Morgunblaðið - 21.12.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.12.2000, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/RAX Seinni gjöf á Svalbarði ÞAÐ hefur verið mjög góð tíð í haust, alveg einstök, segir Jón Skarphéðinsson bóndi í Kringlu í Dalabyggð en hann var þá að gefa fé sínu seinni gjöflna í fjárhúsunum á Sval- barði. Tók Jón féð á hús um 20. nóvember sem er heldur seinna en veiyulega. Margir bændur eru farnir að hleypa hrút- unum til ánna en Jón segist ætla að biða með það fram til þriðja í jólum, segist verða að hafa sauðburðinn í seinna lagi vegna þess að hann hafi lítið pláss í fjárhúsunum. Smyril Line leitar ásjár land- stjórnar- innar Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Færeyska skipafélagið Smyril Line hefur snúið sér til færeyskra stjórnvalda öðru sinni í von um fjárhagsaðstoð. Skipafélaginu hefur enn ekki tekist að standa við fjár- hagsskuldbindingar sínar vegna kaupa á nýrri ferju, Norrænu, til að sigla á milli Islands, Færeyja, Nor- ej;s, Danmerkur og Hjaltlandseyja. Ottast ráðamenn Smyril Line að Færeyingar muni missa ferjuna hlaupi landstjórnin ekki undir bagga. Smyril Line hefur beðið land- stjómina um að leggja fram sem svarar til 250 milljóna. Segh' félagið að geri stjórnvöld það ekki sé hætta á að meirihluti hlutafjár í Norrænu lendi í höndum erlendra aðila. Þýska skipasmíðastöðin sem samið hefur verið við um smíði nýrrar ferju á veð í gömlu Nor- rænu. Hafa Þjóðverjar frestað smíði ferjunnar um ár og gefíð Færeyingum frest til 1. febrúar til að leggja fram fé. Þetta er í annað sinn á rúmri viku sem Smyril Line leitar til land- stjórnarinnai'. í fyrra skiptið neit- aði stjórnin að ábyrgjast lán til félagsins. Sagði vinnumálaráðherr- ann Bjarni Djurholm að lands- stjórnin ætlaði ekki að endurtaka þau mistök sem gerð voru á níunda áratugnum er gengist var í ábyrgð- ir fyrir fjölda einkafyrirtækja. Landstjórnin mun svara skipafélag- inu í upphafi næsta árs. Skiptar skoðanir meðal lögfræðinga á dómi Hæstaréttar í máli Öyrkjabandalagsins gegn TR Einhver afdrifarík- asti dómur Hæsta- réttar árum saman RAGNAR Aðalsteinsson hæstarétt- arlögmaður, sem sótti málið um tengingu tekjutryggingar við tekjur maka fyrir hönd Oryrkjabandalags- ins gegn Tryggingastofnun ríkisins, sagði að það væri margt merkilegt við þennan dóm. Dómurinn væri að segja að mannréttindi væru annars vegar vemduð í stjórnarskrá og hins vegar í alþjóðlegum samningum sem Island hefði undirritað. Niðurstaða dómsins væri sú að þó að alþjóðlegir samningar væru ekki hluti af íslensk- um lögum bæri að taka fullt tillit til þeirra við túlkun á stjómarskránni. Mannréttindi í þessum samningum hefðu því ekki sömu stöðu og stjóm- arskrárvarin mannréttindi en þau hefðu hins vegar stöðu fyrii- ofan al- menn lög. Ragnar sagði að í þessum dómi væri vitnað í alþjóðasamning Sam- einuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi til stuðnings niðurstöðunni. „Það finnst mér vera fyrsta yfirlýsing Hæstaréttar um að öll mannréttindi séu jafnrétthá. Það er út af fyrir sig mjög merkilegt. Það sem mér finnst þó ekki síður merkilegt er að það er fallist á túlkun mína á 65. gr. stjórnarskrárinnar um að þar sé að finna reglu sem veitir mannréttindum almenna vemd án tillits til þess hvort þeirra er getið í stjómarskránni eða ekki.“ Minnihluti dómsins segir í áliti sínu að það sé hlutverk löggjafar- valdsins, ekki dómstóla, að kveða á um inntak og umfang þeirrar opin- bem aðstoðar sem öryrkjum sé látin í té. Ragnar sagði að það væri alkunn kenning að ákvarðanir af þessum toga lægju utan við verksvið dóm- stóla. Hann sagði að vissulega þyrftu dómstólar að veita löggjafarvaldinu svigrúm til að taka ákvarðanir um fjárhagslegar skuldbindingar o.s.frv. „Hins vegar getur sú staða komið upp að tilteknum hópum sé mismun- að og það jafnvel á á óréttlátan hátt. Þá eiga dómstólar að grípa inn í. Það þýðir ekki að dómstólar hafi allt í einu fengið vald til að ákveða fjár- veitingar, síður en svo.“ Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttarlögmaður sagðist telja að mefrihluti dómsins, þ.e. þrír dómarar af fimm, væri með dóminum að taka sér vald sem dómstóllinn hefði ekki samkvæmt íslenskum stjómskipun- arreglum. „Þetta er bara lagasetning sem hér á sér stað,“ sagði Jón Stein- ar. Dómstólar settu ekki lög Hann sagði að hann hefði á und- anfömum áram vakið máls á atriðum sem vörðuðu verkaskiptingu milli löggjafarvalds og dómsvalds. Dóm- stólar settu ekki lög. Það væri ekki þeirra hlutverk heldur að dæma eftir þeim og þar á meðal auðvitað stjóm- arskrárreglum. „Þær stjómarskrárreglur sem hér um ræðir er almennt ákvæði um jafn- rétti og síðan ákvæði 76. gr um rétt til aðstoðar vegna meðal annars sjúk- leika, örorku og þess háttar. Þetta era opin ákvæði og það eru allir klár- ir á því að löggjafinn hlýtur að setja lög um þessi réttindi og hvaða skil- yrði menn þurfa að uppfylla til þess að fá þau framlög sem þama er talað um. Krafan sem við geram til Alþing- is um þetta er að það sé ekki tilvilj- unarkennd mismunun á milli manna og að það séu málefnaleg sjónarmið sem ráði þeim skilyrðum sem era lát- in gilda um þetta í lögum. Það er eng- inn vafi á því að þegar ákveðið er að menn skuli njóta þessara bóta að teknu ákveðnu tilliti til tekna maka að þar era málefnaleg sjónarmið á ferðinni," sagði Jón Steinar. Hann sagði að tekjur maka hefðu bæði að gömlu og nýju haft marg- vísleg áhrif á réttarstöðu manna hér á landi og væri þar um fyllilega mál- efnaleg sjónarmið að ræða. „Þeir sem vilja breyta þessu verða að láta við það sitja að bjóða sig fram til Alþingis og beijast fyrir breyting- um á þessum lagaákvæðum. Dóm- stólar hafa að mínum dómi ekki til þess vald að víkja þessum laga- ákvæðum til hliðar á þessum grand- velli. Ég tel að dómstóll sem gerir það sé í raun og vera að koma fram einhvers konar pólitískum vildarvið- horfum sínum sem dómstólar mega alls ékki gera,“ sagði Jón Steinar. Hann sagði að til viðbótar mætti til dæmis benda á það í þessu sambandi að dómur af þessu tagi hefði gríðar- leg áhrif fyrir fjármál ríkisins og þar bæra dómarar enga ábyrgð. „Þegar svona ákvarðanir era teknar á jafn- opnum og -veikum grundvelli og hér er, liggur við að það megi jafna þessu við stjórnskipulega kreppu í landinu. Dómstólar era hér að taka sér vald sem þeir alls ekki hafa að mínu mati,“ sagði Jón Steinar. Hann sagði að það drægi úr for- dæmisgildi dómsins að einungis þrír dómarar af fimm hefðu komist að þessari niðurstöðu. Auðvitað hefði verið ástæða þess að skipa réttinn sjö dómuram í jafnafdrifaríku máli og gegndi furðu að það skyldi ekki hafa verið gert. Jón Steinar sagði að hér glitti í ágreining um vinnubrögð dómstóla og hlutverk þeirra í samfélaginu sem væri ekki bara íslenskur heldur sæj- ust dæmi um hann erlendis einnig. Til dæmis hefðu dómar hæstaréttar Flórída í margfrægum forsetakosn- ingum nú verið réttilega mjög gagn- rýndir fyrir að fela í sér breytingar á lagaákvæðum. „Það er eins og menn eigi erfitt með að sætta sig við að þurfa að bjóða sig fram og hljóta um- boð frá almenningi til þess að geta breytt lögum,“ sagði Jón Steinar. Hann bætti við að það væri ekkert í alþjóðlegum sáttmálum sem vitnað væri til í forsendum dómsins og ís- land væri aðili að sem bannaði að tek- ið væri tillit til tekna maka við ákvörðun á svona bótum. Fer lengra í að skerða vald löggjafans en áður Jakob R. Möller hæstaréttarlög- maður segir að það sé alveg Ijóst að dómur Hæstaréttar um tengingu tekjutryggingar við tekjur maka sé einhver afdrifaríkasti dómur sem kveðinn hefði verið upp í Hæstarétti áram saman og þá væri hann ekki að tala um þær fjárhæðir sem dómurinn myndi kosta ríkissjóð og skattþegn- ana heldur hvaða afleiðingar þær að- ferðir, sem Hæstiréttur beitti í túlk- un sinni á 76. og 65. gr. stjórn- arskrárinnar, hefðu á mörk löggjafarvalds og dómsvalds. Jakob sagði að í nútímasamfélagi væra allfr sammála um að ríkinu bæri að tryggja þegnunum öryggi í framfærslu, þ.e.a.s. að þeir sem ekki geta séð um hana sjálfir væri tryggð ákveðin lágmarksframfærsla. Hins vegar hafi verið litið svo á, eins og reyndar komi skýrt fram í dóminum, að löggjafarvaldið hafi mat á því hvernig þessi lágmarkstrygging verði virk og þá meðal annars með tilliti til félagslegrar stöðu þeirra sem þui-fi að pjóta slíkrar aðstoðar. „Hæstiréttur segir í þessum dómi að hinn almenni löggjafi hafi svigrúm til mats á því hvemig þessi lágmarks- réttindi skuli ákvörðuð en dómstólar geti ekki vikið sér undan því að taka afstöðu til þess hvort matið samrým- ist grundvallarreglum stjórnar- skrárinnar. Það sem er freistandi að álykta um þennan dóm er að Hæsti- réttur sé ekki aðeins að endurskoða hvort mat almenna löggjafans sam- rýmist þessum grundvallarreglum heldur taka sér í hendur matið sjálft. Með þessu er Hæstiréttur að fara lengra í að skerða vald löggjafans til að setja löggjöf um hin almennu félagslegu málefni en áður hefur ver- ið viðurkennt,“ sagði Jakob. Hann sagði að einnig væra mjög athyglisverðar hugleiðingar í dómin- um um tengsl 76. og 65. gr. stjóm- arskrárinnar og þar væri honum ekki alveg ljóst hvort Hæstiréttur væri að gefa í skyn, þar sem á milli hjóna væri um gagnkvæma framfærslu- skyldu að ræða en ekki á milli sam- búðafólks, að gagnkvæm fram- færsluskylda hjóna brjóti í bága við 65. gr. stjómarskrárinnar en það gæti auðvitað haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir þann homsteinn í þjóðfélaginu sem hjónabandið og fjölskyldan væri. „Síðan verður að segjast eins og er að þeir sem hafa haldið fram sjón- armiðum um jákvæðar skyldur rík- isvaldsins hvað varðar félagsleg mannréttindi hafa unnið mikinn sig- ur í Hæstarétti í fyrradag," sagði Jakob enn fremur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.