Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 84
PÓSTURINN
m, fa Einn heimur
- eitt dreifikerfi!
www.postur.is
MORGUNBLADIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF 3M0,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJmBLIS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Mikill óróleiki á ASÍ-þingi vegna stjórnarkjörs og skiptingar sæta í miðstjórn
Stefnir í átakakosningu
’um forseta og miðstjórn
ALLT útlit er fyrir að mikil átök verði við kosn-
ingu á þingi Alþýðusambandsins um næsta forseta
sambandsins og fulltrúa í 15 manna miðstjórn
ASÍ. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, og Ari
Skúlason, framkvæmdastjóri sambandsins, hafa
báðir lýst yfir framboði sínu til embættis forseta.
Mikil spenna og óróleiki var meðal þingfulltrúa
sem rætt var við í gær vegna yfirvofandi forseta-
kosninga og óvissu um skipan miðstjórnar. „Þetta
er allt saman algjörlega í loftinu," sagði einn af
forystumönnum sambandsins í gærkvöldi.
Formaður kjörnefndar lýsir
stuðningi við Ara Skúlason
Halldór G. Björnsson, formaður Starfsgreina-
sambandsins, sem er formaður kjörstjómar ASI-
þingsins, segir ljóst að kosningar muni fara fram
um forseta. Níu manna kjörnefnd hefur verið falið
að gera tillögu til þingsins um forsetaefni, varafor-
seta og miðstjórn. Halldór segir ólíklegt að kjör-
nefnd muni ná samkomulagi um eina tillögu í emb-
ætti forseta nema annar hvor frambjóðandinn
dragi framboð sitt til baka.
Aðspurður sagðist Halldór sjálfur hafa lýst því
að hann hallist að því að styðja Ara Skúlason,
„vegna þess að ég tel að við þurfum að fá einhverja
breytingu. Þeir eru báðir mjög góðir menn en Al-
þýðusambandið þarf að verða sýnilegra en það
hefur verið undanfarin ár,“ sagði hann. Skv. dag-
skrá þingsins fara kosningar fram síðdegis á mið-
vikudag.
Ari lýsti því yfir á þinginu í gær að hann hefði
ákveðið að verða við áskorunum margra félaga
sinna og gefa kost á sér sem forseti sambandsins
fari kjömefnd þingsins fram á það.
Grétar Þorsteinsson sagði að framboð Ara
kæmi ekki á óvart og breytti engu um ákvörðun
hans að gefa kost á sér til endurkjörs.
VR tekur ekki þátt
í starfl kjörnefndar
Mikil óvissa er einnig um hvort eitthvert sam-
komulag næst um kjör í 15 manna miðstjóm sam-
bandsins en skv. tillögum um breytingar á lögum
ASÍ, sem liggja fyrir þinginu, fækkar miðstjómar-
fulltrúum úr 21 í 15. Gæta þarf jafnvægis á milli
landssambanda, stærstu aðildarfélaganna, sem
em Verzlunarmannafélag Reykjavíkur og Efling,
og á milli landshluta og kynja. „Það er mjög ei-fitt
að gera svo öllum líki, menn telja að þeirra hlutur
eigi ekki að skerðast en staðreyndin er sú að það
er verið að fækka um sex manns og það kemur ein-
hvers staðar niður,“ sagði Halldór.
Hann sagði að ákveðin forvinna hefði átt sér
stað um skipun í miðstjórn en verslunarmenn
hefðu lítið viljað koma að þeirri vinnu sem hafi
valdið erfiðleikum. VR á ekki fulltrúa í kjömefnd-
inni og sagði Halldór að félagið hefði ekki viljað
taka þátt í neinni undirbúningsvinnu. „Ég skil það
ekki almennilega vegna þess að það er félagsleg
skylda félaga að taka þátt í þessu,“ sagði hann.
Látum þetta afskiptalaust
„Við látum þetta afskiptalaust og það mun hver
fulltrúi greiða atkvæði eins og samviskan býður,“
sagði Magnús L. Sveinsson, formaður VR, að-
spurður um þetta í gærkvöldi.
Miðstjórn Rafiðnaðarsambandsins kom saman
sl. föstudag og samþykkti stuðning við Ara Skúla-
son í embætti forseta.
■ Teikn um/42
Viðgerð á
brúnni yf-
ir Djúpá
lokið
BRÚARFLOKKUR Vega-
gerðarinnar, undir forystu
Sveins Þórðarsonar verkstjóra,
lauk síðdegis í gær viðgerð á
brúnni yfir Djúpá í Fljóts-
hverfi. Miklar skemmdir urðu á
brúnni á föstudagskvöld.
Styrktarbitar sem halda
henni saman að ofan brotnuðu
þegar stór vörubíll með trakt-
orsgröfu á pallinum ók yfir
brúna. Grafan rakst þá í
styrktarbitana og braut þá alla
af. Við þetta minnkaði burðar-
þol brúarinnar verulega og var
aðeins hleypt yfir hana bílum
sem vom ekki yfir fimm tonn að
þyngd. Töfðust flutningabílar
því nokkuð en um síðir var
þeim hjálpað yfir ána á vaði.
Að sögn Gylfa Júlíussonar,
reksti-arstjóra Vegagerðarinn-
ar í Vík í Mýrdai, em 5 metrar
frá gólfi að bitunum en
hámarkshæð ökutækja er 4,20
m.
Unnið í
kuldanum
KALT var á starfsmönnum Vikur-
vara ehf. í Þorlákshöfn í gær þegar
þeir stóðu á vikurhaug og voru að
gera við færibandið. Þurftu þeir að
nota heitt vatn til að geta hreyft
bandið. Vikurvinnsla liggur niðri í
frosti vegna þess að þá skekkjast
færiböndin auk þess sem vikurinn
frýs í köggla.
Yó salt á
bakka
Lækjarins
OKUMAÐUR missti stjóm á bíl sín-
um vegna hálku við Lækinn í Hafn-
arfirði seint í gærkvöldi með þeim af-
leiðingum að bíllinn fór með
framendann ofan í Lækinn og vó salt
á bakkanum.
Bflstjórinn var einn á ferð og stóð
hann á bremsunum þegar að var
komið til þess að bíllinn færi ekki of-
an í Lækinn og fljótlega var sett tóg í
vs' -annan bfl til að halda við. Síðar kom
dráttarbíl og snaraði honum upp á
götuna aftur. Maðurinn slapp
ómeiddur frá óhappinu, að sögn lög-
reglu.
Morgunblaðið/Rax
Microsoft
Offiœ 2001
aoo
Skaftahlíð 24 • Síml 530 1800 • Fax 530 1801
Knúið á um staðfestingu
íslenska ákvæðisins
TEKIST verður á um hvort stað-
festa beri „íslenska ákvæðið“ á sjötta
fundi ráðstefnu aðildarríkja ramma-
samnings Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsbreytingar sem hófst í Haag
í Hollandi í gær. Þar eru sendinefnd-
ir um 180 þjóða og Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra sækir fundinn á
síðari stigum ásamt fjölmörgum ráð-
herrum annaira aðildarríkja.
Að sögn Sivjar er mikilvægi fund-
arins gríðarlegt fyrir Island enda
hyggist íslensk stjórnvöld freista
þess að fá „íslenska ákvæðið" viður-
kennt en í því felst að tekið sé tillit til
lítilla hagkerfa þar sem einstök stór-
iðjuverkefni geta haft mikil áhrif á
heildarlosun gróðurhúsalofttegunda.
Islenska leiðin felst í að losun frá
nýjum iðjuverum eða stækkun eldri
vera sem leiðir til meira en 5% aukn-
ingar á heildarlosun í viðkomandi
ríki á tímabilinu 2008-2012, verði
haldið utan við losun landsins að
uppfylltum tilgreindum skilyrðum.
„Eg er hóflega bjartsýn. Þetta er
hins vegar gífurlegt hagsmunamál
fyrir okkur,“ segir ráðherra.
■ ísland og álið/30-34