Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 1
294. TBL. 88. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Clinton og Madeleine Albright utanríkisráðherra ræða við samninga-
fulltrúa Palestínumanna og ísraela í Hvíta húsinu.
Þungur tónn í
sáttafulltrúum
George W. Bush útnefnir fjóra ráðherra til viðbótar
Telur reynslu O’Neills
nýtast ef harðnar í ári
Austin í Texas. AP.
VÆNTANLEGUR forseti Banda-
ríkjanna, George W. Bush, varaði í
gær við hættunni á niðursveiflu í
efnahagslífinu og útneftidi kaupsýslu-
manninn Paul O’Neill í embætti fjái'-
málaráðherra í komandi ríkisstjóm
sinni. Reynsla O’Neiils af fyrirtækja-
rekstri og styrk hönd myndu koma
sér vel fyrir bandarísku þjóðina ef
harðnaði á dalnum.
Skömmu síðar bætti Bush við þrem
ráðherraútnefningum. Ann Venemen
verður landbúnaðarráðherra í stjórn
hans og verður jafnframt fyrsta kon-
an sem gegnir því embætti í Banda-
ríkjunum. Mel Martinez verður
ráðherra húsnæðismála og byggða-
þróunar en hann er kúbanskur
flóttamaður sem komst til æðstu met-
orða í embættismannakerfi Flórída-
ríkis. Don Evans, „aldavinur“ Bush
og fyrrverandi kosningastjóri hans,
verður viðskiptaráðherra.
Bush lagði áherslu á mikilvægi út-
nefningar fjármálaráðherra í kom-
andi ríkisstjóm. „Efnahagslífið [í
Bandaríkjunum] hefur sýnt varúðar-
merki um að ef til vill fari að hægja á
því,“ sagði Bush. Því væri ákaflega
mikilvægt að finna mann með mikla
reynslu sem nyti trausts. Slíkur mað-
ur væri O’Neill.
Fjármálasérfræðingar bmgðust
flestir vel við útnefningunni en sumir
kváðust efast um að hann hefði þá
reynslu af fjármálamarkaði sem Rob-
ert Rubin, fyrrverandi fjármálaráð-
herra í stjóm Clintons, hafi haft.
Bush hefur nú greint frá vali sínu í
tvö af þeim þrem ráðherraembættum
er varða utanríkisstefnu, utanríkis-
og fjármálaráðherra, og á þá aðeins
eftir að útnefna vamarmálaráðherra.
Fréttaskýrendur telja líklegt að
Daniel Coats, fyrrverandi öldunga-
deildarmaður, taki við því embætti.
■ Paul O’Neill verður/34
í Washington
Washington. AFP.
, HÆST settu samningafulltrúar Pal-
estínumanna og Israela áttu í gær
fund með Bill Clinton Bandaríkjafor-
seta í Hvíta húsinu. Að fundinum
loknum hétu fulltrúamir því að kom-
ast að víðtæku samkomulagi en gættu
þess að vekja ekki óraunhæfar vonir.
„Ég vii ekki auka væntingar
manna," sagði Saeb Erakat, formað-
ur samninganefndar Palestínu-
manna, við fréttamenn eftir fundinn
með Bandaríkjaforseta. Utanríkis-
ráðherra Israels, Shlomo Ben Ami,
sat einnig fundinn.
Erakat sagði enn fremur að allt
væri gert til að ná samkomulagi. ísra-
elskur embættismaður tjáði frétta-
mönnum að „mögulegt væri [að] ár-
angur næðist“ og hægt yrði að koma
friðarumleitunum aftur á réttan kjöl.
Embættismaðurinn sagði að á
fundi Clintons og samningafulltrú-
anna hefði ekkert verið rætt um
mögulegan fund Clintons með Yasser
Arafat, forseta heimastjómar Palest-
ínumanna, og Ehud Barak, forsætis-
ráðherra Israels.
Hæst settu samningafulltrúar
deiluaðila komu til Washington sl.
þriðjudag en sögðu í gær að þeir væru
ekki bjartsýnir á að nokkuð þokaði í
viðræðum í Ijósí sífelldra átaka ísra-
elskra hermanna og herskárra Pal-
estínumanna undanfarið. í gær féllu
þrír Palestínumenn fyrir kúlum ís-
raela.
ísraelskur embættismaður tjáði
fréttastofu AFP að viðræðumar í
Washington núna hefðu verið gagn-
legar. Erakat kvaðst aftur á móti ekki
geta sagt til um hvort viðræðumar
hefðu skilað árangri eða ekki.
Talsmaður Bandaríkjaforseta,
Jake Siewert, sagði að með fundinum
hefði forsetinn viljað „kanna stöðuna,
athuga hvar þeir em staddir og
ákveða hvort það er eitthvað sem við
getum gert til að þoka málum áfram.“
Siewert var spurður hvort þetta
væri til marks um að vænta mætti
frekari þátttöku Clintons sjálfs í frið-
arumleitunum. Svaraði hann því til,
að forsetinn væri reiðubúinn til að
leggja allt sitt að mörkum en þegar
öllu væri á botninn hvolft réðu deilu-
aðilar ferðinni og þeir yrðu að ákveða
hvað þeir gætu sæst á til að binda
endaáátökin.
■ Arafat sakar ísraela/33
Reuters
mikið af olíu
Grænlandsís
Segja
undir
Kaupmannahðfn. Morgunblaðið.
BANDARÍSKIR vísindamenn
telja að stór hluti af olíuforða fram-
tíðarinnar sé að finna undir Græn-
landsísnum. Þetta kemur fram í
skýrslu sem Bandarískar jarð-
fræðirannsóknir (U.S. Geological
Survey) hafa gefið út en í henni
áætla jarðfræðingar að um 47
milljarða tunna af olíu sé að finna
undir íshellunni á Norðaustur-
Grænlandi. Það er tvöfalt meira en
það magn olíu sem talið er að sé í
Norðursjó. Þetta kemur fram í
blaðinu Polarfronten sem Danska
heimskautastofnunin gefur út.
í bandarísku skýrslunni leggja
jarðfræðingar mat á heildarolíu-
Tvöfalt meira
magn en talið er
undir Norðursjó
forða heimsins næstu 30 árin. Telja
þeir nú að hann sé um 649 mill-
jarðar tunna sem er 20% meira en
fyrra mat þeirra. Danska heim-
skautastofnunin telur að um vand-
aða rannsókn sé að ræða en varar
þó við því að menn rjúki upp til
handa og fóta. „Land hefur risið á
Norðaustur-Grænlandi, gagnstætt
því sem gerst hefur í Norðursjó.
Við landris er hætta á að olían ber-
ist út í jarðlögin og jafnvel upp í
sjó. Gerist það er hætt við að oh'an
hafi verið til staðar en að við hefj-
um leitina of seint,“ segir Flemm-
ing Christiansen jarðfræðingur við
Dönsku jarðfræðirannsóknastofn-
unina.
Eins og gefur að skilja eru allar
aðstæður til leitar og borunar á
Norðaustur-Grænlandi afar erfið-
ar vegna þess hve norðarlega
svæðið er. Engar áætlanir eru um
að leggja aukið fé til frekari kort-
lagningar af jarðskorpunni undir
Grænlandsísnum þrátt fyrir niður-
stöðu bandarísku jarðfræðing-
anna.
Mótmælum
lauk frið-
samlega
Lundúnum. AFP.
HÓPUR Tyrkja tók síðdegis í gær á
sitt vald stóra pari'sarþjóiið sem
gnæfir yfir miðborg Lundúna. Hóp-
urinn lót síðan af aðgerðum sínum
með friðsamlegum hætti í gær-
kvöldi. Með þessu vildu Tyrkirnir,
sem eru Kúrdar, mótmæla slæmri
meðferð tyrkneskra stjórnvalda á
föngum þar í landi. Tyrkirnir lögðu
undir sig tvo kláfa á hjólinu, sögðu
að einn maður í hvorum kláfi hefði
hellt yfir sig bensíni og væri
reiðubúinn að kveikja i' sér. Mót-
mælin 1' Lundúnum tengdust að-
gerðum tyrkneskra stjórnvalda
gegn fóngum þar í landi, er verið
hafa í' hungurverkfalli, en að
minnsta kosti 19 manns hafa iátið
lífið í aðgerðunum.
■ Fangauppreisn/33
Utanríkisráðherra
Dana segir af sér
Evrópu-
málin
gerðu
útslagið
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
AFSÖGN Niels Helveg Petersen ut-
anríkisráðherra Danmerkur í gær
kom fylgismönnum hans sem og
andstæðingum algerlega í opna
skjöldu. Ráðherrann er einn reynd-
asti stjórnmálamaður landsins og sá
utanríkisráðherra Evrópusam-
bandsins sem setið hefur lengst. Það
voru einmitt Evrópumálin, fyrirvar-
ar Dana við Maastricht-samkomu-
lagið, sem urðu til þess að Helveg
ákvað að draga sig í hlé.
Hart hefur verið tekist á um skil-
mála sem Danir hafa sett við þáttöku
í Evrópusamstarfinu sl. ár og kváð-
ust talsmenn nei-hreyfingarinnar
svokölluðu ekki gráta brotthvarf
Helvegs úr embætti. Lagði Drude
Dahlerup, formaður Júníhreyfingar-
innar, til að eftirmaður hans yrði
stjómmálamaður sem andvígur væri
of nánu samstarfi innan ESB og end-
urspeglaði þannig vilja þjóðarinnar.
Samherjar Helvegs í ríkisstjórn-
inni, Marianne Jelved, samflokks-
kona hans og efnahagsmálaráð-
herra, og Poul Nyrup Rasmussen
forsætisráðherra, hörmuðu ákvörð-
unina og báru lof á ráðherrann frá-
farandi. Anders Fogh Rasmussen,
formaður Venstre, lauk einnig lofs-
orði á Helveg en sagði að brotthvarf
hans veikti ríkisstjómina að mun þar
sem hann hefði verið einn helsti drif-
krafturinn í henni.
■ Ekki rétti maðurinn/34
MORGUNBLAÐIÐ 21. OESEMBER 2000