Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
F
FIMMTUDAGUR 21. DESBMBER 2000 r68
_____UMRÆÐAN__
Þjóðarskömm
Allt til jólanna
í Hólagarði ++ +
ÉG SKRIFA þessar
línur fyrst og fremst
sem foreldri framhalds-
skólanemanda.
Ég er líka prestur,
skattborgari, fyrrver-
andi framhaldsskóla-
kennari og ráðgjafi í
áfengis- og Ijölskyldu-
meðferð. Einnig kona,
sem uppgötvaði það í
gærkvöld þegar ég sat
og skrifaði jólakort til
þýskrar vinkonu minn-
ar, sem er kennari, að
ég treysti mér ekki til
að segja henni frá því
ástandi sem hér ríkir,
að ég skammaðist mín fyrir það að í
landinu mínu skuli menntun unga
fólksins okkar svo fótum troðin og lít-
ilsvirt sem raun ber vitni.
Mér fínnst gaman að búa í ná-
grenni við baeði Menntaskólann og
Verkmenntaskólann á Akm’eyri og
rekast daglega á nemendur beggja
skóla.
Þau eru fallegur og líflegur hópur
og setja lit á lífið í hverfinu. Ég sakna
þess að sjá þau ekki lengur á ferli í ná-
grenninu og það er dapurlegt að sjá
byggingar beggja skólanna standa
hljóðar og líflausar. Nemendm-, sem
reyndu fyrstu daga og jafnvel vikur
kennaraverkfallsins að mæta í skól-
ann sinn til að lesa eða hitta félagana
hafa smám saman gefist upp á því og
eru horfnir.
Hvar eru þessir unglingar í dag?
Sumir hafa trúlega fengið einhverja
vinnu. Aðrir, sem búa úti á landi, eru
famir heim og húsnæðið, sem foreldr-
ar þeirra borga leigu fyrír, stendur
tómt. Sumir liggja sofandi heima, eru
búnir að snúa sólarhringnum við.
Aðrir hanga yfir tölvuleikjum eða ein-
hverju öðru sem þeir hafa fundið sér
til dægrastyttingar. Og enn aðrir
hanga á stöðum og í félagsskap sem
getur átt eftir að verða þeim til óbæt-
anlegs tjóns.
Það er gjörsamlega óraunhæft að
ætlast eða vonast til þess, að ung-
menni sem eru að hefja nám í fram-
haldsskóla hafi þann sjálfsaga eða að-
stæður, að þau geti
einbeitt sér að því að
stunda vikum saman
nám án leiðsagnar, dag-
legs aga og félagsskap-
ar. Þau sem voru farin
að sjá hilla undir út-
skrift og ef til vill farin
að leggja drög að fram-
haldsnámi vita að önnin
er ónýt og að það er
borin von að þau út-
skrifist á þessu ári.
Auðvitað hljóta þau að
leggja árar í bát. Sér-
staklega af því að skeyt-
ingarleysi ráðamanna
virðist algjört.
Sú lítilsvirðing sem framhalds-
skólanemendum og kennurum þeirra
hefur verið sýnd nú í fimm vikur sam-
Kennarar
Börnin okkar eiga rétt á
að fá þá menntun, segir
séra Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir, sem þeim
hefur verið lofað.
fleytt hlýtur að grafa undan trú ung-
linganna á að menntun skipti ein-
hverju máli og að þau og þeirra
framtíðaráætlanir skipti einhveiju
máli. Þau heyra að kennai’amir
þeirra eigi ekki skilið að fá þau laun
sem þeir fara fram á og að ríkið spari
svo og svo mikið þessar vikurnar af
því að það þurfi ekki að greiða kenn-
urum laun. Er hægt að gefa ungling-
unum skýrari skilaboð? Bömin okkar
eiga rétt á að fá þá menntun sem
þeim hefur verið lofað.
Bömin okkar eiga það skilið að
hafa góða kennara. Gióður kennari
lætur sig varða heill nemenda sinna.
Hann leggur sig fram við að miðla því
til þeirra sem honum er ætlað að
miðla og býr sig vel undir kennsluna.
Hann þarft stöðugt að afla sér nýrrar
þekkingar og færni í þjóðfélagi sem
Jdna Lísa
Þorsteinsddttir
QIZERBR
Hágæða vogir á góðu verði
Með prentara og án prentara
Fyrir rafhlöðu og 220 V AC
RÖKRÁS EHF.
Kirkjulundi 19, sími 565 9393
Snyrtistofari Guerlain, Óðinsgötu 1, simi 562 3220
Ertu búin(n) að senda jólakortin innanlands?
Ef jóiakortin eiga að berast viðtak-
endum fyrir jól þarf að senda þau
í allra síðasta lagi 21. desember.
breytist hratt og gerir miklar kröfur.
Fordæmis- og uppeldisþáttur starfs-
ins verður sífellt mikilvægai'i, því
áreitið sem glepur unglingana er sí-
vaxandi.
Góður kennari er ánægður kenn-
ari. Það er erfitt að vera ánægður
kennari á íslandi í dag.
Ég hef unnið mikið með unglingum
um dagana. Bæði sem kennari og sem
leiðbeinandi í áfengismeðferð. Nú
sem prestur. Unglingar vilja og þurfa
ákveðinn aga og ramma utan um lífið
sitt. A viðkvæmum uppvaxtar- og
mótunarárum veitir skólinn þetta að-
hald og myndar rammann utan um líf
unglingsins. Skólinn er vinnustaður
hans og miðstöð félagslífsins. Þegar
þessu er kippt burt vikum saman og
óvissan ein ríkir eiga agaleysi og
óregla miklu greiðari aðgang að ung-
hngunum. Sömuleiðis óprúttnir sölu-
menn dauðans. Sumir nemendanna
munu ekki snúa aftur til náms eftir
svo langt verkfall. Að flosna upp úr
skóla hefur miklu oftar en sumir vilja
sjá leitt unglinginn beint á villigötur.
Éngir peningar geta bætt fyrir líf
sem fer í súginn eða hæfileika sem
aldrei munu njóta sín.
Ég kalla eftir röddum foreldra sem
láta sig varða framtíð bamanna
sinna.
Við megum ekki þegja. Þögnina er
hægt að túlka sem samþykki við þá
þögn sem kennarar hafa svo lengi
mætt er þeir vekja máls á réttmætum
kröfum um leiðréttingu og hækkun
launa. Við höfum ekki efni á því að
„spara“ á sviði menntunar eða missa
fleiri góða kennara úr starfi.
Höfundur er prestur í
Akureyrurkirkju, fv. framhalds-
skólakennari ográðgjafi i
fjölskyldu- og áfengismeðferð.
■■Álnabær
Jólakappar og dúkar O 588 5900 | ■ ■
Síðumúla 32 - Reykjavík | Tjarnargötu 17 - Keflavík www.alnabaer.is
Kuld,
Verófrá .
Verð frá
Hlífðarfatnaður “
Mikio urval •
affatnaði
fra Finnunum
i Reima. a
Hugsanlega besti
hlífðarfatnaður
semvölerá.
Nýrn,
Verðfrát
Han:
Verð frá
GíSLlJÓNSSON ehf
Bfldshöföa 14 Slmi: 587 6644
Umboðsmenn:
Brimborg, Akureyri
og Bílasalan Fell á Egilstöðum.