Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 67,
FRETTIR
Yfirlýsing frá hjúkrunar-
fræðingum á Austurlandi
Aukið álag og
verri þjónusta
AUSTURLANDSDEILD Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur
sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu
varðandi rekstrarerfiðleika Heil-
brigðisstofnunar Austurlands:
„Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum á Heilbrigðisstofnun Aust-
urlands við rekstrarerfiðleika að
stríða. Viðbrögð stofnunarinnar eru
m.a. fólgin í því að ferilverk eru lögð
niður á Sjúkrahúsinu í Neskaupstað
og ekki er mannað í veikindaforföll-
um á deildum heilbrigðisstofnana í
fjórðungnum.
Stjórn Austurlandsdeildar Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga vill
koma því á framfæri að sú ráðstöfun
að manna ekki í veikindaforföllum
starfsmanna nema í neyð, veldur
auknu álagi á þá sem eru í vinnunni
og leiðir til verri þjónustu fyrir skjól-
stæðinga. Þegar starfsfólk vantar er
þörfum skjólstæðinga forgangsrað-
að á annan hátt en þegar hægt er að
halda daglegu skipulagi.
Það að ferilverk hafa verið stopp-
uð fram að áramótum leiðir til þess
að einstaklingar sem þurfa á viðkom-
andi rannsókn og/eða meðferð að
halda þurfa að fara til Reykjavíkur
eða Akureyrar til að fá viðeigandi
þjónustu. Væntanlega er ferðakostn-
aður greiddur af Tryggingastofnun
ríkisins, kostnaður sem fylgir við-
komandi rannsók og/eða meðferð
greiðist af þeirri stofnun sem við-
komandi fer tíl. Fari einstaklingur-
inn á stofu hjá sérfræðingi fær hann
væntanlega meðferðina að hluta
greidda frá Tryggingastofnun gegn
framvísun kvittunar og/eða afslátt-
arkorts. Tryggingastofnun ríkisins
er rekin af fjálögum frá ríkinu og til-
heyrir heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu eins og heilbrigðis-
stofnanir og sjúkrahús.
I viðbót við þann kostnað sem fell-
ur á ríkisstofnanir, er vinnutap og
aukinn kostnaður einstaklingsins
sem þarf að sækja þjónustu um
lengri veg.
Stjórn Austurlandsdeildar FÍH
telur að þegar upp er staðið sé heild-
arkostnaður ríkisins meiri með
svona aðgerðum en ef auknir fjár-
munir væru veittir til Heilbrigðis-
stofnunar Austurlands.“
Málstofa í guð-
fræðideild HÍ
BISKUP íslands, Karl Sigurbjörns-
son, flytur fyrirlestur fimmtudaginn
16. nóvember kl. 17 í málstofu Guð-
fræðistofnunar sem hann nefnir:
Klerkar í klípu - eða prestar í afhelg-
uðu samfélagi.
Fyrirlesturinn verður haldinn í V.
stofu aðalbyggingar Háskóla íslands
og er öllum opinn, segir í fréttatil-
kynningu.
Morgunblaðið/Þorkell
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og
Anna Þrúður Þorkelsdóttir, formaður Rauða kross íslands, takast í
hendur eftir undirritun samningsins.
Samningur Rauða krossins
og heilbrigðisráðuneytisins
Markmiðið að efla
kunnáttu í skyndihjálp
HEILBRIGÐIS- og trygginga-
málaráðuneytið og Rauði kross ís-
lands gerðu nýverið með sér sam-
komulag sem hefur þann tilgang
að efla og bæta skyndihjálpar-
kunnáttu almennings. í kjölfarið
mun Rauði krossinn efla verulega
áherslu á útbreiðslu skyndihjálp-
arkunnáttu meðal almennings.
Samkvæmt samkomulaginu hef-
ur Rauði krossinn forystuhlutverk
í skyndihjálparkennslu hér á landi
og skuldbindur sig til að bjóða
fólki um allt land aðgang að nám-
skeiðum í skyndihjálp. Jafnframt
mun Rauði krossinn gefa út nauð-
synlegt fræðslu- og kennsluefni
og sjá um menntun leiðbeinenda.
Þá felst í samningnum að heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neyti og Rauði krossinn gefi sam-
eiginlega út viðurkenningu til
þeirra einstaklinga og vinnustaða
sem sótt hafa skyndihjálpar-
námskeið á vegum félagsins.
Menning’artengt
þýskunám í Freiburg
Lýst eftir
vitnum
EKIÐ var á bifreiðina A-2006
fimmtudaginn 9. nóvember þar sem
hún stóð mannlaus á gangstétt á
Njálsgötu rétt við Klapparstíg.
A-2006 er Toyota Camry-fólksbif-
reið grá að lit.
Tjónvaldur var að bakka úr stæði
og vitað að þetta er hvít lítil sendi-
bifreið, svokölluð skutla. Tjónvaldur
svo og vitni eru beðin að hafa sam-
band við umferðardeild lögreglunn-
ar í Reykjavík
Við Öldugötu 14 í Reykjavík var
ekið á bifreiðina UT-162 sem er hvít-
ur Cherokee-jeppi og skemmdist
hann á hægra afturhorni. Vitað er að
litur á bifreið tjónvalds er dökkblár.
Atvikið mun hafa gerst einhvern
tíman frá þriðjudeginum 7. til laug-
ardagsins 11 nóvember. Vitni eru
beðin að hafa samband við umferðar-
deild lögreglunnar í Reykjavík.
-------*+*--------
■ FÉLAG áhugafólks um Downs-
heilkenni heldur félagsfund þriðju-
daginn 14. nóvember nk. kl. 20:30 í
sal Þroskahjálpar, Suðurlandsbraut
22. Yfirskrift fundarins er „Munu
erfðavisindi bæta mannkynið?" Ást-
ríður Stefánsdóttir, læknir og MA í
heimspeki, dósent við Kennarahá-
skóla íslands, mun flytja erindi. Á
eftir verður kaffi og umræða. I ljósi
allra tækninýjunga og framfara í
erfðavísindum og fósturgreiningu
finnst stjórn félagins full ástæða til
að koma saman og ræða um siðferð-
isleg viðhorf. Viljum við útrýma fötl-
unum? Er réttur fatlaðra annar?
Hvaða skilaboð er verið að gefa
börnunum okkar? Á að vera hægt að
velja um hvernig barn við viljum
eiga? Foreldrar og aðrir áhugasamir
eru hvattir til að koma á fundinn.
------------------
■ AÐALFUNDUR fslenska dys-
lexíufélagsins verður haldinn í húsa-
kynnum samtakanna Heimilis og
skóla Laugavegi 7, 2. hæð, miðviku-
daginn 15. nóvember kl. 20.30. Á
dagskrá verða venjuleg aðalfundar-
störf samkvæmt lögum félagsins.
HRAÐNÁMSKEIÐ ætlað þeim sem
vilja á stuttum tíma ná hámarksár-
angri í þýsku verður haldið í Frei-
burg dagana 21. janúar - 1. febrúar,
2001. Megináhersla verður lögð á
þjálfun talmáls.
Þetta er í þriðja sinn sem hópur
nemenda heldur til Freiburg en nám-
skeiðið er samstarf Endurmenntun-
arstofnunai- HÍ og Sprachenkolleg.
Bryddað er upp á ýmsum nýjungum
á námskeiðinu svo þátttakendur hafi
bæði gagn og gaman af. Þýsku-
LANDSSAMBAND stangaveiðifé-
laga samþykkti eftirfarandi álykt-
anir á aðalfundi sínum 28. október
sl.:
„50. aðalfundur Landssambands
stangaveiðifélaga varar eindregið
við fyrirhuguðu kvíaeldi á norskum
laxi við Islandsstrendur. Margt
bendir til þess að villtum laxastofn-
um stafi gríðarleg hætta af stór-
felldu kvíaeldi á laxi og þess er kraf-
ist að náttúran njóti vafans meðan
ekki hefur verið sannað að eldið sé
með öllu skaðlaust. Rannsaka verð-
ur gaumgæfilega hugsanleg áhrif
sem kvíaeldi kann að hafa á um-
hverfið og náttúru Islands.
Glapræði væri að hefja kvíaeldi í
stórum stíl að óathuguðu máli og
stofna þannig villtum laxastofnum í
hættu.“
„Að marggefnu tilefni beinir 50.
aðalfundur Landssambands stanga-
veiðifélaga þeim eindregnu tilmæl-
um til landeigenda og allra annarra,
sem kunna að ráðast í framkvæmdir
við veiðiár og vötn, að virða í einu og
kensla, menning og mannlíf er fléttað
saman undir öruggri handleiðslu
reyndra kennara við Sprachenkolleg.
Kennt verður í 40 kennslustundir en
þar við bætist lífleg dagskrá þar sem
þátttakendur kynnast menningu, at-
vinnulífi og daglegu lífi íbúa þessarar
fallegu borgar í Svartaskógi, segir í
fréttatilkynningu. Flogið verður
beint til Frankfurt og þaðan ekið
með rútu til Freiburg. Þar verður
gist á nýju hóteli í hjarta borgarinn-
ar. Kennsla fer fram í nýjum húsa-
öllu lög um lax- og silungsveiði nr.
76/1970. í 43. gr. þeirra laga segir:
„Nú er fyrirhugað að taka jarðefni
eða gera mannvirki í eða við veiði-
vatn sem hætta er á að hafi áhrif á
lífríki vatnsins, og skal þá veiðimála-
stjóri láta fara fram líffræðilega út-
tekt á viðkomandi veiðivatni áður en
ráðist er í framkvæmdina. Kostnað
af úttektinni greiðir sá er að fram-
kvæmdum stendur. Þegar niður-
staða liggur fyrir skal heimilt að
ráðast í viðkomandi framkvæmdir
enda samþykki veiðimálastjóri til-
högun þeirra.“
Mörg dæmi, gömul og ný, eru um
að bæði einka- og opinberir aðilar
hafi virt lög þessi að vettugi og verð-
ur ekki við það unað. Ákvæðið var
sett til verndar viðkvæmu lífríki og
er það krafa stangaveiðimanna að
framkvæmdaraðilar sýni sérstaka
aðgæslu og fari að lögum, þegar þeir
ráðast í verkefni, sem kunna að
raska bú- og uppeldissvæðum fiska
eða hafa áhrif á fiskveg og fisk-
gengd.“
kynnum Sprachenkolleg við Kappler
StraBe.
Umsjón með þessu námskeiði hafa
Danfríður Skarphéðinsdóttir, dr.
Oddný G. Sverrisdóttir dósent við HÍ
og Stefan Pflaum deildarstjóri í
Sprachenkolleg í Freiburg. Kynning
fer fram í húsakynnum Endur-
menntunarstofnunar, Dunhaga 7,
miðvikudaginn 15. nóvember, kl. 20.
Skráningarfrestur er til 1. desember.
Upplýsingar fást hjá Endurmennt-
unarstofnun HÍ og á vefsíðunum.
Málþing um
höfundar-
rétt á efni í
söfnum
FÉLAG um skjalastjóm stendur fyr-
ir málþingi á morgun, miðvikudaginn
15. nóvember, um höfundarrétt á efni
í skjala-, ljósmynda- og minjasöfnum.
Þingið hefst í Þjóðarbókhlöðunni, kl.
13 og stendur til kl. 16.
Fyrirlesarar em: Páll Sigurðsson,
prófessor í lögfræði við Háskóla ís-
lands, Ólafur Ásgeirsson þjóðskjala-
vörður, Ögmundur Helgason, for-
stöðumaður handritadeildar
Landsbókasafns Islands - Háskóla-
bókasafns, Svanhildur Bogadóttir
borgarskjalavörður, Magnús Guð-
mundsson, skjalavörður Háskóla ís-
lands, Knútur Braun, lögfræðingur
Myndstefs, María Karen Sigurðar-
dóttir, forstöðumaður Ljósmynda-
safns Reykjavíkur, Rósa Þorsteins-
dóttir, deildarstjóri á Stofnun Árna
Magnússonar, og Hallgerður Gísla-
dóttir, deildarstjóri þjóðháttadeildar
Þjóðmipjasafns Islands. Fundarstjóri
er Magnús Guðmundsson, skjala-
vörður Háskóla Islands.
Tími - orka
- peningar -
TIMI - orka - peningar er heiti á
nýju námskeiði Ásmundar Gunn-
laugssonar, jógakennara, sem hefst
næstkomandi mánudag, 20. nóvem-
ber. „Námskeiðið hentar öllum sem
vilja gæða líf sitt meiri velgengni án
þess að fórna andlegri og líkamlegri
heilsu,“ segir í fréttatilkynningu.
Ennfremur segir að kennt verði
hvernig hægt er að nota jóga til að
losa um uppsafnaða streitu og
spennu, starfa án ótta og streitu,
draga úr áhyggjum, auka orku,
minnka eirðarleysi og ófullnægju og
skapa aukið frelsi fyrir sig og fjöl-
skyldu sína.
Engin þekking á jóga er nauðsyn-
leg en kenndar verða nokkrar jóga-
stöður, öndunaræfingar og slökun.
Ásmundur Gunnlaugsson hefur
kennt miklum fjölda íslendinga jóga
og frá árinu 1994 haldið fjölmörg
námskeið undir yfirskriftinni Jóga
gegn kvíða þar sem kenndar hafa
verið leiðir til að nota jóga til að tak-
ast á við kvíða, þunglyndi og fælni og
í fréttatilkynningu segir að þau nám-
skeið verði haldin áfram en nýja
námskeiðinu sé ætlað að koma til
móts við þarfir þeirra sem vilja leita
nýrra leiða til að komast undan erf-
iðu álagi í daglegu lífi.
Námskeiðið hefst mánudaginn 20.
nóvember. Kennt verður í sjö skipti,
á mánudögum og miðvikudögum
klukkan 19.30. Skráning og nánari
upplýsingar era í síma Yoga stúdíós,
Auðbrekku 14, Kópavogi.
------♦_*_♦-----
Fyrirlestur
um einkenni
rúmenskrar
tungu
MAURO Barindi flytur opinberan
fyrirlestur í boði heimspekideildar
Háskóla Islands í stofu 101 í Lög-
bergi miðvikudaginn 15. nóvember
kl. 17.15.
Mauro Barindi er fræðimaður á
sviði rúmenskrar tungu. Hann út-
skrifaðist með Laureatus-próf í rúm-
ensku frá háskólanum í Padóvu 1992
og hefur dvalist síðan í Rúmeníu þar
sem hann hefur fengist við rann-
sóknir á rúmenskum þýðingum úr ít-
ölsku. ^
I fyrirlestri sínum mun Barindi
lýsa einkennum rúmenskrar tungu
og byggingu hennar, og fjalla um
upprana hennar og stöðu meðal róm-
anskra mála. Rúmenska á rætur að
rekja til þeirrar latínu sem töluð var
á Balkanskaganum þegar Rómverj-
ar réðu ríkjum (106 til 272 e. Kr.) í
nýlendu sinni þar, sem þeir nefndu
Dakíu. Þrátt fyrir langan viðskilnað
frá öðram rómönskumælandi þjóð-
um, og ágang slavneskra þjóða og
Ungverja, tókst Rúmenum að varð-
veita mál sitt. Það hefur um margt
sérstöðu meðal rómanskra mála,
m.a. vegna þess að það hefur að
hluta til haldið fallbeygingum latín-
unnar, og vegna þess að orðaforðinn
er mjög mótaður af slavneskum"
áhrifum, en einnig áhrifum frá ung-
versku, tyrknesku, frönsku og ít-
ölsku.
Allir era velkomnir á fyrirlestur-
inn.
----------------
Námskeið um
meðvirkni
FJÖSLKYLDURÁÐGJÖF Stefáns
Jóhannssonar verður með námskeið.
um meðvirkni, samskipti, tjáskipti
og tilfinningar, föstudagskvöld 17.
nóvember og laugardaginn 18. nóv-
ember í kórkjallara Hallgríms-
kirkju.
Dagskráin er sett saman með
stuttum fyrirlestrum, vinnublöðum,
hópvinnu og videómyndum. Öllum
er heimil þátttaka og fer skráning,
fram á skrifstofunni.
Vara við stór-
felldu kvíaeldi