er lögfræðingur. úlpudagar OUTLET 10 +++merki fyrir minna+++ Faxafeni 10, s. 533 1710 Merkjavara og tískufatnaður á 50 — 80% lægra verði Diesel adidas Casall D.C. Everlast Fila Nike Osiris Puma Freshjive Sparks Spiwak Stussy Levis CK Jeans G-star 4-you All saints DKNY French connection Hudson Uoyds Matinique Obvious Parks Paul Smith Van Gils Kookai Morgan InWear Imitz Nice Girl Part two Tark Bronx BullBoxer Roobins Shelly's Vagabond Zinda Verðdæmi áður nú EVERLAST úlpur —8^00 1.900 FILA úlpur JUðW 3.900 KOOKAl úlpur 3.900 EVERLAST dúnúlpur J&ZWr 3.900 MATINIQUE úlpur +6t«ro 7.900 DIESEL peysur -6v9AO- 2.900 LEVIS buxur -6r99tr 3.500 OBVIOUS jakkaföt -29r900 9.500 STUDIO dragtir 44r40tT 6.600 ROOBINS vetrarskór JOrOOO 3.900 Opið: Mán.-fim. 11.00-18.00 Fös. 11.00-19.00 Lau. 11.00-17.00 OUTLET 10 +++merki fyrir minna+++ Faxafeni 10, s. 533 1710

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.