Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 50

Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ , 50 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 UMRÆÐAN Astmi á Islandi fyrr og nú AÐ TILSTUÐLAN Landlæknis var októ- bermánuður helgaður sjúkdómnum astma. Þetta gaf mér tilefni til að rifja upp hvað vitað er um tíðni þessa sjúk- dóms hér á landi fyrr og nú. Astmi er einn þeirra sjúkdóma sem koma í kjölfar ofnæmis. Þetta þarf þó frekari skýring- ar við. Astmi, sem byij- ar á fyrstu þremur til fjórum aldursárunum, er sjaldan vegna of- næmis en einkenni hans versna í kjölfar veiru- sýkinga. Astmi, sem byi'jar á barna- skólaaldri og unglingsárum, er hins vegar oftast vegna ofnæmis. En eft- ir það hefur ofnæmi minna að segja og eftir fertugt er sjaldgæft að of- næmi valdi astma. t Ofnæmi hefur aukist mikið á und- 1 anförnum áratugum. Sumstaðar hefur það aukist um helming á síð- ustu tíu árum. Er skemmst frá því að segja, að tíðni ofnæmis er lægri á Islandi en í öllum þeim löndum sem við höfum borið okkur saman við. Ef miðað er við niðurstöður úr ofnæm- isprófum má nefna að 20% Reykvík- inga á aldrinum 20-44 ára hafa of- næmi, en 50% íbúa í Melbourne í Ástralíu, en þar er ofnæmi hvað al- gengast í heiminum. Ekki er vitað hvort aukning hefur orðið á ofnæmi og astma hér á landi að undanförnu. Leiða má að því líkum að lungnasjúkdómai-, og þar með talinn astmi, hafi verið algengir fyrr á öldum. Ekki þarf mikið hugmynda- flug til að skilja að saggafylltir torfbæir voru ekki heilsusam- legir dvalarstaðir og vinna i myglu og hey- i'yki var hlutskipti margra karlmanna. A stuttri starfsævi lækn- is hef ég orðið var við þau jákvæðu áhrif sem breyttir búskaparhættir hjá bænd- um hafa haft á tíðni heysjúkdóma, eftir að rúllubaggar komu til sög- unnar. Af skiljanlegum ástæðum er þekking okkar takmörkuð á heilsu- fari landsmanna fyi-r á öldum. Menn gerðu sé þó grein fyrir sambandi lungnaeinkenna og vinnu í heyryki. Þannig segir í kvæði sem talið er frá fyrri hluta átjándu aldar: „...læt í meysa mjólka og dreg, mæddur af heysóttinni". Jón Pétursson, sem var læknir í Norðlendingafjórðungi og bjó í Skagafírði, skrifar 1794 undir yfír- skriftinni „Um líkamlega við- kvæmni“: Brjóstþröng eða brjóst- þyngsli þau sem margur maður yfir kvartar hér á landi, kalla ég heysótt Astmi Með nútíma þekkingu á astma, segir Davíð Gíslason, hefði reynst auðvelt að létta þeim byrðum af skáldinu, sem það lýsir í Steinarnir tala. til aðgreiningar frá öðrum brjóst- sjúkdómum. Þessi veikleiki er ekk- ert annað en það er læknar kalla asthma convulsivum," og seinna seg- ir í greininni: „Því verður ekki neit- að, að heysóttin illa umhirt, eða lengi forsómuð, verður margra manna bani hér á landi.“ Af orðum Jóns má ráða, að um velþekktan sjúkdóm hafi verið að ræða og raunar líklegt að hann hafi sett undir einn hatt astma, berkju- bólgu, lungnaþembu og heysótt; sjúkdóma sem læknar þekkja hjá bændum enn í dag. Stundum verða í veginum frá- sagnir af astma við lestur bók- mennta fyrri tíma. I ævisögu eld- klerksins Jóns Steingrímssonar segir hann um tímabil ævi sinnar eftir fertugt: „Um þessi ár fór að heimsækja mig brjóstveiki svo þung, að eitt sinn hlaut ég að taka 4 Davíð Gíslason Leti geð- sjúklinga OFT gæti maður hald- ið að geðsjúkir væru haugalatir, margir þeirra koma engu í verk dögum saman, sofa fram yfir hádegi, jafnvel heilu sólarhringana, og tiltölu- lega fáum tekst að fóta sig á vinnumarkaðinum. Sá sem þetta ritar var greindur með geðklofa- sjúkdóm, eða schizo- phrenia eins og sjúk- dómurinn er kallaður á fræðimáli fyrir 16 árum og hefur fram að þessu fengið þijár mismunandi undirgreiningar eftir tímabilum. En þær eru: Heberfreni, schizo affective og paran- oia auk þess sem ég var upphaflega greindur „aðallega þunglyndur". Ég tel rétt að upplýsa þessa þætti varðandi sjálfan mig, þar sem það sem hér fer á eftir getur varla talist fræðigrein heldur er einvörðungu um að ræða mína upplifun á þessum sjúk- dómi auk annars sem ég hef séð og heyrt hjá samsjúklingum mínum, inn- andeildarogutan. Ég er reyndar svo heppinn að hafa að mestu sloppið við ofskynjanir. En hegðan mín, þegar ég er lyfja- laus, getur verið með þeim hætti, að hvorki nánustu ættingjar mínir né samfélagið tekur í mál að ég „gangi laus.“ Þrisvar sinnum hef ég verið nauð- ungarvistaður og einnig alloft farið fyrir áeggjan ættingja og lækna en _ einnig, einkum fyrstu árin, að eigin ^ frumkvæði inn á geðdeild. Ég hef nær alltaf verið lagður inn á geðdeild fv. Borgarspítala sem nú heitir víst Landspítalinn - háskóla- sjúkrahús, Fossvogi. Meðferðinni má í sem allra stystu máli lýsa með einu orði: Lyfjameð- ferð, og skilst mér að svipað sé uppi á f teningnum á öðrum geðdeildum landsins en lyfjameðferð virðist vera forsenda þess að fólki sé boðið upp á aðra meðferð samhliða og er mér reyndar kunnugt um fleiri en eitt dæmi þar sem sjúklingum hefur einfaldlega verið vísað burt af geðdeild þegar þeir neituðu að þiggja lyfjameðferð. Lyfjameðferð er í stuttu máli mjög öflug aðferð til að hemja sjúkdóminn og bæla niður einkenni hans. En það sem minna er talað um, og nánast því aldrei minnst á, er að þau bæla nánast alla aðra þætti persónunnar í leiðinni. Menn verða ekki eins tilfinningaríkir, maður getur orðið sljór, syfjaður og almennt fjarar lífsgleðin út og tilfinn- Geðsýki Nánast aldrei er minnst á það, segir Axel Haug- en, að geðlyf bæla niður nánast alla aðra þætti persónunnar í leiðinni. ingin fyrir því, að það sé gaman að vera til deyr þurrum lyfjadauða. Það er ekki að undra þótt nær allir sem taka inn geðlyf geri einhvem tímann tilraun til að hætta á þeim. í stuttu máli má líkja því, að vera lyfjalaus, við það, að virða fyrir sér fagra fjallasýn í heiðskíru og frost- björtu sólskinsveðri. En það að vera á lyfjum er eins og að virða fyrir sér þessa sömu fjallasýn í hinu sama veðri í gegnum skítuga rúðu! Við ofanritað bætist svo, að mönn- um er nánast því stillt upp við vegg að taka inn þessi lyf eða „éta það sem úti Axel Haugen frýs“ að öðrum kosti. Mér persónu- lega finnst ekkert undarlegt við það, að einstaklingar sem missa með þess- um hætti frumkvæðið í eigin lífi og/ eða persónulegt sjálfstæði, vilji helst af öllu sofa, nenni engu og séu al- mennt ekki vinnufærir. En ofan á þetta allt saman bætist svo, í þaðminnsta er það mín reynsla, að tíminn líður hreinlega „ekki neitt“ í vinnunni, þegar maður er á lyfjum, og virðist þá líða hægar eftir því sem skammtamir em stænn og/eða lyfja- sortimar fleiri, að auki, eins og þetta dugi ekki, þá truíla lyfin einbeiting- una og er það líkast því að samvinna hugar og handar sé rofin. Einnig má nefna, a.m.k. í mínu til- viki, að sé ég á lyfjum og vakna syfj- aður, þá „rjátlar“ syfjan ekkert af mér eftir því sem líður á morguninn, eins og ég minnist svo skýrt að gerð- ist þegar ég var lyfjalaus, heldur er ég áfram syfjaður þar til ég gefst upp og fer aftur upp í rúm. I stuttu máli er erfitt að vera á lyfjum og fullur vinnu- dagur að gera ekki neitt. Við, sem emm geðsjúk, höfum bara ekkertval. Þegar bjátar á andlega sviðinu bendir allt þjóðfélagið á sálfræðinga, geðlækna og geðdeildir, og það era engar fréttir að erfiðustu tilfellin lenda á læknum og geðdeildum en læknarnir era gjarnir á að beyta lyfj- um eins og þeir hafa menntun til. Nú kynni einhver læknir að segja að slen, framtaksleysi og tilfinninjga- leg flatneskja séu dæmigerð bæld einkenni geðklofasjúkdóms. En ég spyr á móti hversu margir sjúklingar með bæld einkenni geðklofa era lyfja- lausir? Spyr sá sem ekki veit. Ég hef nú samt, og vil að það komi fram, skilning á afstöðu lækna og starfsfólks geðdeilda, vegna þess ástands sem geðsjúkir geta komist í, í sturlunarástandi, og þekki það reynd- ar af eigin raun. Það vottast því að ég hef enga lausn á þessu leiðindamáli en tilefni grein- arinnar var jú einungis það að benda þeim, sem telja okkur geðsjúklingana vera letingja, á, að það er þokkalega góð ástæða fyrir letinni og vona ég að mér hafi a.m.k að einhveiju leyti tek- ist að koma því til skila hver hún er. Höfundur er geðklofasjúklingur ogfærlyfið Trilafon dekanoat. andartök að þessum orðum: „Drott- inn sé með yður... Sú brjóstmæði batnaði mér þó mikið, er ég kom hingað á Síðuna undir hreinna loft.“ Varla getur verið um annan sjúk- dóm að ræða en astma þar sem ein- kenni hans bötnuðu við að flytja bú- ferlum. Þórbergur Þórðarson segh- svo frá heilsu sinni í æsku: „Þessi sjúk- dómur sem þjáði mig mest áður en ég man eftir mér, hafði víst ýmis konar ískyggileg einkenni. Eitt var það, að ég náði varla andanum, blán- aði allur upp í framan og var næst- um kafnaður. Þessi andþyngsli komu yfir mig í köstum og á milli kastanna var ég alltaf eitthvað veik- ur... Köfnunarköstin og uppblásn- ingarnar vora hætt, þegar ég man fyrst eftir mér, og ég var farinn að leika mér með fullfrískum krökkum. En nokkrar drefjar af sjúkdómnum loddu ennþá lengi við mig. Þær lýstu sér í afskaplegri mæði, þegar ég hljóp dálítið langt og líka þegar ég gekk móti brekku. Það suðaði og sogaði niðri í mér, og ég varð að draga andann djúpt með stuttu millibili til þess að létta mér and- artaksstund fyrir brjóstinu. Stund- um varð ég að hósta til þess að léttir yrði nokkur. Ef einhver var með mér, reyndi ég að láta sem minnst bera á suðinu og leitaði lags með að snúa mér undan, á meðan ég tók djúpu andartökin, því þá lét hæst í sogunum... Suðið og sogið voru meiri í köldu veðri en hlýju. Þegar ég gekk á jafnsléttu með skaplegum hraða kenndi ég venjulega engrar mæði og ekki heldur, þótt ég hlypi stutta spretti. I fylgd með þessari óskiljanlegu og ólæknandi mæði- veiki var almennt pastursleysi og linka... Þegar ég var kominn undir fermingu, fór mæðin að smáréna... og þegar ég var sextán til seytján ára mátti heita, að ég væri nokkurn veginn albata." ( Steinarnir tala, 6 kafli, Helgafell 1956). Því er þessi frásögn meistara Þór- bergs rifjuð hér upp að tæplega verður annars staðar fundin betri lýsing á ungbamaastma og síðan áreynsluastma, sem er algengasta form astma á barnaskólaaldri og fram yfir kynþroskaaldur. I þéttbýl- inu er ofnæmi fyrir dýram eða ryk- mauram oftast orsök áreynsluastma en heymauraofnæmi í sveitunum. Skyldu böm okkar tíma reyna að láta sem minnst bera á suðinu eins og drengurinn á Hala á sínum tíma? Það er utan við efni þessa greinar- koms að segja frá því að Þórbergur vissi aldrei hvað að honum gekk í æsku. Hann sagði herbergisfélaga sínum veikindasögu sína og sá kvað upp úr með það, að þetta myndi hafa verið hjartabilun. Meistari Þórberg- ur bar mikið traust til dómgi’eindar þessa félaga síns. Því gekk hann með þá grillu, að hann væri alvar- lega hjartabilaður. A síðustu þremur áratugum hafa orðið stórstígar framfarir í meðferð á astma og heyrir það fremur til undantekninga ef sjúkdómurinn leiðir til verulegs heilsubrests og ör- orku. Astmi er hins vegar mjög al- gengur sjúkdómur. Á íslandi er talið að 5% fullorðinna hafi sjúkdóminn en meðal barna er hann miklu al- gengari. I nýlegri könnun, sem birt var í Læknablaðinu, eru 28% fjög- urra ára barna talin með astma og 13% átta ára barna. Þótt astminn sé vægur í langflestum tilfellum getur hann þó háð börnum í skóla og vald- ið félagslegri einangi-un. En með ár- vekni foreldra og kennara er þó hægt að forða börnum frá þeirri erf- iðu lífsreynslu sem varð hlutskipti drengsins úr Suðursveit. Höfundur eryfírlæknir á Vífílsstöð- um, sérfræðingur í lyflækningum og ofnæmissjúkdómum. Endurtekur sagan sig? VATNASKIL núm- er tvö urðu í starf- semi Alþýðusamtak- anna síðastliðinn þriðjudag en þá geystist fram á rit- völlinn helsti vonbið- illinn um starf forseta ASÍ, Ari Skúlason. í góðæri undanfarinna ára hefur heldur lítið heyrst frá þeim ASI- mönnum og því merkilegra mun það teljast og tekur í hnúkana að margra viti þegar verklýðs- frömuður telur það standa sér næst að senda tóninn öðrum launamönnum í landinu og hafa af því þungar áhyggjur hvað þeir kunni að bera úr býtum í harðri launadeilu. Grein Ara er merkileg í ljósi sögu síðustu tíu ára. Verðandi vonbiðlinum skal bent á það að vatnskil númer eitt í sögu Álþýðu- samtakanna urðu á árinu 1990 þeg- ar sett voru bráðabirgðalög á kjarasamninga sem háskólamennt- aðir ríkisstarfsmenn, þ.m.t. kenn- arar, gerðu á árinu 1989. Þessi lög, sem voru afar umdeild og harðlega fordæmd af öðrum núverandi stjórnarflokknum, voru sett á launamenn hjá ríkinu fyrir þrýst- ing, aðallega frá ASÍ, sem taldi eigin samninga í bráðri hættu ef sanngjörn leiðrétting til háskóla- manna næði fram að ganga. Þótti þá mörgum að nýr kafli hæfist í sögu launabaráttunnar. Það er ómaksins vert að varpa fyrrgreindu sögulegu ljósi, svona í framhjáhlaupi, að hetjum þeim sem stóðu fyrir bráðabirgðagjörn- ingnum árið 1990 en eftir það áttu þeir það sameiginlegt með mann- inum sem gekk á vatninu að vegir þeirra urðu órannsak- anlegir. Þeim, sem fremstur fór í flokki, hefur nú verið lyft upp í æðsta embætti þjóðarinnar, þar sem hann nú talar fjálg- lega til þingmanna um gildi menntunar, og meðreiðarsveini hans, þáverandi mennta- málaráðherra, hefur hlotnast sá fáheyrði frami að vera skipað- ur sendiherra í ríki nokkru í vestri án þess að nokkur þar í landi færi fram á það. Embættisveitingin er glöggt dæmi um það hve hugsjónir mega sín lít- ils í íslensku vinasamfélagi sam- Kennarar Ýmsir kunna að þurfa að eyða kröftum sínum í annað, segir Árni Hermannsson, en að fjargviðrast út í kennarastétt landsins. tryggingarinnar því sá, sem sendi- herrann skipaði, er núverandi forsætisráðherra. (Svo undrast ráðamenn virðingarleysi þegnanna fyrir stjórnmálamönnum!) Sá, sem ákafast gelti að kennurum árið 1990, skipaði þá það embætti, sem Ari Skúlason sækist nú eftir, og sá hinn sami er nú orðinn bankaframkvæmdastjóri. Þar sem sagan endurtekur sig í sífellu má Árni Hermannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.