Morgunblaðið - 14.11.2000, Síða 76

Morgunblaðið - 14.11.2000, Síða 76
-^76 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM MYNDBONP Hringleika- hús íþrótt- anna Sunnudagar til sælu Any Given Snnday I) r a m a ★★★ Leikstjóri: Oliver Stone. Handrit: John Logan. Aðalhlutverk: AI Pac- ino, James Woods, Lauren Holly, Dennis Quaid, Jamie Foxx. (157 mín.) Bandarikin. Sam myndbönd, 1999. Myndin er bönnuð innan 16 ára. TONY D’Amato er búinn að þjálí'a Miami Sharks í mörg ár en félaginu hefur aldrei gengið eins illa og á nú: verandi leiktíð. í einum leiknum meiðast tveir aðal- liðsstjórar hans og verður hann að grípa til þess ör- þrifaráðs að notast við nánast því óþekkta stasrð, Willie Berman. Berman byrjar glæsilega þ.e. hann kastar upp á leik- völlinn sem síðar verður að einkennis- merki hans. Þótt Berman standi sig ekki sérstaklega í sínum fyrsta leik þá sér D’Amato að hann býr yfir tals- verðum hæfileikum og ekki h'ður á löngu að Sharks byrja að vinna hvem leikinn á fætur öðrum. Inn í þetta blandast pólitík innan vallar og utan. það er alltaf áhugavert þegar Oliver .-j.,Stone sendir frá sér mynd og mega áhorfendur oftast vera vissir um að vænn skammtur af boðskap leikstjór- ans fylgi með. I þessari mynd hkir hann amerískum fótbolta við þá bar- daga sem áttu sér stað í hringleika- húsinu á tímum rómversku keis- ai-anna. Það eru mörg sterk atriði í myndinni, sérstaklega inni á vellinum og leikararnir standa sig allir mjög vel. Sérstaklega er eftirminnileg sen- an á milli Dennis Quaid og Lauren Holly þar sem Quaid segist ætla að hætta að spila, viðbrögð eiginkonunn- ar em ógleymanleg. Ottó Geir Borg , Lærðu að njóta lífsins! Leyndarmál herra Rice (Mr. Rice’s Secret)__________ I) r a m a ★ Leikstjóri: Nicholas Kendall. Hand- rit: J.H. Wyman. Aðalhlutverk: David Bowie, Bill Switzer, Teryl Rothery. (90 mín.) Bandaríkin. Bergvík, 1999. Myndin er öllum leyfð. OWEN er 12 ára gamall krabba- meinssjúklingur sem hatar það líf sem honum hefur verið gefið. Eini vinur hans er herra Rice (Bowie) en f byrjun myndarinn- ar stendur jarðar- för hans einmitt yf- ir. Owen erfir dulmálshring Rice og finnst honum það harla ómerki- legur hlutur í byrj- un en þegar hann að sniglast um hús hins látna þá finnur hann bréf sem er stílað á sig og er skrifað á dulmáli. vilefst nú Owen handa við að ráða leyndarmál Rice en hinn látni virðist hafa undirbúið þennan leik langt fyr- ir dauða sinn og brátt byrjar Owen að vera jákvæðari í garð tilverunnar. Þetta er ósköp sæt fjölskyldumynd og stendur hinn ungi Bill Switzer sig mjög vel. Þótt Bowie gegni veiga- miklu hlutverki í myndinni þá era at- _ >»riðin með honum sárafá. Ottó Geir Borg Strcep í Óskarsverðlaunahlutverki Sophie ásamt Peter MacNicol í Sophie’s Choice. Forræðisdedan í Kramer vs. Kramer snerti við mörgum. Meryl Streep og Kevin Kline í hlutverkum sínum í myndinni Sophie’s Choice. HÚN er búin að vera skærasta kvenstjarna heimsins í tæpan ald- arfjórðung. Vinna til allra helstu verðlauna, og eiga veigamikinn þátt í fjöld a-gæða- og gangmynda. Það þekkir hana hvert mannsbarn. Hún heitir Meryl Streep, er orðin fimmtug og gengur atvinnulaus. Slíkur er veruleikinn sem blasir við kvenleikurum kvikmynda- heimsins. Um leið og hrukkunum fjölgar fækkar hlutverkunum. Þau stóru og feitu hætta að berast; þau eru skrifuð fyrir ungu veðhlaupa- hryssurnar á framabraut Holly- wood-borgar. Meginreglan er sú að konur eiga að vera í auka- hlutverkum og til uppfyllingar um Ieið og þær nálgast breytinga- skeiðið. Eins og það hálfa sé ekki nóg. Streep stendur þó vel að vígi, hefur átt tiltölulega fáa skelli á glæsilegum ferli og hefur aldrei verið betri leikari né fegurri kona. Skítt með það. Hún má bíða uns Scorsese hugkvæmist að gera mynd um Katrínu miklu eða Spiel- berg um systur Teresu. Streep er þekktust fyrir að geta brugðið sér í nánast hvaða hlut- verk sem er. Það stendur fátt í vegi fyrir henni; gamanmyndir, spennumyndir, dramatík, þá á hún einkar gott með að túlka persónur af ólíkum þjóðernum, þjóðfélags- stéttum, almennar bændakonur sem eðalbornar. Streep er einstak- lega gáfuð og lagin leikkona með tignarlegt útlit. Heimildum ber ekki saman um hvenær Mary Louise Streep fædd- ist. Sumar segja 1949, aðrar ’51. Við skulum fara milliveginn og segja hana fimmtuga. Það gerðist allavega í fylkinu New Jersey, þar sem hún stundaði skólanám og komst fyrst í kynni við leiklistina. Lék í allnokkrum skólaleikritum og hóf markvisst nám í leiklist og klassískum söng 12 ára gömul. Að skyldunámi loknu nam Streep við nokkra af frægustu háskólum austurstrandarinnar; Vassar, Dar- mouth og útskrifaðist að endingu frá leiklistardeildd Yale-háskóla, þar sem hún kom fram í á fjórða tug hlutverka. Þaðan lá leiðin beint á Broadway þar sem henni óx ásmegin, var t.d. tilnefnd til Tony-verðlaunanna fyrir leik í verki Tennessees Williams, 27 Wagons Full ofCotton, ’75. Þá tók við þátttaka í The New York Shakespeare Festival og ári síðar, ’77, kom Streep fram í fyrstu sjón- varpsmyndinni, The Deadliest Season. Sama ár brá henni einnig fyrir í fyrsta hlutverkinu á hvíta tjaldinu, í Juliu, mynd Freds Zinnemans. Það fór ekki ýkja mik- ið fyrri henni á móti Jane Fonda og Vanessu Redgrave. Leikkonan unga vakti hins vegar heimsat- hygli fyrir magnaðan leik í Helför- inni - Holocaust, þáttunum ógleymanlegu um útrýmingar- herferð nasista á hendur gyðing- um í síðari heimsstyrjöldinni. Þeir færðu henni Emmy- verðlaunin og aðalhlutverkið í álit- legri mynd Iítt reynds leikstjóra, Michaels Ciminos. Hún nefnist The Deer Hunter (’78), og almennt tal- in ein af undirstöðumyndum ofan- verðrar 20. aldarinnar. Á þessum tíma var Streep í haningjusam- legri sambúð með John Cazale, einum leikaranna í myndinni. Hann var fársjúkur orðinn af krabbameini þegar hér var komið MERYLSTREEP sögu og lést skömmu síðar. Sfðar á árinu brá henni fyrir í Manhattan í litlu en krassandi hlutverki lesbíu, fyrrverandi eiginkonu leikstjór- ans og aðal- leikarans, Woodys Allens. Ári síðar kom hún enn á óvart í hárfínum, drama- tiskum Ieik í klúta- myndinni Kramer Vs Kramer. Níundi ára- tugurinn gekk í garð og Streep var komin í hóp eftirsóttustu og virtustu leikkvenna kvikmyndaiðnaðar- ins. Hún byrjaði ag miklum krafti í þeirri ágætu mynd The French Lieutenant’s Woman (’81), og fylgdi henni eftir með jafnvel enn glæsilegri frammistöðu í mynd Al- ans J. Pakula, Sophie’s Choice (’82)en kúventi Streep ári síðar, er hún lék ofur venjulega verkakonu við kjarnorkuver í ádeilunni Silk- wood sem er byggð á sönnum at- burðum; konan hvarf sporlaust rétt áður en hún átti að bera vitni í umfangsmiklu máli sem snerti ör- yggismál í þessum umdeildu orku- verum. Streep var tilnefnd til Ósk- arsverðlaunanna. Sápuóperan um Karen Blixen, Out of Africa (’85), færði Streep enn eina tilnefning- una fyrir góða frammistöðu í oflof- aðri og holly- woodseraðri sagn- fræðiglansmynd. Þá hafði hún lokið við tvær, lítt eftir- minnilegar myndir: Plenty (’85) ogFall- ing In Love (’84). Því næst fór hún með að- alhlutverkið á móti Jack Nicholson í hálfmislukkaðri, sjálfsævisögulegri kvikmyndagerð bók- arinnar Heartburn (’86), eftir Noru Ephron, hand- ritshöfund og leik- stjóra. Þá var röðin komin að óþekkjanlegri Streep, sem heilsu- veilum róna með brenndar tennur á tímum kreppunnar, í Ironweed. Sú mynd var sigur fyrir alla sem að henni komu og færði Streep Óskarsverðlaunin. Ári síðar var leikkonan en og aftur í verðlaunaham, var tilnefnd fyrir ski'nandi frammistöðu móður grunaðrar um morð á öræfum Ástralíu, í A Cry in the Dark. Myndin færði Streep verðlaun sem besta leikkonan í Cannes það árið, og sama heiður frá vandfýsnum gagnrýnendum fjölmiðla New York-borgar. 1989 kom skrýtin mynd eftir sérstakri bók Fay Meryl Streep hefur verið ein eftirsóttasta leikkonan í Hollywood í rúma tvo áratugi. SIGILD MYNDBOND THE DEER HUNTER (1978) ★★★★ Myndin hefst á löngum kafla í stál- iðnaðarborg í Pennsylvaníu, þar sem vinirnir De Niro, Savage og Walken era að ljúka vinnu og er stefnan tek- in á Víetnam sem er ævintýri í þeirra augum. Stór hluti hans er brúð- kaupsveisla Savage, sem jafnframt er kveðjuveisla félaganna og síðasta hamingjustund þeirra saman, og táknræn veiðiferð til fjalla. Síðan er áhorfandanum, sem persónunum, grýtt inní blóðbaðið í Víetnam og því lýst hvernig vinirnir þrír bregðast við hörmungunum. Síðasti hlutinn fjallar svo um eftirhreyturnar, hvernig stríðið lék þá. Myndin er minna um stríðið en heiðarlegar manneskjur sem reyna að sætta sig við kringumstæður sem þær skilja ekki. Epískt snilldarverk um mann- raunir og djöfulskap, en ofar öllu tryggð og vináttu. Ein sterkasta stríðsádeila kvikmyndasögunnar. Streep fer með frekar lítið en veiga- mikið hlutverk vinkonu þeirra félag- anna. Býður í festum eftir Walken, sem aldrei mætir, en elskar De Niro. Er afburðagóð og færði leikkonunni sína fyrstu óskarstilnefningu og verðlaun samtaka gagnrýnenda New York. IRON WEED (1987) ★★★★ Mögnuð mynd eftir stórkostlegri bók um mannlega bresti og h'fið á botninum. Aðalpersónurnar era drykkjusjúklingar og flækingar und- ir lok fjórða áratugarins í Albany, N.Y, þó ekki dæmigerðir rónar. Hann (Jack Nicholson) er gamall hornaboltakappi á eilífum flótta und- an sáram minningum, hún (Meryl Streep) er vel menntuð, hæfileikarík og af efnafólki komin, en einhvers staðar farið útaf sporinu á leiðinni. Og nú eru þau stödd í Albany, þar sem öll ósköpin byrjuðu. Grípandi mynd sem dregur upp dekkri hliðar mannlífsins á erfiðum tímum þegar landhlauparar áttu hvergi höfði sínu að halla. Nicholson og Streep eiga góðan dag í hlutverkum óhamingju- fólks sem er að bergja síðustu römmu dreggjarnar á mislukkuðu æviskeiði. Minniháttar meistaraverk í alla staði. SOPHIE’S CHOICE (1982) ★★★★ Eitt eftirminnilegasta afrek Streep á tjaldinu er túlkun hennar á Sophie, pólskættaðri gyðingakonu í Brooklyn sjötta áratugarins. Hún býr yfir hræðilegri harmsögu, lífs- reynslu sem mai'kar hvert fótmál hennar. Á tímum síðari heimsstyrj- aldarinnar sat Sophie í illræmdum fangabúðum naista í Auschwitz og var neydd til að taka afdrifaríkustu ákvörðun lífs síns. Omennska, ægi- legri en orð fá lýst. Hin illu öfl í öllu sínu veldi samsamast í ákvörðun djöflanna í Auschwitz. Streep verður þessi langþjáða kona, jafnvel fram- burðurinn er ótrúlegt afrek. Myndin segir einnig frá ástarsambandi henn- ar við andlega vanheilan snilling og sjarmör, afar vel leikinn af Kevin Kline, og saklausan, upprennandi rithöfund frá SuðuiTÍkjunum sem Peter MacNicol ljáir barnslegt sak- leysi og skáldlegt innsæi. Hann er vísast byggður á bókarhöfundinum sjálfum, William Styron. Weldon, Ástir ogævi kvendjöfuls - She-Devil. Rosanna Arquette er illþolandi í drottnandi hlutverki en Streep kemst engu að síður mjög vel frá sinni litlu og kisulegu rullu sem gaf henni óvenjulegt tækifæri í hlutverki minnipokamanneskj- unnar. Death Becames Her (’89), brellum hlaðinn gamanhrollur eft- ir Zemeckis, ein af hæpnari mynd- um þess ágæta manns. Árið eftir var leikkonan enn og aftur til- nefnd fyrir stormandi frammi- stöðu sína í aðalhlutverkinu í Post- card From the Edge. Þar tekur Streep meira að segja lagið. Mynd- in er byggð á sjálfsævisögulegri upprifjun viðskipta leikkonunnar Carrie Fisher við sína frægu og skapmiklu móður, prímadonnuna Debbie Fisher, sem Shirley Mc- Laine leikur með ámóta tilþrifum. Á eftir fylgdi eitt af aðal- hlutverkum kvikmyndagerðar annarrar, frægrar metsölubókar - Húsi andanna (’93), eftir Isabel Allende. Mynd Billes Augusts fékk mjög misjafna dóma, Streep stend- ur sig vel, líkt og flestir í fagmann- lega samvöldum leikhóp. Nú var komið fram á tíunda ára- tuginn og tími kominn til breyt- inga. Streep hafði farið á kostum í gamansömum hlutverkum og dramati'skum, því tók hún að sér dæmigert karlahlutverk í spennu- tryllinum River Wild (’94). Lék harðsoðna kvensu sem á í höggi við morðingja, ofan á ógnir fossa og flúða straummikillar ár. Minnir nokkuð á Deliverance, og þolir illa samanburðinn. Streep var engu að síður í essinu sínu. Þá var röðin komin að sfðasta, umtalsverða hlutverki Streep á svipmiklum ferli. Hún fer undurvel með hlut- verk bóndakonu sem fellur fyrir töfrum aðvífandi Ijósmyndara og heimsmanns, sem skýtur upp koll- inum til að mynda brýrnar í sveit- inni hennar þegar bóndi og börn eru í nokkurra daga kaupstaðar- ferð. Clint Eastwood leikur á móti henni og leikstýrir þessari ágætu mynd, Brýrnar í Madison-sýslu - The Bridges of Madison County (’95). Streep hlaut óskarstilnefn- ingu, hvað annað? Síðan hefur heldur hallað undan fæti. Streep stóð sig með ágætum á móti Leonaddo Di Caprio og Diane Keaton í Marvin’s Room (’96), áður en hún vann til enn einnar tilnefningarinnar fyrir há- dramatískt hlutverk krabbameins- sjúklings, eiginkonu og móður í One True Thing('88). Hún var í stuttu máli; mynd of margra klúta. Streep býr sig afar vel undir hvert og eitt hlutverk. Gott dæmi um vandvirknina og ögunina er að hún lærði á fiðlu fyrir tökur Music ofthe Heart (’99). Sex stundir á dag í tvo mánuði. Streep tók við hlutverkinu þegar Madonna hætti við það (dæmigert fyrir ástandið), það færði henni tólftu óskars- verðlaunatilnefninguna og skipaði Streep við hliðina á Katherine Hepburne, sem sú leikkona sem flestar hefur hlotið. Ekki ónýtur félagsskapur það. Sama ár var hún valin besta leikkona samti'mans af hinu víðlesna tímariti, Entertain- ment Weekly. Streep er hamingju- söm í einkalífinu og hefur, þrátt fyrir allt álagið, gefið sér tíma til að eignast 4 börn með bónda sín- um. Sæbjörn Valdimarsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.