Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 63

Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 63 eignuðust það og ber nú glögg merki um elju, lagni og útsjónarsemi hús- bóndans. Ég þakka samfylgd góðs vinar í yf- ir30 ár. Gunnar E. Hiibner. Elsku afi minn, með söknuð í hjarta kveð ég þig og trúi þvi að þú breiðir vængi þína yfir mig eins og englarnir. Ég vil þakka þér fyrir allt það góða sem þú kenndir mér og allar góðu stundirnar sem þú veittir mér frá því ég kom til ykkar ömmu. Blessuð sé minning þín og guð geymi þig. Dýpsta sæla og sorgin þunga Svífa hijóðlaust yfir storð. Þeirra mál ei talar tunga, Tárinerubeggjaohi (ÓlðfSigurðardóttir.) Þín Helga Guðný. Það var einkennileg tilfinning, sem um okkur fór, þegar okkur barst fréttin um andlát Elíasar Amlaugs- sonar. Okkur setti hljóð. Það var stutt síðan Elías kom í heimsókn og drakk kaffi með okkur. Hann var að koma úr hjartaskoðun og fékk góða úrlausn. Það var alls ekki í huga okk- ar að þetta væri í síðasta skiptið sem við sæjum Elías ofar moldu, en svona er lífið og tilveran. Elías andaðist á heimili sínu laugardaginn 4. nóvem- ber og verður jarðsettur í dag. Það eru rúmlega fimmtíu ár síðan kynni okkar hófust. Við kvæntumst hvor sinni systurinni og hafa fjöl- skyldur okkar verið sérstaklega sam- rýmdar alla tíð, bæði í blíðu og stríðu. Elías og Gyða gengu í hjónaband árið 1949 og hófu búskap við Seljaveg hér í borg. I tímans rás eignuðust þau sjö böm og ólu upp tvö barnabörn. Þau misstu tvö bama sinna af slys- föram. Þetta vora erfiðir og sár- saukafullir tímar hjá fjölskyldunni, en lífið heldur áfram og margar vora ánægjustundimar og oft glatt á hjalla hjá stórri fjölskyldu, að minnsta kosti naut dóttir okkar þess að dvelja hjá þeim ágætu hjónum og alltaf var rúm fyrir einn í viðbót enda vora þau hjón miklar bamagælur og húsmóðirin sérstaklega lagin við að búa íjolskyldu sinni fallegt og aðlað- andi heimili. Elías var vinnusamur alla tíð, lærði ungur að áram bifvélavirkjun og starfaði sem slíkur í áraraðir, gerðist síðan kennari við Iðnskólann í Reykjavík og kenndi þar bifvélavirkj- un fram að 67 ára aldri er hann varð að hætta vegna aldurs. Auk þess að vera frábær bifvélavirki var Elías sérstaklega handlaginn maður, eink- um við trésmíðar og annað, sem þurfti viðgerðar við á heimilinu. Það kom berlega í ljós þegar þau hjón keyptu húsið Bjarg á Stokkseyri fyr- ir nokkram árum. Þar þurfti að taka til hendi og kom þá iðni og lagni El- íasar að góðum notum. Greiðvikni og hjálpsemi var Elíasi í blóð borin og þeir era margir, sem leitað hafa til hans í gegnum tíðina, þegar svo bar við. I dag kveðjum við með söknuði góðan vin og félaga í.gegnum tíðina, en minningin mun lifa. Við flytjum eftirlifandi eiginkonu hans, Gyðu, og fjölskyldu okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Biðjum góðan Guð að styrkja þau í sorg sinni. Þórður, Svana, Guðrún og fjölskylda. Það er skammt stórra högga í milli þetta árið í kennarahópnum sem kom til starfa í verknámsdeildum Iðnskól- ans í Reykjavík á áttunda áratugn- um. Nú síðast varð Elías Amlaugs- son, kennari í bifvélavirkjun, bráðkvaddur á heimih sínu á Stokks- eyri. Elías hóf kennslustarf í bifreiða- deildinni við skólann þegar stórhuga menn höfðu stuðlað að því að verkleg kennsla yrði tekin upp í iðngreininni til viðbótar bóklegri kennslu sem einnig var aukin til muna. Elías var ágætur fagmaður og naut þess við hvort tveggja verklega og bóklega kennslu. Það fór hins vegar svo að hann sinnti meira því síðarnefnda þai- sem saman fóra góðir hæfileikar til að útskýra flókna hluti á einfaldan hátt og þolinmæði við nemendur sem sumum var hentara að nota hendurn- ar til að skrúfa en að sitja við skriftir. Þegar Elías kom til starfa voru náms- bækur af skornum skammti og þær sem buðust á erlendum tungumálum. Hann gerði sér þá lítið fyrir og snar- aði bókinni á íslensku og var hún not- uð í handriti um nokkurra ára skeið. Handrit hér merkir að fyrst í stað var bókin skrifuð með fallegri rithönd El- íasar sem vandalaust var fyrir alla að lesa. Þessi bók er ennþá notuð og grannur hennar er þýðing Elíasar. Fleira námsefni útbjó Elías, m.a. námsefni í iðnreikningi sem notað var meðan kennsla í bfiiðnum var í Iðn- skólanum. Margir nemendur sem áttu í námserfiðleikum leituðu að- stoðar hjá Ella og varð oft af því vin- skapur sem enst hefur til þessa dags. Við samkennarar Ella fengum þó mest því hann var sérstaklega félags- lyndur maður og skemmtilegur, jafn- lyndur og hafði oft gamanmál á hrað- bergi. Margir kennaranna við skólann áttu hauk í horni þar sem Elli var með ráðleggingar vai’ðandi bfla eða viðgerðir ef svo bar undir og sjaldnast var rætt um peninga í þeim viðskiptum. Elías var stéttvís maður og gegndi starfi trúnaðarmanns fyrir Kennarasambandið um margra ára skeið. Við vinnufélagar, samkennarar og vinir minnumst góðu áranna sem við áttum með Elíasi í Iðnskólanum í Reykjavík með þakklæti. Gyðu, eftir- lifandi eiginkonu Ella, vottum við samúð okkar og óskum að almættið gefi henni styrk á þessum erfiðu tím- um. Félagar úr Iðnskólanum í Reykjavík og Borgarholtsskólanum. Elías Amlaugsson var kennari í Iðnskólanum í Reykjavík um margra ára skeið, eða frá 1977. Hann var meðalmaður á hæð, með mikið hvítt hár sem fór honum vel. Hann var manna kurteisastur og hægverskastur. Oft var grannt á glettni og gamansemi. Elías var hið mesta göfugmenni og vinsæll meðal nemenda og samstarfsmanna sem Guðmundur, fyrsti rektor Mennta- skólans við Hamrahlíð, bróðir hans, var. I daglegu fasi minnti hann að ýmsu leyti á göfugan enskan lávarð. Hann var bæði fróður og áhugasam- ur varðandi allt sem laut að kennslu og fræðslu í sérgrein hans, vélfræði og bifreiðafræðum. Manna hjálpsam- astur, bóngóður og úrræðagóður, búinn öllum þeim kostum sem piýða má góðan kennara. Undirritaður varð fljótlega dálítið málkunnugur Elíasi eftir að eg hóf starf haustið 1994 við bókasafn skól- ans. Áður hafði eg kynnst ögn Guð- mundi bróður hans meðan eg stund- aði nám við MH og lauk stúd- entsprófi þaðan vorið 1972. Fljótlega eftir eg var kominn í hóp starfs- manna skólans var eg kynntur fyrir Eh'asi með þeim orðum að þar færi bróðir rektorsins í MH. Meira þurfti ekki að segja, því fljótlega kom í Ijós, að mannkostir þessara beggja bræðra vora mjög áþekkir. Þessi vetur, 1994-95, var að eg best veit síðasti heili veturinn sem Elías kenndi við skólann. Það var verkfallsvetur og reyndi töluvert á þolrif og hug kennara, nemenda sem starfsmanna skólans. Næsta sumar tók Elías að sér verkefni í sumamám- skeiði sem skólinn hélt þá um suma- rið í samvinnu við Reykjavíkurborg. Var námskeið það sem Élías hafði á sínum snærum tengt sérgrein hans, bflum og viðhaldi þeirra. Var það einkum ætlað unglingum sem ekki höfðu af einhverjum ástæðum orðið sér úti um sumarvinnu en nokkurt at- vinnuleysi var meðal skólafólks á þessum árum. Elías kom að máli við mig áður en námskeiðið hófst, bað mig um að útvega á sem hagkvæma- stan hátt 30 eintök af bók einni og fjallaði um viðhald og umhirðu bíla. Éftir nokkuð margar símhringingar til bókfróðra kollega eða um 4 horn eins og Þjóðvetjar nefna svo, hafði eg upp á verslun sem höndlaði með gamlar bókaleifar. Eintökin fengust á eins góðum kjöram eins og mögu- legt var og ekkert því til fyrirstöðu að Elías gæti hafið kennsluna. Fengu allir nemendurnir eintak í hendur og ætlast var til þess, að þeir skiluðu bókunum aftur í hendur kennarans til þess að unnt væri að nota þær aft- ur. Margir nemendur týndu tölunni á námskeiði þessu, vora komnir í vinnu eða nenntu ekki að sækja námskeið- ið. Meðal nemenda vora því ýmsir sem ekki vora sérlega hirðusamir og urðu heimtur á bókunum fremur slæmar í lok námskeiðsins. Þeim sem er trúað fyrir bókum, eru misjafnir eins og gengur. Bókamönnum er annt um bækur og má vísa til frá- sagnarinnar um Ingimund prest í Sturlungu. Við ræddum nokkram sinnum hvernig við gætum rakkað inn þessar bækur en svo fór að lok- um, að hætt var frekar við þá iðju enda árangur lítill en fyrirhöfnin þess meiri. Urðum við sammála um, að vonandi yrðu bækumar þessum brotthlaupnu nemendum þó að ein- hverju gagni í framtíðinni og þar með varþaðútrættmál. Eftir að Elías lauk störfum við Iðn- skólann vegna aldurs, var orðinn lög- legt gamalmenni eins og hann tók sjálfur einhvern tíma til orða á sinn alkunna gamansama hátt, hafði hann þann vana að koma í heimsókn á kaffi- og matstofu kennara og hitta gamla starfsfélaga sem enn vora ekki orðnir að löglegum gamalmennum. Ætíð var gaman og fróðlegt að ræða við hann. Síðast kom hann í heimsókn á kaffistofuna tveim dögum áður en hann hnaut niður örendur austur á Stokkseyri þangað sem hann hafði flutt fyrir nokkni þar sem hann hugðist dvelja í elli sinni. Aðstandendum er vottuð innileg samúð. Þakkað er samstarf við góðan dreng. Við eigum góðar minningar í huga okkar um góðan samferða- mann. Guðjón Jensson. Frágangur afmælis- og minning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í texta- meðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvu- pósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúm- er höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakl- ing birtist formáli, ein uppi- stöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama ein- stakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínu- bil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálk- sentimetra í blaðinu). Tilvitn- anir í sálma eða Ijóð takmark- ast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinun- um. GARÐH EIMAR BLÓMABÚÐ STEKKJAKBAKKA 6 SÍMI 540 3320 h H H H H H Erfisdrykkjur ¥■- P E R L A N Sími 562 0200 □ljlxxixxxiijxjlxxxjC JÚLÍUS J.B. DANÍELSSON + Júlfus J.B. Dan- íelsson útgerðar- maður fæddist í Garðabæ 27. ágúst 1910. Hann lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 6. núvember síð- astliðinn og fér útför hans fram frá Grindavíkurkirkju 11. nóvember. Jarð- sett var frá Utskálakirkjugarði. Mig langar í örfáum orðum að minnast tengdaföður míns. Þegar ég kom fyrst til Grindavíkur fyrir rúmum fjöratíu árum, tóku á móti mér elskuleg hjón. Það vora þau Júlli og Sigga í Brautarholti. Þau reyndust mér og okkur öllum yndislega vel og með okkur tókst vinátta sem ekki gleymist og ber ekki skugga á út allt lífið. Ég man líka og dáðist að því hvað þú varst góður við Siggu þegar hún var orðin svo mik- ið veik. Þú varst ekki sami maður eftir frá- fall hennar. Mér varð á orði um daginn hvað við Ingólfur eigum að gera á sunnudögum, en þá voram við vön að eiga góðar stundir saman og munum við örugglega sakna þeirra. Elsku Júlli minn, Guð blessi þig og varðveiti og ég veit að þú ert þegar búinn að hitta hana Siggu þína hjá honum. Rún Pétursdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit töivusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallinubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlý- hug við andlát og útför litlu drengjanna okkar, ÞÓRIS og ELÍASAR. Elísa Davíðsdóttir, Hlynur Ómar Björnsson, Þóra Sveinsdóttir, Davíð Óskarsson, Sigþrúður Zóphóníasdóttir, Björn Björnsson. t Þökkum innilega samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, KRISTJÁNS ÞORLÁKSSONAR, fyrrv. hvalveiðiskipstjóra frá Súðavík, Álfaskeiði 72, Hafnarfirði. Ingibjörg Sigurgeirsdóttir og fjölskylda. t Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og jarðarför KRISTJÖNU HREFNU GUÐMUNDSDÓTTUR, Hrefnutanga, Selfossi. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkra- húss Suðurlands og Ljósheima fyrir góða umönnun. Arnold Falk Pétursson, Elín Arnoldsdóttir, Ragnheiður Arnotdsdóttir, Guðmundur Pétur Arnoldsson, Hildur Einarsdóttir, Björn Arnoldsson, Elín Eyfjörð, Ásgeir Arnoldsson, Gunndóra Viggósdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t .....—— ...... ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. s,Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. V 896'8242 Íj^^^Psfmi 895*9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is V

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.