Morgunblaðið - 21.12.2000, Qupperneq 84
84 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
Kærleiks-
ríkir
kiðlingar
TÓNLIST
Geisladiskur
GLEÐILEGJÓL
Gleðilegjól, geisladiskur Kiðling-
anna 6 sem eru þau Ómar Örn Óm-
arsson, Óskar Steinn Ómarsson,
Hrefna Þórarinsdóttir, Kristján
yalgeir Þórarinsson, Þóranna Þór-
arinsdóttir og Arnar Þór Þórsson.
Þeim til aðstoðar eru þeir Berg-
steinn Ómar Óskarsson (kassagítar
og bassi), Ásgeir Óskarsson
(trommur og slagverk), Tryggvi
Hiibner (rafmagnsgítar) og Þórir
Ulfarsson (hljómbprð). Lög og
textar eru eftir B.Ó. Óskarsson.
Upptökum stýrði Bergsteinn Ómar
Óskarsson. 23,15 mín. Ekkert er
gefið upp um útgefanda en þar sem
vörutalan er KIÐ 001 má gera því
skóna að Kiðlingarnir ásamt, að-
stoðarmönnum standi sjálfir að út-
gáfunni.
ÚTGÁFA á smáskífum er ekki al-
yeJng hérlendis en hér er komin ein
slík, tveggja laga platan Gleðilegjól,
runnin undan rifjum sönghópsins
Kiðlingamir 6, sem samanstendur af
krökkum á aldrinum 6 til 13 ára.
Lögin eru ósköp hefðbundið popp.
Fyrra lagið þó með undarlega
þungri undiröldu, smá Oasis keimur
af því. Seinna lagið er svo hálfgerður
sveitatónlistarbragur. Söngur Kið-
linganna er fínn, einkennist eðlilega
af hástemmdum og einlægum bama-
rómum og er hress og lifandi. Text-
arnir impra, góðu heilli, á hinum
s'anna anda jólanna. Áherslan er á
kærleikinn og afmælisbamið sjálft,
hann Jesú. Ekkert „ég fæ jólagjöf*
eða álíka efnishyggjulof sem er hið
besta mál.
Útgáfuformið er það eina sem er
svolítið sérkennilegt hér og maður
veltir ýmsu fyrir sér. T.d. hvort tvö
lög réttlæti útgáfu, hvort ekki beri
fremur að safna í sarpinn og gefa út
breiðskífu. Það er nefnilega beitt
furðulegri aðferð til að gera diskinn
90 % afsláttur í
Nema hvað?
VITASKULD tekur Gallerí Listaháskóla íslands
þátt í jólaösinni með viðeigandi hætti, nema hvað?
Þar verður gestum og gangandi boðið að njóta ró
og næðis í galleríinu sem er staðsett í hjarta mið-
bæjarins á Skólavörðustíg 22. Stemmningin er
persónuleg og þjónustan er öll hin þægilegasta.
Þar er jafnvel hægt að klára síðustu jólainnkaupin
þar sem allar jólagjafavörumar era með 90% af-
slætti í gallerunu aðeins þessa fáu daga. Ef fólk
hefur fengið nóg af amstri og stressi á jólaföstunni
er þetta gullið tækifæri til þess að staldra við, setj-
ast niður og hugleiða jólaboðskapinn. Gestum
verður boðið uppá kökur og kaffi en einnig verður
á staðnum róleg og góð tónlist svo fólk geti slapp-
, Morgunblaðið/Golli
I gallerí Nema hvað veður þægileg stemning al-
vegtil jóla.
að af og látið hugann reika. Opnunartimi er frá 14
og 17 alveg til jóla og era allir þeir sem hafa
spennt sig upp útaf jólunum hvattir til að mæta og
láta þreytuna lfða úr sér við innkaupin.
T
„eigulegri“, en lögin tvö eru
tekin þrisvar! Að síðustu eru þau svo
spiluð án söngs, svona svo að fólk
geti sungið lögin sjálf. Þá hefði nú
verið ágætt að láta textablað fylgja
með, en því er ekki fyrir að fara ein-
hverra hluta vegna. Annars var
óspilaða útgáfa af seinna laginu mér
nokkuð gagnleg þvi er röddunum
sleppti, sem eru auðvitað miðlægar í
sungnu útgáfunum, sá ég að lagið
sjálft er hinn ágætasti sveitatónlist-
arslagari.
En þetta eru nú bara svona al-
mennar vangaveltur, eru hérna að-
allega til að fylla út í lágmarkslengd
dómsins. Að öðru leyti hef ég ekkert
við þetta að athuga. Lögin tvö eru
ágætis jólalög, grípandi og skemmti-
lega flutt. Það er svo sem ekki verið
að fínna upp hjólið en þau eru langt
frá því að vera einhver froða. Kið-
lingamir knáu mega því barasta
vera kátir með þetta.
Arnar Eggert Thoroddsen
HINN 14. desember var opnuð sýn-
ing á einum af þekktari stöðum
borgarinnar, stað sem allir hafa
gengið framhjá en fáir nýtt sér á
seinni árum. Þetta er Bankastræti
núll, en það er listamaðurinn Finna
Birna Steinsson sem hefur komið
listinni þar fyrir og kallar sýninguna
Kooks 00.
Bankastræti núll var tekið í notk-
un alþingishátíðarárið 1930, en það
ár kom fjöldi erlendra ferðamanna
og höfðingja til landsins í tilefni af
hátíðahöldunum. Fyrir venjulegan
íslending, ekki síst sveitamanninn,
hefur þetta verið mjög framandi og
nýstárlegt. Koma almenningssal-
ema í Bankastræti núll eða „Núll-
ið“, eins það hefur síðan verið kallað,
boðaði nýjan tíma eftir 1.000 ára
hægfara þróun í salernismálunum.
En núna eru þessi salerni mjög lítið
notuð, nánast gleymd, þó þau séu
enn á sínum stað í hjarta Reykjavík-
ur. Fólk fer annað núna.
Vísindamaður
með gott nef
Finna segir að hún hafi lengi haft
áhuga á að nota Núllið sem sýning-
arrými og tengja það við eitthvað
sem félli vel að því. „Ég er eiginlega
að fjalla um tvö gleymd fyrirbæri
Listin á klósettinu
Klósettlist
sem vom mjög þékkt á sínum tíma,
Bankastræti núll og vísindamanninn
Gustav Jaeger. Það er ýmislegt
sameiginlegt með þeim, og m.a.
lyktin sem tengir. Þegar ég rakst á
örstutta frásögn í tímariti um Gust-
av Jaeger og kenningar hans um
lyktina taldi ég mig hafa fundið
rétta andrúmsloftið. Það var heil-
mikil fyrirhöfn að nálgast bækur
Jaegers, þær eru ekki til hér á landi
og það tók mig nokkra mánuði að fá
þær sendar hingað frá þýskum
bókasöfnum. Þeir voru mjög tregir
að senda þær því þær eru orðnar
svo gamlar.
Jaeger var mjög sérstakur vís-
indamaður, nákvæmur og framúr-
stefnulegur og gerði lyktarathugan-
ir á sjálfum sér, konu sinni og
börnum. Hann fékk þau öll og
marga fleiri til að klæðast ullarföt-
um og sofa undir ullarteppi og taldi
að við það læknaðist fólk af ýmsum
skapgerðargöllum, öðlaðist innri
frið, fengi aukið vinnuþrek, losnaði
við vonda lykt o.s.frv.
Með sýningunni segist Finna leit-
ast við að setja gamalgróinn og hálf-
gleymdan stað í hjarta Reykjavíkur
og úr sér gengnar vísindakenningar
frá fyrri tíð í nýtt samhengi. Nafnið
á sýningunni, Kooks 00, eigi að
tengja þessi fyrirbæri saman.
„Það eru ýmsar vísanir í þessu
öllu fram og til baka og hugrenn-
ingatengsl sem menn geta velt fyrir
sér og dregið sínar eigin áLYKT-
anir,“ segir Finna að lokum.
Fjarstaddir geta nálgast sýn-
inguna og hugmyndir Jaegers á
Netinu undir veffanginu www.ko-
oks00.com, og þá jafnframt komist
bæði inn á karla- og kvennaklósettið
í Bankastræti núll.
Morgunblaðið/Kristinn
Bankastræti núll
JOLA-
DANSLEIKUR
MILLJÓNAMÆRINGANNA
Bogomil Font, Páli Óskari, Ragnari Bjarnasyni og Bjarna Arasyni,
26. desember, annan íjólum, í Súlnasal á Radisson SAS Hótel Sögu
Bogomil Font
HOTELS & RESORTS
nútfin
Bjami Arason ftHFtlRpH
Sími 595 1960,
Forsala aðgöngumiða í Samspili Nótan,
Skipholti 21, frá 20. des.
Andyrí Súlnasals á Radison SAS Hótel Sögu
26. desember frá kl. 13-20
Ragnar Bjarnason
Spariklæðnaður
Miðaverð kr. 1.800
Húsið opnað kl. 22.00
Arnaldur Halldórsson
Kanada gaf út plötu samnefnda
sveitinni í sumar.
Radio X
býður
gleðilegjól
SVONEFNDIR X-Mass hljómleikar
verða nú haldnir í þriðja sinn, í
þetta skiptið á veitingastaðnum
Gauki á stöng. Það er útvarpsstöðin
Radio-X sem stendur fyrir uppá-
komunni en hún er haldin til styrkt-
ar Alnæmissamtökunum á Islandi
og hefst hún kl. 21.00. Aðgangs-
eyrir er 1000 kr. Fram koma Súr-
efni ásamt æringjunum í útvarps-
þættinum Ding Dong, Heiða og
Heiðingjarnir, Stjörnukisi, Botn-
leðja, Kanada, Egill Sæbjörnsson,
Mfnus og Tvíhöfði. Eins og venju-
lega er hverri sveit tilskipað að
flytja a.m.k. eitt jólalag og hafa
sveitirnar nálgast það verkefni með
ýmsum hætti í gegnum tíðina. í ár
ætla Stjörnukisi og Kanada t.a.m.
að leika frumsamin jólalög á meðan
Mínus ætla að gera sér lítið fyrir og
renna sér ljúflega í gegnum Band-
Aid slagarann „Do they know its
Christmas?“.