Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 66

Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 66
j 66 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR JÓSEF SIG UR VALDASON + Jósef Sigur- valdason fæddist á Rútssöðum í Svína- dal 13. aprð 1916. Hann lést á Héraðs- hælinu á Blönduósi 25. október síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Svínavatns- kirkju 4. nóvember. Nú blikna lauf og falla á freðinn svörð og frostið nístir, limar mergogbörk. Svoheimtiraðeinsarf sinnmóðir Jörð af öllu því, sem lifir manni og björk en seðra líf á annar mannsins þáttur - hans andi og sál er skóp sá guðdómsmáttur, sem kveikti sól, að klæða bera mörk. (P.V.G. Kolka.) Nýliðið sumar er eitt af þeim bestu sem elstu menn muna. Spretta ágæt og nýting á heyjum mjög góð, svo flestir bændur eru birgir af góðum heyfeng. Haustið einnig mjög gott og dilkar vænir til slátrunar. Þessir þættir gefa bændum byr undir báða vængi, svo þeir geta litið bjartari augum til framtíðarinnar. Að um- ræddum árstíðum liðnum, í fyrstu viku vetrar sveif engill dauðans hægt og hljótt að sjúkrabeði Jósefs á Hér- aðshælinu á Blönduósi, tók anda hans og sál í faðm sinn og flutti til æðri heima, en þreyttur líkami fékk jarðneska hvíld. Andlát hans kom engum að óvörum sem til þekktu, æviþráðurinn að þrotum kominn. Lífsbókinni lokað. Laugardaginn 4. nóvember var hann kvaddur frá sóknarkirkju sinni af sveitungum og vinum. Sveitin sá á bak einum af sínum bestu sonum. Eg sem þessar línur rita var á fjarlæg- um slóðum þegar andlát hans bar að, og útförin um sama leyti og ég kom heim. Því er þessi kveðja mín svo síð- búin. Eg horfi til baka hljóður. Þegar ég var ungur drengur í foreldrahús- um laust eftir 1930, var Jósef heima hjá mér í tvo vetur í fjarveru Guðmundar bróður míns sem þá var á Bændaskólanum á Hólum. Jósef var hálfu fimmta ári eldri en ég og annaðist skepnu- hirðinguna með Þor- steini bróður mínum, en faðir minn var mjög heilsuveill og ekki til mikilla verka. Þó að Jósef væri ungur að ár- um var hann bráðdug- legur, viljugur og sam- viskusamur, og vildi hvers manns götu greiða. Hann eignaðist strax vináttu okkar allra á heimilinu og galt hana í sömu mynt. Foreldrum mínum reyndist hann frábærlega vel, alla tíð meðan þeirra naut við. Föður mínum og bróður reyndist hann vel við skepnuhirðingu og annað sem til féll. Dyggðin og trúmennskan voru sterkir þættir í fari þessa heiðurs- drengs. Ég tók strax miklu ástfóstri við þennan dagfarsprúða ungling og kom þar fleira en eitt til. Ég var yngstur af mínum systkinum og naut þess líka á margvíslegan hátt, öll voru þau jafngóð við mig, litli bróðir þurfti ekki að vinna eins mikið á sín- um yngstu árum og þau höfðu þurft að gera. Nú eignaðist ég félaga bæði í leik og starfi, og sjálfsagt höfum við báðir haft gott af því. Jósef var mikill lestrarhestur og las allt sem hann komst yfir. A mínu heimili var lítill bókakostur, en gott lestrarfélag var í sveitinni og bætti það mikið úr skák. Bækurnar gengu bæja á milli og oft sóttar langt, til að komast yfir bækur sem fólk hafði áhuga fyrir. Þessar bækur nýtti Jósef sér vel, eins og aðrh’ á heimilinu. Hann var hraðlæs, næmur á efni, mundi það sem hann las og sagði vel frá. Hann var greindur vel, hafði góðar námsgáfur en skólaganga á þeim árum var ekki auðveld þeim sem þurftu að eyða kröftum sínum til að strita fyrir daglegu brauði. Ég hef alla tíð verið stirðlæs og seinn að læra en það sem komist hef- ur inn fyrir skelina hefúr orðið mér notadrjúgt. Þá tvo vetur sem við vor- um saman á mínu æskuheimili fylgdi ég honum eftir eins og ég gat. Hann endursagði mér lestrarefni úr Is- lendingasögunum og öðrum bókum og gerði það á svo lifandi hátt að ég lifði mig inn í söguþráðinn, gleymdi bæði stað og stund og sá sögupers- ónurnar standa mér ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Þá fjóra vetur sem ég var í barnaskóla var farskóli í sveitinni og var ég fimm vikur á vetri hverjum í skóla. Einn mánuð heilan í einu og eina viku fyrir vorpróf. Þann- ig var skólamenntun mín og annarra í minni sveit undir fullnaðarpróf. Ég tel mig hafa verið sæmilega settan með þessa skólagöngu, en baðstofu- skólinn heima fyrir var mér mikils virði, og átti þar stóran hlut að máli Signý Sæmundsdóttir frá Gafli sem var heima hjá mér öll mín bernsku-, æsku- og uppvaxtarár. Við þetta bættust svo kynni mín af Jósef sem urðu mér gjöful á fróðleik og frásagnir. Þessir tveir þættir hafa skapað mér auðlegð sem hefur orðið mér gott veganesti á langri ævi. Vin- átta barnsins er einlæg, traust og trygg og ég vona að Jósef hafí notið hennar á einhvern hátt, eins og ég hefi notið vináttu hans frá æskuáram mínum til hinsta dags. Barn að aldri, 10 eða 11 ára, flutti Jósef með fjölskyldu sinni frá Gafli í Svínadal að Eldjárnsstöðum í Blöndudal. Þá var fjölskyldustærðin hjónin með átta börn, fimm fædd í Gafli en þrjú fædd áður, Jósef næst- elstur. A Eldjárnsstöðum bættust tvær dætur við hópinn svo nú var fjölskyldustærðin tólf manns. Nærri má geta að mikils þurfti með að fæða og klæða svo stóra fjölskyldu, en tókst þó. Merk saga í sögu sveitar- innar talar sínu máli þó að hún sé hvorki skráð eða skrifuð. Hetjur hversdagslífsins hjónin á Eldjárns- stöðum, Guðlaug og Sigurvaldi, reistu sér bautastein með börnum sínum sem alls staðar hafa komið fram til góðs og öllum þykir vænt um sem þekkja þau best. Gafl er nytjalítið heiðarbýli sem fór í eyði rétt eftir að fjölskyldan flutti þaðan. Eldjárnsstaðir voru á sínum tíma talin sæmileg jörð en af- ar erfið, stendur á bökkum Blöndu þar sem er mjög lítið undirlendi en brattur háls að vestan sem nær upp á heiðarbrún. Veðursæld er mikil, hvessir aldrei og norðanhríðar ná tæpast svo langt inn í landið. Vega- lengd til Blönduóss nær 50 km. Ræktunarskilyrði lítil og engjar að mestu í heiðarflá sem nú er komin undir inntakslón Blönduvirkjunar. A þessu sést að hart þurfti að berj- ast til að hafa til hnífs og skeiðar við slíkar aðstæður. Börnin hafa fljótt þurft að taka til hendinni, þau voru hraust og sterk, og hafa ekki lifað við matarskort á uppvaxtarárunum sem víða þekktist, þó ekki í minni sveit sem bæði er grösug og gjöful. Eiðstaðir eru næsti bær norðan við Eldjárnsstaði, miklu betri jörð. Þá jörð eignuðust Jósef og Hallgrím- ur bróðir hans, fyrst að hálfu leyti en síðan alla. Á þeirri jörð bjuggu þeir góðu búi og farnaðist vel. Hvorugur þeirra giftist og báðir barnlausir. Hallgrímur er dáinn fyrir nokkrum árum, ári yngri en Jósef. Hann var heljarmenni að burðum og eins var með Georg bróður þeirra sem einnig er látinn. Sigurvaldi faðir þessara systkina var talinn sterkasti maður í minni sveit þegar ég var að alast upp, þótt margir væru heljarmenni að burðum sem mér eru minnisstæðir. Þegar ég vai’ 1 göngum ungur að ár- um man ég eftir atviki sem líður mér ekki úr minni. Áð var í Áfanga á frameftir leið. Þá höfðu margir ef ekki allir haft hestaskipti. Sigurvaldi var með í taumi, rauðan fola, stóran og stæðilegan en lítt taminn og bald- inn að sjá. Folinn færðist undan að Sigurvaldi kæmi á hann hnakknum, svo hann kallaði á mann úr hópnum sem hann treysti vel og bað hann að koma hnakknum á gripinn og sagði um leið: „Ég ætla að styðja við hann á meðan.“ Síðan greip hann tauminn sem var býsna langur, spyrnti í vallgróna þúfu, tók fast um tauminn svo folinn fékk engu við komið. Það var eins og hann væri bundinn við jarðfast bjarg. Hnakkurinn lagður á hestinn, vel girtur með gjörð og reiða. Sigur- valdi steig á bak og haldið af stað í næsta áfanga, Kúlukvíslarskála. Þéttvaxinn knapi á fallegum fóla sem bar sig vel og fimur til fótanna. Flest haust síðan ég var drengur hefi ég farið í Auðkúlurétt, þó að ég sé búinn að vera hér í borg í rúma hálfa öld. Ég hefi notið þess að fara í réttir, þó sérstaklega meðan ég dró kindur í dilka. Alltaf var jafn gaman að hitta Eldjámsstaðabræður og ekki síst að finna kindur þeirra í al- menningi og koma þeim í réttan dilk. Hófsmaður var Jósef á öllum sviðum en pelarnii’ voru oft á lofti þegar við hittumst í réttum. Hann kunni vel að veita og líka að þiggja þegar honum var boðið í góðvina hópi. Fyrir rúmu ári hitti ég hann í Auðkúlurétt. Þá leyndi sér ekki að þrekið var á þrot- um en viðmótið það sama sem vermdi mig inn að hjartarótum. Hinsta kveðja hlý og falleg eins og aftangeislar frá hnígandi sól. Á síðastliðnu hausti mætti ég í réttir en vinur minn ekki. Nú beið hann á Héraðshælinu eftir þeirri ferð sem bíður okkai’ allra. Nú voru aðeins tveir í mínum aldursflokki í réttunum sem ég man eftir. Jósef gerði ekki víðreist um dag- ana, heiðin var hans heimur, þar var hann kunnugur og undi sér vel við veiði í vötnum, göngur og aðrarfjár- leitir. Mikil vinátta ríkti milli bræðra minna, Þorsteins á Geithömrum og Guðmundar í Holti, og Eldjáms- staðasystkina, ég held ég megi segja að enginn skuggi hafi fallið á þá vin- áttu. Það er mikil auðlegð að eignast vináttu fólks, sem leggur fram það besta sem í hjarta þess býr. Eld- járnsstaðasystkinin voru alls tíu tals- ins, sex eru látin, fjögur á lífi en þrjú með skerta heilsu. Öll komust þau til manndóms og þroska, dugleg, vinnu- söm og vinsæl. Við sem þekktum þau best stöndum í þakkarskuld við þennan stóra og samrýnda systkina- hóp. Að síðustu kveð ég svo vin minn Jósef með erindi úr kvæði Þjóð- skáldsins Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, „Höfðingi smiðjunnar". Hann tignar þau lög, sem lífið með logandi eldi reit. Hann lærði af styrkleika stálsins aðstandaviðöllsínheit. Hann lærði verk sín að vanda ogverða engum til meins. Pá væri þjóðinni borgið, efþúsundirgerðu eins. Jakob Björgvin Þorsteinsson. Iðnaðarhúsnæði sala/leiga á stór-Reykjavíkursvæðinu 225 fm, 8 m lofthæö, 5 m innkeyrsludyr. 150 fm, 8 m lofthæð, 4 m innkeyrsludyr. 250 fm, 8 m lofthæð, 4 m innkeyrsludyr. Mjög hagstæð langtímalán geta fylgt. Upplýsingar í síma 893 3087. Skrifstofuhúsnæði 54 fm Til sölu er skrifstofuhúsnæði á 3. hæð við Ármúla, sem skiptist í eitt skrifstofuherbergi og stóra afgreiðslu. Húsnæðið verður laust 31. desember nk. Söluverð er kr. 4.690.000. Upplýsingar veitir Hanna Rúna í síma 515 5500. ÞJÓNUSTA Bókhaldsþjónusta A.B. Getum bætt við okkur bókhaldsverkefn- um fyrir fyrirtæki og einstaklinga með rekstur. Bókhaldsþjónusta A.B., Háholti 1, 220 Hafnarfirði, s. 694 3715, bokhald@islandia.is . HÚSNÆOi ÓSKAST 2ja herb. íbúð óskast á leígu Kona óskar eftir að taka 2ja—3ja herb. íbúð á leigu sem fyrst á Reykjavíkursvæðinu, þar sem sann- gjörn leiga er í boði og heiðarlegir leigjendur. Á móti eru öruggar greiðslur, góð umgengni, reglusemi og meðmæli ef óskað er. Upplýsingar í síma 691 5722. Til sölu Hraðmynd, sem er framköllunarþjón- usta og sérvöruverslun á besta stað í bænum. Um er að ræða vaxandi rekstur sem býður upp á mikla möguleika. Nánari upplýsingar veitir Hilmar Gunnlaugs- son, fasteignasali, í síma 470 2202. Fasteigna- og skipasala Austurlands ehf. J6na» A. Þ. Jónuon. hdi. XampnatfZ Hllmtr Gunnlaugtton, hdl. Símb 4V0 7200/Fw: 470 2201 IflggiMr og ibpaMUc Nwfangi íaM«jgna*a**«ji»urUn<i Frábært atvinnutækifæri ó EnilcctöAmYi Til sölu ritfanga- og gjafavöruverslun á besta stað í Þorlákshöfn. Miklir möguleikar fyrir duglegt fólk. Upplýsingar í símum 483 3300, 855 0802 og 892 2588. I.O.O.F.R.b.1 = 15011148-9.III.* áf Guðspeki- samtökin í Reykjavík Jan Ruben, ritari Guðspekisam- takanna á Norðurlöndum, heldur fyrirlestur um hin Nýju Alheims- trúarbrögð föstud. 17. nóv. kl. 20 í húsnæði Nýju Avalon mið- stöðvarinnar, Hverfisgötu 105, 2. hæð. Jan verður einnig með námskeið laugard. 18. nóv. frá kl. 10—17 um hópstarf á nýrri öld. Á námskeiðinu verður farið í hóp- æfingar auk fræðilegs innleggs um hópstarf út frá guðspeki og nútíma sálfræði. Upplýsingar og skráning á námskeiðið er í síma 562 4464 og 567 4373. FÉLA6SLÍF □ HLlN 6000111419 IVA/ H.v. □ Hamar 6000111419 I □EDDA 6000111419 I Frl 1 AD KFUK Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.00. „Rafiki" er hópur ungs fólks sem fór til Eþíópíu sl. sumar. Þau heimsækja okkur með Afr- íkuminningar sinar. Allar konur velkomnar. www.kfum.is . DULSPEKI Skyggnilýsingafundur í kvöld Margrét Hafsteinsdóttir miðill verður með skyggnilýsinga- fund í kvöld, 14. nóv., á Sogavegi 108, Rvík, 2. hæð (fyrir ofan Garðsapótek). Húsið opnað kl. 19.30. Fundurinn hefst kl. 20.30. Miðaverð kr. 1.300. ÝMISLEGT „ Au-paír til Gautaborgar Óskast til að passa 3ja ára strák í Gautaborg, Svíþjóð. Upplýsingar veitir Hrafnhildur í síma 0046 3184 1238 eftir kl. 19. Fréttir á Netinu Hmbl.is ALLTAF e/TTHVAÐ NÝTl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.