Morgunblaðið - 14.11.2000, Síða 62
MORGUNBLAÐIÐ
62 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
MINNINGAR
+
Ástkær eiginkona mín,
MARÍA INDRIÐADÓTTIR,
Borgartúni,
Ljósavatnshreppi,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 12. nóvember.
Arnór Benediktsson.
+
Ástkær sambýlismaður minn,
HELGI ÖRN FREDERIKSEN
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju fimmtu-
daginn 16. nóvember kl. 15.00.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda,
Ester Elín Bjarnadóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir,
STEFANÍA Þ. ÁRNADÓTTIR,
Ægisíðu 46,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 7. nóvember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 15. nóvember kl. 13.30.
Guðrún Inga Bjarnadóttir,
Árni Þór Bjarnason, Ásdís A. Þorsteinsdóttir,
Gunnar Viðar Bjarnason, María Elíasdóttir,
Birgir Sveinn Bjarnason, Kristín Porter,
Stefán Bragi Bjarnason, Iðunn Bragadóttir,
barnabörn og systur.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar móður minnar, tengdamóður, ömmu
og systur,
UNNAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Bolungarvík,
Hagamel 31,
Reykjavík.
Sérstakar þakkirtil starfsfólks á Felli, Skipholti 21, Reykjavík, og lungna-
deildar Landspítala Vífilsstöðum, fyrir einstaka alúð og umhyggju.
Sigurður Viggó Kristjánsson, Svanhildur Svavarsdóttir,
Kristján Sigurðsson, Inga Valsdóttir,
Svandís Unnur Sigurðardóttir
og systkini.
+
Innilegar þakkir sendum við ykkur öllum, sem
sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför
BJARNHEIÐAR GISSURARDÓTTUR,
Stórási 9,
Garðabæ.
Gísli Ólafsson,
Sigrún Gísladóttir,
Hjördís Gísladóttir.
+
Þökkum hlýjar kveðjur og samúð við andlát og
útför
HELGA ÞORLÁKSSONAR
fyrrverandi skólastjóra.
Sérstakar þakkir til Langholtssöfnuðar, kirkju-
kórs og organista.
Gunnþóra Kristmundsdóttir,
Þorkell Helgason, Helga Ingólfsdóttir,
Þorsteinn Helgason, Guðlaug Magnúsdóttir,
Þorlákur H. Helgason, Kristjana Sigmundsdóttir,
Þorvaldur Karl Helgason, Þóra Kristinsdóttir,
Þorgeir S. Helgason, Laufey Tryggvadóttir,
Þóra Elín Helgadóttir, Einar Bragi Indriðason,
barnabörn og barnabarnabörn.
ELÍAS
ARNLA UGSSON
+ Elías Arnlaugs-
son fæddist í
Reykjavfk 8. nóvem-
ber 1925. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu 4. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Arnlaugur Ólafsson,
bóndi og verkamað-
ur, f. 8.8. 1888, og
Guðrún Guðmun-
dsdóttir, f. 6.9.
1884. Elías var
næstyngstur í hópi
átta systkina: Guð-
mundur, f. 1.9.
1913, d. 9.11. 1996; Skúli, f. 30.9.
1916, d. 8.6. 1917; Sigríður, f.
18.1. 1918; Ólafur, f. 2.3. 1920, d.
28.11. 1984; María, f. 19.6. 1921;
Helgi, f. 17.3. 1923; Hanna, f.
29.7. 1928, d. 13.1. 1984.
Hinn 9.4. 1949 kvæntist Elías
eftirlifandi konu sinni, Gyðu
Guðnadóttur, f. 9.11. 1926. Börn
þeirra eru: 1) Jórunn Rannveig, f.
29.10. 1947, giftist
3.3. 1967 Sigurði Má
Davíðssyni, f. 5.9.
1944. Þau fórust í
flugslysi 15.7. 1973.
Börn þeirra eru Dav-
íð, f. 19.11. 1964 og
Helga Guðný, f. 9.7.
1968, þau ólust upp
hjá ömmu sinni og
afa þaðan í frá. Son-
ur Davíðs er Sigurð-
ur Már, f. 26.9. 1984,
sambýliskona hans er
Þorbjörg Yngvadótt,-
ir, f. 22.2. 1973.
Helga Guðný giftist
30.9. 1995 Jóni Hauki Ingvasyni,
f. 21.4. 1969. 2) Erna, f. 9.8. 1949,
giftist 1.5. 1971 Gunnari E. Hubn-
er, f. 3.10. 1949. Synir þeirra eru
Helgi Már, f. 17.4. 1974, Reynir
Þór, f. 31.5. 1976, og Egill Árni, f.
17.3. 1979. 3) Helgi, f. 3.10. 1950.
Helgi lést af slysförum 22.3.
1968. 4) Guðrún, f. 8.3. 1954, gift-
ist 18.4. 1981 Agnari Kofoed-
Hansen, f. 7.4. 1956. Þau eru skil-
in. Börn þeirra eru Agnar Eld-
berg, f. 29.12. 1980, Emelía
Björg, f. 30.1. 1985 og Elías
Helgi, f. 8.5. 1991. 5) Ingvar, f.
23.5. 1958, á Elías Rúnar, f. 10.2.
1977, og Önnu Guðmundu, f 23.2.
1979. Ingvar kvæntist 29.5. 1982
Sigríði J. Sigurðardóttur, f. 24.9.
1955. Börn þeirra eru Hildur
Sjöfn, f. 23.2. 1976, Davíð Örn, f.
2.3. 1983, og Sigríður Sara, f.
13.7. 1992. 6) Guðni, f. 30.1. 1961,
kvæntist 1.12. 1981, Sigrúnu
Kristjánsdóttur, f. 24.1. 1962.
Þau skildu. Börn þeirra eru
Kristján Már, f. 5.9. 1981, Gyða
og Jón Óskar, f. 21.12. 1982.
Guðni kvæntist 21.6. 1997 Álf-
hildi Guðbjartsdóttur, f. 7.7.
1972, og eiga þau Birtu Dögg, f.
23.10. 1999. 7) Rósa Þórey, f. 9.7.
1964. Sonur hennar er Jökull
Logi Arnarsson, f. 23.6. 1992.
Elías lærði bifvélavirkjun og
starfaði við þá iðn lengst af en
gerðist síðan kennari við Iðnskól-
ann í Reykjavík þar sem hann
kenndi 18 vetur eða þar til hann
fór á eftirlaun.
Útför Elíasar fer fram frá Há-
teigskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 15.
Elsku pabbi minn. Um huga minn
sveima margar minningar sem ég hef
átt með þér, frá því að ég var lítil
stelpa, hvað þú varst skilningsríkur
ef eitthvað bjátaði á, alltaf varst þú
tilbúinn að hugga mann og hjálpa ef
þú mögulega gast. Ég man þær
stundir er mömmu var faríð að lengja
eftir þér í matinn á Rauðalæk, þá átti
hún til með að segja greyið mitt
Gunna farðu og sæktu hann pabba
þinn út á verkstæði. Þetta lýsir hon-
um, hann var alltaf út í skúr eitthvað
að dútla við bíla eða bara í vinnunni,
honum var ekki tamt orðið Nei ef ein-
hver bað hann um aðstoð.
Sjaldan tók hann sér sumarfrí en
hann gaf sér þó tíma til að heimsækja
mig til Danmerkur þegar ég bjó þar,
það voru yndislegar tvær vikur. Agn-
ar Eldberg fékk að fara í bílana í Tív-
olí með afa og ekki veit ég hvor
skemmti sér meir.
Elsku pabbi minn, ég þakka þér
fyrir alla þá hughreystingu sem þú
hefur sýnt mér í sumar þegar ég átti
um sárt að binda, það eru ófá símtölin
sem fóru á milli okkar, það var eins
og þú fyndir á þér þegar mér leið illa,
þá hringdir þú og spurðir hvort ekki
væri allt í lagi eða hvað ég væri að
gera?
Elsku mamma, þú sem ert alltaf
svo sterk, ég vona að guð gefi okkur
Varanleg
minning
er meitluð
ístein.
m S.HELGASONHF
STEINSMIÐJA
Skemmuvegi 48, 200 Kóp.
Sími: 557-6677 Fax: 557-8410
Netfang: sh.stone@vortex.is
öllum styrk til að horfa fram á við
eins og pabbi gerði, sá ljósu hliðarnar
á öllu.
Ég þakka þér fyrir allt, elsku
pabbi minn.
Þín dóttir,
Guðrún.
Enginn veit sína ævi fyrr en öll er,
ef það er dæmigert fyrir einhvem þá
var það fyrir þig eða eins og þú sagð-
ir; maður lifir bara einu sinni.
Ég kynntist þér fyrst, sem Ella
pabba hennar Gunnu, þegar við
Gunna urðum góðar vinkonur 16 og
17 ára gamlar heima á Hellu. Einu
sinni sem oftar þurftum við að fá lán-
aðan bíl því ferðinni var heitið upp í
Hraunteig um hvítasunnuhelgi. Elli
og Gyða áttu þá stóran amerískan bíl
eins og svo oft síðar og var það mikið
atriði fyrir okkur að fá hann lánaðan
til fararinnar. Þessa helgi átti að
ferma bróður Gunnu og hún átti að
hjálpa til við undirbúninginn og
ferminguna sjálfa svo þetta var nú
ekki auðsótt mál. Þú skildir okkur vel
og það varð úr að þú lánaðir okkur
bílinn og Gunna fékk fararleyfi. Það
var nóg fyrir mig til að fá leyfi til
ferðarinnar að ég var með dóttur
Ella og Gyðu. Það sem ég dáðist
strax að var hvað þú varst bóngóður
og hlýr maður, þú gast alltaf galdrað
upp einhver úi-ræði.
Það var ekki algengt í þá daga að
karlmenn sinntu heimilisstörfum
með konunni en ósjaldan þegar ég
kom heim til Gunnu, komst þú heim í
hádeginu og varst þá að hjálpa til við
matargerð eða önnur heimilisstörf. Á
þessum árum varst þú verkstæðis-
formaður hjá Kaupfélaginu Þór á
Hellu og varst afskaplega vel liðinn
af bændum, sem þurftu að leita eftir
þjónustu til þín með sínar vélar, oft
með litlum fyrirvara og alltaf varstu
tilbúinn að finna leið út úr þeirra
vanda jafnvel þótt vinnudagurinn
væri á enda eða komin helgi. Þetta
hefur nú örugglega bitnað á henni
tengdamóður minni með sinn stóra
bamahóp en hún vissi að þú hafði
RÁÐHÚSBLÓM
Opiii frá kl. 10-21 alla áaga.
mikið yndi af því að umgangast og
vinna með bændum.
Þegar ég síðar giftist syni þínum
Ingvari, en það var sá sem var að
fermast um hvítasunnuhelgina
forðum, fékk ég tækifæri til að eiga
svolítið í þér og er mjög stolt af.
Núna fyrir tveimur árum eða u.þ.b.
26 árum eftir fyrmefnda hvítasunnu
voram við Gunna ásamt fleiram aftur
saman komnar hjá þér að hjálpa þér
við að mála húsið Bjarg á Stokkseyri
en það að ráðast í að festa kaup á
þessu húsi og gera það upp lýsir best
þeim dugnaði og eljusemi sem þú og
Gyða bjugguð yfir. Það að þú værir
að færast of mikið í fang eða réðir
ekki við þetta eða hitt, ég held að sú
hugsun hafi ekki verið til í þinni orða-
bók. Alltaf varstu boðinn og búinn að
hjálpa okkur ef eitthvað bjátaði á og
þau era ófá símtölin frá þér og Gyðu
þar sem þú vildir bara vita hvort ekki
væri allt í lagi. Þú varst kletturinn í
fjölskyldunni, sem allir treystu á og
gátu alltaf gengið að vísum, en nú
ertu farinn í þína síðustu ferð. Elsku
Gyða mín, missir þinn er þó mestur.
Ég kveð ég þig með söknuði og
þakka þér fyrir öll árin.
Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
semégfæekkibreýtt
kjark til að breyta því
seméggetbreyttog
vit til að greina þar á milli.
Þín tengdadóttir,
Sigríður (Sirrý).
Minningamar hrannast upp þegar
ég hugsa til tengdaföður míns. Þegar
ég var að fá hjálp hans við að halda
bílnum mínum gangfæram eða fá ráð
hjá honum vegna hverskyns vanda-
mála. Elli var einstaklega þolinmóð-
ur við mig og hjálpsemi hans átti sér
engin takmörk. Hann var skarp-
greindur, athugull og fróður, hafði
ráð undir rifi hveiju og var alltaf til-
búinn að leysa úr hvers manns vanda.
Elli var einstaklega vinnusamur
maður. Hann vann á mörgum vinnu-
stöðum um ævina og var hvarvetna
mikils metinn og vinsæll meðal sinna
samferðamanna. Hann kunni vel að
meta góða skemmtun og gat verið
hrókur alls fagnaðar þegar sá gállinn
var á honum en yfirleitt var hann
samt rólegur og yfirvegaður. Ég átti
því láni að fagna að daginn sem hann
dó ræddum við lengi saman. Mér
fannst liggja sérlega vel á Ella og það
var ljúft samtal. Honum virtist líða
vel og var ánægður með alla hluti.
Fegurð fjallahringsins var honum
hugleikin og þennan dag þegar sól
glampaði á hvíta kolla, var sú fegurð
sem aldrei íyrr. Hann var rétt að
verða búinn að gera upp bílinn, sem
var í bílskúmum og hann lýsti fyrir
mér, með glampa í augum, hvað hann
væri búmn að gera við hann. Og hús-
ið hans, Bjarg, hefur tekið algjöram
stakkaskiptum frá því þau hjónin
BAIUKASTRÆTI 4 SÍIVII SS1 6690