Morgunblaðið - 21.12.2000, Page 46

Morgunblaðið - 21.12.2000, Page 46
46 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 47 STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. TEKJUTENGING í TRYGGINGAKERFIN U HÆSTIRÉTTUR hefur fellt þann dóm, að óheimilt sé að skerða tryggingabætur ein- staklings með þeim hætti að tengja þær við tekjur maka. I dómi sínum í máli Öryrkjabanda- lagsins gegn Tryggingastofnun ríkis- ins vísar Hæstiréttur til þess, að heimild hafi skort í almannatrygg- ingalögum frá 1993 til að skerða til- kall bótaþega til fullrar tekjutrygg- ingar með setningu reglugerðar. Gera verði þá kröfu til löggjafans, að lög geymi skýr og ótvíræð ákvæði um skerðingu greiðslna úr sjóðum al- mannatrygginga, sem ákveða megi með reglugerðum. Þar sem lagastoð hafi skort fyrir reglugerðinni er skerðing árin 1994-1998 óheimil. Lögum um almannatryggingar var breytt frá 1. janúar 1999 til að nægi- leg lagastoð væri fyrir setningu reglugerða um skerðingu bóta, en Hæstiréttur telur þau stangast á við þau lágmarksréttindi, sem felist í 76. grein stjórnarskrárinnar, og þar með að notið verði mannréttinda, sem 65. grein stjórnarskrárinnar kveður á um. í þessum efnum vísar Hæstirétt- ur m.a. til mannréttindasáttmála, sem ríkið hafi staðfest. Dómur Hæstaréttar er um margt athyglisverður. í fyrsta lagi hefur enn og aftur komið í ljós, að settar eru reglugerðir, sem standast ekki lög og jafnvel stjórnarskrá. Augljóst er, að endurskoða verður það vinnulag, sem verið hefur á setningu reglugerða, til að tryggja, að þær standist. Hvaða leið er vænlegust í þessum efnum þarf að kanna, en sú leið er t.d. hugs- anleg, að áður en reglugerð er gefin út leggi ráðherra hana fyrir þá þing- nefnd, sem fjallaði um upphaflegt frumvarp á Alþingi. Nefndin kanni, hvort reglugerðin sé í samræmi við tilgang og vilja Alþingis við lagasetn- inguna. Leiki vafi á því, að ný lög samræmist stjórnarskrá, þarf að sjálfsögðu að afla sérfræðiálits á því í tíma. I öðru lagi mun dómur Hæstarétt- ar vafalaust hafa áhrif á tekjuteng- ingu almennt í þjóðfélaginu og um- ræður um réttmæti hennar og tilgang. Rökin fyrir tekjutengingu hafa verið þau, að efnaðir og tekjuhá- ir eigi ekki að fá greiðslur úr al- mannasjóðum, sem ætlaðar eru til að- stoðar þeim verst settu. í staðinn sé hægt að hækka greiðslur til þeirra, sem þurfa á þeim að halda. Um þetta snerust umræðurnar um tekjuteng- ingu, þegar hún var tekin upp að ráði í efnahagsþrengingunum í upphafi áratugarins. Framkvæmd tekjutengingar hefur hins vegar augljóslega farið úr bönd- unum og þröskuldurinn verið settur svo lágt, að hópar manna, sem sátt er um að eigi að njóta aðstoðar sam- félagsins, hafa orðið fyrir barðinu á henni. I þeim efnum hefur m.a. verið horft til þeirrar fornu reglu, að hjón hafi gagnkvæma framfærsluskyldu. Hún á ekki lengur við eftir dóminn, þegar um skerðingu er að ræða vegna tekjutengingar. Dómur Hæstaréttar felur í sér, að skerðing vegna tekjutengingar megi ekki eiga sér stað án tillits til stjórn- arskrárbundinna ákvæða um jafn- ræði, lágmarksréttindi til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnu- leysis, örbirgðar og sambærilegra at- vika og án tillits til mannréttinda- kafla stjórnarskrárinnar og ákvæða alþjóðlegramannréttindasáttmála. VINNSLA GAGNAGRUNNS AÐ HEFJAST NÍU heilbrigðisstofnanir undirrit- uðu á Akureyri í fyrradag samn- inga við Islenzka erfðagreiningu hf. um söfnun og skráningu upplýsinga í miðlægan gagnagrunn á heilbrigðis- sviði og samningar við fleiri heil- brigðisstofnanir eru í burðarliðnum. Jafnframt voru undirritaðir samning- ar ÍE og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri um kostun ÍE á innrétting- um og að endingu stofnuðu ÍE og Há- skólinn á Akureyri upplýsingatækni- braut við skólann. Undirritunin fór fram tveimur ár- um eftir samþykkt laga um gagna- grunn á heilbrigðissviði. Heilbrigðis- stofnanirnar níu, sem áttu aðild að samningnum, voru: Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri, St. Jósefsspítali í Hafnarfirði og heilbrigðisstofnanirn- ar í Vestmannaeyjum, Hólmavík, Siglufirði, Hvammstanga, Húsavík, Keflavík og á Akranesi, og við und- irritunina upplýsti Kári Stefánsson, að á næstunni kæmi að undirritun við Landspítalann - háskólasjúkrahús. Þetta samstarf íslenzkrar erfða- greiningar við alla þessa aðila mun skapa tugi nýrra starfa út um allt land, hátæknistörf, sem verða vel launuð. Kári Stefánsson sagði: „Þetta eru umfangsmikil þróunarverkefni, sem flytjast munu út á landsbyggðina, þarna skapast spennandi möguleikar til að búa til eitthvað nýtt í heilbrigð- iskerfinu." Ingibjörg Pálmadóttir sagði við undirritun samninganna, að sjúkra- stofnanirnar yrðu sterkari eftir en áð- ur. Samningurinn væri mikilvægur fyrir íslenzka heilbrigðisþjónustu og Islendingar gætu horft með tilhlökk- un til nýrrar aldar. Kristján Þór Júlí- usson, bæjarstjóri á Akureyri, sagði: „Með þessu býðst ungu fólki, sem er að koma úr námi, annar valkostur en að setjast að á höfuðborgarsvæðinu og er það vel.“ Éins og af framansögðu má sjá eru miklar vonir bundnar við þennan mið- læga gagnagrunn á heilbrigðissviði, sem mun, sé rétt á haldið, veita ungu menntuðu fólki mun meiri atvinnu- möguleika en það áður hafði og von- andi á þetta framtak einnig eftir að blása vindi í segl vísindarannsókna á íslandi, bæði íslendingum sem öðrum til góða. Ovissa ríkir um hve víðtækar afleiðingar dómur Hæstaréttar í máli Oryrkjabandalagsins hefur Forsætisráðherra telur dóminn vekja undrun lögfræðinga Morgungblaðið/Sverrir Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður ræðir við félagsmenn í Öryrkjabandalaginu í dómssal, Reikna skatta og bætur út frá tekjum hjóna eða einstaklinga V ekur spurningar um úrskurðarvald dómstóla DAVÍÐ Oddsson forsætis- ráðherra telur að sá hluti dóms Hæstaréttar, þar sem segir að skerðingarákvæði tekjutengingar við maka öryrkja samræmist ekki jafnræðisreglu stjómarskrárinnar, sé frekar til- vísun í pólitískar hugmyndir en lögfræðileg rök. Sú niðurstaða hljóti að vekja undrun lögfræð- inga. Davíð segir dóminn í heild afar athyglisverðan. í samtali við Morgunblaðið segir Davíð að varðandi fyrri hluta dómsins, um að tenging tekju- tryggingar öryrkja við tekjur maka hafi ekld haft nægjanlega lagastoð á árunum 1994-1998, sé ekki ástæða til að gagnrýna þá niðurstöðu. Hún sé í samræmi við viðteknar kenningar sem leiddar séu af svonefndri lögmætisreglu, þegar skýrar lagaheimildir þurfi til að skerða lögbundin réttindi. „Síðari hluti dómsins getur hins vegar vakið margar spurningar um valdheimildir löggjafans ann- ars vegar og úrskurðarvald dóm- stóla hins vegar. í þessum hluta eru jafnræðisregla 65. greinar stjórnarskrár- innar og fjölþjóðlegir samningar notaðir til að víkja af þeirri leið sem löggjafinn hefur valið. Hvað milliríkjasamn- ingana varðar er einkar athyglisvert að þeir skuli vera notaðir með þessum hætti. Þeir eru ekki not- aðir til skýringa á lögum eða til að fylla inn í lagalegt tómarúm, eins og viðtekin venja hefur verið hér, heldur eru þessir samningar bein- línis notaðir til að víkja frá lögum sem Alþingi hefur sett. Það sem meira er að engin ákvæði finnast í þessum samningum sem hægt er að nota til að rökstyðja þessa nið- urstöðu,“ segir Davíð. Dómarar á bólakafi í skylmingum stjórnmálanna Forsætisráðherra segir það sömuleiðis athyglisvert að jafn- ræðisregla stjórnarskrárinnar Davíð Oddsson skuli vera notuð til að mæla borgurum önnur réttindi en löggjafinn hafði gert. Við það vakni sú spuming hvort virki- lega hafi verið verið ætlun stjórnarskrárgjafans að færa lagasetningar og fjárstjómarvakl frá lýð- ræðislega kjömum fulltrúum á Alþingi ti! dómstóla. „Hafi það verið ætlunin hafa þarna átt sér stað grundvallar- breytingar á valdahlutföllum milli Alþingis og dómstóla þar sem dómarar, sem ekki era lýðræð- islega kjörnir, era komnir með ígildi lagasetningar og fjárstjórn- arvalds á ákveðnu sviði og þar með sokknir á bólakaf í hinar hefðbundnu skylmingar stjómmál- anna. Það er einmitt það sem mér finnst hafa gerst í þessu máli,“ segir Davíð. Hann segir ríkis- stjórnina þurfa að skoða málið en heilbrigðisráðherra hefur farið fram á ríkisstjórnarfund í dag. Stjórnarandstaðan um dóm Hæstaréttar í máli Öryrkj abandalagsins Regn Tryggingastofnun Sigur fyrir öryrkja og réttlæti í landinu Engin regla gildir um það í íslenskum lögum hvort leggja skuli skatta eða greiða bætur á grundvelli fjöl- skyldutekna eða á grundvelli tekna einstaklinga. Egill Ólafsson fjallar um afleiðingar dóms Hæsta- réttar í máli Öryrkjabandalagsins en í lok hans er bent á ákvæði laga um fyrningu SAMKVÆMT íslenskri löggjöf era lagðir á skattar og bætur greiddar ýmist á grandvelli fjölskyldutekna eða á grandvelli tekna einstaklinga. Dómur Hæstaréttar í máli Öryrkjabandalags- ins gæti orðið til þess að knýja löggjafarvaldið til að taka ákvörðun um það hvora leiðina eigi að fara. Bæði samtök aldraðra og námsmanna telja að dómurinn hafi fordæmisgildi íyrir skjólstæðinga þeirra og viija að lán og bætur til þeirra verði reiknaðar á grandvelli tekna ein- staklinga en ekki á grundvelli fjölskyldutekna. Rannveig Sigurðardóttir, hagfræðingur ASÍ, segir að það hafi aldrei verið tekin pólitísk ákvörðun um það á íslandi hvort leggja eigi á skatta og greiða fólki bætur á grandvelli fjöl- skyldutekna eða tekna einstaklinga. Á sumum sviðum væri því miðað við fjölskyldutekjur meðan á öðram sviðum væri miðað við tekjur einstaklinga. Hún sagði þetta valda ýmiss kon- ar ósamræmi í greiðslum og skattlagningu. Víða í lögum er að finna ákvæði þar sem seg- ir að leggja skuli til grandvallar sameiginlegar tekjur hjóna. Þetta á m.a. við um skattalög. Þannig er persónuafslátturinn millifæranlegur milli hjóna og mörkuð hefur verið sú stefna að hann verði millifæranlegur að fullu árið 2002. Hátekjuskatturinn er millifæranlegur að fullu í dag. Vaxtabætur og bamabætur era reiknaðar á grundvelli fjölskyldutekna, en ekki tekna hvers einstaklings fyrir sig. í lögum um félags- lega aðstoð er einnig miðað við fjölskyldu- tekjur. I dómi Hæstaréttar er hins vegar bent á að tekjur maka skipti ekki máli við greiðslu slysa- trygginga, sjúkratrygginga, atvinnuleysisbóta og fæðingarstyrks. Námsmenn og aldraðir telja á sér brotið í reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna er ekki eingöngu horft á tekjur námsmannsins heldur eru fjölskyldutekjur lagðar til grand- vallar ákvörðun um lán. Stúdentaráð hefur sent frá sér ályktun vegna dóms Hæstaréttar. „í Ijósi niðurstöðu Hæstaréttar í máli Trygg- ingastofnunar ríkisins gegn Öryrkjabandalagi íslands vill stjórn Stúdentaráðs benda á þá tekjutengingu við maka sem viðgengst í náms- lánakerfinu. Stúdentaráð hefur lengi gagnrýnt tekjutenginguna og bent á að hún kunni að stangast á við 65. gr. stjórnarskrárinnar. Stjóm Stúdentaráðs telur niðurstöðu Hæsta- réttar í dag hafa fordæmisgildi varðandi náms- lánakerfið. Stjómin hefur falið Réttindaskrif- stofu stúdenta að láta reyna á málið hjá stjórn LÍN. Verði úrskurður stjómar LÍN neikvæður verður málið kært til málskotsnefndar LÍN.“ Eiríkur Jónsson, formaður Stúdentaráðs, sagði að stúdentar hefðu ítrekað bent á þetta og óskað eftir breytingu á lánareglum. Ekki hefði verið tekið tilUt til þess enn. Hann sagðist telja augljóst að gera yrði breytingu á regl- unum enda væri verið að brjóta stjórnar- skrárbundinn rétt á stúdentum með sama hætti og Hæstiréttur hefði dæmt í máli ör- yrkja. Sömu reglur gilda um tengingu bóta við tekjur maka aldraðra og um tekjur maka ör- yrkja. Það má því draga þá ályktun að dóm- urinn þýði að stjórnvöld verði að breyta regl- unum jafnt gagnvart öldraðum sem öryrkjum. Ragnar Aðalsteinsson hæstarétt- arlögmaður telur líklegt að svo sé. Hann sagðist í þessu máli fyrst og fremst hafa ein- beitt sér að stöðu öryrkja, en vissulega hefði hann gert sér grein fyrir að ef málið ynnist kynni það að hafa áhrif á fleiri. Benedikt Davíðsson, formaður Landssam- taka eldri borgara, sagðist telja að dómurinn snerti aldraða með sama hætti og öryrkja. Hann sagði að samtök aldraðra hefðu oft rætt þetta mál við stjórnvöld og óskað eftir að þessari tengingu bóta ellilífeyrisþega við tekjur maka yrði breytt. Benedikt sagði að lögíræðingur landssambandsins myndi fara yfirþettamál. Aðalreglan að miða skuli við tekjur einstaklingsins, segir Hæstiréttur Eins og áður segir er ýmist miðað við fjöl- skyldutekjur eða tekjur einstaklings við álagningu skatta og greiðslu bóta. I dómi Hæstaréttar segir hins vegar: „Verður að telja það aðalreglu íslensks réttar að réttur einstaklinga til greiðslna úr opinberam sjóð- um skuli vera án tillits til tekna maka. Er það í samræmi við þá stefnumörkun sem liggur að baki íslenskri löggjöf um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 28/1991, sbr. og 2. mgr. 65. gr. stjómarskrárinnar. í lögum er þó víða tekið tillit til hjúskaparstöðu fólks. Má hér nefna skattalög og ákvæði laga um félagslega aðstoð. Talið hefur verið að ein- staklingur í hjúskap eða sambúð þurfi minna sér til framfærslu en sá sem býr einn. Getur það því átt við málefnaleg rök að styðjast að gera nokkum mun á greiðslum til einstak- linga úr opinberum sjóðum eftir því hvort viðkomandi er í sambúð eða ekki.“ Hæstiréttur telur að almennt eigi að miða við tekjur einstaklinga frekar en fjölskyldu- tekjur og vísar í því sambandi til 65. gr. stjórnarskrárinnar. En tekið er þó fram að leggja megi fjölskyldutekjur til grundvallar ef málefnaleg rök séu færð fyrir því. í þessu sambandi má minna á að þegar málið var flutt í Hæstarétti lagði lögmaður ríkisins höfuð- áherslu á að löggjafinn hefði lagt fram mál- efnaleg rök fyrir gildandi reglum um tekju- tengingu maka. Á þessi rök féllst Hæstiréttur hins vegar ekki. Hæstiréttur benti á ákvæði um fymingu eftir tvö ár Ekki liggur fyrir hvaða áhrif dómur Hæsta- réttar hefur á útgjöld ríkissjóðs. Öryrkjar sem nutu örorkulífeyris frá Tryggingastofn- un vora 8.673 á síðasta ári. Ekki liggja fyrir nýjar tölur um hvað margir fengu skerðingu á tekjutryggingu vegna tekna maka á því ári, en árið 1998 vora þeir 2.335. Á síðasta ári fengu 24.635 ellilífeyri frá Tryggingastofnun, en ekki liggur fyrir hvað margir voru skertir vegna tekna maka. Reglum um tengingu bóta við tekjur maka var breytt í september á þessu ári. Dregið var úr tekjutengingunni og hafði sú breyting áhrif á um 3.500 einstak- linga, 2.000 öryrkja og 1.500 ellilífeyrisþega. Fyrir Hæstarétti krafðist lögmaður ríkis- ins þess í varakröfu að dæmt yrði að krafa Ör- yrkjabandalagsins næði aðeins til tveggja ára og vísaði þar til fyrningarákvæðis laga. Hæstiréttur tók ekki afstöðu til þessarar kröfu frekar en gert var í undirrétti. Hins vegar segir í lok dóms Hæstaréttar: „Samkvæmt 3. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála verður gagnáfrýjandi talinn réttur aðili máls þessa. Einnig hefur hann samkvæmt 2. mgr. sömu greinar lög- varða hagsmuni af því að fá viðurkenningar- dóm um réttmæti skerðingar tekjutrygging- ar. Hins vegar er tekjutrygging háð umsóknum, sem rökstyðja á til dæmis með skattframtölum og skýram upplýsingum um hagi bótaþega, sbr. 18. gr. almannatrygginga- laga. í 48. gr. sömu laga era jafnframt ákvæði sem huga verður að við ákvörðun lífeyris til hvers örorkulífeyrisþega um sig. Af ákvæðum þessum leiðir að af niðurstöðu máls þessa verður ekki dregin ályktun um rétt hvers ein- staks lífeyrisþega, enda er hér samkvæmt kröfugerð gagnáfrýjanda einungis því ráðið til lykta hvort skerðingarákvæði 5. mgr. 17. gr. almannatryggingalaga samrýmist ákvæð- um stjómarskrár.“ í 48. gr. laganna sem Hæstiréttur vísar til segir: „Bætur, aðrar en slysalífeyrir og sjúkradagpeningar, skulu aldrei úrskurðaðar lengra aftur í tímann en tvö ár.“ Hæstiréttur virðist þannig gefa til kynna að ríkinu sé heimilt að beita fymingarákvæðinu og greiða bætur aðeins tvö ár aftur í tímann í stað síðustu sjö ára. Það skiptir að sjálfsögðu miklu máli varðandi útreikning bóta hvort þær verða reiknaðar tvö eða sjö ár aftur í tím- FULLTRÚAR stjórnarand- stöðuflokkanna á Alþingi fagna niðurstöðu Hæsta- réttar í máli Öryrkjabandalagsins gegn Tryggingastofnun og telja hana mikinn sigur fyrir öryrkja og réttlæti í landinu. Um leið gagnrýna þeir stjómvöld og telja að ekki hafi þurft að ganga þetta langt með mál- ið. Formaður Frjálslynda flokksins, Sverrir Hermannsson, vill að ein- hverjir verði dregnir til ábyrgðar í málinu og telur að heilbrigðisráð- herra ætti skilmálalaust að segja af sér. ann. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Öryrkja- bandalagsins, sagði að öryrkjar væra marg- sinnis á síðustu árum búnir að benda á að þessi tenging bóta við tekjur maka fælu í sér lögbrot eins og Hæstiréttur hefði nú staðfest. Það væri því í meira lagi óeðlilegt ef ríkið færi að beita fyrningarákvæði vegna þess að ör- yrkjar hefðu ekki á sínum tíma gert form- legar og skriflegar kröfur um þessar greiðslur. Reglunum hefur tvívegis verið breytt Fyrir liggur að það er gríðarlega mikið og flókið verkefni að reikna bætumar aftur í tím- ann. Hjúskaparstaða fólks getur hafa breyst á þessum tíma. Maki getur hafa fallið frá, fólk getur hafa slitið hjúskap o.s.frv. Það flækir enn málið að á þeim áram sem hér um ræðir hefur reglum um tekjutengingu bóta við tekjur maka tvívegis verið breytt. Síðast var reglunum breytt í september á þessu ári. Þegar sú breyting var gerð sagði Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra að hún teldi að ekki væri hægt að ganga lengra í að draga úr tengingu bóta við tekjur maka án þess að huga þá um leið að stöðu annarra hópa öryrkja og aldraðra. Hún sagðist telja að þessi hópur, þ.e. öryrkjar og ellilífeyrisþegar sem ættu maka á vinnumarkaðinum, væri ekki sá sem hefði það verst efnalega og því væri þörf á að huga að stöðu annarra. Hún lagði áherslu á að gera best við þá sem verst stæðu. Nú er starfandi starfshópur sem falið hefur verið að skoða greiðslur tryggingabóta til aldraðra og öryrkja. Starfshópurinn, sem er undir forystu Ölafs Davíðssonar ráðuneytis- stjóra, var settur á fót í haust í kjölfar mót- mæla aldraðra og öryrkja við setningu Al- þingis. Upphaflega var áformað að hópurinn skilaði áliti fyrir áramót, en nú er rætt um að hann skili áliti í febrúar. Hætt er við að hóp- urinn verði í störfum sínum að taka mið af dómi Hæstaréttar. Áhyggjuefni að Hæstarétt þurfti til að leiðrétta brotið Ásta Ragnheiður Jóhann- esdóttir, þingmaður Samfylking- arinnar, hefur nokkram sinnum lagt fram þing- mál á Alþingi um afnám tekju- tengingarvið maka örorku- og ellilífeyrisþega. Þegar Morg- unblaðið ræddi við hana um dóm Hæsta- réttar sagði hún sínfyrstuvið- brögð vera þau að niðurstaðan væri sigur réttlætisins. Þetta væri einnig sigur fyrir sjónarmið Öryrkja- bandalagsins og Samfylkingarinnar og ástæða væri til að óska öryrkjum til hamingju með niðurstöðuna. „Það er ánægjulegt að Hæsti- réttur skuli hafa komist að þessari niðurstöðu. í raun er það áhyggju- efni að það þurfi hæstaréttardóm til að leiðrétta svpna augljós mann- réttindabrot. Ég hef margoft bent á þetta á Alþingi, ásamt öllum þing- mönnum Samfylkingarinnar. Við höfum einnig lagt til við fjár- lagagerð að afnema regluna sem heimilaði þessa tekjutengingu. Stjórnarmeirihlutinn hefur aldrei verið tilbúinn að samþykkja það. Maður veltir því fyrir sér hvort stjórnvöld átti sig ekki á því undir hvaða alþjóðasamninga og -sátt- mála við höfum gengist. Þessi regla er arfur frá gömlum tíma og löngu úrelt. Hún er frá þeim tíma þegar sjálfsagt þótti að yarpa franifærslu yfir á ættingja á þeim sem gátu ekki séð sér farborða með atvinnu. Það hefði átt að vera búið að afnema regluna fyrir löngu. Augljóslega var verið að bijóta mannréttindi á þess- um hópi fólks,“ sagði Ásta Ragn- heiður. Hún taldi það ólíklegt að stjóm- arflokkarnir gerðu framvarp hennar að sínu. Þeir þyrftu þó að leggja fram sambærilegt mál. Ásta Ragn- heiður benti á að það sama ætti að gilda um aldraða og ellilífeyri þeirra. Dómur Hæstaréttar myndi því hafa víðtæk áhrif. Hún sagðist vita mörg dæmi þess að tekjutenging við maka örorkulífeyrisþega hefði skaðað margar fjölskyldur, komið í veg fyrir hjónabönd og jafnvel valdið skiln- uðum. Ásta Ragnheiður sagði enn- fremur að niðurstaða Hæstaréttar væri sigur fyrir fjölskyldur lífeyr- isþega. Hún vonaðist til að stjórn- völd myndu bregðast skjótt við dómnum og leiðrétta mál lífeyr- isþega sem fyrst, áður en Alþingi kæmi saman að loknu jólaleyfi í lok janúar. Að mörgu leyti tímamótadómur Þuríður Backman á sæti í heil- brigðis- og trygginganefnd Alþingis fyrir hönd Vinstri hreyfingarinnar -græns fram- boðs. Hún sagði við Morgun- blaðið að nið- urstaða Hæsta- réttarímálinu væri ánægjuleg en jafnframt hefði hún komið sér þægilega á óvart. „Þetta hefur verið eitt af mörgum baráttumálum okkar í Vinstri hreyfmgunni, að af- nema eigi tekjutengingu bóta í tryggingakerfinu og að hver og einn verði metinn sem einstaklingur en ekki tengdur við maka. Út frá þeim reglum og lögum sem hafa verið í gildi hefur Tryggingastofnun talið sig getað tekjutengt bæturnar við maka. Samkvæmt því hefði maður talið fyrirfram að Hæstiréttur kæm- ist að annarri niðurstöðu. En órétt- lætið var eftir sem áður viðhaft og þess vegna er ánægjan enn meiri með niðurstöðuna. Dómurinn er í Þuríður Backman raun rýmri en bein lagatúlkun segfri til um. Ég man ekki eftir öðram dómi þar sem ákvæði í stjórn- arskránni vísar veginn. Það er framsækni sem maður hefði viljað sjá í fleiri dómum varðandi jafnrétti og mannréttindi. Þetta er að mörgu leyti tímamótadómur, sérstaklega fyrir þá sem minna mega sín, og umfram það sem margir töldu að næði fram að ganga,“ sagði Þuríður. Hún sagði að lögin hefðu greini- lega verið afgreidd og samþykkt í snarhasti á Alþingi á lokasprett- inum fyrir jólin 1998. Vinnubrögðin væru oft og tíðum forkastanleg þeg- ar lög væra keyrð í gegn með litlum undirbúningi og lítilli yfirvegun. Ráðherra segi af sér Sverrir Hermannsson, formaður Fijálslynda flokksins, velti því upp, þegar viðbragða hans við dómi Hæstaréttarvar leitað, hvort heil- brigðisráðherra ogríkisstjómin öll þyrfti ekki að segja af sér vegna þessa máls. Stjórnvöld hefðu brotið lög á öryrkjum og öldraðum í mörg ár. „Hvemig ætla þeir að taka á slíku framferði? Það er búið að hamast á þessu áram saman og svo kemur þessi nið- urstaða. Svar heilbrigðisráðherra er að hún deili ekki við Hæstarétt. Það er mikil frétt, eða hitt þó held- ur. Ég öfunda ekki þá stjómarherra sem fá slíka rassskellingu eins og í dóminum felst. Ef að þetta væri venjulegt lýðræðisríki, þar sem að framkvæmdavaldið færi ekki sínu fram í öllu eins og því sýndist og þverbryti lög, þá hlyti þetta að . koma harkalega niður. Að minnsta ' kosti hlýtur sá ráðherra sem aðal- ábyrgð ber að segja af sér, alveg sldlmálalaust. Hvenær ætti að draga einhvern til ábyrgðar, ef ekki í þessu falli? Ég átta mig ekki á því,“ sagði Sverrir og vonaðist til að stjórnvöld hlýddu dómi Hæsta- réttar og endurgreiddu öi-yi-kjum það sem oftekið var af þeim. Sverrir Hermannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.