Morgunblaðið - 14.11.2000, Síða 72

Morgunblaðið - 14.11.2000, Síða 72
72 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 DAGBOK MORGUNBLAÐIÐ í dag er þriðjudagur 14. nóvember, 319. dagur ársins 2000, Orð dagsins: Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan kal- eik frá mér! En verði þó ekki minn heldur þinn vilji. (Lúk. 22,42.) Skipin Reykjavíkurhöfn: Detti- foss, Helgafell og Svan- ur koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sevryba kom í gær og fer £ dag. Markús J. og Selfoss komu í gær. Karelie fer í dag. Fréttir Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14-17. Kvennadeild Barð- strendingafélagsins. Dregið hefur verið í happdrætti fjáröflunar- dagsins, einn vinningur er ósóttur, miði nr. 77. Uppl. í sima 552-2556, Erla. __________ Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun kl. 17-18. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9 búta- saumur og handavinna, kl. 9-12 bókband, kl. 13 opin smíðastofan og brids, kl. 10 Islands- banki opinn, kl. 13.30 opið hús spilað, teflt o.fl., kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böð- un, kl. 9-9.45 leikfimi, kl. 9-16 handavinna og fótaaðgerð, kl. 9-12 tréskurður, kl. 10 sund, kl. 13 leirlist. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Kl. 9 ' hárgr., kl. 10 samveru- stund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 9.30 hjúkrunar- fræðingur á staðnum, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 föndur og handavinna. Félagstarf aldraðra Garðabæ. Ferð í Þjóð- leikhúsið að sjá Kirsu- berjagarðinn 18. nóv- ember, pantið miða í Kirkjulundi í s. 565- 6622. Spilað í Kirkju- lundi 14. nóv. kl. 13.30. Spilakvöld verður 16. nóv. kl. 19.30 í boði UMF Stjörnunnar í Stjömuheimilinu. Rútu- ferðir samkvæmt áætl- un. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Bridge og saumar kl. 13:30. Á fimmtudag veð- ur opið hús kl. 13:30. Eldri skátar sjá um skemmtidagskrá. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga frá kl. 10-13. Matur í hádeg- inu. Skák kl. 13.30 í dag og alkort spilað kl. 13.30, allir velkomnir. Göngu-Hrólfar fara í göngu frá Ásgarði Glæsibæ á miðvikudag kl. 10. Síðasti fræðslu- fundurinn á haustönn undir yfirskriftinni „Heilsa og hamningja á efri árum“ verður laug- ard. 18. nóv. kl. 13.30. Þá verður fjallað um nýjar leiðir í meðferð hjarta- sjúkdóma: Þórður Harð- arson prófessor um lyfjameðferð og Bjarni Torfason yfirlæknir um skurðaðgerðir á hjarta. Fræðslufundirnir verða haldnir í Ásgarði, Glæsi- bæ, félagsheimili Félags eldri borgara. Allir vel- komnir. Silfurlínan opin á mánudögum og mið- vikudögum frá kl. 10-12. Ath. skrifstofa FEB er opin frá kl. 10-16. Upp- lýsingar í síma 588-2111. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar m.a. glerskurður og perlusaumur, kl. 13. boccia. Veitingar í kaffi- húsi Gerðubergs. Laug- ardaginn 25. nóvember „Kynslóðir mætast 2000“ frá kl. 14-17 opið hús, fjölbreytt dagskrá nánar kynnt síðar. Allar upplýsingar um starf- semina á staðnum og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Leikfimi kl. 9.05, kl. 9.50 ogkl. 10.45, kl. 9.30 glerlist, handa- vinnustofa opin, leið- beinandi á staðnum frá kl. 10-17, kl. 14 boccia, þriðjudagsganga fer frá Gjábakka kl. 14, kl. 17 dans og myndlist. GuIIsmári, Gullsmára 13. Opið kl. 9-17. Matar- þjónusta á þriðjud. og íöstud., panta þarf fyrir kl. 10 sömu daga, kl. 9 postulínsmálun, kl. 10 jóga, handavinnustofan opin kl. 13-16, kl. 18 línudans. Fótaaðgerða- stofan er opin kl. 10-16, miðviku-, fimmtu- og fóstudaga. Hvassaleiti 56-58. Kl. 9 böðun, fótaaðgerðir og leikfimi, kl. 9.45 banka- þjónusta, kl. 13 handa- vinna og hárgreiðsla. Hraubær 105. Kl. 9- 16.30 postulínsmálun, kl. 9-17 fótaaðgerðir, kl. 9- 12 glerskurður, kl. 9.45 boccia, ld. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13-16.30 myndlist, kl. 13-17 hár- greiðsla. Hæðargarður 31. Kl. 9- 16.30 opin vinnustofa, postuh'nsmálun, kl. 9-17 hárgreiðsla, kl. 10 leik- fimi, kl. 12.45 Bónus- ferð. Norðurbrún 1. Kl. 9-16 fótaaðgerðastofan opin, kl. 9-17 hárgreiðsla, kl. 10-11 boccia, kl. 9-16.45 opin handavinnustofan, tréskurður. Vesturgata 7. KI. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15-12 bútasaumur, kl. 9.15-15.30 handa- vinna, kl. 11 leikfimi, kl. 13 bútasaumur, kl. 13.30 félagsvist. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, kl. 9.30 glerskurður, myndlist og morgun- stund, kl. 10 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13 hand- mennt og keramik, kl. 14 félagsvist. Háteigskirkja. Opið hús á morgun í safnaðar- heimili Háteigskirkju frá kl. 10-16. allir vel- komnir. Kl. 10-11 morg- unstund með Þórdísi, kl 11-16 samverustund, ýmislegt á prjónunum. Súpa og brauð í hádeg- inu, kaffi og meðlæti kl. 15. Ath. takið með ykkur handavinnnu og inniskó. Vonumst til að sjá sem flesta. Gengið inn Við- eyjarmegin. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Spilað í kvöld kl. 19. Allir eldri borgarar velkomnir. Félag ábyrgra feðra heldur fund í Shell- húsinu, Skerjafirði, á miðvikudögum kl. 20, svarað í síma 552-6644 á fundartíma. ÍAK, íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.20 í Digra- neskirkju. Eineltissamtökin halda fundi á Túngötu 7 á þriðjudagskvöldum kl. 20. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum, Laugardalshöll, kl. 12. Hallgrímskirkja, eldri borgarar. Opið hús á morgun kl. 14-16. Gestir Olafur Elíasson píanó- leikari, Þórunn Árna- dóttir og Arngrímur Eiríksson. Bílferð fyrir þá sem þess óska. Uppl. veitir Dagbjört í s. 510- 1034. Kvenfélag Breiðholts. Fundur í kvöld kl. 20 í Safnaðarheimilinu. Al- mennt fundarefni, kaffi, bingó. Allir velkomnir. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborgar- svæðinu, Hátúni 12. Op- ið hús kl. 20 í kvöld. Styrkur. Opið hús í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30 að Skógarhlíð 8,4. hæð. Gestur fundarins, dr. Sigmundur Guð- bjarnason, kynnir niður- stöður vísindarann- sókna á íslenskum lækningajurtum. Kaffi- veitingar. Allir velkomn- ir. Sinawik í Reykjavik, er með fund í kvöld kl. 20 í Sunnusal Hótel Sögu. Á dagskrá verður tísku- sýning og happdrætti. Þjóðdansafélag Reykja- víkur. Opið hús i kvöld (þriðjud.). Gömlu dans- arnir frá kl. 20.30-22. Minningarkort Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrifstofu- tíma. Gíró- og kredit- kortaþjónusta. Samtök lungnasjúkl- inga. Minningarkort eru afgreidd á skrifstofu fé- lagsins í Suðurgötu 10 (bakhúsi) 2. hæð, s. 552- 2154. Skrifstofan er opin miðvikud. og föstud. kl. 16-18 en utan skrif- stofutíma er símsvari. Einnig er hægt að hringja í síma 861-6880 og 586-1088. Gíró- og kreditkortaþjónusta. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 669 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 669 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1166, 8érblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 669 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áakriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 150 kr. eintakið. VELVAKAJXÍDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Röng dagskrá MTV UNGUR lesandi blaðsins hafði samband við Velvak- anda og segir hann að dagskrá MTV sem birtist í blaðinu hafi verið einni viku á eftir undanfarnar vikur. Segir hann að þetta sé mjög bagalegt fyrir þá sem fylgist með þessari stöð að geta ekki treyst því að dagskráin sé rétt. SpjT hann hvað valdi þessu og hvort ekki eigi að lagfæra þetta. Athugasemd MIG langar að gera at- hugasemd við frétt sem birtist í Morgunblaðinu 4. nóvember sl. og heitir „Beinni braut um Vattar- nes“. Þar er sagt að Vatt- arnes sé í Reykhóla- hreppi, en það þýðir ekki að það sé í Reykhólasveit, Vattarnes er í Múlasveit. Sveitanöfn eru óháð hreppamörkum. Garðar Halldórsson frá Hríshóli. Verstu fréttir ÞAÐ er verið að r: það, að siglingarleiðir ol- íuskipanna verði færðar fjær fiskimiðunum. Far» manna- og fiskimanna- sambandið eru að tala um að leigja erlend skip, sem selja okkur olíu á miðun- um, ódýrari. Þetta eru verstu fréttir sem ég hef heyrt. G. B. Tapaó/fundid Trú, von og kærleik- ur tapaðist LÍTIÐ gullmen, sem heit- ir trú, von og kærleikur tapaðist á Landsspítala- lóðinni, þriðjudaginn 24. október sl. Skilvís finn- andi er vinsamlegast beð- inn að hafa samband í síma 551-4710. Blár Siemens GSM- sími og brúnt seðla- veski töpuðust BLÁR Siemens GSM-sími tapaðist á Hverfisgötu, föstudaginn 3. nóvember sl. Einnig tapaðist lítið brúnt seðlaveski fimmtu; daginn 2. nóvember sl. í veskinu voru öll skilríki. Ef einhver hefur fundið þessa hluti, vinsamlegast hafið samband í síma 568- 3210. Lítil svört hliðar- taska tapaðist LÍTIL svört leðurhliðar- taska tapaðist í Lækjar- götu aðfaranótt sunnu- dagsins 29. október sl. Skilvis finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 568- 8816. Forláta hattur í óskilum FORLÁTA hattur frá Ameríku fannst við Skúla- götu fyrir helgina. Gæti verið forsetahattur. Upp- lýsingar í síma 552-1509. Semelísteinabelti tapaðist Laugardagskvöldið 11. nóvember sl. tapaðist tvöfalt semelíusteinabelti á Glaumbar. Skilvis finn- andi er vinsamlegast beð- inn að hringja í síma 862- 3566. Appelsínugult armband tapaðist APPELSÍNUGULT arm- band með bjöllum tapað- ist laugardaginn 28. októ- ber sl. neðarlega á Hverfisgötu í Reykjavík. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 862-9192. Kannast einhver við kisu? ÞESSI kisa hvarf frá Suðurgötu 30 í Reykjavík fyrir tíu dögum. Hún var ómerkt. Ef einhver hefur orðið var við ferðir henn- ar, vinsamlegast hafið samband í síma 561-7860. Blandaðan skógar- kött vantar heimili MIKIÐ loðinn, bröndótt- an skógarkött, eins og hálfs árs vantar gott heimili sem fyrst. Hann er geldur, eyrnamerktur og bólusettur. Hann er mjög barngóður. Upplýs- ingar í síma 899-1260. fgargtmliíaftifr Krossgáta LÁRÉTT: 1 hárskúfs, 4 efsti hluti hússtafns, 7 að svo búnu, 8 ábreiða, 9 gagnleg, 11 dýr, 13 stampur, 14 skap- vond, 15 brjóst, 17 guð, 20 liðinn hjá, 22 ber birtu, 23 girnd, 24 ójafnan, 25 hafni. LÓÐRÉTT: 1 pjatla, 2 deila í smá- skömmtum, 3 bráðum, 4 gert við, 5 ræna, 6 gleð- skapur, 10 sitt á hvað, 12 rekkja, 13 andvara, 15 fall, 16 skurðurinn, 18 næði, 19 ráfi, 20 klukk- urnar, 21 líkamshlutinn. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 svipmikil, 8 sálir, 9 uglan, 10 kæn, 11 murta, 13 nærri, 15 glaða, 18 staka, 21 fet, 22 fóður, 23 ættar, 24 harðfisks. Lóðrétt: 2 volar, 3 purka, 4 Iðunn, 5 illur, 6 ásum, 7 snúi, 12 tíð, 14 æst, 15 gufa, 16 auðga, 17 afræð, 18 stæli, 19 aftek, 20 arra. Víkverji skrifar... AÐ er margt mánnanna bölið. Forsetakosningarnar í Banda- ríkjunum eru orðnar í mqjra lagi sögulegar og sér hvergi fyrir end- ann á því hver niðurstaðan verður. Víkverja er tjáð að óvenjumikill áhugi hafi verið á kosningunum og þátttaka með mesta móti þótt um hundrað milljónir manna hafi ekki séð ástæðu til að kjósa. Það er at- hyglivert að valdamesti þjóðarleið- togi heims skuli kosinn af innan við fjórðungi kosningabærra íbúa og jafnframt að niðurstaðan geti orðið sú að sá sem fær flest atkvæði, verði ekki forseti. Klúðrið með talningu atkvæða og yfirlýsingar fjölmiðla um það hver hafi náð kjöri er svo kapítuli út af fyrir sig og nú virðist ljóst að hvor- ugur frambjóðandinn mun una úr- slitunum og langar og stranga lagaflækjur gætu orðið framundan. Það er ekki nema von að ýmsum sé skemmt undir niðri yfir því að þjóð, sem tekur gjarnan að sér að hafa eftirlit með kosningum í öðrum löndum, skuli lenda í svona klúðri. xxx VÍKVERJA finnst það afar at- hyglivert að nærri 10% íbúa landsins skuli ekki hafa íslenzku að móðurmáli og um 7% nemenda 9. og 10. bekkjar grunnskólans tali annað tungumál en íslenzku heima hjá sér. Þetta kom fram á málrækt- arþingi, sem haldið var um helgina og svokölluð tvítyngi var til um- ræðu. Tvítyngi er það þegar börn tala tvö tungumál jöfnum höndum og er yfirleitt litið á það sem auð- lind fremur en galla. Það er hins vegar umhugsunarefni fyrir okkur íslendinga að svona stór hluti íbúa landsins skuli ekki tala íslenzku. Það getur leitt til einangrunar þeirra íbúa, sem eru af erlendu bergi brotnir og getur það haft neikvæðar afleiðingar í för með sér. Það er því mikilvægt að mati Víkverja að þessu fólki sé gefinn kostur á íslenzkunámi, meðal ann- ars til þess að því líði betur hér á landi og nái frekara sambandi við aðra landsmenn og þá menningu sem hér ríkir. Með þessum skoðun- um sínum er Víkverji alls ekki að gera lítið úr menningu annarra þjóða, því fer fjarri xxx JÁ, ÞAÐ er margt mannanna böl- ið. Víkverji frétti af fólki i borg- inni, sem hefur lent í því óláni að mikill fnykur hefur leitað um íbúðir þess og hefur illa gengið að komast að rótum vandans. Sérfræðingur í málum af þessum toga telur þó að fnykurinn geti stafað að rotnandi rottu í skólpleiðslum í húsinu eða undir því. • Segir hann að þegar dælustöðvar fyrir skólp hafi verið settar upp við strandlengjuna til að dæla því sem lengst á haf út, hafi völskurnar lokazt inni í holræsa- kerfinu og því sé meira um þær þar en áður. Þetta er greinilega tölu- vert vandamál, þar sem nánast er ómögulegt að komast til að fjar- lægja hið illaþefjandi hræ. Vonandi er þetta ekki algengur vandi. xxx Ú STENDUR yfir verkfall framhaldsskólakennara og er það miður að ekki skuli hafa tekizt að semja áður en til verkfalls kom. Það kemur sér afar illa fyrir nem- endur, þegar kennsla fellur niður með þessum hætti og getur það raskað námsferlinum verulega og jafnvel orðið til þess að einhverjir flosni endanlega upp frá námi. Það er ábyrgðarhlutur að vera valdur að því, en ljóst er að eigi veldur einn þegar tveir deila. Víkverji tel- ur því að kennurum og viðsemjend- um þeirra beri skylda til að ná samkomulagi nú þegar. Víkverji kýs að leggja ekki beint mat á launakröfur kennara, en veltir því hins vegar stöðugt fyrir sér hvers vegna þessi stétt fólks fær þriggja mánaða frí á kaupi á hverju ári (sumarfrí, jólafrí, páskafrí) en aðr- ir ekki, og hvernig þessi fríðindi eru metin inn í launin.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.