Morgunblaðið - 14.11.2000, Qupperneq 58
j68 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Hver er þungamiðjan f starfí Landssambands hestamannafélaga?
* Togast á um
sjónarmið
keppni og
útreiða
Umræðan um áherslur í starfsemi Lands-
sambands hestamannafélaga hefur verið
áberandi undanfarið. Togast þar á sjónar-
mið keppnismanna og hins almenna út-
reiðarmanns og spyrja margir í síðarnefnda
hópnum hvað samtökin geri fyrir þá.
^ Valdimar Kristinsson kannaði innviði LH í
fróðlegu samtali við Sigrúnu Ögmundsdótt-
ur skrifstofustjóra og Sigrúnu Qlafsdóttur,
gjaldkera stjórnar.
OFT HEYRAST gagnrýnisraddir
um skrifstofu LH, þar sem sagt er að
þetta sé allt of dýr rekstur sem litlu
skili til aðildarfélaganna eða hins al-
menna félagsmanns. Þær nöfnur
-cvoru sammála um að margt af því
sem unnið er á skrifstofunni væri
ekki vel sýnilegt fyrir hestamenn víða
um land, Sigrún gjaldkeri sagðist
alltaf undrast þegar hún kæmi á
skrifstofuna og hún gerði sér grein
fyrir hversu margþætt starfsemin
væri.
En af þeim verkum sem unnin
væru á skrifstofunni Sigrún
skrifstofustjóri að fyrst væri að nefna
daglegan rekstur skrifstofunnar og
samtakanna. Síðan mætti tína til ým-
is árstíðabundin verkefni eins og und-
irbúning fyrir ársþing samtakanna.
Þar inn í er gerð ársskýrslu bæði frá
stjóm og nefndum og sagði Sigrún að
mjög mæddi oft á skrifstofunni við
gerð þeirra. Þá þarf að flokka inn-
sendar tillögur, fjölfalda þær og
senda til þingfulltrúa og stjórnar-
manna. Sagði Sigrún það myndi létta
talsvert á skrifstofunni að fækka
þingum þannig að þau yrðu haldin
annað hvert ár. Þá tæki undirbúning-
ur stjómarfunda nokkurn tíma, öflun
upplýsinga fyrir fundina og bréfa-
skriftir væm alltaf nokkrar fyrir og
eftir fundina. Sama gilti um nefndar-
fundi sem oftast em haldnir í húsa-
kynnum samtakanna.
Reiðvegamálin tímafrekust
Þá hefur samstarf við ÍSÍ verið
töluvert við að ganga frá inngöngu
ýmissa hestamannafélaga í íþrótta-
hreyfinguna, að fínpússa lög og
reglur félaganna og koma hlutum í
það horf sem þeir eiga að vera í.
Þá nefndi hún að reiðvegamál
hefðu verið einn af tímafrekustu
málaflokkunum í starfsemi samtak-
anna og einn stærsti pósturinn. Þar
væri um að ræða að taka á móti um-
sóknum um reiðvegafé og ganga frá
úthlutun. Mikill tími fer í símtöl þar
sem veittar em upplýsingar um eitt
í brekkunni á landsmóti situr saman keppnis- og útreiðarfólk sátt og glatt með glæstar sýningar en með skiptar
skoðanir á því á hvaða málaflokka hestamennskunnar ber að leggja mesta áherslu.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Innan stjórnar LH er gott jafnvægi hvað varðar arma keppninnar og almenningsútreiðanna. Flestir stjómar-
manna hafa komið nálægft keppni en allir eru um leið útreiðarfólk sem einnig stundar ferðalög.
og annað er varðar umsóknir og út-
hlutun reiðvegafjárins.
Skrifstofan heldur síðan utan um
gerð mótaskrár LH, vinnu sem er
meira og minna uppi á borðum í tvo til
þijá mánuði.
Á sumrin færi talsverður tími í að-
stoð við aganefnd LH, þar þyrfti að
afla ýmissa gagna sem er að mestu
leyti í höndum skrifstofu, ná í menn
er málin varða og boða fundina. I
sumar hefði starfíð verið óvenjuanna-
samt því ein 24 mál bárust nefndinni
sem er mikil fjölgun frá fyrri árum.
Þá héldi skrifstofan utan um málefni
beggja dómarafélaganna. Nefndi hún
sem dæmi að ef dómarar forfallast á
síðustu dögum fyrir mót væri oftar en
ekki hringt á skrifstofuna sem hefði
þá milligöngu um að fmna lausn. Á
skrifstofunni væru fáanlegar allar
Morgunblaðið
leggur
fiminni lið
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Gustur
yg Morgunblaðið munu í febrúar
standa saman að fimimóti þar sem
einvörðungu verður keppt í fimi-
æfingum. Dagsetning mótsins hef-
ur ekki verið ákveðin en líklegast
verður um að ræða fyrstu eða
þriðju helgina í febrúar. Mótið
verður haldið í reiðhöll Gusts í
Glaðheimum og er gert ráð fyrir
að það standi yfir í einn dag.
Keppni í fimi hefur átt mjög f
vök að verjast og telst til undan-
tekninga að keppt sé í greininni á
mótum. Helst er að þátttaka náist
á íslandsmótum en oftast er þar
fáa keppendur að ræða. Mörg-
um þykir þetta dapurleg þróun
þar sem mikilvægt gildi góðra
fimiæfinga til uppbyggingar á
reiðhesti er aimennt viðurkennt.
Hér áður fyrr var talið að fimiæf-
ingar eða hlýðniæfingar eins og
þær voru kallaðar hefðu í sjálfu
sér ekki mikinn tilgang í þjálfun
jgpg uppbyggingu fslensks töltara
og því síður að þær hefðu ein-
hvern hagnýtan tilgang við þjálf-
un skeiðs. Hér væri fyrst og
fremst um að ræða keppnisgrein
fyrir stóra þriggja gangtegunda
hesta en finna mætti einn og einn
islenskan hest sem hentaði vel til
þessarar iðju.
Síðar hafa fimiæfingar fyrir ís-
lenska hesta þróast og í dag tekur
fimikeppni sú sem keppt er í á ís-
lenskum hestum mun meira mið
af upplagi og hæfileikum hans.
Sem dæmi má nefna að hér áður
fyrr völdu knapar að ríða annað-
hvort tölt eða brokk en í dag eru
gerðar kröfur um báðar þessar
gangtegundir en auk þess stökk
og fet eins og áður var.
Með stöðugt fjölgandi reiðhöll-
um eða reiðskemmum vfða um
Iand er talið tfmabært að ýta und-
ir iðkun þessara æfinga. Haustið
eða fyrri hluti vetrar er góður
tími til að byggja reiðhestinn upp
með liðkandi og safnandi æfing-
um. Þær geta aukið næmi hestsins
sem og knapans, gefa knapanum
Morgunblaðið/V aldimar
Núverandi ísiandsmeistari í fimikeppni, Eyjólfur ísólfsson á Rás frá Ragnheiðarstöðum, fær nú gott tækifæri til
að sýna snilli sína ásamt fjölda annarra unnenda fimiæfinga.
betur færi á að stilla hestinn rétt
fyrir gangtegundirnar. Þá styrkja
rétt útfærðar æfingar bakvöðva
og vöðva í afturparti hestsins og
er það öðru fremur hið hagnýt-
asta fyrir gangtegundaþjálfun.
Fimikeppni er út af fyrir sig
skemmtilegt og gagnlegt við-
fangsefni en segja má þó að aðal-
atriðið sé að fimiæfingar f þjálfun
verði almennt stundaðar. Slfkt
stuðlar mjög að framförum og
gefur af sér hugsandi reiðmenn
með skiining á verkefnunum.
Keppnin sem slík getur verið mik-
ilvægt tæki til að auka áhugann
og f framhaldinu skilning á gildi
og gagnsemi fimiæfinga. Aukin
ástundun fimiæfinga mun einnig
leiða til þess að nýting og nota-
gildi alls þess fjölda reiðhalla sem
risnar eru mun aukast.
Skipuð hefur verið þriggja
manna undirbúningsnefnd fyrir
mótið en í henni eru Pjetur Pjet-
ursson, Hulda Geirsdóttir og
Valdimar Kristinsson. Fyrirkomu-
lag mótsins í smáu og stóru verð-
ur kynnt á hestasíðunni jafnharð-
an og ákvarðanir verða teknar.
Þá verður fram að móti birt ýmis-
konar fræðsluefni um fimikeppni.
En nú er sem sagt tímabært að
sækja góðan, fiman hest f hagann,
járna hann og hefja undirbúning
fyrir mótið. Keppt verður í þrem-
ur styrkleikaflokkum og mikil
áhersla lögð á að laða til keppn-
innar þá sem teljast til almennra
útreiðarmanna ekki sfður en að fá
fremstu reiðmenn landsins til þess
að sýna listir sfnar.