Morgunblaðið - 21.12.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 1 5
's''
Rétt verð kr. 44.900.
LG-20" sjónvarp CB-20P80X
Verð aðeins stgr. kr.
Réttverðkr. 39.900,-
LG+li-Fi videotækí 2 hausa
Verð aðeins stgr. kr.
Verð áður kr. 24.900.
Rétt verð kr. 29.900.
Stærð: 176x89x61 cm
Verð aðeins stgr. kr.
LG-örbylgjuofn
AGMS192
800 wött, snúningsdiskur
Góður ofn á frábæru verði!
CredaAdvanœ
þvottavél 17112E
Verð aðeins stgr. kr.
FAOOR
Verö áður kr. 49.900.
cdesa 1VE-21S
uppþvotfavél
Verð aðeins stgr. kr.
Wilfa brauðrist/króm
Verð aðeins stgr. kr.
Verö áöur kr. 54.900.
Creda þurrkarí
m/rakaskynjara og barka
Verð aðeins stgr. kr.
Witfa hrærivéi
Verð aðeins stgr. kr.
=S=NARDI
Ofnar og helluborð (miklu úrvali
EXPERT er stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeðja í heiminum
- ekki aðeins á Norðurlöndum.
í dag og föstudag til kl.20
laugaraag 11-23
Sunnudag 10-12
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Ög þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
LG-DVD spilari - 3200 E
Verð aðeins stg n kr.
Sex
mánaða
fangelsi
fyrir rán
KARLMAÐUR á fertugsaldri
var á þriðjudag dæmdur í sex
mánaða fangelsi fyrir að slá
strætisvagnabflstjóra í Reykja-
vík með járnrör í hendi og ræna
hann peningaveski. Ingibjörg
Benediktsdóttir kvað upp dóm-
inn í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Maðurinn framdi verknaðinn
í júlí sl. í starfsmannaaðstöðu
SVR í Arnarbakka 2 í Reykja-
vík. Hlaut bflstjórinn skurð á
hvirfli við höggið og féll fram
fyrir sig. Tók hinn dæmdi þá
peningaveski hans, sem í voru
um 7.500 krónur, skilríki,
greiðslukort og ávísanahefti, og
hvarf á brott með veskið. Sam-
kvæmt sakavottorði ákærða
hefur hann hlotið fjóra refsi-
dóma og gengist undir fjöl-
margar sættir, aðallega fyrir
umferðarlagabrot og brot gegn
ávana- og fíkniefnalögum. Af-
leiðingai- árásarinnar voru litl-
ar en til þyngingar refsingar
var litið til þess að maðurinn
réðst að eldri manni sem sneri
við honum baki og var því með
öllu óviðbúinn árás sve og þess
að ákærði var með kertalykil í
lófanum er hann greiddi honum
höggið. Árás þessi var fólsku-
leg og án nokkurs tilefnis af
hálfu fórnarlambsins, segir í
niðurstöðum héraðsdóms. Af
þeim sökum og með tilliti til
þess að Keflvíkingurinn rauf
skilorð með brotinu, en hann
var dæmdur fyrir líkamsárás í
maí sl., þótti ekki fært að skil-
orðsbinda refsinguna þrátt fyr-
ir góða hegðun ákærða eftir að
hann framdi brotið.
Deila sjómanna og LIÚ
Sjómenn
greiða atkvæði
um verk-
fall 15. mars
ALLT situr fast í kjaradeilu útvegs-
manna og sjómanna á fiskiskipum.
Er póstatkvæðagreiðsla hafin meðal
sjómanna um vinnustöðvun sem á að
hefjast 15. mars, hafl ekki samist
fyrir þann tíma, að sögn Jónasar
Garðarssonar, formanns Sjómanna-
félags Reykjavíkur. Stendur at-
kvæðagreiðsla meðal félagsmanna í
sjómannafélagi Reykjavíkur til 12.
janúar, að sögn hans.
Vélstjórafólagið og Farmanna- og
fiskimannasambandið vinna einnig
að undirbúningi og atkvæðagreiðslu
um boðun verkfalls frá sama tíma og
sjómenn um land allt. Samningar
sjómannasamtakanna runnu út 15.
febrúar sl. og vísuðu útgerðarmenn
kjaradeilunni til ríkissáttasemjara í
mai.
-♦.
Byssur
í bíl inn-
brotsþjófa
BYSSUR, skotfæri og tölvubúnaður,
þar á meðal skjávarpi, voni meðal
þess sem lögreglan í Reykjavík lagði
hald á við leit í bifreið á þriðjudags-
morgun.Lögreglan stöðvaði bifreið-
ina á Ártúnshöfða rétt fyrir klukkan
sex um morguninn. Þrír karlmenn á
þrítugsaldri voru í bflnum en einn
þeirra forðaði sér á hlaupum.
Talið er að góssið sé að mestu úr
vörugeymslu íyrirtækis á Ártúns-
höfða sem brotist var inn í um nóttina.
Fékk ekki bætur vegna veðskulda á bifreið
Viðskipti við bílasala „persónuleg-“
HÆSTIRETTUR hefur hafnað
kröfu manns, sem vildi að íslenska
ríkið bætti sér tjón sem hann varð
fyrir í viðskiptum við bflasala. Bílasal-
inn hafði svikið út tilskilin leyfi til bif-
reiðasölu með því að falsa bréf um að
hann hefði aflað sér starfsábyrgðar-
tryggingar. Raunin var sú að hann
hafði enga slíka tryggingu og var mál-
ið á því byggt að hinu opinbera hefði
borið að ganga úr skugga um það með
óyggjandi hætti áður en honum var
veitt leyfið. Maðurínn keypti bíl árið
1997 og gekk frá viðskiptunum við
bflasala, sem honum skildist að hefði
umboð til sölunnar frá íyrirtækinu
sem var skráður eigandi bflsins. Mað-
urinn sagðist ekki hafa vitað að bfla-
salinn var í raun aðaleigandi þess fyr-
irtækis og þar með bflsins. Á bílnum
hvfldi veðskuld, sem bílasalinn lofaði
að aflétta, en hann stóð ekki við það.
Maðurinn hugðist þá greiða skuldina
sjálfur og ganga svo að þeim trygg-
ingum sem hann taldi bflasalann bafa,
en af því varð ekki þar sem bflasalinn
reyndist ótryggður. í kjölfarið var
höfðað opinbert mál á hendur honum,
m.a. fyrir skjalafals þar sem hann
hafði sent embætti sýslumanns í
Reykjavík og viðskiptai’áðuneytinu
heimatilbúnar staðfestingar á ætluð-
um tryggingum.
Kaupandi bflsins taldi að ef hið op-
inbera hefði verið á varðbergi þá hefði
skjalafalsið ekki heppnast, bflasalinn
aldrei fengið leyfið og hann aldrei lent
í viðskiptum við hann. Hæstiréttur
hafnar þessu og bendir á að maðurinn
hafi átt persónuleg viðskipti við bfla-
salann fyrir hönd einkahlutafélagsins
sem var skráður eigandi bílsins og
honum hafi verið ljóst að bflasalinn
kæmi fram sem umboðsmaður fyrir-
tækisins. Bílasalinn hafi lofað að af-
léttaveðskuld, en tjón vegnavanefnd-
ar á þvi loforði verði ekki rakið til
starfa hans sem bflasala. Þar með séu
ekki uppfyllt skilyrði til að tjónið
verði bætt úr lögboðinni ábyrgðar-
tryggingu bifi’eiðasala. Hæstiréttur
segir þvi að þótt trygging bflasalans
hefði verið gild ætti kaupandinn ekki
rétt á bótum. Rétturinn bendir á að
hann hafi tekið þá áhættu í kaupunum
að greiða andvirði bifreiðarinnar út í
hönd án þess að fá tryggingu fyrir því
að veðinu yrði aflétt. Ekki sé orsaka-
samband milli starfa bflasalans. sem
slíks og tjóns mannsins.