Morgunblaðið - 21.12.2000, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ýmis mistök í 10-15% tilfella við lyfjagjöf á Landspítala - háskólasjúkrahúsi
Prófa rafræn lyfja-
fyrirmæli eftir áramót
UNNIÐ er að því að auka öryggi í lyfjameðferð á
Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi. Sjúkra-
húsapótek spítalans eru m.a. með í undirbúningi
að taka í notkun nýtt tölvukerfí fyrir svonefnda
stakskömmtun lyfja og ákveðið hefur verið að
gera tilraun með rafræn lyfjafyrii-mæli eftir ára-
mótin, skv. upplýsingum Kristjáns Linnet yf-
irlyfjafræðings á Landspítala - háskólasjúkra-
húsi.
Aðspurður sagði Kristján að það gæti vel stað-
ist að einhverskonar mistök ættu sér stað í 10 til
15% allra tilfella við lyfjagjöf á sjúkrahúsinu.
Engar nákvæmar tölur lægju þó fyrir um þetta. í
langfæstum tilfellum væri um alvarleg mistök að
ræða heldur fyrst og fremst það sem nefna mætti
miðlungs-alvarleg tilfelli, sem hafa yfírleitt ekki
mjög alvarlegar afleiðingar, t.d. ef sjúklingi er
gefið lyf í öðru formi en hann átti að fá það, hann
fær ekki það lyf sem hann á að fá eða lyfið hefur
svonefnda milliverkun við önnur lyf sem sjúkling-
urinn tekur.
Telur ástandið hér svipað
og í öðrum löndum
Að mati Kristjáns er ástand þessara mála hér
á landi hvorki verra né betra en við sjúkrastofn-
anir í öðrum löndum.
Öllum erlendum rannsóknum beri saman um
að mjög alvarleg mistök við lyfjagjafir séu mjög
fátíð, þ.e. þegar gefin eru röng lyf eða í allt of
stórum skammti, en miðlungs-alvarleg tilfelli séu
hins vegar mun tíðari. Miklu skipti í þessu sam-
bandi hvernig mistökin væru metin og skilgreind,
t.d. hvort menn flokkuðu það sem mistök þegar
sjúklingur fær ekki lyf á tilsettum tíma o.s.frv.
Fram kom í Morgunblaðinu í seinasta mánuði
að verið er að endurskoða reglur um lyfjagjöf á
Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi eftir að
kona lést af völdum bráðaofnæmis eftir ranga
lyfjagjöf. Að sögn Kristjáns hefur verið rætt um
það lengi að gera breytingar á núverandi kerfi
sem fylgt er við lyfjafyrii-mæli og lyfjagjafir á
sjúkrahúsinu en hann lagði áherslu á að mik-
ilvægt væri að menn rösuðu ekki um ráð fram og
gerðu breytingar fyrirvaralaust. Eldra kerfí
hefði þann kost að starfsmenn þekktu það vel og
hefðu unnið eftir því um langa hríð, sem skapaði
ákveðið öryggi. „Þetta er alltaf spurning um að
búa til öryggi sem er viðunandi, tryggir hag sjúk-
linga og að starfið geti gengið eðlilega fyrir sig,“
sagði hann.
Morgunblaðið/RAX
Lífeyrisskuldbinding*ar
hækkað um 77 milljarða
Jóla-
þvotturinn
FÓLK er önnum kafið við jólaund-
irbúninginn víða um land. Guðrún
Skarphéðinsdóttir í Kringlu í Dala-
byggð stendur í stórþvottum og
hugðist nota blíðuna til að þurrka
þvottinn úti á snúrum en þá byrjaði
skyndilega að hvessa og hún varð
að þjóta út til að taka þvottinn inn.
---------f-f-*---
Bruninn í ísfélagi
Vestmannaeyja
Enginn
undir grun
LÖGREGLAN í Vestmannaeyjum er
enn að rannsaka eldsvoðann, sem
varð í ísfélagi Vestmannaeyja laug-
ardaginn 9. desember. Hún hefur lok-
ið rannsókn er tengdist ábendingum
um að drengir á aldrinum 16 til 18 ára
hefðu hugsanlega verið viðriðnir mál-
ið og er niðurstaðan sú að þær ábend-
ingar hafi ekki átt við rök að styðjast.
Að sögn lögreglu liggur enginn
undir grun en rannsókn málsins er
enn í fullum gangi. Fulltrúar frá emb-
ætti ríkislögreglustjóra, sem verið
hafa við rannsóknarstörf ásamt lög-
reglunni í Vestmannaeyjum frá því
bruninn varð, héldu til Reykjavíkur í
gær.
-------------
Fimm bfla
árekstur
FIMM bíla árekstur varð um klukk-
an hálfsex síðdegis í gær á Hring-
braut, á móts við BSÍ.
Bílarnir lentu hver aftan á öðram
og urðu engin slys á fólki í árekstr-
inum. Miklar tafir urðu á umferð um
hríð vegna þessa á Hringbraut og
Miklubraut.
LÍFEYRISSKULDBINDINGAR
ríkissjóðs hafa vaxið um tæpa 77
milljarða króna á síðustu fjórum
árum að því er fram kemur í að-
sendri grein Péturs Blöndals, al-
þingismanns Sjálfstæðisflokksins,
sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
Hann segir að ógreidd skuldbind-
ing sjóðsins umfram eignir sé í
heildina um 177 milljarðar króna.
Pétur segir að rekja megi þessa
hækkun lífeyrisréttinda til kjara-
samninga sem ríkið hefur gert við
starfsmenn sína á síðustu árum.
Hann segir að 19.500 ríkisstarfs-
menn eigi réttindi hjá lífeyrisdeild-
um sem njóti beinnar ábyrgðar rík-
issjóðs og að hækkun síðustu
fjögurra ára nemi um 4 milljónum
króna á hvern ríkisstarfsmann.
Að sögn Péturs má gera ráð fyr-
ir að lífeyrisskuldbindingar ríkis-
sjóðs hækki enn frekar á næstunni
þegar samið verður við framhalds-
skólakennara. Þeir eru um 2.000
talsins og miðað við tilboð Versl-
unarskólans fyrir skömmu, sem
kvað á um tvöföldun dagvinnu-
launa, myndi hver kennari fá aukin
lífeyrisréttindi að verðmæti 7 millj-
ónir króna, að hans sögn. Kostn-
aður ríkissjóðs vegna þessa yrði
því um 14 milljarðar króna.
■ Hvað eru.../64
Skatthlut-
fall hækkar
um 0,39%
milli ára
TEKJUSKATTSHLUTFALL á
árinu 2001 verður 26,08% sem er
0,33% lægra en á yfirstandandi ári.
Meðalútsvar á árinu 2001 sam-
kvæmt fvrirliggjandi ákvörðunum
sveitárstjórna verður 12,68% en
þetta hlutfall er 11,96% á yfir-
standandi ári. Meðalútsvarshækk-
un milli ára er því 0,72%. Stað-
greiðsluhlutfall á árinu 2001 verður
38,76% samanborið við 38,37% á
þessu ári. Hækkunin á milli ára er
0,39%.
Fjármálaráðuneytið ákveður
staðgreiðsluhlutfall hvers árs og er
það samtala af tekjuskattshlutfalli
samkvæmt lögum um tekjuskatt og
eignarskatt og útsvarshlutfalli eins
og það er að meðaltali samkvæmt
ákvörðunum sveitarstjórna. Sveit-
arfélögin geta ákveðið útsvar á
bilinu 11,24% til 12,70%.
Af 124 sveitarfélögum ætla 83 að
innheimta hámarksútsvar en 4
sveitarfélög verða með lágmarks-
útsvar. Utsvarshlutfallið hækkar
hjá 113 sveitarfélögum á árinu
2001 en 11 sveitarfélög eru með
óbreytt útsvarshlutfall.
Áætlað er að á árinu 2001 inn-
heimtist um 97 milljarðar króna
fyrir ríki og sveitarfélög með stað-
greiðslu opinberra gjalda. Þar af
renna um 52 milljarðar króna til
sveitarfélaga en um 45 milljarðar
króna til ríkissjóðs.
Léstí
bflslysi í
Öxnadal
MAÐURINN sem lést í umferðar-
slysi í Öxnadal sl. þriðjudagsmorgun
hét Ragnar Karlsson. Ragnar vai’ 47
ára, fæddur 24. maí 1953, til heimilis
að Smárahlíð 2d á Akureyri. Hann
lætur eftir sig eiginkonu og uppkom-
in börn.
Ragnar heitinn var starfsmaður
hjá Höldi hf á Akureyri en fyrirtæk-
ið annast flutning á Morgunblaðinu
frá Reykjavík til Akureyrar. Var
Ragnar að aka með blaðið norður
þegar hið hörmulega slys varð.
Morgunblaðið sendir ástvinum
Ragnars innilegar samúðarkveðjur.