Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 82

Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 82
82 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÖQ)j ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00: ANTÍGÓNA eftir Sófókles Frumsýning annan í jólum 26/12 uppselt, 2. sýn. mið. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. fim. 28/12 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus. 'HORFÐU REIÐUR UM ÖXL eftir John Osborne Fös. 29/12, lau. 6/1, sun. 7/1. Smíðaverkstæðið kl. 16.00: MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI eftir Marie Jones Frumsýning lau. 30/12, uppselt, fim. 4/1 kl. 20.30, fös. 5/1 kl. 20.30. GJAFAKORT í ÞJÓÐLEIKHÚSIB - GJÖFIN SEM LIFNAR iM! www.leikhusid.is midasala@leikhusid.is Símaoantanir frá kl. 10 virka daga. Miðasalan er opin mán.—þri. kl. 13—18, mið.—sun. kl. 13—20. Ath! Opið til kl. 20 á Þorláksmessu. Lokað á aðfangadag. FOLKI FRETTUM Leikfélag Islands Gjafakort í Leikhúsið — skemmtileg jólagjöf sem lifir fe-l!l... 552 3000 Á SAMA TÍMA SÍÐAR Frumsýn. fim 28/12 kl. 20 UPPSELT 2. sýn. fös 29/12 kl. 20, A kort gilda 3. sýn. lau 30/12 kl. 20, B kort gilda fös 5/1 kl. 20 C&D kort gilda lau 13/1 kl. 20 fös 19/1 kl. 20 SJEIKSPÍR EING 0G HANN LEGGUR SIG lau 6/1 kl. 19 fös 12/1 kl. 20 lau 20/1 kl. 20 530 3O3O SÝND VEIÐI fös 29/12 kl. 20 lau 6/1 kl. 20 fös 12/1 kl. 20 TRÚÐLEIKUR fös 5/1 kl. 20 fim 11/1 kl. 20 Miðasalan er opin kl. 12-18 virka daga, kl. 14-18 um helgar og fram sýningu alla sýningardaga. Hópasala fyrir leikhús og/eða veitingahús er í síma 530 3042, opið kl. 10-16 virka daga. Ekki er hleypt inn I salinn eftir að sýning hefst. midasala@leik.is — www.leik.is if)Hö ,HAf NARFjARÐARLEIKHÚSIÐ eflir * Olaf Hauk Símonarson Jólasýn, 29. des, örfá sæti laus fös. 5. jan. laus sæti fös. 12 jan. laus sæti lau. 13. jan. laus sæti Sýningar hefjast kl. 20 Vitleysingamir eru hluti af dagskrá Á mörkunum, Leiklistarhátíðar Sjálfstaeðu leikhúsanna. Miðasala í sima 555 2222 og á www.visir.is ^<0% DDAUMASMIÐJAN GÓÍAR HÆGiIR efttr Auðl HaraLds Aukasýning fös 29/12 kl. 20 Sýnt í Tjamarbfói Sýningin er á leiklistartiátíðinni Á mörkunum Miöapantanir í Iðnó i sima: 5 30 30 30 líaítiLeíkhimó Vcsturgötu 3 ■■iitJavjsiarJiiuiLTia Missa Solemnis eftir Kristiinu Hurmerinta Einleikari: Jorunn Sigurðardóttir Sýning í dag 21.12. kl. 17.30 Sýningar daglega kl. 17.30 til jóla Sýning á Þorláksmessu kl. 24.00 Sýning á aðfangadagskvöld kl. 24.00 „Júrunn Siguröardóttir flutti einleikinn frábærlega...einstök helgistund í Kaffileik- húsinu...hér er sýning sem óhætt er að mæla með á aðventunni..." SAB, Mbl. BORGARLEIKHUSIÐ Leikfélag Reykjavíkur Næstu sýningar MÓGLÍ e. Rudyard Kipling Þri 26. des kl. 14 FRUMS. - UPPSELT! Lau 30. des kl. 14 -ÖRFÁ SÆTI LAUS Sun 7. jan kl. 14 Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson. Tónlistarstjóri: Oskar Bnarsson. Leikarar: Friðrik Friðriksson, Ðlert A. Ingimundar- son, Thedórjúlíusson, lóhann G. Jóhannsson, Gunnar Hansson, Halldór Gylfason, Katla Margrét Þorgeirsdóttlr, lóhanna Vigdfs Amardóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir. Lýsing: Ögmundur Þór Jóhannesson. Hljóð: Jakob Tryggvason. Búningar: Linda Björk Ámadóttir. Leikmynd: Stígur Stein- þórsson. Leikgervi: Sóley Björt Guðmundsdóttir. FALLEG GJAFAKORT Á MÓGLÍ, ÁSAMT VÖNDUÐUM STUTTERMABOL, ERU TILVALIN í JÓLAPAKKA YNGSTU FJÖLSKYLDUMEÐLIMANNA! Litla svið ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh Fös 29. des kl. 20 Lau 30. des kl. 20 Stóra svið SKÁLDANÓTT e. Hallgrfm Helgason Fös 29. des kl. 20 Lau 30. des kl. 20 HEILL HEIMUR f EINU UMSLAGI! NÝ OG FALLEG GJAFAKORT Á LEIKSYNINGAR BORGARLEIKHÚSSINS ERU GLÆSILEG JÓLAGJÖF. HRINGDU (MIÐASÖLUNA OG VIÐ SENDUM ÞÉRJÓLAGJAFIRNAR UM HÆL! HÁTÍÐARTILBOÐ Á GJAFAKORTUM FYRIR JÓLIN! Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kt. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sfmi miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 568 0383 midasaia@borgarieikhus.is www.borgarleikhus.is Barnaplata í hrárra lagi TOJVLIST Geislaplata LITLA VÍSNAPLATAN Litla vísnaplatan - krakkar syngja inniheldur íslenskar vísur og dæg- urlög. Fram koma: Álfheiður Björgvinsdóttir, Katrín Sigurð- ardóttir, Brynja Ingólfsdóttir, Matthildur Ingadóttir, Mist Hálf- dánardóttir, Björk Jómundsdóttir, Klara Sveinbjörnsdóttir, Kristrún Sveinbjörnsdóttir, Sigrún Svein- björnsdóttir, Vala Hauksdóttir, Þórir Úlfarsson, Jóhann Asmunds- son, Ásgeir Óskarsson, Þórir Úlf- arsson, Axel Einarsson og Dan Cassidy. Kórstjórn: Axel Einarsson. Upptökur og upptökusljóm: Axel Einarsson og Þórir Úlfarsson. Hljóðblöndun: Þórir Úlfarsson. Stöðin gefur út. REGLULEGA koma á markaðinn hljómdiskar með sungnum íslenskum vísum. Litla vísaplatan er slík plata en samkvæmt hulstrinu inniheldur hún íslenskar vísur og dægurlög. Allt efn- ið er sungið af bömum. Þar sem út- gáfa sem þessi er algeng og vísumar oft hinar sömu þykir mér algjört frumskilyrði að þeir sem standa að slíkum plötum hafi eitthvað nýtt fram að færa í flutningi þeirra. Þótti mér lítið fara fyrir slíkum tilburðum á þessari plötu. Reyndar finnst mér heildarsvipurinn bera nokkur ein- kenni fljótfærni og hraðsuðu. Ég þekki það af eigin raun sem tónlist- arleiðbeinandi á leikskóla að böm em kröfuharðir neytendur. Það þarf mikla lagni til þess að ná hlustun þeirra og einbeitingu. Það krefst lif- andi framsetningar og frumleika. A Litlu vísnaplötunni þótti mér votta fyrir hvomgu. Álfheiður Björgvinsdóttir á hrós skilið fyrir þann dugnað að syngja svo mörg lög inn á plötu. Annars ero öll börnin mjög lagviss og hafa fallegai- raddir. Þau flytja líka lögin af miklu öryggi og ki’afti. Þó virðist það vera að þau séu keyrð í gegnum pró- grammið án þess að kórstjórinn staldri við atriði eins og blæbrigði, textaframburð, nótnagildi og styrk- leikabreytingar. Krakkar syngja ekki eins og fullorðnii’ og vissulega kann þetta því að hljóma eins og einhver fullkomnunarárátta. Staðreyndin er samt sú að með lítilsháttar tilsögn sem þyrfti ekki einu sinni að vera fræðileg væri hægt að ná fram mun tilþrifameiri söng hjá svona augljós- lega músíkölskum bömum. Ég nefndi áður að mér hefði þótt lítið fara fyrir tilburðum í átt að ein- hverju nýju í framsetningu laganna. Þó má segja aðstandendum hennar tO hróss að þegar nýjungar í útsetning- um heyrðust vom þær yfirleitt frekar vel heppnaðar. Annars var undirleik- urinn jafnt og söngurinn að mestu keyrslukenndur og tilbreytingar- snauður. Með keyrslukenndum á ég við að litlar sem engar breytingar verði á andblæ í laginu. Böm þreytast fljótt á tilbreytingarleysi. Loks er komið að því sem mest fór fyrir brjóstið á mér við þessa plötu. Það er að mínu mati gjörsamlega óþolandi þegar rangt er farið með texta. Meridlegt er að textabútur úr þjóðlaginu „Hani, kmmmi, hundur, svín“ skuli hafa sloppið í gegn í svo af- bakaðri mynd sem „Verður ertu vísnaklár/vísugamli Jarpur", þegar flestir vita að rétt myndi vera „Verður ertu víst að fá/vísu gamli Jarpur“. Einnig hnaut ég um aðra, ekki eins al- varlega, villu. Það var í „Alfareiðinni“ þar sem börnin sungu: „Blésu þeir á sönglúðra, bar það að mér skjótt“, þegar „bar þá að mér skjótt“ er aftur rökréttast og rétt með farið. Þykir mér allar rangfærslur á gömlum góð- um vísum í opinberri útgáfu ekki for- svaraniegar. Annars var rangt farið með upp- mna laga í tveim tilfellum á lagalista. Annars vegar er „Hann Tumi fer á fætur“ ekki þjóðlag, heldur var það samið af Mozart í allt öðrum tilgangi og samhengi löngu áður en það fékk íslenskan texta. Hins vegar þótti mér svolítið skoplegt að sjá að „Gamli Nói“ væri skrifaður réttilega á Bell- mann en ,jVllir krakkar" titlað þjóð- lag þegar um nákvæmlega sama lag er að ræða, aðeins sitthvom textann. Eins og segir hér að framan hefði mátt betur standa að ýmsu varðandi þessa útgáfu. Ég vonast þó til að heyra meira með þeim efnilegu söngvuram sem Ijá plötunni rödd sína. Eitthvað örlítið vandaðra. Ólöf Helga Einarsdóttir Sýningar á Evu, Háalofti og Stormi og Ormi verða teknar upp aftur á nýju ári. MIÐASALA I SIMA 551 9055 Rúnar Þór gefur út safnplötuna Fimmtán Snjórinn búinn að frysta í okkur heilann Hann er í hópi athafnamestu tónlistar- manna landsins þó fáir viti af því. Rúnar Þór hefur nú safnað saman sínum þekkt- ustu lögum á eina plötu. Birgir Örn Stein- arsson hringdi í kappann og fræddist um manninn og nýja gripinn. ÞEIR ERU ekki margir popparar landsins sem geta státað sig af því að eiga fleiri sólóplötur að baki en þeir geta talið á fingrum beggja handa. Rúnar Þór Pétursson er einn þeirra sem nú þegar er byrj- aður að þurfa að horfa niður á tær þegar hann telur þær plötur sem hann hefur plantað niður á lífsleið- inni. „Tólf eða þrettán, það fer eftir því hvernig á það er litið,“ svarar Rúnar þegar blaðamaður rukkar hann um fjöldatöluna. „Maður hef- ur náttúrulega verið á safnplötum og með öðrum, en þetta er tólfta sólóplatan." Þar á Rúnar við nýútkomna safnplötu, Fimmtán, gefin út í til- efni þess að 15 ár eru liðin frá því að hann hóf sólóferil sinn. Á plöt- unni er að finna 17 lög, þar af 2 tökulög en hin 15 eru valin af ferl- inum. Tökulögin eru „What a wonderful world“, sem Louis Arm- strong gerði ódauðlegt, og lagið „Maria Isabel“. „Ég byrjaði að spila Maria Isa- bel á ísafirði með hljómsveit sem ég var í þar. Svo þegar ég var út á Spáni að spila fyrir þremur árum þá mundi ég eftir því, prufaði það og það tókst bara vel. Ég heyrði það fyrst hjá Ingimar Eydal fyrir fjölda mörgum árum. Ég breytti því aðeins, setti það í dansbúning og bætti inn í nautabanafrasanum. Spánverjarnir voru mjög hrifnir af þessu og ég ætla að gefa það út þar.“ Spánverjar helmingi hrifnari Spilamennskan á Spáni blés nýju lífi í Rúnar Þór og er hann Morgunblaðið/Ásdís Rúnar Þór ásamt Öldu Karen, dóttur sinni. þessa dagana að endurvinna nokk- ur lög sín á ensku. „Ég var þarna tvö sumur. Við fórum bara til þess að spila og gerðum það í þrjá mánuði. Við vor- um í Torrevieja og þar í kring. Ég setti lagið [Maria Isabel] í spilun og því var vel tekið. Þegar disk- urinn kemur ætla ég að fylgja þessu vel eftir og fara með plötuna til Valencia og Barcelona. Þá kýli ég á þetta lag þar. Það má eig- inlega segja að Spánverjar séu helmingi hrifnari af mér en allir aðrir. Það er einhvernveginn miklu auðveldara að spila fyrir útlend- inga en íslendinga. Islendingar eru svo þungir, þeim finnst bara sú tónlist góð sem útvarpsstöðv- arnar segja þeim að sé góð. En hjá útlendingum er allt gott þangað til annað kemur í ljós. Ég held að snjórinn sé búinn að frysta í okkur heilann.“ Þegar Rúnar horfir um öxl til tónlistarafreka sinna er útsýnið fallegt. „Mér finnst ég hafa verið vand- virkur frá fyrstu plötu. Mér hefur tekist það sem ég ætlaði að gera. Þegar ég hlusta t.d. á lagið „Frið- ur“, af fyrstu plötunni, og hiusta svo á „What a wonderful world“, sem ég hljóðritaði síðast, er ég mjög ánægður að heyra hvernig ég hef unnið þetta,“ segir Rúnar Þór sáttur að lokum. Hvaö er Iki HSut? Fljúgandi isbjörn? Marbendill? Sæskrímsli? Eöa ......besti vinur þinn?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.