Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 74
74 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
^5Ojj ÞJÓÐLEIKHLISIÐ sími 551 1200
GJAFAKORT í ÞJÓDLEIKHÚSID — GJÖFIN SEM LIFNAR VID!
Stóra sviðið kl. 20.00:
DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT - William Shakespeare
Fös. 17/11 og iau. 2/12. Fáar sýningar eftir.
KIRSUBERJAGARÐURINN - Anton Tsjekhov
Lau. 18/11 nokkur sæti laus, sun. 26/11. Fáar sýningar eftir.
HORFÐU REIÐUR UM ÖXL - John Osborne
Fös. 24/11 uppselt, lau. 25/11 uppselt, fim. 30/11 örfá sæti laus, fös.
1/12 örfá sæti laus.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
ÁSTKONUR PICASSOS - Brian McAvera
Frumsýning lau. 18/11 uppselt, fös. 24/11 nokkur sæti laus, lau. 25/11
nokkur sæti laus.
Litla sviðið kl. 20.00:
HORFÐU REIÐUR UM ÖXL - John Osborne
í kvöld þri. 14/11 uppselt, miö. 15/11 uppselt, lau. 18/11 uppselt. Flyst
á Stóra sviðið vegna gífurlegrar aðsóknar.
www.leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
Miðasalan er opin mán.—þri. kl. 13—18, mið.—sun. kl. 13—20.
Leikfélag Islands
Leikhúskortið:
Sala í fullum gangi
Loft
ífAsfn&Nw
552 3000
SJEIKSPIR EINS OG
HANN LEGGUR SIG
fim 18/11 kl. 20 nokkur sæti laus
lau 18/11 kl. 20 UPPSELT
lau 25/11 kl. 20 UPPSELT
sun 26/11 kl. 20 nokkur sæti laus
Á SAMA TÍMA AD ÁRI
fös 17/11 kl. 20 Aukasýning
BANGSIM0N: sýnt af Kvikleikhúsinu
sun 19/11 kl. 15.30
530 3030
I TRÚÐLEIKUR
sun 19/11 kl. 16 og 20
SÝND VEIÐI
I fim 16/11 kl. 20
lau 18/11 kl. 20
MEDEA
Frumsýning fös 17/11 kl. 20 UPPSELT
mán 20/11 kl. 20 örfá sæti laus
Miðasalan er opin I Iðnó frá 12-18 virka daga, frá kl.
14 laugard. og frá kl. 16. sunnud. Uppl. um opnunar-
tlma I Loltkastalanum fást I slma 530 3030. Miðar
óskast sóttir I Iðnó en fyrir sýningu (viðkomandi leik-
hús. Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
ATH. Ekki er hleypt inn I salinn eftir að sýn. hefst.
DPAUMASMIÐJAN
GÓDAR HÆGBIR
efttr Auðt Haralds
7. sýn. fim 16/11 kl. 20 örfá sæti laus
8. sýn. fös 17/11 kl. 20 UPPSELT
9. sýn. lau 25/11 kl. 20
10. sýn. sun 26/11 kl. 20
„Ogéger ekki fná þviað einhverjir íáhorf-
endahópnum hafi fengið fáein krampaköst
afhlátri". G.B. Dagur
Sýnt í Tjamarbíói
Sýningin er á leiklistartiátíðinni Á mörkunum
Miöapantanlr í Iönó í síma: 5 30 30 30
Vesturgötu 3 ■■ilWaVJilgJkMIJl
Háaloft
geðveikur svartur gamaneinleikur
íkvöld þri. 14.11 kl. 21
14. sýn. fös. 17.11 kl. 21
15. sýn. fös. 24.11 kl. 21
„Áleitið efhi, vel skrifaður texti, góður leikur og
vönduð umgjörð." SAB.Mbl.
....undirtónninn sár og tregafullur...útkoman bráð•
skemmtileg...vekur til umhugsunar." IHF.DVj
ámöwkunum
Söngkvartettinn Rúdolf
fimmtudaginn 16.11 kl. 20.30
Kvenna hvað...?
íslenskar konur
í Ijóðum og söngvum í 100 ár
Aukasýning lau. 18.11 kl. 20.30
„Fjölbreytilegar myndir...drepfyndnar...6hætt er að
mæla með...fyrir atiar konur — og karia'. SAB.Mbl.
Stormur og Ormur
21. sýn. sun. 19.11 kl. 15. Síðasta sýning
„Einstakur einleikur...heillandi...Halla Margrét
fer á kostum." GUN, Dagur. „Úskammfeilni orm-
urinn...húmorinn hitti beint i mark...' SH/Mbl.
Hratt og bítandi
Skemmtikvöld fyrir sælkera
4ra rétta máltíð með lystilegri listadagskrá
6. sýn. sun. 19.11 kl. 19.30 síðasta sinn
„...ijómandi skemmtileg, listræn og lyst-
aukandi...sælustund fyrir sælkera.“ (SAB.Mbl.)
Ath. Takmarkaður sýningafjöldi.
J'jííJJerigur málswróurfyrir alla
kv<ilcfoi<)bun)i
BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikfélag Reykjavíkur
Næstu sýningar
Matsalur
TERTUKAFFI ÖNDVEGISKVENNA
(KVÖLD: Þri 14. nóvkl. 20
Opinn samlestur á „Öndvegiskonum" e.
Wemer Schwab. Öndvegiskonur eru: Hanna
Marla Karlsdótbr, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir.
Stóra svið
HANSA - TÓNLEIKAR
Mið 15. nóv kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Stórleikkonan Jóhanna Vigdís Arnardóttir
FlíjóiferaÍeíkarar: Ósicar Bnarsson, Sigurður
Flosason, Birgir Bragason og Halldór Hauks-
son. Gestasöngvari: Selma Bjömsdóttir.
Dansarar Or (slenska Dansflokknum: Hlln
Hjálmarsdóttir, Katrfn Johnson og Hildur
Óttarsdóttír.
Stóra svið
SKÁLDANÓTT e. Hallgrfm Helgason
Fim 16. nóv kl. 20 2. sýning
Fös 24. nóv kl. 20 3. sýning
Stóra svið
LÉR KONUNGUR e. William Shakespeare
Fös 17. nóv jd. 20
SÍÐASTA SÝNING
Litía svið
ABIGAIL HELDUR PARTl' e. Mike Leigh
Fös 17. nóv kl. 20 UPPSELT
Lau 18. nóvkl. 19
Stóra svið
KYSSTU MIG KATA e. Cole Porter
Lau 18.nóv kl. 19 AUKASYNING
SÍÐASTA SÝNING!
Stóra svið
(SLENSKI DANSFLOKKURINN
Diaghilev: Goðsagnirnar
Sun 19. nóvkl. 19
Sun 26. nóvkl. 19
AÐEINS ÞRjÁR SÝNINGAR______________
l Bíótónleikar
Fimmtudaginn 16. nóv. kl. 19.30
Lauganfaginn 18. nóv. kl. 15.00
Charlie Chaplin: Innflytjandinn
Buster Keaton: Löggurnar
Harold Uoyd: Aö duga eða drepast
Hljómsveitarstjóri: Rick Benjamin
OZ. fslandsbanki-FBA, SPRON,
menntamálaráðuneytið, (y\
Sendiráð Bandarfkjanna
Kvikmyndasjóður - Kvikmyndasafn íslands
Háskólabíó v/Hagatorg
Sfmi 545 2500
Miöasala aila daga kl. 9-17
www.sinfonia.is SINFÓNÍAN
barna- og fjölskylduleikrit
sýnt f Loftkastalanum
sun. 19/11 kl. 15.30
sun. 26/11 kl. 15.30
Forsala aögöngumlöa f slma 552 3000 /
530 3030 eöa á netinu, mldasala@leik.is
FÓLK í FRÉTTUM
Að mati Sigmars leikur Offspring „sveitaballapönk fyrir ofvirka” af skástu gerð.
ERLENDAH
Sigmar Guðmundsson tók for-
skot á sæluna og grandhlust-
aði á nýjustu plötu rokkaranna
í Offspring Conspiracy of One
sem kom út í gær.
„Eru ekki allir
í stuði hér?“
í GÆR kom út sjötti geisladiskur
rokksveitarinnar Offspring frá Kali-
fomíu, og heitir hann „Conspiracy of
one“. Fögnuður ríkir hjá íslenskum
útvarpsstöðvum fyrir vikið enda er
búið að spila síðasta disk Offspring í
tætlur þar sem sveitin er gríðarlega
vinsæl hér. Ekki er hægt að mæla
með Offspring fyrir gamalmenni eða
eða þá sem veikir eru á taugum. Þetta
er melódískt og hart keyrslurokk, þar
sem hvellur söngur Dexters Hollands
er við það að rífa í sundur hljóðhimn-
ur þehra sem á hlýða og brjóta þann
kristal sem kann að vera í nágrenn-
inu. Þá hef ég aldrei heyrt í hljómsveit
sem notar jafnmikið af alls konar
hvatningarópum og „eruekkiallirí-
isi.i:\sk \ oim ií v\
rrlri' Sími 51! 4200
Stúlkan í vitanum
eftir Þorkel Sigurbjörnsson
við texta Böðvars Guðmundssonar
Ópera fyrir börn 9 ára og eldri
Hljómsveitarstjóri:
Þorkell Sigurbjörnsson
Leikstjóri: Hlín Agnarsdóttir
fim 16. nóv kl. 20 síðasta sýning
Sérstök hátíöarsýning á degi íslenskrar
tungu fim 16. nóv kl. 20 lokasýning
Miðasala Óperunnar er opin kl. 15-19
mán-lau og fram að sýningu sýningar-
daga. Simapantanir frá kl. 10 í síma
511 4200.
Gleðigjafarnir
eftir Neii Simon
Leikstjóri Saga Jónsdóttir
sýn. fös. 17/11 kl. 20
sýn. lau. 18/11 kl. 20 fáein sæti
sýn. þri. 21/11 kl. 20 uppselt
Miðasala opin alla virka daga
kl. 13—17 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
stuðihér!" tilvísunum í textum. Nán-
ast í hverju lagi heyrist Dexter æpa
„ójejejejee" eða „lalalalalalaa“ eða
„givittomebaby11 eða „heibabalúla“
eða ,júkendúit“ eða „ohohoohh-
ooyeah“ eða eitthvað annað sem kem-
ur mannskapnum í stuð. Þetta er
svona sveitaballapönk fyrir ofvirka.
Sem virkar stundum.
Hljómsveitin er hundgömul, stofn-
uð árið 1984, en fyrstu tvær plötur
hennar vöktu litla athygli. Eftir 1990
var Offspring á mála hjá Epitaph-út-
gáfufyritækinu, sem gaf út afurðir
nokkurra vinsælustu pönkhljóm-
sveita Kalifomíu á þessum tíma, t.d.,
Bad Religion og Rancid. Og árið 1994,
þegar platan Smash kom út, voru Off-
springliðar skyndilega flaggberar
hinnar nýju amerísku pönkbylgju,
sem svo var kölluð, sem náði meiri
lýðhylli en nokkum óraði fyrir. í það
minnsta seldist Smash í 9 milljónum
eintaka um allan heim, þar af fjóram
milljónum eintaka í Bandaríkjunum,
enda fantaíín plata. Lögin „Come out
and play“ og „Self-esteem“ vom
nokkurs konar þjóðsöngvar þessa
stóra hóps sem þambaði af áfergju
þennan vel hrærða pönk- og popp-
kokkteil. A sama tíma var hljómsveit-
in Green Day að selja plötu sína
Dookie í svipuðu magni, þannig að
frjór jarðvegur var fyrir þessa tegund
tónlistar á þessum áram. En næsta
skref Offspring virtist ekki gáfulegt.
Þeir yfirgáfu útgáfuna Epitaph sem
hafði reynst þeim svo vel enda erfitt
að standast gylliboð útgáfurisans Col-
umbia. Fyrir það voru þeir harkalega
gagnrýndir í fjölmiðlum af eiganda
Epitaph, Brett Gurewitz, og fleiri
frammámönnum pönkhreyfingarinn-
ar amerísku, ekki síst öðrum hljóm-
sveitum úr sama hópi (sem þó hefðu
vafalítið selt sálu sína og fleygt ömmu
gömlu með í kaupbæti fyrir þær fjár-
hæðir sem í boði voru). Fyrir vikið
floppaði næsta plata illilega. Hún
heitir Ixnay on the hombre og leit
dagsins ljós árið 1997. Gripurinn fékk
lofsamlega dóma en seldist lítið sem
ekki neitt, enda gamla pönksenan í
heilsulausri fylu út í bandið vegna
svika við einhvern meintan pönk-
málstað. Þarna héldu vafalítið flestir
að Offspring væri búin að vera, blaðr-
an sprungin og hljómsveitin útbrunn-
ið skar sem hlyti þau eftirmæli ein að
vera versta fjárfesting Columbia frá
upphafi. En það reyndist heldur bet-
ur líf í líkinu. Geisladiskurinn Amer-
icana kom út í fyrra og lögin „Pretty
fly (for a white guy)“, „The kids aren’t
alright" og „Why don’t you get a job“
slógu í gegn um allan heim og platan
rokseldist. 10 milljón eintök ruku út á
einu ári, ekki amalegt hjá útbrunnum
pönkurum. Platan varð ekki síst vin-
sæl hér á landi og endaði sem ein sú
söluhæsta á síðasta ári í erlendu
deildinni.
Og þeir sem fjárfestu í Americana
og höfðu gaman af geta keypt þessa
án þess að hika enda sami grautur í
sömu skál. Conspiracy of onegeymir
13 lög sem langflest eru í anda þess
sem Offspring hefur verið að fikta við
síðan Smash kom út. En þótt hljóm-
urinn sé sá sami og fyrr hafa þeir
sumpart hert á keyrslunni ef eitthvað
er. Lögin „Come out swingin", „One
fine day“ og titiliagið bera þess að
minnsta kosti merki að þeir félagar
hafi fengið sér nokkra rótsterka es-
presso, eða eitthvað enn sterkara,
rétt áður en þau voru tekin upp. I við-
tölum tala þeir félagar eins og þessi
lög séu dæmi um að gamla pönkið
renni enn um æðar þeirra, en því fer
fjarri. Þótt tónlistin sé hröð, kröftug
og uppfull af gargandi gítarriffum er
hún í raun ámóta mikið pönk og pakki
af hunangs Cheeriosi. Þetta er of
slétt, fellt og mjúkt undir tönn tii að
geta talist pönk, og algerlega laust við
þann hráa kraft sem einkennir þá
tónlistarstefnu. En tónlist Offspring
þarf ekkert að vera verri fyrir vikið,
það er bara erfitt að skiija hvers
vegna þeir halda svo fast í þessa
pönkskilgreiningu sem á ekki lengur
við.
Fyrsta smáskífan af plötunni er
lagið „Original prankster“. Grípandi
lag sem þó verður aldrei jafnvinsælt
og fyrsta smáskífan af Americana,
Pretty fly. Þó fer ekkert á milli mála
að nákvæmlega sama formúlan er
notuð í lögunum báðum, enda hafa
Offspringliðar viðurkennt að þeim sé
ætlað sama hlutverk; að hífa upp sölu-
tölur. Og langstærsti galli þessarar
plötu og reyndar hijómsveitarinnar
er einmitt einhæfnin. Þótt allt sé vel
gert og lagasmíðar góðar kemur fátt á
óvart. Nánast allt hefur þetta heyrst á
fyrri plötum sveitarinnar og það er í
raun fyndið að hlusta á fjórai’ síðustu
plötur Offspring, því þær eru mestan-
part allar eins. Svo virðist sem hljóm-
sveitin hafi ákveðið að sú formúla sem
hún fann upp árið 1994, sé svo góð að
ekki sé nokkur einasta ástæða til að
breyta út af. Það kann að vera rétt hjá
þeim en á þessu era þó ánægjulegar
undantekningar. Á Conspiracy for
one kveður nefnilega við nýjan tón í
þremur lögum. Þau heita „Living in
chaos“, „Denial revisited“ og „Vultur-
es“. Dúndurgóð lög sem bjarga þess-
ari plötu frá forarvilpu meðalmennsk-
unnar. I stað espresso hafa dreng-
imir fengið sér stóra bolla af flóaðri
mjólk rétt áður en þeir þrykktu þeim
á plast, því þau eru mun rólegri en
maður á að venjast frá Offspring. Sér-
staklega tvö þau síðastnefndu og von-
andi að þetta sé forsmekkurinn að
pínulítið breyttum áherslum off-
spring í tónlistarsköpun, tilbreyting-
arinnar vegna. Conspiracy for One er
fráleitt mjög vond plata, en hún er
heldur ekkert sérstaklega góð.